08.05.1964
Sameinað þing: 74. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í D-deild Alþingistíðinda. (2521)

211. mál, vegáætlun 1964

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Það hefur borið nokkuð á góma í umr. Þeim, sem þegar hafa farið fram, að ekki er gerð grein fyrir því í þessari vegáætlun, sem á að vinna á þessu ári fyrir lánsfé, en hv. fjvn: menn hafa, að því er virðist, sætt sig sæmilega við það að þessu sinni og telja, að úr þessu verði að bæta næst. Ég mundi ekki í þeirra sporum hafa sætt mig við það, því að það er ómögulegt að lesa svo 10. og 11. gr. vegal., að ekki sé sýnilegt, að hér er verið að brjóta þær með því að taka ekki fram í vegáætlun, að hvaða vegum á að vinna fyrir lánsfé á þessu ári. Ef hægt er að láta þetta undir höfuð leggjast í þetta sinn, hvers vegna er þá ekki hægt að gera það áfram? Ég hef ekki heyrt neinn draga það í efa, að 10. og 11. gr. vegal. mæla skýrum stöfum fyrir um það, að allt fé til nýbyggingar vega skuli tekið inn í vegáætlun, framkvæmd hvers vegar, ekki aðeins hvert ár fyrir sig, heldur líka allt tímabilið, sem áætlunin á að gilda fyrir, og þessi áætlun á ekki að gilda nema fyrir þetta eina ár. Til gangurinn með því að setja þessi ákvæði svo skýr inn í vegal. í vetur var auðvitað sá, að Alþingi hafi fullt vald á því, að hvaða nýbyggingum vega skuli unnið hvert ár fyrir sig og hvernig fjár til vega skuli aflað. En ef þessu á að halda áfram, að ríkisstj. geti tekið lán og varið því í einhverja vegi, sem henni líkar, þá hefur Alþingi ekki lengur það vald, sem það á að hafa í þessum málum samkv. hinum nýju vegalögum.

Annars var erindi mitt í ræðustólinn aðeins það að minnast nokkuð á Vestfirði í sambandi við þessa vegáætlun og gera grein fyrir brtt., sem ég hef leyft mér að flytja ásamt hv. 1. þm. Vestf. og hv. 5. þm. Vestf. Ég ætla, að það sé búið að útbýta till. núna og hún liggi fyrir hjá hv. þm. Hún er á þskj. 621.

Vestfirði hefur oft borið á góma hér á Alþingi á undanförnum árum og samgöngumálin þar og það ekki alveg að ástæðulausu. En sjaldan held ég, að hafi verið meiri ástæða til að minnast á Vestfirði en í sambandi við þær till, hv. fjvn., sem núna liggja fyrir. Þegar lagður var hinn þungi skattur á alla umferð með vegal. í vetur, urðu menn sannarlega bjartsýnir, þeir sem lengi höfðu búið við lélega vegi eða kannske enga vegi, eins og fjölmargir Vestfirðingar búa við enn. En það lækkaði á mönnum brúnin, Þegar þeir sáu, úr hverju var að spila, og enn þá meir þó, þegar það kom í ljós, hvernig átti að skipta þessu, sem úr var að spila. Það hefur verið svo undanfarin ár, allmörg að ég ætla, og það einnig á s.l. ári, að Vestfjörðum hefur verið úthlutað um 191/2% af nýbyggingarfé því, sem hefur verið á fjárl. hvert ár fyrir sig. Og þetta eru engin ósköp, þegar litið er á ástand veganna þar, hvernig það er. En líti menn á till. hv. fjvn. núna, eiga það ekki að vera 191/2%, sem Vestfirðingar eiga að fá í vegamálin sín. Nei, nú á að lækka hlutfallið, ekki um 0.4%, eins og hv. 1. þm. Austf. var að kvarta undan fyrir þá, heldur á að lækka það úr 191/2 niður í 14.4%. Það á að lækka hlut Vestfirðinga í nýbyggingarfénu um 26%. Þetta eru till., sem liggja núna fyrir. Og Þegar ég segi þetta, miða ég við þá heildarupphæð til nýbyggingar vega, sem er í þessari vegáætlun. Nú er nýbyggingarféð samtals miklu meira en þetta, þegar með er talið lánsfé, því að það er ekki þarna inni í, og ég tala nú ekki um, hver útkoman yrði, ef hlutur Vestfirðinga verður reiknaður út úr öllu nýbyggingarfénu, ef lánsféð væri tekið með líka. Samt er hlutfallið svona. Ég get ekki varizt því, að það virðist vera að hefjast ný stefna í vegamálum eða fjárveitingum til vega, kannske ekki með þessum nýju vegal., heldur fyrr, en núna á allra síðustu árunum. Það hafa verið heimilaðar lántökur og það allríflegar til byggingar einstakra vega, sérstaklega Reykjanesbrautar. Það er búið að samþykkja á fjárl. fyrir 1963, að mig minnir, 70 millj. til þessa vegar og á fjárl. 1964, að ég ætla, andvirði 300 þús. dollara til viðbótar við 70 millj. Ekki er ég að finna að þessu, það er nauðsynlegt að leggja þennan steypta veg. Síðan er framkvæmd sú stórkostlega breyting með vegal. í vetur, að kaupstöðum og kauptúnum er ætlaður tekjustofn til vegagerðar hjá sér, sem nemur á þessu ári um 30 millj. Þeir hafa ekkert af þessu fengið áður. Einnig þetta var mjög sanngjörn og réttlát ráðstöfun. En Þegar maður fer svo að líta á dreifbýlið, hvernig hlutur þess er, versnar sagan. Þá er rausnin ekki alveg eins mikil.

