11.03.1964
Sameinað þing: 52. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í D-deild Alþingistíðinda. (2368)

62. mál, hefting sandfoks við Þorlákshöfn

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. þessa. N. sendi málið til umsagnar hreppsnefnd Selvogshrepps, sem mælir eindregið með samþykkt hennar. N. sendi einnig sandgræðslustjóra till. til umsagnar, og sandgræðslustjóri hefur sent mjög ýtarlega umsögn um mál þetta. Með leyfi forseta, vil ég fara með niðurlag umsagnar hans, en það er á þessa leið:

„Ég vil eindregið og legg áherzlu á að fela ríkisstj. að hlutast til um, að auknar verði framkvæmdir til heftingar sandfoks og uppblásturs við Þorlákshöfn, með auknum fjárframlögum til sandgræðslustarfsins í Þorlákshöfn sérstaklega.“

Sandgræðslustjóri minnir einnig á, að þingið hafi ákveðið á fjárlögum sérstakar fjárveitingar til sérstakra framkvæmda, svo sem í Meðallandi í Vestur-Skaftafellssýslu og á Hólssandi í Norður-Þingeyjarsýslu. í grg. með till. þessari benda flm. á, að í Þorlákshöfn sé ört vaxandi byggð og ýmsar stórframkvæmdir þar á döfinni, sem skapist við bætt hafnarskilyrði. Fiskverkun á þessum stað fer vaxandi ár frá ári, bæði frysting, söltun og skreiðarverkun. En fyrir alla þessa starfsemi er sandfokið eða sandurinn hinn mesti skaðvaldur, sem nauðsynlegt er að útrýma. Þeir benda á, að hefting þessa sandfoks sé mjög aðkallandi fyrir starfsemi á þessum vaxandi stað og þess vegna sé þeirra till. fram borin. Á þessar skoðanir hefur allshn. fallizt og mælir því einróma með, að þessi þáltill. verði samþykkt.