04.12.1963
Sameinað þing: 24. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í D-deild Alþingistíðinda. (2445)

53. mál, umferðarmál í Kópavogi og Garðahreppi

Flm. (Matthías A. Mathiesen):

Herra forseti. Ég hef leyft mér, ásamt tveimur hv. þm., 1. landsk. þm. (SI) og 7. landsk. þm. (SvJ), að flytja á þskj. 54 till. til þál. um staðsetningu og lagningu tvöfaldrar akbrautar milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Tillagan er þannig:

Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að láta, svo fljótt sem auðið er, hefjast handa um undirbúning að staðsetningu og lagningu tvöfaldrar akbrautar frá Reykjavík um Kópavog og Garðahrepp til Hafnarfjarðar.“

Þessi till. var flutt á síðasta þingi, en var þá ekki útrædd og ekki afgreidd. Henni fylgdi sú greinargerð, sem einnig fylgir þessari till., og ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um till. hér. í greinargerðinni kemur það skýrt fram, hversu rík ástæða er til þess, að þær framkvæmdir, sem hér er farið fram á að Alþ. álykti um, verði gerðar.

Ég legg til, að umr. verði frestað og málinu verði vísað til hv. fjvn.