16.12.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (258)

1. mál, fjárlög 1964

Frsm. 2. minni hl. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Eins og formaður fjvn. lýsti í ræðu sinni, hefur n. haft frv. til fjárlaga til athugunar á mjög mörgum fundum undanfarið. Þótt þrjú nál. komi fram og ágreiningur sé um afgreiðslu frv., er það öðru nær en deilur hafi staðið í n. allan þann tíma, sem málið hefur verið til afgreiðslu þar. Það er ekki fyrr en í lokin, að leiðir skilur milli nefndarhlutanna vegna þess grundvallarágreinings um þjóðmálin, sem fyrir hendi er milli flokkanna. Ég vil við þetta tækifæri flytja samnm. mínum þakkir fyrir ánægjulegt og prýðilegt samstarf og þó sérstaklega formanninum fyrir eindæma lipurð og samstarfsvilja.

N. flytur sameiginlega fjölmargar till. um leiðréttingar og breytingar á frv. Um þær er það að segja, að Alþb. er sammála þeim flestum, en hefði gjarnan viljað, að ríflegri fjárframlög hefðu fengizt til ýmissa nytjamála. Alþb. er óbundið af afstöðu til einstakra till. og brtt. við þær. Sumum till. er ég í rauninni andvígur, en taldi ekki ástæðu til að gera sérstakan ágreining um þær, þar sem áskilinn er réttur til að flytja brtt. við þær eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma. Af þeim till. get ég nefnt t.d. hækkun til sendiráðs í París og hækkun á liðnum „annar kostnaður“ við sakadómaraembættið, sem samkv. brtt. á að nema hvorki meira né minna en 2 millj. 545 þús. kr. eða nærri jafnmiklu og allur kostnaður af embættinu var áætlaður fyrir árið 1961.

Þegar fjárlagafrv. er til afgreiðslu nú, blasa afleiðingar viðreisnarstefnunnar hvarvetna við í ömurlegri mynd. Í stað fasts verðlags, sem átti að vera eitt aðalmarkmið þessarar stefnu í efnahagsmálum, geisar nú stórfelldari verðbólga en þekkzt hefur hér á landi og finnast mundi, þótt víða væri leitað í heiminum, í stað þess, að þessi stefna átti að gera undirstöðuatvinnuvegunum kleift að standa á eigin fótum án styrkja og uppbóta, er hag sjávarútvegsins svo komið, að forráðamenn hans telja, að hann geti ekki af eigin rammleik greitt kaup, sem væri eyri hærra en í dag, og hefur þó 20% lægri kaupmátt en það hafði, þegar núv. hæstv. ríkisstj. tók við völdum. Svo er þrengt að bændum, að fjöldi jarða í búsældarlegustu sveitum landsins leggst í eyði á ári hverju. Þessi stefna hefur á hinn bóginn reynzt fær um að tryggja ýmsum öðrum aðilum, ýmsum milliliðum, svo mikinn gróða, svo stóran hlut af þeim verðmætum, sem launþegar skapa, að þeir hafa naumast haft undan að koma honum fyrir í byggingum, stórhýsum um alla Reykjavík. Þessari stefnu, viðreisnarstefnunni, hefur verið sérstaklega beitt til þess að létta skattabyrðinni af þessum gróðafyrirtækjum, svo að ágóðinn yrði ekki hirtur af þeim aftur, yrði ekki ráðstafað í almannaþarfir. Viðreisnarstefnan hefur gert þeim, sem innangengt eiga í lánastofnanir, kleift að gera húsnæðisskort almennings að gróðalind fyrir sig, enda eru allir þessir aðilar ánægðir með viðreisnarstefnuna og óttast ekkert frekar en það, að snúið verði við af verðbólgubrautinni. En þessi stefna, sem svo vel hefur reynzt gróðaöflunum í landinu, hefur ekki reynzt fær um að tryggja það, að þeir þjóðfélagsþegnar, sem vinna framleiðslustörfin, erfiðustu störfin við verstu aðstæðurnar, geti framfleytt sér og fjölskyldum sínum fyrir laun 8 stunda vinnudags, enda hefur þeirri stefnu aldrei verið ætlað það. Hún er miðuð við hagsmuni annarra aðila í þjóðfélaginu. Félagsmenn verkalýðssamtakanna, þeir þjóðfélagsþegnar, sem færa grundvallaverðmætin í þjóðarbúið, eru nú því orðnir úrkula vonar um, að þessi stefna geti fært þeim annað en áframhaldandi rýrnun lífskjara og aukinn vinnuþrældóm. Þeirra þolinmæði er því þrotin, og meginhlutinn af allri verkalýðsstétt landsins hefur því lagt niður vinnu, ekki til þess að heimta að fá að raka saman gróða, eins og stórfyrirtækin og verðbólgubraskararnir hafa gert undanfarin ár, heldur til þess eins að fá að þokast nær því að geta unnið fyrir brýnustu lífsnauðsynjum með því að vinna 8 klst. á dag allt árið um kring. Jafnvel þótt allar kröfur væru greiddar, dygði 8 klst. vinnudagur ekki að fullu til í öllu dýrtíðarflóðinu. Það eru ekki undur, þótt verkafólkið spyrji: Er ekki eitthvað bogið við þá stjórnarstefnu, sem færir framleiðslustéttunum rýrnandi lífskjör, samtímis því sem þessar stéttir framleiða meira en þær hafa nokkru sinni áður gert?

Ef hér hefði verið óáran, aflabrestur, minnkandi framleiðsla, verðfall á afurðum eða einhverjar gildar ástæður, þá stæði vissulega ekki á launþegum að taka þær til greina. En eins og ég áður gat, er öðru nær en að svo hafi verið, og verkamenn í Reykjavík ganga þess ekki duldir, hvert arðurinn hefur runnið. Þeim hafa nefnilega sjálfum verið greiddar 29 kr. eða sumum meira á tímann við að koma nokkrum hluta hans í lóg í bankahöllum og stórhýsum innflutningsfyrirtækja hér upp með allri Suðurlandsbrautinni og víðar í bænum. Þeir hafa verkamennirnir, fengið að kynnast því, hvert arðurinn af vinnu þeirra hefur farið, þegar vinnuafl þeirra hefur verið notað til þess að koma upp íbúðablokkum. Þeim hefur svo verið boðið að kaupa aftur vinnuafl sitt til baka á margföldu verði, og það hafa þeir margir orðið að gera og verða síðan að þræla enn lengri vinnudag og skapa enn fleiri aðilum gróða af enn fleiri byggingum til þess að geta staðið undir því að búa í þeim húsum, sem þeir hafa sjálfir byggt.

Í eyrum verkafólks hefur jafnan klingt: Hækkað kaup, aukinn kaupmátt er aðeins hægt að veita af aukinni framleiðslu. Allt annað er óraunhæft tal. Bíðið með kröfur ykkar, þar til framleiðslan hefur vaxið. — En nú hafa þeir, sem framleiðslustörfin vinna, lifað það einmitt undir viðreisnarstjórn, að stóraukinn afli og bætt tækni hefur stóraukið framleiðsluverðmætin. Þau síldarsumur, sem menn biðu eftir í hálfan annan áratug, hafa nú komið eitt af öðru, stærri og meiri en þekkzt hefur áður í sögu landsins. Og nú er ekki aðeins talað um síldarsumur, jafnframt mikilli sumarsíldveiði hefur bætzt við nýr framleiðsluþáttur, vetrarsíldveiði sunnanlands sem er alger viðbót við framleiðsluna, eins og hún var fyrir nokkrum árum. Það hefði því átt að vera komið að því, að eitthvað af þessum auknu verðmætum færi að koma til skipta og verkalýðsstéttin hlyti nú viðbót við þann hlut, sem hún hafði fyrir. Það hlaut nú að vera kominn sá tími, að hún hlyti meira raunverulegt kaup fyrir hverja vinnustund en áður var vegna þessarar aukningar á framleiðslunni. Eftir þessu hafði henni verið sagt að hafa. En niðurstaðan varð allt önnur. Eftir að viðreisnarstjórnin hefur nú verið við völd í 4 ár, hefur verkafólk ekki aðeins verið svikið um allan sinn hlut af aukinni þjóðarframleiðslu, sem stóraukinn afli hefur gefið, heldur hafa launin að auki verið rýrð svo, að kaupmáttur tímakaupsins er nú 20% lægri en hann var, þegar viðreisnarstjórnin tók við, en þá hafði verið algert aflaleysi á síldveiðum í samfellt 15 ár. Hver skyldu lífskjörin vera, ef aflaleysi norðanlands hefði haldizt og vetrarsíldveiðin ekki komið til?