Við höfum, hv. 1. Þm. Vestf. og ég, flutt frv. hér á Alþingi, ég ætla í 5 ár i röð, um heimild fyrir ríkisstj. til þess að taka lán til vegabóta á Vestfjörðum, og stundum a.m.k. hafa Austfjarðaþm. sumir verið með okkur í að flytja sameiginlega till. um lántöku handa Austurlandi. Hvernig hefur verið tekið undir kröfur þessara landshluta um vegabætur móts við aðra? Hvernig var tekið undir þetta í þéttbýlinu? Á hverju einasta ári var málið svæft eða drepið af stjórnarliðinu, — hverju einasta ári. Og síðast í vetur flytjum við brtt. við fjári., hv. 1. þm. Vestf., hv. 5. þm. Vestf. og ég, um að taka allt að 10 millj. kr. lán til vegabóta á Vestfjörðum, og í öðru lagi að verja úr ríkissjóði allt að 10 millj. kr. til þess að koma í veg fyrir fólksflótta og eyðingu byggða á Vestfjörðum. Hvaða undirtektir fékk þetta? Mér liggur við að spyrja hv. 2. þm. Vestf., sem var að tala hér áðan og var að kvarta undan því, hver hlutur Vestfjarða hefði orðið: Man hann nokkuð eftir því, hverjir greiddu atkv. með þessum till. okkar í vetur og hverjir á móti? Hún var drepin, vegatill., í vetur. Alveg um sama leyti og við vorum allir sammála um að veita heimildir til lántöku til að koma áfram dýrum og stórum verkefnum í vegagerð, um leið og við vorum að samþykkja löggjöf um að láta alla kaupstaði og kauptún fá milljónatugi til vegagerðar hjá sér, alveg sömu dagana voru þessar till. okkar drepnar og það af sömu mönnunum, sem eru núna að kvarta undan því, hve hlutur Vestfirðinga sé slæmur.

Síðasti þátturinn í þessari baráttu okkar fyrir, hagsmunum Vestfjarða er svo sú brtt., sem við flytjum, hv. 1. þm. Vestf. og 5. þm. Vestf., á þskj. 621. Við leggjum til, að á eftir D-lið komi nýr liður, E-liður, svo hljóðandi:

„Viðbótarframlag úr ríkissjóði til vegabóta á Vestfjörðum, er þm. Vestfjarðakjördæmis skipta til þjóðbrauta og landsbrauta í samráði við vegamálastjóra, 3.8 millj. kr.“

Þetta þykir kannske stór till. Hún verður samt ekki ýkjastór, þegar hún er borin saman við Reykjanesbraut eða eitthvað þess háttar. En hún er svona stór af því, að þetta er nákvæmlega það, sem vantar upp á, að Vestfirðir eigi að fá í vegáætluninni sama hlutfall til nýbyggingar vega og þeir höfðu í fyrra. Það er ekki hærra sett markið. Ef Vestfirðir eiga að fá 191/2% af nýbyggingarfénu á þessu ári, þarf að bæta þessari upphæð við, og við sjáum ekki aðra heppilegri leið til þess en að flytja till. eða heppilegra form en þetta.

