08.05.1964
Sameinað þing: 74. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í D-deild Alþingistíðinda. (2537)
211. mál, vegáætlun 1964
Forseti (BF):
Áður en umr. er haldið áfram, vildi ég geta þess í sambandi við brtt. á þskj. 621, að ég hef skýrt hv. flm. frá því, að í því formi, sem brtt, er, er hæpið, að hún fái staðizt samkv. vegal. og einkum 10. og 89. gr. Ég hef hins vegar bent hv. 1. flm. á það, að flm. er í lófa lagið að breyta till. í það form, að hún fái staðizt, og vænti ég, að flm. taki þá ábendingu til athugunar, áður en umr. lýkur.