11.03.1964
Sameinað þing: 52. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2378)
93. mál, efling skipasmíða
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég skal vera fáorður um þetta mál. Ég tel, að till. sú um eflingu innlendra skipasmíða, sem hér liggur fyrir á þskj. 106, eins og aðrar slíkar till., er fyrr hafa verið fluttar og stundum samþykktar, stefni í rétta átt, og þess vegna hef ég ásamt öðrum meðnm. mínum mælt með samþykkt hennar. Ég tel þó, að málið í heild þurfi að koma undir athugun á breiðara grundvelli. En ég vil aðeins bæta örfáum orðum við það, sem hv. frsm. sagði um þetta mál í umr. hér í dag.
Íslendingar eru þegar orðnir loftferðaþjóð, þeir eru á góðum vegi með að verða siglingaþjóð, og Íslendingar eiga áreiðanlega að stefna að því að verða skipasmíðaþjóð. Skilyrði eru hér þegar fyrir hendi í ríkum mæli til þess, að slík starfsemi megi blómgast hér, þó að þar þurfi að yfirvinna ýmsa erfiðleika. Stöðugur markaður fyrir skip er í landinu sjálfu, hér á landi eru nú mjög vel færir menn í skipasmíði, og hér hafa verið smíðuð fiskiskip úr tré, sem þola, að því er gæði og traustleika varðar, samanburð við fiskiskip, sem smíðuð eru í öðrum löndum, svo að ekki sé meira sagt. Stálskipasmíði er þegar hafin, og járniðnaður er a.m.k. á sumum stöðum, t.d. hér syðra og á Akureyri, e.t.v. einnig á Ísafirði og Austfjörðum kominn á það stig, að þar með hefur skapazt undirstaða undir stálskipasmíði. Og nú hef ég það fyrir satt, að þrjú slík skip séu í smíðum hér syðra. En stálskipin virðast vera það, sem koma skal. Félag ísl. dráttarbrautaeigenda segir í umsögn sinni til n. 29. jan. s.l., að „tími tréskipanna sé að fjara út“, eins og það er orðað, og að hin nýju skip séu og verði byggð úr stáli. Eigi að síður mun Þekkingin á sviði tréskipasmíðanna hér á landi reynast mikilsverð undirstaða, einnig á hinu nýja sviði. Og ég held, að að því beri að stefna og að því verði stefnt á komandi tímum, að Íslendingar smíði ekki aðeins þau fiskiskip, sem þeir þurfa sjálfir að nota, heldur gerist einnig útflytjendur fiskiskipa. Og sú starfsemi að smíða skip fyrir innlendan og síðar erlendan markað er fyllilega eins athyglisverð og ýmislegt annað, sem nú er rætt um að koma á fót, og efla hér á landi í atvinnulífi þjóðarinnar.
Þetta vildi ég aðeins undirstrika. Og ég vil svo aðeins nefna það, en ætla að öðru leyti ekki að lengja þessar umr., Því að hér eru margar till., sem þurfa að komast að, — nefna það, að þegar menn eru að tala um það og margir gera sér tíðrætt um Það um þessar mundir, að mikið hafi verið keypt af nýjum fiskiskipum, stórum fiskiskipum, þá heyrast oft ummæli í þá átt, að skipin, sem flutt hafa verið inn, séu bæði óþarflega mörg og óþarflega stór. En í því sambandi verður að hafa það í huga, að fiskiskipaflotinn verður fyrir miklum áföllum ár hvert. Ég hef séð það nýlega í skýrslum, að hvorki meira né minna en 20 fiskiskip hafi farizt við strendur þessa lands á þessu ári. Þetta skarð verður auðvitað að fylla, og það þarf til þess mikið árlega, auk þess sem skipin ganga úr sér. Ef við flettum skipaskránni, sem árlega er birt í Sjómannaalmanakinu, sjáum við, að fjöldi af þeim skipum, sem á skrá eru, er mjög gömul skip, 20—30—40 ára. Jafnvel hefur verið hér til skamms tíma á skrá skip, sem smíðað var um 1870. Það skip mun nú loks á þessu ári hafa verið tekið út af skránni. Og þessi gömlu skip ganga auðvitað úr sér.
Varðandi stærð skipanna, að nú eru keypt til landsins stærri skip en áður, er það auðvitað ekki gert út í bláinn, heldur vegna þess, að aðstaðan til fiskveiðanna og þó sérstaklega síldveiðanna hefur breytzt stórlega. Áður var síldin hér upp við landið og jafnvel inni á fjörðum. Nú er ekki lengur svo. Nú veiðist meiri hluti síldarinnar, ekki sízt við Norður- og Austurland á sumrin, ekki upp við landið, heldur á hafi úti, og slíkar veiðar er ekki hægt að stunda nema á stórum skipum, allra sízt, þegar líður að hausti og allra veðra er von. Þetta ættu menn að hafa í huga, þegar menn mikla fyrir sér aukningu skipastólsins og láta orð falla um það, sem stundum á sér stað, að of mikið sé gert að því að auka við skipaflotann og stækka skipin.
Ég vildi aðeins nota tækifærið til að segja þetta hér, vegna þess að aths. af þessu tagi eru svo ákaflega algengar um þessar mundir.