Hvernig hefur reynzt unnt að koma í veg fyrir bætt lífskjör almennings undir þessum kringumstæðum? Hvernig hefur verið hægt að koma í veg fyrir, að kjörin séu betri í dag, eftir að þau síldarsumur, sem beðið var eftir, hafa komið á hverju ári? Hvernig hefur verið unnt að koma í veg fyrir, að lífskjör almennings séu betri í dag en eftir hálfs annars áratugs aflaleysi á síldveiðum? Til þess hefur þurft sérstaka stjórnarstefnu, viðreisnarstefnu. Þeir, sem fyrir henni hafa staðið, hafa fyrst og fremst stuðzt við það, sem þeir kalla sjálfir „gengislækkunarleik“. Með stórfelldum gengislækkunum hefur verð á innfluttri vöru verið hækkað gífurlega í íslenzkum krónum. Ofan á þá hækkun hefur verið bætt svo til jafnháu tollaálagi og áður var í prósentum talið og þannig sópað óhemju fjármagni til ríkissjóðs, og síðan til að fullkomna verkið verið bætt við söluskatti á allar neyzluvörur, sem sumar hverjar og þær algengustu í neyzlu almennings eru þannig skattlagðar í fyrsta sinn í sögunni. Með öllu þessu hefur innheimta tolla og skatta til ríkisins verið aukin gífurlega, sem bezt sést á því, að á fjárlfrv. fyrir næsta ár eru þeir ráðgerðir um 1450 millj. kr. hærri en þeir voru á fjárl. 1959, eða sem svarar 8 þús. kr. á hvert mannsbarn í landinu. Svo langt er gengið í skattheimtunni, að seilzt er eftir því að ná inn tekjum langt umfram það, sem ráðstafað er til útgjalda á fjárlögum, og mynda þannig greiðsluafgang til þess að draga með því fé úr umferð. Með þessum aðgerðum viðreisnarstjórnarinnar hefur ekki aðeins verið sópað gífurlegum fjárhæðum frá almenningi í ríkissjóð, með þeim hefur einnig í grundvallaratriðum verið breytt sjálfri tilhöguninni á tekjuöflun ríkisins, þannig að sérstaklega og skipulega hefur verið unnið að því, að þeim, sem njóta þeirrar gróðamyndunar í þjóðfélaginu, sem viðreisnarstjórnin hefur búið í haginn fyrir með stefnu sinni, sé sem mest hlíft við því að greiða af þeim gróða skatta til ríkisins eða af þeim eignum, sem gróðinn myndar. Þess vegna hefur verið minnkaður hlutfallslega sá hluti ríkisteknanna, sem fenginn er með sköttum, sem lagðir eru á stighækkandi eftir tekjum og eignum. Á hinn bóginn hefur hlutfallslega verið aukinn sá hluti ríkisteknanna, sem fenginn er með tollaálagningu, innflutningsgjöldum og söluskatti og er greiddur af öllum almennum neyzluvörum, þannig að stærstu heimilin borga hæstu upphæðirnar. Þessar álögur hafa verið lagðar ofan á það vöruverð, sem endurteknar gengislækkanir hafa stórkostlega hækkað. Þetta eru þær álögur, sem almenningur er að sligast undir. Samkv. fjárlfrv. og brtt. meiri hl. fjvn. við það er tekju- og eignarskattur áætlaður á næsta ári 245 millj. kr., en allur söluskattur, innflutningsgjöld og aðflutningsgjöld samtals um 1930 millj. kr. Ef borið er saman innbyrðis hlutfall milli þeirra skatta, sem lagðir eru á stighækkandi og með hækkuðum tekjum og eignum, og hinna, sem lagðir eru á almennar neyzluvörur, nú og á næsta ári áður en viðreisnarstjórnin kom til valda, kemur í ljós, að fyrir hverja eina krónu, sem 1958 var greidd í tekju- og eignarskatt, námu neyzluskattar 3.50 kr., — en nú hefur sú breyting á orðið, að fyrir hverja krónu, sem áætlað er að á næsta ári verði greidd í tekju- og eignarskatt, munu neyzluskattarnir nema 7.90 kr. Það fer ekkert á milli mála, hverjir hafa notið góðs af þessum breytingum, sem gerðar hafa verið á innheimtuaðferð ríkissjóðs, og hverjir hafa goldið þeirra. Þeir tekjuhæstu, sem greiddu háa tekjuskatta, hafa losnað við miklar upphæðir, sem þeir hefðu að óbreyttu þurft að greiða, en þeir, sem lágar tekjur höfðu, greiddu lítinn sem engan tekjuskatt fyrir og njóta því í litlu eða engu lækkunarinnar á tekjuskattsstiganum.

Ég hef áður í öðru máli sýnt fram á það með raunhæfum tölum beint úr skattskrám, að á sama tíma og tekjuskattar á ákveðnum hópi hátekjumanna voru lækkaðir samtals um 60 þús. kr. á einu ári, lækkaði tekjuskattur á jafnmörgum mönnum með verkamannatekjur um 4000 kr. samtals eða 15 sinnum lægri upphæð.

En er þá e.t.v. á þennan hátt verið að breyta skattakerfinu til samræmis við það, sem gerist í nágrannalöndum okkar? Það er öðru nær en að svo sé. Af hverjum 100 kr., sem Danir greiða í samanlagða tekju-, eignar- og neyzluskatta, eru tekju- og eignarskattarnir 41 kr., en hér á landi 12 kr. Danir virðast þess vegna ekki hafa uppgötvað viðreisnarréttlætið enn þá.

Þannig hefur hinum margvíslegustu aðferðum verið beitt til þess að auka álögur á almenning, jafnframt því sem gróðafélögum hafa verið gefnar sem frjálsastar hendur til gróðamyndunar og þau samtímis losuð sem mest við að þurfa að skila nokkru af þessum gróða til ríkisins. Afleiðingarnar hafa svo verið sívaxandi verðbólga og stöðugt rýrari kaupmáttur tímakaups. Fyrst eftir að þessar ráðstafanir voru gerðar, naut ríkissjóður aðeins góðs af þeim. Hann sópaði til sín tekjum, en það tók að sjálfsögðu nokkurn tíma, að áhrifin bærust til baka og stjórnin stæði við afgreiðslu fjárlaga frammi fyrir því að kljást við þau áhrif, og það var engu líkara en að stjórnarherrarnir héldu, að það kæmi ekki til þess, að þeir þyrftu nokkurn tíma að kljást við afleiðingar stefnu sinnar og aðgerða. Þeir voru furðulega djarfir við að gera enn frekari ráðstafanir, sem hlutu að auka á vöxt verðbólgunnar, svo sem með stórfelldri hækkun vaxta, sem hefur t.d. ofan á allar aðrar hækkanir á byggingarkostnaði hækkað húsnæðiskostnaðinn stórlega og orðið veigamikil ástæða til krafna almennings um launahækkun. Afleiðingarnar af þessari þenslustefnu allri hlutu að sjálfsögðu að koma fram, og hver hækkunin rak aðra í öllu efnahagslífinu. En stjórnarflokkarnir uggðu ekki að sér við afgreiðslu fjárlaga tæpu ári eftir að gengislækkunin mikla var framkvæmd, heldur töldu sjálfum sér trú um, að komið væri á fast verðlag, árleg aukning útgjalda ríkisins væri úr sögunni, og svo furðulegt sem það var, töldu þeir sér trú um, að með beinum verðbólguráðstöfunum hefðu þeir komið í veg fyrir árlega aukningu ríkisútgjalda.

Við afgreiðslu þess fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir, þarf þó enginn að efast um, hvaða afleiðingar þær ráðstafanir, sem viðreisnarstjórnin hefur staðið fyrir, hafa haft á ríkisbúskapinn. Frv., sem mótast af árangri þeirrar stefnu, sem átti að koma í veg fyrir árlega útgjaldaaukningu ríkissjóðs, er 1100 millj. kr. hærra en það fjárlfrv. var, sem verið var að afgreiða, þegar stuðningsmenn ríkisstj. kepptust mest við að lýsa yfir þeim árangri, sem stefnan mundi hafa og kæmi fram á næstu árum í föstu verðlagi og lítilli breytingu á upphæð ríkistekna, þ.e.a.s. sköttum og tollum. Það var helzt að heyra, að það yrði helzt fólksfjölgunin í landinu, 1–2%, sem mundi hreyfa fjárl, til hækkunar. En þessir tollar og skattar munu samkv. brtt. meiri hl. fjvn. verða á þeim fjárl., sem nú er verið að afgreiða, um 960 millj. kr. hærri en á fjárlögum 1961, en það er — um 76% hækkun á þremur árum. Stefna ríkisstj. hefur valdið slíkri óðaverðbólgu, að hækkunin á fjárlögum frá 1962–1963 og frá 1963–1964 er í hvort skiptið fyrir sig meiri en hækkunin var, þegar sjálf höfuðaðgerðin í efnahagsmálum var framkvæmd 1960, með hinni stórfelldu gengislækkun. Hið „normala“ ástand undir viðreisnarstjórn, þegar engar slíkar stóraðgerðir eru gerðar, sem raska öllum upphæðum í þjóðfélaginu, veldur þannig meiri skrúfu, meiri þenslu en jafnvel sjálf grundvallarbreytingin á genginu olli á sínum tíma og öllum þótti nóg um.

Þetta segir sína sögu um það, hve sú verðbólgustefna, sem ríkisstj. hefur rekið, er stóreyðileggjandi fyrir efnahagslífið í landinu. En hún þjónar hins vegar vel þeim tilgangi að færa verðbólgugróðann á hendur skjólstæðinga ríkisstj. í þeim tilgangi er líka til hennar stofnað, og þess vegna vilja þessir skjólstæðingar viðreisnarstjórnarinnar, verðbólgubraskararnir í landinu, fyrir engan mun missa hana. Það er sýnilega ekki heldur ætlun stjórnarflokkanna að gera neinar þær ráðstafanir, sem orðið gætu til þess að draga úr þessari óheillaþróun fyrir alþýðu manna. Skattpíningarstefnunni á að halda miskunnarlaust áfram, og allt er gert, sem unnt er, til þess að sópa sem mestum fjárhæðum í ríkissjóð og seilast eftir óhóflegum greiðsluafgangi, sem fæst samtímis greiðsluhalla við útlönd. Hann á svo að jafna með erlendum lántökum.

