21.12.1963
Neðri deild: 39. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (238)
69. mál, Lífeyrissjóður barnakennara
Frsm. (Davíð Ólafsson):
Herra forseti. Frv. á þskj. 74 til l. um lífeyrissjóð barnakennara var lagt fyrir hv. Ed. af hæstv. fjmrh. Eins og segir í grg. og hæstv. fjmrh. gerði enn fremur grein fyrir, þegar málið var lagt fram hér í hv. d., þá miðar þetta frv. að því að samræma reglur þessa lífeyrissjóðs þeim reglum, sem gilda um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, en lög þessara tveggja sjóða hafa verið samhljóða, frá því að þeir voru stofnaðir, eftir því sem við hefur getað átt. Þessu samræmi er haldið samkv. þessu frv. En eins og hv. þm. er kunnugt, var gerð breyting á l. um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins á síðasta Alþingi. Um efni þessa frv. skal því ekki fjölyrt hér, þar sem fyrir því hefur verið gerð grein áður.
Nál. á þskj. 189 frá fjhn., sem hér liggur fyrir, er því miður nokkuð síðbúið, og vil ég mega biðja hv. þdm. velvirðingar á því, en efni málsins er, að brýn nauðsyn er á því, að frv. verði að lögum fyrir lok þessa árs, svo að það megi koma til framkvæmda með upphafi næsta árs. Ég færi samnm. mínum í fjhn. þakkir fyrir, hversu vel þeir brugðust við að afgreiða málið, þótt komið væri fram á tólftu stund, en eins og segir í nál., þá mælir n. einróma með, að frv. verði samþ. óbreytt.
Þá vil ég leyfa mér að vona, að frv. fái nú skjóta og góða afgreiðslu hér í hv. deild.