Það er búið að neita Vestfirðingum um lán í 5 ár. Það er búið að drepa allar hækkunartill., sem við höfum flutt við afgreiðslu fjárl. undanfarin ár. Nú flytjum við þessa till. Ég geri ekki ráð fyrir, að það verði fundið að forminu, það hafa oft verið fluttar brtt. við útgjöld ríkisins með þál., svo að það er ekki nýtt. Spurningin er: Á að sýna Vestfjörðum þá sanngirni að halda sínum hlut frá því, sem verið hefur, af nýbyggingarfénu, eða á nú að lækka hann um 26%, þegar flestir halda sínum hlut nokkurn veginn, fyrir utan hina, sem fá miklu ríflegri framlög með lánveitingum ríkisins?

Ég tel mig ekki þurfa að vera að rökstyðja nauðsyn Vestfirðinga. Ég vil vísa til ræðu hv. 2. þm. Vestf., sem talaði hér áðan. Það var, held ég, í öllum aðalatriðum rétt, sem hann sagði, þó að hann sleppti því, hvers vegna þetta hefur gengið svona erfiðlega undanfarin ár, en ég get skilið það. Í skýrslu vegamálastjóra í þessari vegáætlun segir, að óbílfærir þjóðvegir, þ.e.a.s. í þjóðbrauta- og landsbrautaflokkum, séu 6241/2 km. Þetta eru vegir, sem eru hvergi nokkurs staðar til nema á pappírnum, hvergi annars staðar til, ekkert farið að hreyfa við að gera neinn veg. Hvað ætli Vestfirðingar eigi mikið í þessari upphæð? Þeir hafa vafalaust reiknað það í fjvn., það efast ég ekki um. Þeir hafa 2261/2 km af þessu. Þeir eiga 36.3%a af öllum ógerðum þjóðvegum í landinu. Það segir einnig í þessari skýrslu vegamálastjóra, að ruddir vegir í landinu, þ.e.a.s. þjóðvegir, séu um 2470 km. Vestfirðir eiga þar ekki nema tæpa 500, svo að það þykir okkur ekki mikið móts við annað. Austurland er miklu hærra með rúma 800, en bæði þessi kjördæmi til samans eiga 53% af ruddu vegunum.

Það má nefna eitt dæmi enn um ástandið á Vestfjörðum. í skýrslu vegamálastjóra stendur, að á landinu öllu séu 48 sveitabæir, sem séu ekki í neinu vegasambandi, einangraðir alveg. Hvað eru margir af þeim á Vestfjörðum? Það er 21, það er hér um bil helmingurinn. Og ég get bætt því við, að þessir bæir, sem ekki hafa neinn veg, hafa ekki heldur rafmagn. Er ekki glæsilegt að búa í sveit, hafa engan veg og ekkert rafmagn, og drepnar allar till. á Alþ. um að ráða bót á þessu? Það er ekki dularfullt, að það skuli vera fólksflótti af Vestfjörðum. Er ekki von, að mönnum detti í hug, að nú þurfi að reyna að leita fyrir sér hjá flóttamannasjóði Evrópu til þess að reyna að stöðva eitthvað þarna fyrir vestan? Kannske flóttamannasjóðurinn komi með peninga í vegi? Það væri betra en að fá kannske flóttamenn til að setja þá þar niður.

Það mæla öll rök með því, að Vestfjörðum verði veittur ríflegri hlutur úr nýbyggingarfénu en áður vegna þess, hve ástandið er þar vont, hversu fólksstraumurinn þaðan er mikill, þrátt fyrir að svo að segja hver einasti vinnandi maður á Vestfjörðum vinnur að framleiðslustörfum og leggur tiltölulega meira til þjóðarbúsins en annars staðar gerist. En við förum ekki einu sinni fram á það. Við förum fram á það eitt, að hlutur Vestfjarða sé bættur frá því, sem er í till. n., að hann verði ekki verri en hann var í fyrra.