Hins vegar er engin viðleitni höfð í frammi til sparnaðar á rokkrum rekstrarútgjöldum. Oftast hefur þess þó verið gætt að sýna a.m.k. í orði, að stjórnarflokkarnir gætu jafnvel hugsað sér, að orðið „sparnaður“ væri til afnota fyrir fleiri en alþýðuheimilin í landinu, jafnvel við samningu fjárlaga ríkisins verði menn að muna eftir því, að það orð er til. A.m.k. hafa alloft verið höfð í frammi loforð og fyrirheit um, að í framtíðinni skuli reynt að spara á einhverjum liðum. En nú er ekki einu sinni minnzt á sparnað. Það er engu líkara en að sá dýrtíðarflaumur, sem nú byltist fram, dragi úr stjórnarliðinu allan mátt til að reyna að hamla á móti þeim ósköpum með svo áhrifalitlum aðgerðum, sem það sýnist vera að reyna að spara á einhverjum liðum fjárlaga. Ég held, að því sé ekki einu sinni borið við í þetta skiptið að lofa því að spara einhvern tíma seinna, enda er þess naumast að vænta, að stjórnarflokkarnir herði sig upp til þess, þegar höfð eru í huga afdrif fyrri sparnaðarloforða.

Það er ekki ýkja langt síðan stjórnarflokkarnir samþykktu breytingar á tilhögun við álagningu tekjuskatta og eignarskatta. Þannig fengu þeir tækifærið til þess að ráða skjólstæðinga sína í ný störf, kjördæmaskattstjóra um allt land. Og þeim varð það á að lofa sparnaði um leið. Kostnaður við skattaálagningu er á núgildandi fjárl. áætlaður 8 millj. 479 þús. kr. og mun mörgum þykja ærið fé. En nýja kerfið, sem átti að spara kostnaðinn, er nú farið að verka. Og nú er áætlað, að kostnaður á næsta ári hækki um 78% eða rúmlega um 7 millj. kr. á einu ári og verði 15½ millj. kr. Allslæmt er nú með ýmsa liði á fjárlögum, sem engum sparnaði var lofað á, en það er þó yfirleitt hrein hátíð í samanburði við þá liði, sem lofað var að lækka.

Þá var heitið úrræðum til sparnaðar á bifreiðakostnaði ríkisins. Það virðist líka hafa haft sín áhrif, sá liður hækkar úr 1 millj. kr. í 4. millj. kr. á næsta ári. Það er líklega eftirsóknarverðast, að stjórnarflokkarnir láti það sem minnst henda sig að tala um sparnað á einstökum liðum. Þeir þjóta bara þeim mun hærra upp á fjárlögum.

Það er því ekki aðeins að einkenni fjárlagafrv. sé hin óhemjulega, skattheimta, heldur er útþenslustefnan á rekstrarliðum annað einkennið. Hið þriðja er svo það, að einasta aðgátin, sem á er höfð, er sú, að framlögum til nauðsynlegustu framkvæmda er haldið niðri. Ríkisbáknið hefur þanizt út í stjórnartíð viðreisnarstjórnarinnar. T.d. sést, ef borin eru saman fjárlög 1958 og frv. fyrir næsta ár, að kostnaður við 3 embætti ríkisins, borgardómara-, borgarfógeta- og sakadómaraembættið, hefur á þeim tíma hækkað úr 2.9 millj. kr. í 13 millj. kr. eða um 10.1 millj. kr. Það er 348% hækkun. Það væri líklega ekki talið gott, ef þær stofnanir, sem heimili eru kölluð, hefðu á sama tíma gert jafnmiklar kröfur um aukið rekstrarfé. Það er ekki einleikið, hve það hefur haft öfug áhrif, ef lofað hefur verið sparnaði á einstökum liðum. Það rætist á sama hátt og loforðið um fast verðlag, sem rætzt hefur með óðaverðbólgu.

Eitt af sparnaðarloforðunum varðaði ríkislögregluna á Keflavíkurflugvelli. Það fyrirheit hefur verið efnt á þann hátt, að sá kostnaður hefur aukizt um 2 millj. kr. síðan 1960 eða um 50%. Þannig helzt útþenslan á rekstrarliðunum í hendur við stöðugt auknar álögur.

Áður en ég kem að því, að gera grein fyrir þeim till., sem ég flyt til breyt. á fjárlagafrv., vil ég geta þess, að ýmis mál eru óafgreidd hjá n. og bíða 3. umr., svo sem byggingarmál, sjúkrahúsa, framlög til nýrra raforkuframkvæmda, vegamál og niðurgreiðsla á vöruverði. Um þau mál hef ég því ekki gert brtt. að þessu sinni né heldur við tekjuáætlun frv., fyrr en sýnt er, hverja afgreiðslu þær brtt. fá, sem ég hef lagt fram, og í ljós kemur, hvort samkomulag fæst í n. um þau mál, sem óafgreidd eru þar.

Varðandi tekjuáætlunina hefur það komið fram, að ætlunin sé að hækka persónufrádrátt við álagningu tekjuskatts, og það er látið líta út sem eitthvert fyrirheit ríkisstj. um kjarabætur. Það er auðvitað hin mesta fjarstæða að líta þannig á, þegar tekið er tillit til hinnar feikilegu verðbólgu, síðan tekjuskattsstiginn var samþykktur. Það hefur ekki til þessa verið talið til sérstakra kjarabóta frá hendi stjórnarvalda, að tekjuskattsstigar hafi verið leiðréttir til samræmis við hækkað verðlag í landinu. Meðan launþegar fengu hækkað verðlag bætt með vísitöluálagi á laun, sáu skattstofurnar einfaldlega um að færa skattstigana til í samræmi við breytingar á vísitölunni, svo að tekjur, sem voru hliðstæðar frá ári til árs, þótt hærri væru að krónutölu, lentu ekki í hlutfallslega hærri skattstiga en áður. Þetta var sjálfsagt framkvæmdaatriði, sem enginn maður minntist sérstaklega á, hvað þá að það væri auglýst sem einhverjar kjarabætur. En svo litlu telur hæstv. núv. ríkisstj. sig hafa af að státa í sambandi við hagsmuni launþega í landinu, að hún er nú að burðast við að auglýsa þessi framkvæmdaatriði við skattálagningu, sem jafnan hafa verið talin sjálfsögð, sem einhverja jólagjöf frá sér. Það má segja, að lítið dregur vesælan.

Þá kem ég að brtt. þeim, er nál. mínu fylgja. Fyrstu fjórum brtt. er rétt að gera grein fyrir í einu lagi, þar sem þær miða allar að því sama marki, að Íslendingar sameini sendiráð sín á Norðurlöndum í eitt, Íslendingar eru örsmá þjóð, og taka verður tillit til þess, þegar ráðstafað er sameiginlega fé landsmanna. Litlum þjóðum hættir stundum til þess, líklega af einhvers konar dulinni minnimáttarkennd, að ganga lengra fram í því en góðu hófi gegnir að keppa við stórþjóðirnar um að láta á sér bera, og ráðast þó í að halda uppi starfsemi, sem í rauninni er fjárhagsgetu þeirra ofviða með tilliti til takmarkaðrar nauðsynjar og gagnsemi þess, sem í er ráðizt. Þannig er það með þá þrákelkni okkar að stritast við að eiga ambassadora í öllum löndunum þrem, Danmörku, Noregi og Svíþjóð, þegar almenn skynsemi segir okkur, að fyrir verkefni þessara sendiráða ætti að vera unnt að sjá með einu sameiginlegu sendiráði á Norðurlöndum. Það er ekki einu sinni svo, að við höfum til þessa gert vinaþjóðum okkar á Norðurlöndum jafnt undir höfði með því að hafa ambassadora hjá þeim öllum og getum ekki hnikað málunum til þess vegna. Í Finnlandi er þarlendur ræðismaður, og ber ekki á öðru en það sé fullkomlega nægilegt til að annast fyrirgreiðslur fyrir Íslendinga og til að halda uppi heiðri Íslands, en það er hann, sem verið er að slægjast eftir með ambassadorastritinu annars staðar á Norðurlöndum. Áður voru á þessum stöðum sendiherrar, nú eru þeir orðnir ambassadorar. Ekki hefur það dregið úr útgjöldunum. Ég minnist þess úr menntaskóla, að sögukennarinn þar hélt því fram við nemendur, að ef erlend þjóð vildi ná sér niðri á Íslendingum á prúðan hátt þá þyrfti hún ekki annað en gera sendiherra sinn að ambassador, þá neyddust Íslendingar til þess að gera slíkt hið sama, en smáþjóð sem Íslendingar ætti nóg með að halda út sendiherrum sínum, þótt henni væri ekki gerður sá óleikur að breyta þeim í ambassadora og var á honum að heyra, að slíkar auknar mannvirðingar krefðust aukinna útgjalda.

Þessi krafa og till. um, að Íslendingar láta skynsemina ráða og viðurkenni af hógværð og hjartans lítillæti, að það sé ekki skynsemi í því að hafa þrjá ambassadora á Norðurlöndum, þegar einn dugir, hefur verið borin fram mörg í ár. Slíkan hljómgrunn á þessi till., fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna, sem ár eftir ár hafa fellt till., hafa þó sjálfir í ræðum boðað þann sparnað, að af þessu verði, en jafnan rétt síðan upp hönd gegn því, að sparnaðurinn verði framkvæmdur. Er jafnan látið líta svo út, sem viljinn sé fyrir hendi, en svo seint hafi verið farið að hugsa fyrir þessu, að ekki sé hægt að láta verða af framkvæmdum á næstu fjárl., og svo endurtekur sagan sig næst Ég hef lagt til, að á næsta ári verði veitt allverulegt fé til eins sendiráðs á Norðurlöndum jafnmikið og á frv. er samtals ætlað til sendiráðanna í Kaupmannahöfn og Osló, þannig að gert er ráð fyrir því, að nokkur kostnaður verði af ríkjandi tilhögun á næsta ári, en á því tímabili verði þó gengið frá skipulagsbreytingunni. Á fjárlagafrv. er gert ráð fyrir því, að sendiráðin á Norðurlöndum kosti samanlagt um 6. millj. kr. Með till. minni er gert ráð fyrir at spara um 1.6 millj. kr. á næsta ári, en sá sparnaður ætti að geta allt að því tvöfaldazt, þegar skipulagsbreytingin væri komin á og gilti allt árið. Ég held, að það sé meira en kominn tími til, að við látum verða af þessu. Allir flokkar eða a.m.k. þrír þeirra hafa látið þá skoðun uppi, að þessa breytingu beri að gera, og ég fæ ekki séð, að það sé eftir neinu að bíða.

