11.03.1964
Sameinað þing: 52. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (2398)
94. mál, iðnrekstur í kauptúnum og kaupstöðum
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Ég stend upp til að leiðrétta nokkurn misskilning, sem fram kom í ræðum hv. 2. þm. Norðurl. v. og hv. 3. þm. Vesturl. Það er hreinn misskilningur, að ég telji það nokkurn ljóð á þeirri þáltill., sem hér er til umr., að hún sé bundin við allt landið. Ef menn hafa skilið orð mín svo, þá er það algerlega rangt. Ég er algerlega samþykkur því, að þessi till. verði samþykkt. Ég stóð hér aðeins upp til þess að bera upp þá bón, að till. mín varðandi Norðurlandskjördæmi vestra fengi jafnhlýlegar viðtökur og skjóta afgreiðslu og þessi till. hefur fengið. Ég taldi, þegar ég flutti mína þáltill., og tel enn þá, að alveg sérstakar ráðstafanir séu nauðsynlegar og það tafarlaust varðandi málefni Þessa margnefnda kjördæmis, Norðurl. v.,, þar sem óvenjulegt ástand ríkir í heilum landshluta, sem ekki þolir bið, ekki þolir neina bið. Niðurstaða mín var sem sagt og er enn þá sú, að ég tel það fagnaðarefni, ef hægt er að fá afgreiddar báðar þessar till., í fyrsta lagi, að skipuð verði nefnd til þess að athuga um að koma upp iðnaði í kaupstöðum og kauptúnum víða úti um landið og þá væntanlega gert ráð fyrir því, að sú nefnd fái alldrjúgan tíma, úr því að ekkert tímatakmark er í till., til þess að finna ákjósanlega lausn á vandamáli hverrar byggðar fyrir sig og að sú n. hafi með höndum landið allt, en á hinn bóginn verði núna tafarlaust samþ. að kjósa nefnd til þess að reyna í sumar — og ég vil undirstrika það — strax í sumar eða með haustinu að finna og benda á lausnir varðandi vandamál Norðurl. vestra.