29.04.1964
Sameinað þing: 70. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í D-deild Alþingistíðinda. (2462)

121. mál, fiskiðnskóli

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál, á þskj. 207 um fiskiðnskóla. Nm. hafa orðið sammála um afgreiðslu málsins og leggja til, að till. verði samþ. Það skal tekið fram, að einn nm., hv. 5. landsk. Þm., var fjarverandi, Þegar málið var afgreitt frá n. Með orðalagi n. hljóðar till. svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að skipa nefnd, í samráði við fiskmat ríkisins, fiskmatsráð og önnur samtök fiskiðnaðarins, til þess að gera fyrir næsta reglulegt Alþingi till. um stofnun og starfstilhögun almenns fiskiðnskóla í landinu. Skal nefndin m.a. kynna sér eftir föngum skipan fræðslumála fiskiðnaðarins í landinu.“

Hér er um lítils háttar breytingu að ræða frá till. á þskj. 207. Nú er gert ráð fyrir, að í till. verði ótiltekið, hve fjölmenn sú nefnd verði, sem skipuð verði af ríkisstj., en að öðru leyti er í raun og veru um orðabreytingar að ræða.

Það er vissulega svo, að Íslendingar eiga mikið undir því, að úr hinum mikla sjávarafla, sem kemur hér á land ár hvert, sé hægt að vinna sem bezta og verðmætasta vöru. Fiskurinn, sem hér kemur á land, er að mestu leyti veiddur á miðum umhverfis landið og gott hráefni til vinnslu. Að því leyti standa Íslendingar ýmsum öðrum fiskframleiðsluþjóðum betur að vígi. En það eitt nægir ekki. Það er sem sé að miklu leyti undir fiskiðnaðinum komið, hvernig aflinn nýtist, hvernig vörugæðin reynast, þegar á markaðinn kemur, og hver framleiðslukostnaðurinn verður. Í því sambandi veltur mjög mikið á tækniútbúnaði fiskiðnaðarfyrirtækjanna, en vélar og tæki koma þó ekki að fullu gagni, nema nægileg kunnátta, æfing í starfi og vinnuhagræðing sé einnig til staðar.

Ég vil árétta það, sem stendur í nál. á þskj. 450, að nú, þegar ríkissjóður ver á einu ári rúmlega 400 millj. kr. til skólamála, virðist ekki óeðlilegt, að gerð verði gangskör að því að sjá þeim mönnum fyrir starfsmenntun, sem eiga að inna af hendi það mikilsverða hlutverk að bera ábyrgð á miklum hluta þeirrar framleiðslu, sem utanríkisviðskipti þjóðarinnar byggjast á.

N. hefur við athugun þessa máls kynnt sér viðhorf helztu samtaka í fiskiðnaðinum og annarra aðila. sem þar koma einkum við sögu, og haft undir höndum álitsgerðir frá þeim. Fiskmatsstjórinn segir m.a. í álitsgerð sinni, að hraði undanfarinna ára í framþróun og fjölbreytni á gæðum og framleiðslu sjávarafurða krefjist meiri og samræmdari þekkingar um mat hinnar margþættu framleiðslu og nauðsynleg framþróun þessara mála hljóti að verða fastur skóli fyrir fiskverkunarmenn við undirbúning að slíkum lífsstörfum. — Fiskmatsráð segir, að mikil þörf sé fyrir aukna fræðslu, sem miðuð sé við þarfir matsmanna og verkstjórnarmanna í fiskiðnaðinum, enda mikill hörgull á sérhæfðum mönnum í flestum greinum Þessa undirstöðuatvinnuvegar. — Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna segir í sínu áliti, að skortur á hæfu fólki til verkstjórnar og ýmiss konar leiðbeiningastarfa hái frystihúsrekstri mjög mikið og stofnun fiskiðnskóla mundi, ef vel tækist til, geta haft mikla þýðingu fyrir fiskiðnað landsmanna. Í sama streng tekur sjávarafurðadeild Sambands ísl. samvinnufélaga og bendir á það í sínu áliti, að rétt sé að leita upplýsinga um starfsemi tiltekins fiskiðnskóla erlendis, þ.e.a.s. skóla, sem rekinn er í Vardö í Noregi. Að þeim skóla er vikið í grg. þessarar till. og skýrt nokkuð frá starfsháttum hans, en þar kemur m.a. fram, að skólinn hefur fiskiðjuver til umráða. — Sölusamband ísl. fiskframleiðenda, sem hefur með höndum sölu saltfisks, segir, að framleiðsla gæðavöru verði bezt tryggð með aukinni þekkingu þeirra manna, sem hafa umsjón með framleiðslunni, og með leiðbeiningastarfsemi kunnáttumanna í hverri grein, og að nauðsyn beri til að stofna fiskiðnskóla hér til að búa menn undir fiskmatsstörf, verkstjórn og leiðbeiningastarfsemi í fiskiðnaði og fiskvinnslu. Svipað álit hefur komið fram hjá Samlagi skreiðarframleiðenda og raunar fleiri aðilum.

Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en endurtek það, sem ég hef áður sagt, að allshn. leggur til, að till. verði samþ.