Þá hef ég gert till. um, að lækkaður verði kostnaður við sendiráðið í París, en það ásamt svokallaðri skrifstofu fastafulltrúa Íslands hjá NATO og UEEC, sem ekkert hefur þar að gera, kostar íslenzku þjóðina 3.7 millj. kr. á ári og miklu meira en nokkurt annað sendiráð Íslands, jafnmikið og sendiráðin í Stokkhólmi og Osló samanlagt. Lagt er til, að lagt verði fyrir þessa aðila úti í París að halda uppi starfsemi sinni innan þeirra takmarka, sem 3 millj. kr. fjárveiting leyfir, og virðist það þá allnokkuð.

Þá legg ég til, að felldur verði niður liðurinn „kostnaður vegna Þingmannasambands Atlantshafsbandalagsins“. Ekkert er jafnfráleitt og að þjóð sem Íslendingar, sem aldrei hafa borið vopn og í hjarta sínu fyrirlíta alla hermennsku, gerist þátttakandi í hernaðarsamlögum stórþjóða og hervelda, og þó svo að við höfum látið ginna okkur til að gera slíka hluti og látum land okkar undir herbækistöð, þá fer auðvitað bezt á því, að við látum ekki sjá okkur á ráðstefnum aðildarríkjanna. Meðal slíkra höfum við ekkert til mála að leggja, enda virðast þeir fylgismenn hernaðarbandalagsins, sem sæti eiga hér á hv. Alþingi, helzt kjósa að líta á slíkar sendiferðir sem aðhlátursefni, hvað þá heldur almenningur í landinu, en skemmtanaskatturinn, sem þjóðin borgar, 185 þús. kr. á ári, er nokkuð mikill og væri betur varið til þarflegri hluta.

Við 11. gr. flyt ég brtt. við liðinn: ríkislögregla á Keflavíkurflugvelli, í því skyni, að lækkuð verði þau óhemju útgjöld, sem við Íslendingar höfum af því að kosta löggæzlu á svæði hinna svokölluðu „verndara“ okkar suður á Keflavíkurflugvelli. En kostnaður við þá starfsemi hefur hækkað ár frá ári og um 2 millj. kr. síðan 1960 eða um 50% og er áætlaður á næsta ári tæpar 6 millj. kr. Samkv. fjárlagafrv. er gert ráð fyrir því, að ríkislögreglan á Keflavíkurflugvelli kosti þjóðina, auk rúml. millj. kr. kostnaðar við embætti lögreglustjóra þar, meira fé en rekstur búnaðarskólanna og garðyrkjuskólans samanlagt og meira fé en varið er á fjárlögum, hvort heldur er til skógræktarinnar í landinu eða sandgræðslunnar. Ríkislögreglan á Keflavíkurflugvelli kostar okkur 50% meira fé en ríkisstjórnarflokkarnir telja þjóðina hafa efni á að ráðstafa úr ríkissjóði til að byggja íþróttamannvirki í landinu. Svona geta þær krónur, sem píndar eru út úr skattþegnum í landinu, komið þjóðinni að misjafnlega miklu gagni. Við afgreiðslu fjárlaga er á ári hverju bitizt og togazt á um 10–100 þús. kr. framlag til að halda uppi nauðsynlegri löggæzlu úti á landi, aðallega á vertíðum. En á sama tíma er eytt um 6 millj. kr. til að halda uppi löggæzlu meðal erlendra dáta, sem ættu ekki að vera til í landinu. Ég hef ekki trú á, að það ylli neinum vandræðum suður á Miðnesheiði, þótt þessi kostnaður væri skorinn niður í 3.9 millj. kr. og lækkaður um þær nál. 2 millj., sem hann hefur hækkað um síðan 1960.

Á fjárlagafrv. er ráðgert, að 4 millj. kr. verði varið til almannavarna. Fyrir því hafa verið færð margvísleg rök, að aðalástæðan til þess, að gera mætti ráð fyrir þörf á almannavörnum, ef þær annars hafa nokkurt gildi, er sú einfalda staðreynd, að herstöðvarnar eru skotmörk í hernaðarátökum. Þær leiða því hættuna yfir landsbúa og því meiri sem herstöðvarnar eru taldar mikilvægari. Til þess að forðast afleiðingar hernaðarátaka um Ísland er því starfræksla almannavarna ekki lausnarorðið, heldur er hitt vitið meira að losa sig við hættuvaldinn, skotmörkin, herstöðina, og bægja þannig hættunni frá, en ríghalda sér ekki við það að kljást aðeins við afleiðingarnar af því að leyfa herveldi að búa um sig hér á landi. Það er hæpin framkoma gagnvart landsbúum, svo að ekki sé meira sagt, að stofna þeim fyrst í stórfelldan lífsháska með því að leyfa útlendingum að setja upp skotmörk í landinu og heimta svo milljónir króna út úr skattpíndum almenningi til þess að hafa uppi einhverja tilburði um varnir, sem eins líklegt er að séu tilgangslausar gagnvart þeim lífsháska, sem landsmönnum hefur með þessum tiltektum verið stofnað í. Um það eru skiptar skoðanir, hvort nokkrum vörnum verði við komið í kjarnorkustyrjöld, þegar andrúmsloft, vatn og allir hlutir aðrir verða geislavirkir, og hvort til nokkurs sé að eyða fé til þeirra. Framlag til almannavarna er á frv. áætlað 3 millj. kr. hærra en á núgildandi fjárlögum. Um fyrirhugaðar framkvæmdir er nokkuð getið í aths. með frv., en frekari upplýsingar fengust ekki í n. og þótt óskað væri eftir, að forstöðumaður almannavarna mætti hjá n., þá varð ekki af því, að hann gerði það, hann virtist aldrei fyrirfinnast á yfirborði jarðar. Er fjarvist hans eitt af því örfáa, sem ég hef yfir að kvarta varðandi störf fjvn.

Ætla verður, að fjórföldun framlags til almannavarna, samtímis því sem kalda stríðinu virðist vera að slota í heiminum og hugmyndir og ótti um heitt stríð fjarlægari en um langt árabil, sé ákveðin með hliðsjón af fyrirhuguðum framkvæmdum Atlantshafsbandalagsins í Hvalfirði, og er það að því leyti til rökrétt ályktun stjórnarvaldanna um stóraukna styrjaldarhættu og stóraukna lífshættu fyrir Íslendinga, sem af því mundi leiða. Íslendingar, sem fagnað hafa bættum friðarhorfum í heiminum, munu þó flestir álykta sem svo, að skynsamlegra væri að stuðla að því að koma í veg fyrir, að á almannavörnum þurfi að halda, með því að hverfa frá öllum fyrirætlunum um aukningu hernaðarmannvirkja í landinu og afnema þau, sem fyrir eru. Ég hef því lagt til í samræmi við þetta, að liðurinn til almannavarna verði ákveðinn ekki 4 millj. kr., heldur ½ millj. kr., og hef þá í huga, að eitt af hlutverkum almannavarna er að gera ráðstafanir til að reyna að forða tjóni af völdum náttúruhamfara, en á þeim megum við Íslendingar jafnan eiga von, eins og reynslan sýnir.

Við 11. gr. hef ég einnig gert till. um breyt. á liðnum: kostnaður við ríkisskattanefnd og skattstofur. Núv. ríkisstj. hefur með lagasetningu gerbreytt því kerfi, sem beitt var áður við álagningu beinna skatta. Hæstv. núv. fjmrh. boðaði þessa breytingu við 1. umr. um fjárlög fyrir árið 1961 og sagði, að með þessu ætti m.a. að vinnast lækkun útgjalda. Þegar frv. um lagabreytinguna. sá dagsins ljós, leyfðu margir sér að draga í efa, að af Breytingunni hlytist sparnaður, hvað sem um annað væri að segja, þar sem bætt var inn í kerfið nýjum kjördæmaskattstjórum, en skattanefndir hins vegar lagðar niður. Það liggur nú fyrir, hver hefur orðið sparnaðurinn af þessum breytingum. Í fjárlfrv. er gert ráð fyrir, að kostnaðurinn við álagningu beinna skatta hækki frá fjárl. þessa árs um ríflega 7 millj. kr. Svona fór um sjóferð þá. Þegar svona fer um þær ráðstafanir, sem auglýstar eru sem sérstakar sparnaðarráðstafanir, er naumast við öðru að búast en aðrir liðir bólgni út, þeir sem engu hefur verið sérstaklega lofað um sparnað á, enda er ekki laust við, að svo sé. Landsmenn mundu þó eflaust sætta sig betur við svo verulegan kostnað við álagningu skatta, ef a.m.k. hluta þess kostnaðar væri varið til þess að stemma stigu við þeirri ósvinnu, sem allir virðast sammála um að viðgangist, að fjöldi gjaldenda, sem sérstaka. aðstöðu hefur, telji ekki fram nema hluta af tekjum sínum og kemst upp með það alla tíð. Aðstaða annarra er sú, að þeir hafa engin tök á að draga nokkrar tekjur undan skatti og eru skattlagðir fyrir hverja krónu, sem þeim er greidd, og verða þannig að greiða hærri skatta og útsvör en ella, ef allar tekjur kæmu fram og væru skattlagðar. Hver einasti maður getur tilnefnt fólk, sem sýnir með öllum lifnaðarháttum sínum, að það hefur miklum mun meiri tekjur en aðrir þeir, sem hærri skatta greiða og við fjölmörg fyrirtæki í landinu munu finnast dæmi þess, að starfsmenn, sem hafa ekki nema til hnífs og skeiðar, greiða hærri skatta en forstöðumennirnir, sem hafa mörg járn í eldinum og búa við þá lifnaðarhætti, sem þarf margföld laun hvers starfsmanns til þess að standa undir. Slíkt ástand er uppeldislega séð ekki hollt og hvetur ekki til þegnskapar. Aðrar þjóðir virðast ekki vera í vandræðum með að halda uppi svo ströngum aðferðum og svo miklu aðhaldi í þessu efni, að skattsvik hætta menn naumast á þar. Ég tel, að ekki væri ósanngjarnt að ætlast til þess, að tæpum helmingi þeirrar hækkunar sem ráðgerð er til að greiða kostnað af skattaálagningu á næsta ári, verði varið til sérstaks skatteftirlits, sem tryggi með öllum tiltækum ráðum, að komið verði í veg fyrir þau skattsvik, sem árum saman hafa viðgengizt í landinu og bitna síðan í hærri sköttum á þeim launþegum, sem fá allar tekjur sínar taldar fram. Þess vegna hef ég lagt til, að við greinartextann: kostnaður við ríkisskattanefnd og skattstofur — bætist: af fé þessu skal eigi minna en 3 millj. kr. varið til sérstaks eftirlits með skattframtölum. Þetta ákvæði er þó aðeins hugsað til bráðabirgða. Þessa starfsemi skattstofunnar þarf að ákveða með lögum og reglugerðum, sem ekki má dragast að verði sett.

