29.04.1964
Sameinað þing: 70. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (2477)

177. mál, unglingafræðsla utan kaupstaða

Frsm. (Gísli Guðmundason):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál. á þskj. 335 um endurskoðun á reglum um unglingafræðslu utan kaupstaða. Efni þessarar till. er það að fela ríkisstj. að gefa út nýja reglugerð um unglingafræðslu utan kaupstaða, og nefnd nokkur atriði, sem í till. er gert ráð fyrir, að þessi reglugerð fjalli um.

Í fyrsta lagi, að aðstoð vegna ólögboðinnar unglingafræðslu utan kaupstaða verði aukin þannig, að kennarar við hana njóti svipaðra launakjara og við hliðstæða skóla í kaupstöðum, enda sé lágmarkstala nemenda ákveðin.

Í öðru lagi, að ákveðið verði um skiptingu kostnaðar við milliferðir, húsnæði o.fl. milli nemenda, sveitarfélaga og ríkissjóðs.

Og í þriðja lagi, að settar verði reglur um námsgreinar og próf, sem tryggi það, að unglingafræðslan í heimangönguskólunum sé hliðstæð og í tveim fyrri bekkjum gagnfræðaskóla og miðskóla.

Till. gerir sem sé ekki ráð fyrir lagabreytingu, heldur reglugerðarbreytingu á grundvelli gildandi laga um þessi mál.

N. hefur sent frv. til umsagnar fræðslumálastjóra, og er umsögn hans um till. dagsett 8. apríl s.l. Fræðslumálastjóri segir í þessari umsögn m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Um nokkurra ára skeið hefur verið 200 bús. kr. fjárveiting til unglingafræðslu í þeim skólahverfum, par sem fræðsluskyldu lýkur við 14 ára aldur. Venjulega hafa verið starfandi 10—12 unglingaskólar, sem hafa hlotið styrk þennan. Meiri hluti skólanna hefur starfað í beinu sambandi við barnaskóla viðkomandi staða, en nokkrir hafa verið einkaskólar, svo sem skólar, sem fáeinir prestar hafa haft á heimilum sínum.“

Síðan segir svo í umsögn fræðslumálastjóra: „Aðsókn að héraðsskólum landsins hefur verið mjög mikil á síðustu árum, og hafa þeir orðið að synja mörgum nemendum um skólavist. Augljóst er því, að mikil þörf er á að bæta aðstöðu til unglingafræðslu í ýmsum byggðariögum landsins.“

En niðurstaðan er sú, að fræðslumálastjóri mælir með samþykkt þáltill. á þskj. 335.

Að þessari umsögn athugaðri og eftir að hafa rætt málið mælir allshn. með því , að till. verði samþ.