Við 12. gr. fjárlfrv. hef ég gert brtt. þess efnis, að veittar verði 250 þús. kr. sem byrjunarframlag til að kaupa og setja upp lyftu í Vífilsstaðahælið. Vífilsstaðahæli er þriggja hæða bygging auk kjallara, en þar er engin lyfta. Gerir það að sjálfsögðu bæði sjúklingum og starfsfólki mjög erfitt fyrir. Sú breyting hefur orðið á Vífilsstöðum undanfarin ár, að jafnhliða því sem berklasjúklingum hefur fækkað, hefur þar fjölgað mjög eldra fólki, sem er þar af öðrum orsökum en berklaveiki. Það eykur enn á þörfina, að komið verði fyrir lyftu í húsinu. Mjög erfitt er yfirleitt fyrir sjúkrahúsin að fá starfsfólk og því erfiðara sem aðbúnaður til starfa er lakari. Vífilsstaðahæli stendur að því leyti mjög illa að vígi, þar sem það er lyftulaust, og eru miklir erfiðleikar á að halda þar starfsfólki, ef ekki verður úr bætt.

Við 13. gr. A hef ég gert eina brtt. Eins og ég áður hef tekið fram, geri ég ekki við þessa umr. brtt. um framlög til vegamála, þar sem þau eru órædd í n. og bíða 3. umr. Þá kemur það og til, að til afgreiðslu er hið nýja vegalagafrv. og ekki enn þá séð, hvaða breytingar verða gerðar á því í meðförum þingsins, en það tengist að sjálfsögðu ákvörðunum um framlög til vegamála. Eitt mál er það þó í sambandi við vegamálin, sem ég tel að hafi svo mikla sérstöðu, að þar komist ekkert annað nærri. Það er hið algera umferðaröngþveiti, sem nú ríkir að staðaldri á fjölförnustu umferðarleið landsins, Hafnarfjarðarveginum, þar sem hann liggur um Kópavog, og ég lýsti við 1. umr. um vegalagafrv. og einnig var rætt við 2. umr. Ég hef því viljað leggja sérstaka áherzlu á sérstöðu þessa vandamáls með því að flytja þá till. eina um vegamál við þessa umr., því að hvað sem öðru líður og hvernig sem vegalög verða afgreidd, verður ekki hjá því komizt, að ríkissjóður leggi fram fé til úrbóta í þessu efni, og það má alls ekki dragast. Um Fossvogsbrú fara nú um 15 þús. farartæki á dag, þ.e.a.s. rúmlega 10 á hverri mínútu að meðaltali allan sólarhringinn og að sjálfsögðu miklum mun meira, þegar umferðin er mest. Þá rofnar ekki bílalestin í baðar áttir tímum saman. Ég veit ekki nákvæmlega, á hve mörgum stöðum hliðargötur liggja út á aðalakbrautina á svæðinu milli Fossvogslækjar og Kópavogslækjar, en mér er nær að halda, að það sé á um það bil 15 stöðum. Þarna, þar sem mikill fjöldi skólabarna fer daglega um, vofa slysin yfir á hverjum degi þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir, auk þess sem umferð getur ekki gengið svo greitt sem nauðsynlegt er. Fram til þessa hafa kröfur um úrbætur í þessu efni beinzt að vegamálastjórninni, en samkv. því frv. til vegalaga, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir því, að Kópavogskaupstaður taki við þessu verkefni og fái til þess rúma 1 millj. kr. á ári, en heimilt er þó samkv. frv. að veita til sérstaklega nauðsynlegra framkvæmda af sérstöku framlagi, sem nemur alls um 2.7 millj. kr. á ári. Þau bæjarfélög, sem fá af aukaframlaginu, geta þó ekki fengið af því næstu 5 ár á eftir. Þetta þýðir, að Kópavogskaupstaður gæti í hæsta lagi fengið tæpar 4 millj. kr. fyrsta árið, þó að hann fengi allt aukaframlagið, og síðan ekki nema rúma milljón á ári næstu 5 ár. Eins og frv. er úr garði gert að þessu leyti og ef ekkert kemur annað til, er komið í veg fyrir, að í náinni framtíð verði bætt úr því vandamáli, sem alvarlegast er í umferðarmálum á Íslandi í dag. Hér þarf því að koma til kasta ríkisins nú þegar. Fram hjá því verður ekki heldur litið, að a.m.k. helmingur þeirrar umferðar, sem um þetta svæði fer, er umferð annarra aðila en þeirra, sem erindi eiga sérstaklega í Kópavog. Þar liggur þjóðbraut til Hafnarfjarðar og Suðurnesja. Hvert einasta farartæki, sem þangað fer, verður að fara um þennan veg. Á Kópavogskaupstað verður því ekki lögð sú skylda að leysa úr því umferðaröngþveiti, sem á þessum vegi er. Úrbætur á þessum vegakafla eru verkefni ríkisins. Ýmsar leiðir koma að sjálfsögðu til greina, aðalatriðið er, að verkefninu verði sinnt án tafar. En ég hef lagt til, að veittar verði á fjárlögum næsta árs 6 millj. kr. í þessu skyni. Sú upphæð dugir eðlilega ekki til fullnaðarframkvæmda og yrði byrjunarframlag, sem tryggði, að ekki drægist lengur, að í framkvæmdir yrði ráðizt.

Við 13. gr. C hef ég gert till. um hækkun á framlagi til hafnarmannvirkja og lendingarbóta úr 17 millj. kr. í 25 millj. kr. í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir sömu upphæð og er á núgildandi fjárl., en sú tala hefur hækkað um 550 þús. kr. í meðförum fjvn. Kostnaður við hafnarframkvæmdir mun hafa hækkað um 15% á árinu, og ætti þá upphæðin, til þess að hún eigi ekki að teljast beinlínis lægri en í fyrra, að hækka af þeim sökum einum um 2½ millj. kr., og má þó þar til viðbótar telja víst, að kostnaður hækki á næsta ári vegna fyrirsjáanlegra launahækkana, og einnig má búast við, að vegna afnáms verðlagseftirlits á farmgjöldum verði þau hærri á næsta ári en þegar núgildandi fjárlög voru samin, og eru þó fremur orðin það nú þegar. Víðast hvar á landinu eru hafnarmálin brýnustu vandamál sveitarstjórnanna, ekki sízt eftir að meðalstærð báta hefur aukizt, verulega hin síðari ár samhliða fjölgun skipanna. Ríkissjóður er í verulegum vanskilum með greiðslur til sveitarfélaga vegna hafnarframkvæmda þeirra. Um n.k. áramót munu þessar skuldir að líkindum nema um 30 millj. kr. Nauðsynlegt er að lækka þennan skuldahala og gera sveitarfélögunum kleift að halda áfram hafnarframkvæmdum, sem víða eru það hagsmunamál, sem mest er brennandi. Enn mun ástandið í hafnarmálum í heild ekki vera betra en svo, að meiri hl. þeirra skemmda, sem á skipastólnum verða, á sér stað í höfnunum. Meðan svo er, má framlag ríkisins ekki fara hlutfallslega lækkandi, eins og verða mundi samkvæmt fjárlagafrv., og hef ég því lagt til, að það hækki um 25 millj. kr.

Um ráðstöfun eða skiptingu á þeirri hækkun, sem ég legg til að samþykkt verði, á milli einstakra hafna mun ég ekki fjalla fyrr en ljóst er, hvort hún fæst samþykkt. En þó vil ég geta einnar hafnar sérstaklega, sem ég tel mjög afskipta og ekki fékkst nægileg leiðrétting á innan nefndarinnar. Þar á ég við Kópavogshöfn, sem of oft hefur verið afskipt áður. Fyrir n. voru lagðar þær upplýsingar, sem eru rangar og ég mótmælti, að ekki væri ætlun Kópavogskaupstaðar að vinna að hafnarframkvæmdum á næsta ári. N. var gert mjög erfitt um vik við ákvörðun um skiptingu hafnafjár, þar sem till. um það og nauðsynlegar upplýsingar bárust ekki fyrr en á síðustu stundu, og er það algerlega óviðunandi í svo viðamiklu máli, en upplýsingar og till. bárust þeirri undirnefnd fjvn., sem um hafnarmálin fjallaði, ekki fyrr en að morgni 10. des., og að morgni næsta dags voru þessi mál afgreidd úr fjvn. Ég hef síðan fengið í hendur bréf bæjarstjóra Kópavogskaupstaðar, þar sem hann sækir fyrir hönd bæjarins hinn 2. febr. 1963 um hluta af enska framkvæmdaláninu til hafnarframkvæmda, sem bærinn hyggst ráðast í því bréfi fylgdi lýsing og kostnaðaráætlun frá vitamálastjóra frá 19. jan. s.l. um þessar framkvæmdir, svo að það hefði ekki átt að þurfa að fara neitt á milli mála um fyrirætlanir bæjaryfirvalda Kópavogskaupstaðar. Kaupstaðurinn gat ekki fengið fyrirgreiðslu vitamálaskrifstofunnar til tæknilegs undirbúnings framkvæmdanna vegna skorts á verkfræðingum, en hjá stofnuninni munu nú starfa aðeins tveir verkfræðingar, en þyrftu að vera 8, ef vel ætti að vera. Kópavogsbær leitaði þá aðstoðar annarra aðila í þessu máli. En ég tel varhugavert að haga svo skiptingu hafnafjár, að óhjákvæmilega lítur svo út, að þeir, sem hafa þann hátt á til að hraða tæknilegum undirbúningi framkvæmda að leita aðstoðar annarra en þeirrar opinberu stofnunar, sem vegna verkfræðingaskorts getur ekki annað því, verði látnir gjalda þessa áhuga síns, þegar úthlutað er fé til hafnarframkvæmda. Kópavogskaupstaður er að því leyti verr staddur en aðrir kaupstaðir, að hann er miklu skemmra á veg kominn en þeir að byggja sína höfn. En framlag til Kópavogshafnar sker sig algerlega úr í till. þeim, sem gerðar hafa verið um fjárveitingar til kaupstaðanna. Tveir kaupstaðir fá 700 þús. kr. hvor, þrír fá 600 þús. kr. hver, einn fær 500 þús., fjórir fá 450 þús., einn fær 300 þús., en talið var, að hann ætti fé til ráðstöfunar til hafnarframkvæmda, framlag, sem honum hafði áður verið veitt í annars konar mannvirki, sem hætt væri við að byggja, svo að upphæðir kaupstaðanna eru þá 700 þús., 600 þús., 500 þús. og 450 þús. kr. Svo kemur Kópavogskaupstaður, sem er að verða þriðji stærsti bær landsins, með 250 þús. kr. fjárveitingu, og það er ekki í fyrsta sinn, sem hans hlutur er smærri en efni standa til. Vandamál fiskvinnslustöðvanna í dag er ekki sízt það að fá starfsfólk. Margir hafa sótt um aðstöðu við Kópavogshöfn, vegna þess að þar eru möguleikar á að fá vinnuafl, sem til þessa hefur ekki verið nýtt, a.m.k. ekki við útflutningsframleiðsluna. Þess vegna er því fé vel varið, sem veitt er til þess að bæta aðstöðu í Kópavogshöfn, og lágmarkskrafa, að hlutur Kópavogsbæjar sé ekki hlutfallslega miklu minni en annarra og að ekki sé byggt á röngum upplýsingum við úthlutunina.

Þá hef ég flutt aðra brtt. við 13. gr., á þá lund, að stýrimannaskólanum verði veittar 25 þús. kr. til útgáfu kennslubóka, sem stofnunina skortir. Má varla minna vera en skólinn hafi þær kennslubækur, sem nauðsynlegar eru, til þess að starfsemi hans komi að gagni.

Við 14. gr. hef ég flutt brtt. þess efnis, að framlag til íþróttasjóðs hækki úr 2 millj. kr. í 5½ millj. kr. Hag íþróttasjóðs er svo illa komið, að algert óefni má teljast. Í lögum er kveðið um skyldu ríkisins til að greiða hluta af byggingarkostnaði íþróttamannvirkja í landinu, en fjárveitingar á fjárlögum hafa verið af svo skornum skammti og í svo miklu ósamræmi við þá greiðsluskyldu, sem myndast á ári hverju vegna framkvæmda ýmissa aðila í þessum málum, að skuldir sjóðsins við þá, sem byggja íþróttamannvirki, aukast ár frá ári. Er því naumast um annað að ræða en hækka bein framlög til íþróttasjóðs eða finna honum fleiri tekjustofna. Einnig þarf að koma meira skipulagi á framkvæmdir í íþróttamannvirkjagerð, þannig að ekki sé svo á málum haldið, að í einu og sama sveitarfélagi sé t. d. byrjað á byggingu jafnvel nokkurra mannvirkja, sem síðan eru öll í byggingu árum saman og ekkert þeirra kemur að notum. Í stað þess þarf að beina fjármagninu hverju sinni í nauðsynlegustu framkvæmdina og ljúka henni á sem skemmstum tíma. Til þess að íþróttasjóður geti fullnægt skyldum sínum á næsta ári, þyrfti framlagið að vera um 30 millj. kr. vegna samansafnaðra skulda, og verður sýnilega ekki hjá því komizt að hækka framlagið meir en í 3 millj. kr., og hef ég, eins og áður greindi, lagt til, að það verði ákveðið 5½ millj.

Menn skyldu ætla, að svo áhugasamir sem Íslendingar eru um fortíð sína og sögu, væri eitt af meiri háttar verkefnum þjóðminjasafnsins það að annast fornleifarannsóknir og þær væru skipulega og að staðaldri stundaðar. En því er ekki að heilsa. Til rannsókna og ferðakostnaðar eru stofnuninni ætlaðar 40 þús. kr. á ári. Þegar greiddur hefur verið rekstrarkostnaður bifreiðar, er, svo sem hver maður getur séð, lítið eða ekkert eftir til að sinna fornleifarannsóknum. Ég hef því lagt til, að liður þessi verði hækkaður í 100 þús. kr., sem að vísu er of lágt, en sýndi þó vilja Alþingis, að þessu þjóðlega verkefni verði sinnt meira en unnt hefur verið til þessa og kunnáttumönnum okkar á þessu sviði fengin aukin verkefni til að spreyta sig á.

Við 14. gr. hef ég enn fremur flutt þá brtt., að framlag til skálda, rithöfunda og listamanna verði hækkað úr 2134 456 kr. í 3.1 millj. kr., og er þá miðað við sem næst 45% hækkun, til jafns við þá meðalhækkun, sem orðið hefur á launum opinberra starfsmanna á þessu ári. Hafi launahækkun til opinberra starfsmanna verið miðuð við það, að þeir hafi dregizt aftur úr undanfarin ár, á það ekki síður við um rithöfunda, skáld og listamenn. Í síhækkandi verðlagi hefur hlutur þeirra rýrnað ár frá ári. Og með því að áætla framlagið á fjárlfrv. ekki hærra en í fyrra, þrátt fyrir allar verðhækkanir, er sýnilega til þess ætlazt, að þeirra hlutur rýrni enn í þetta skipti. Þótt við séum allir áhugasamir um efnahagslega og tæknilega uppbyggingu í landinu, megum við ekki láta það verða til þess að loka augunum fyrir öðrum verðmætum. Hlutfallslega mjög litlu af tíma Alþingis er varið til umr. um menningarmál, en við afgreiðslu fjárlaga ætti ekki að koma fram slíkt vanmat á starfi á skapandi listamanna sem upphæðin á fjárlagafrv. til skálda, rithöfunda og listamanna ber vitni um. Við tryggðum ekki rétt okkar til að teljast sérstök þjóð með innflutningi á verkfærum og byggingu verksmiðja, þótt allt sé það nauðsynlegt. Tunga okkar og sjálfstæð lifandi menningarstörf er þar grundvöllurinn. Í þeirri baráttu, sem þjóðin þarf að staðaldri að heyja fyrir sjálfstæðri tilveru sinni og aldrei má niður falla, hlýtur hún ekki sízt að treysta á rithöfunda sína, skáld og listamenn. Við megum því ekki láta framlög til þeirra dragast sífellt aftur úr, eins og við metum störf þeirra einskis.

Við 16. gr. geri ég till. um, að framlag til búreikningaskrifstofu Búnaðarfélags Íslands verði hækkað úr 100 þús. kr. í 300 þús. kr. Um gildi landbúnaðar á Íslandi og stöðu hans í efnahagslífinu og allan tilverurétt hafa löngum staðið miklar deilur, og margir eru þar kallaðir, sem koma fram sem sérfræðingar í umr. og fella dóma um þessa hluti. Sannleikurinn er þó sá, að verulega skortir á um viðunandi gögn í þessum málum og þá ekki sízt reglulega og nákvæmlega færða búreikninga. Til þessa hefur skort nægjanlega fjárveitingu í þessu skyni, til þess að þessara grundvallargagna yrði aflað sem þyrfti, og ég hef því gert till. um, að úr þessu yrði bætt að nokkru leyti með því að hækka fjárveitinguna til búreikningaskrifstofunnar í 300 þús. kr.

Þá hef ég á 16. gr. einnig gert till. um hækkun á framlagi til fiskileitar og síldarrannsókna og veiðitilrauna úr 9 millj. 50 þús. kr. í 15 millj. kr. Næstum allur útflutningur okkar er fiskur og fiskafurðir. Öll okkar afkoma er því háð þeim afla, sem dreginn er úr sjó. Á meðan við höfum ekki lagt meiri áherzlu en nú á fullvinnslu fisks og höfum því ekki þær verksmiðjur og tæki, sem þarf til þess að margfalda verðmæti aflamagnsins, en leggjum í staðinn alla áherzluna á aukningu fiskiskipaflotans, verðum við enn um skeið að treysta á aflamagnið nær eingöngu, og byggjum við í rauninni, meðan svo er, allar okkar vonir um aukna þjóðarframleiðslu á síauknu aflamagni. Þetta er hættuleg stefna, sem þarf að breytast í þá átt, að við hættum að keppa fyrst og fremst eftir sífellt meira aflamagni, því að þar getur hámarkið legið skemmra undan en okkur grunar. En í dag er staðreyndin sú, fram hjá henni verður ekki gengið, að það er aflamagnið, sem ræður mestu um afkomuna. Þess vegna verðum við í samræmi við það að gera skipulegar ráðstafanir til þess að auðvelda fiskiskipum okkar að ná hámarksafköstum jafnt með fiskileit og tilraunum með nýja veiðitækni. Einkum er orðið knýjandi, að togaraflotanum verði sinnt að þessu leyti. Afkoma togaranna hefur um nokkuð langt árabil verið svo léleg, að jafnan liggur við stöðvun. Samt hefur á þessum tíma verið svo stórlega dregið úr því, að sinnt sé fiskileit fyrir þá, að segja má, að sú þjónusta sé úr sögunni. Vegna þess, hversu útbúnaði togaranna er áfátt um geymslu aflans, miðað við skip margra annarra þjóða, sem útbúa sín skip frystivélum og vinna aflann um borð, þá er þeim mjög erfitt um vik að sækja á fjarlæg mið án þess að hafa upplýsingar um veiðihorfur á einstökum svæðum. Nýjustu togararnir okkar eru þó upphaflega byggðir að stærðinni til sérstaklega til þess að sækja langt til fanga. En þegar langt er sótt og geymslumöguleikar litlir, er sá tími, sem togararnir geta verið að veiðum á miðunum, mjög takmarkaður og því alveg undir hælinn lagt, hvort þeir hitta á þau svæði á víðáttumiklum miðum, eins og Nýfundnalandsmiðunum, þar sem helzt er afla að fá, en hann getur að sjálfsögðu verið mjög mismunandi á einstökum stöðum á miðunum. Til þess að auka aflavon togaranna þurfa þeir að hafa stuðning af skipi, sem fyrst og fremst fer um veiðisvæðin og leitar að fiski, en of mikið hefur verið um það, að hafi fiskileitarskip verið send af stað, hafa þau um of leitazt við að fá sjálf afla, en farið þeim mun minna um svæðin. Erlendar þjóðir, sem stunda að staðaldri veiðar við Nýfundnaland, hafa a.m.k. sumar hverjar leitarskip, sem einungis leita að fiski og færa sig af svæðunum og á önnur, þegar fiskiskipin koma á staðinn eftir tilvísun þeirra. Ég hef orðið var við, að togarasjómönnum finnst þessu máli allt of lítið sinnt og þykir mikill munur vera á þjónustunni við vélbátaflotann að þessu leyti, t.d. á síldveiðum á sumrin, þegar bæði skipum og flugvélum er beitt við síldarleit. Togarasjómenn kvarta jafnvel yfir því, að þeir fái ekki svo mikið sem upplýsingar um legu hafíssins á þeim svæðum, sem þeir þurfa að fara um. Þessum málum þarf að sinna betur, og til þess þarf að veita fé. Það má vera, að sumum þyki slík starfsemi dýr. En það er líka dýrt að láta hvern togara með fullri áhöfn þjálfaðri til veiða og öll veiðitæki þurfa að eyða mestum tíma sínum í leit að upplýsingum, sem sérstakt leitarskip gæti veitt öllum flotanum. Það segir líka lítið um veiðimöguleikana á Nýfundnalandsmiðum t.d., þótt einhver togari fari þangað og leiti að fiski á þeim víðáttumiklu miðum þá örfáu daga, sem hann hefur til þess, og fái svo e.t.v. lítinn afla og verði að snúa heim. En árangurinn af þessari för eru einu upplýsingarnar og verða jafnvel dómur hjá öllum flotanum um veiðihorfur á þessum fjarlægu miðum.

Vandamál togaraútgerðarinnar eru mjög alvarleg, og það er á því fullkomin nauðsyn, að aukin verði framlög til fiskileitar, ef það mætti verða til þess að bæta hag hennar.

Í sambandi við mál togaraútgerðarinnar vil ég geta þess, að mig undrar nokkuð, að út af fjárlagafrv. skuli hafa verið tekið framlag til togaranna, 15 millj. kr., sem er á núgildandi fjárlögum. Að vísu var þá miðað við, að um bætur fyrir liðinn tíma væri að ræða. En útgerðina skiptir ekki mestu, fyrir hvað látið er heita, að stuðningur sé veittur. Aðalatriðið er, að hann sé veittur, og það er ekki síður þörf á honum nú en í fyrra. Ég hef ekki gert till. um, að liðurinn verði tekinn upp á fjárlög aftur, þar sem þetta mál hefur enn ekki komið til umr. í fjvn. og engar upplýsingar liggja fyrir um það, hvað ríkisstj. hyggst fyrir um stuðning við togaraútgerðina. Og ég vildi leyfa mér að óska eftir því, að hæstv. sjútvmrh. skýrði þingheimi frá því nú við 2. umr. um fjárlögin, hvers er að vænta í þessu efni. Ég fyrir mitt leyti tel, að hjá fjárhagsaðstoð í einhverri mynd til togaraflotans verði ekki komizt.

Síðasta brtt. mín við 16. gr. er um byggingu iðnskóla í Hafnarfirði. Iðnskólinn í Hafnarfirði er gömul og gegn stofnun, sem lengi var til húsa í Flensborgarskólanum, en hefur nú um skeið verið í leiguhúsnæði hjá Bæjar- og héraðsbókasafninu í Hafnarfirði. Iðnskólinn þrengir að rekstri bókasafnsins og hamlar ýmsum þáttum í rekstri þess. Auk þess er húsnæði það, sem hann hefur til afnota, svo lítið fyrir skólann, að til vandræða horfir. Fjórar bekkjardeildir eru þar í tveimur stofum, svo að kenna verður frá kl. 8 á morgnana og langt fram á kvöld. Það er því ætlun forráðamanna bæjarins að hefja byggingu nýs iðnskóla og hafa sótt um fjárstyrk til þess til fjvn., en einhverra hluta vegna sýnist það hafa farizt fyrir að senda tilskilin gögn til fræðslumálastjóra á réttum tíma, og virðist sem það atriði eigi að koma í veg fyrir, að Hafnfirðingar hljóti þá fyrirgreiðslu í þessu efni, sem lagt er til í till. fjvn. að veita Reykvíkingum, Selfyssingum og Akureyringum. Ég held, og það vita allir aðrir nm. fjvn., að þess finnast dæmi við afgreiðslu þessa fjárlagafrv., að erindi, sem send hafa verið fjvn., hafa verið þannig úr garði gerð, að þau hafa ekki beinlínis verið meðmæli með því, að þeim yrði sinnt, þrátt fyrir að það hafi verið gert, einmitt vegna þess að nm. hafa ekki viljað láta góð málefni gjalda þess, hvernig á málum kann að vera haldið og umsóknum er hagað frá þeim, sem sótt hafa. Þess vegna er það einnig ástæðulaust í sambandi við iðnskóla Hafnarfjarðar.

Ég ætla út af fyrir sig ekki að afsaka það, að gögn hafa ekki verið send réttum aðilum á réttum tíma, svo að hægt er að túlka þau vinnubrögð sem takmarkaðan áhuga á málinu. En þó svo að núverandi ráðamönnum Hafnarfjarðar hafi orðið það á að sinna ekki þessu máli sem skyldi, þá þykir mér ástæðulaust fyrir hv. Alþingi að láta iðnskólann í Hafnarfirði og Hafnfirðinga almennt gjalda þess, og mér þykir sérstaklega sitja illa á stjórnarflokkunum að ætla að láta Hafnfirðinga gjalda þess frekar en þeir gera nú þegar að hafa Sjálfstæðisflokkmenn við forustu í bæjarmálum. Á það er ekki bætandi. Ég hef því lagt til, að við till. fjvn. um styrk til byggingar iðnskóla í Reykjavík, á Akureyri og Selfossi verði bætt styrk til iðnskóla Hafnarfjarðar, 500 þús. kr.

Hjá frændþjóðum okkar á Norðurlöndum og víðast hvar í heiminum er litið á húsnæðisþörf manna sem eina af frumþörfum þeirra, sem ríkinu ber að sjá um að þeir geti fullnægt án þess að þurfa að greiða einhverjum aðilum í þjóðfélaginu stórgróða um leið. Hér er ófullnægð húsnæðisþörf vísasti gróðavegur þeirra, sem yfir fjármagni ráða. Vegna látlausra verðhækkana á byggingarefni í kjölfar gengislækkana og vegna vaxtaokurs og álags til þeirra, sem gera sér húsbyggingar að gróðalind, ríkir nú geigvænlegur húsnæðisskortur í Reykjavík og nágrenni og víðar á landinu. Verðlag á húsnæði miðað við launakjör er orðið svo óskaplegt, að ¾ af árstekjum fyrir 8 stunda vinnu verkamanns fara til greiðslu aðeins á vaxtakostnaði meðalíbúðar. Í rauninni er ekkert það lánakerfi til íbúðabygginga til í landinu, sem geri mönnum kleift að eignast íbúð án þess að bæta á sig margra ára stanzlausum þrældómi ofan á venjulegan vinnudag, og er þá jafnan tvísýnt um, að hún dugi til. Af þeim íbúðum, sem byggðar eru, eru verkamannabústaðir viðráðanlegastir alþýðu manna, og eru þau kjör, sem mönnum eru nú boðin, þó stórum lakari en þegar stofnað var til þeirrar starfsemi. Hvað sem því líður, er það þó svo, að enn rennir margur verkamaðurinn vonaraugum til þessara bygginga og telur sér helzt fært að eignast þar húsnæði fyrir tilstyrk byggingarsjóðs verkamanna. Þessar byggingarframkvæmdir þarf að auka til að reyna að hamla á móti húsnæðisskortinum, sem ævinlega bitnar mest á hinum efnaminnstu og stærstu barnafjölskyldum. Ég hef því lagt til, að framlag til byggingarsjóðs verði hækkað úr 7 millj. kr. í 12 millj. kr.

Á 17. gr. fjárlfrv. eru veittar 15 þús. kr. til Iðnnemasambands Íslands, og er það ærið lág upphæð til svo fjölmennra, en fjárvana félagssamtaka, miðað við þær upphæðir, sem öðrum aðilum eru veittar. Landssamband ísl. iðnaðarmanna, sem eru rík samtök, fá t.d. úr ríkissjóði eigi minna en milljónarfjórðung. Þykir mér lágmark, að Iðnnemasambandinu verði veittar 50 þús. kr., og legg til á þskj. 136, að svo verði gert.

Alþýðusamband Íslands hefur af miklum stórhug ráðizt í að reisa orlofsheimili verkamanna í landi samtakanna austur í Hveragerði. Þar er gert ráð fyrir litlum húsum, sem einstök verkalýðsfélög geta keypt, svo og nauðsynlegum, sameiginlegum byggingum. Það var mikill mannréttinda- og menningarsigur, sem vannst, þegar verkamönnum var tryggður orlofsréttur með lögum. Þegar unninn er að staðaldri jafnlangur vinnudagur og meginhluti verkafólks gerir nú, er gildi þeirrar hvíldar, sem orlofslögin eiga að tryggja, þessu fólki meira virði en nokkru sinni fyrr. En á það hefur frá upphafi skort, að félagsmönnum verkalýðsfélaganna væri búin aðstaða til þess að njóta sumarleyfisins á þann hátt, sem flestir kjósa, að hverfa úr hinu daglega umhverfi, sem menn snúast í, komast með fjölskylduna í skemmtilegt umhverfi og þægilegar aðstæður. Slíkar aðstæður er Alþýðusamband Íslands nú að búa verkafólki, og þá framkvæmd, sem er sómi þjóðarinnar allrar, ber Alþingi að styðja og það myndarlega. Á meðan ríkisstj. vinveitt verkalýðssamtökunum fór með völd, var veitt ein millj. kr. á fjárlögum til þessara framkvæmda, og var milljón þó meira virði þá en nú. Síðan hefur þessi upphæð verið lækkuð og getur deilzt á fleiri aðila. Ég hef gert till. um, að liðurinn til orlofsheimila verkalýðssamtakanna verði orðaður svo: Til orlofsheimila verkalýðssamtaka 1 millj. 475 þús. kr., þar af til Alþýðusambands Íslands eigi minna en 1 millj. kr.

Víðast munu það hafa verið samtök kvenna, sem hafa beitt sér fyrir því, að komið væri upp dagheimilum í bæjum. Ýmist hafa það verið almenn kvenfélög eða verkakvennafélög. Þeim hefur verið ljós hin brýna þörf á slíkum stöfnunum fyrir þau heimili, sem einhverra hluta vegna þurfa þess með, að konan vinni úti eða létti störfin á heimilinu með því að koma einu eða fleiri börnum á dagheimili. Rekstur slíkra dagheimila og vistheimila fyrir börn verður dýrari með ári hverju, og þótt ekki fjölgi slíkum stofnunum svo sem þörf væri á, deilist sú upphæð, sem ríkið veitir til styrktar þeim, þó í sífellt fleiri staði. Svo oft fer það saman, að efnahagur þeirra, sem mesta þörf hafa á þjónustu slíkra heimila, er bágari en hinna, sem frekar geta án hennar verið, að ekki má byggja þessa starfsemi á því, að vistgjöld geti staðið undir kostnaði. Vaxandi dýrtíð gerir þá stefnu sífellt erfiðari í framkvæmd, að þeir, sem mesta hafa þörfina, geti notið starfseminnar, og því er brýn nauðsyn á, að ríkið auki nú sinn hlut, sem hefur verið miklum mun lægri en þetta málefni á skilið að hann væri. Ég hef lagt til, að framlagið til sumardvalarheimila, dagheimila og vistheimila verði hækkað úr 300 þús. kr. í 600 þús.

Þá kem ég að þeim till., sem ég flyt um breyt. á 20. gr., eignahreyfingum. Fyrsta till. er um 4 millj. kr. framlag til byrjunarframkvæmda við byggingu nýs geðveikrahælis. Á undanförnum árum höfum við Íslendingar unnið margvísleg stórvirki í byggingarmálum. Auk alls þess fjölda, sem byggður hefur verið af dýrum og íburðarmiklum íbúðum, má hvarvetna sjá glæsilegar stórbyggingar, ekki aðeins þeirra gróðafyrirtækja, bankastofnana og annarra, sem hirt hafa drjúgan skerf af þeim arði, sem vinna almennings hefur skapað á undanförnum árum, heldur ný skólahús, félagsheimili og samkomuhús, kirkjur og íþróttamannvirki. Þess vegna er það svo, að flestum, sem kynntu sér þær aðstæður, sem við búum geðsjúklingum varðandi húsnæði og húsbúnað, hlyti að hnykkja við að horfast í augu við þær staðreyndir, sem við blasa í því efni. Það er engu líkara en við höfum gleymt þessu fólki og það búi enn við aðstæður, sem tilheyra allt öðrum tíma en þeim, sem við lifum á.

Á Kleppi er talið, að ef tekinn væri úr notkun sá hluti húsnæðisins, sem er algerlega óhæfur, en er þó notaður nú, mætti telja, að rúm væri fyrir 100 sjúklinga, og væri þá aðbúnaður á nokkurn veginn lægsta stigi, því að húsakynni eru slík, að þau geta aldrei orðið nema á lægsta stigi, þótt sjúklingum fækkaði. En nú eru í þessu húsnæði um 280 sjúklingar, og er þó talið, að eðlileg þörf til jafns við það, sem gerist með öðrum þjóðum, ætti að vera miðuð við 500 rúm. Þess gerist ekki þörf að lýsa því ástandi, sem ríkir á sjúkrahúsi, sem er í eldgömlum, raunar óhæfum húsakynnum með 280 sjúklinga, þar sem í rauninni komast ekki nema 100 fyrir, enda verður því naumast lýst með þeim orðum, sem hæfa. Það er í rauninni hvort tveggja jafnfurðulegt, að það skuli fást starfsfólk til þess að vinna við þessar aðstæður, og hitt, að þar skuli nokkur sjúklingur geta fengið bata. Ég tek það fram, að þegar ég minnist á þetta mál og flyt um það till., þá er ég ekki að deila á hæstv. núv. ríkisstj. fyrir vanrækslu í þessu efni. Vanrækslan er miklu eldri en svo og verður engum sérstökum kennd. En ég hef þá trú, að menn muni gera sér grein fyrir því, að á meðan við bætum ekki fyrir þá vanrækslu, sem við höfum sýnt þeim sjúklingum, sem eru e.t.v. ólánssamastir af öllu fólki, og gerum það á þann eina hátt, sem um er að ræða, að byggja nýtt geðveikrahæli, þá getum við ekki verið stoltir af neinum þeim glæsilegu skólum, félagsheimilum, kirkjum og samkomusölum, sem við höfum byggt á undanförnum árum. Þegar sá skilningur er fenginn, mun ekki á löngu líða, þar til Kleppsspítalinn heyrir fortíðinni til.

Önnur till., sem ég flyt við 20. gr., er um hækkun á framlagi til byggingarsjóðs Listasafns ríkisins úr 500 þús. í 1 millj. kr. í byggingarsjóð. En vegna síaukinnar dýrtíðar má segja, að þau framlög þoki byggingarmálum þess ekkert áleiðis og þessi upphæð sé í rauninni ekki hærri en svo, að hún geri ekki meira en jafna upp þá rýrnun, sem árlega verður á sjóðnum vegna aukins byggingarkostnaðar ár frá ári. Er því lagt til, að upphæðin verði að þessu sinni höfð tvöföld við það, sem hún hefur verið.

Liðurinn til fyrningarsjóðs ríkisbifreiða er á fjárlagafrv. 3 millj. kr. hærri en sambærilegur liður á fjárl. frá í fyrra, á núgildandi fjárlögum, hann var í fyrra 1 millj. kr., en er nú áætlaður 4 millj., án þess að séð verði, að til þess liggi nein rök eða gild ástæða. Þessi hækkun, fjórföldun á útgjöldum á einu ári, kemur þvert ofan í sérstök fyrirheit um sparnað á bifreiðakostnaði ríkisins. Er lagt til, að liðurinn verði áætlaður 1½ millj. kr., og virðist ærið nóg að hækka liðinn um 50% frá því í fyrra.

Síðasta brtt., sem ég flyt, er þess efnis, að veittar verði 3 millj. kr. til byggingar haf- og fiskirannsóknarskips. Framkvæmdir í því máli hafa dregizt ótrúlega á langinn miðað við þá miklu þörf, sem er á því, að Íslendingar, sem allt eiga undir þeim afla, sem hafið gefur, eignist fullkomið haf- og fiskirannsóknarskip til afnota fyrir það mannval sérfræðinga, sem við eigum til þess að annast störf á slíku skipi. Því lengur sem dregst, að hafizt verið handa, því lengur sem máli þessu verður velt og raunhæfar framkvæmdir dregnar á langinn, því meir rýrnar sá byggingarsjóður, sem safnað hefur verið í þessu skyni og mun nú nema líklega um 10 millj. kr. Virðist einsætt, að ríkissjóður taki upp beinar, árlegar fjárveitingar, sem hægt verði að miða við, þegar samið verður um smíði skipsins, og er því gerð till. um, að á næsta ári verði veittar 3 millj. kr. til þess að ýta undir, að framkvæmdir geti hafizt sem fyrst.

Herra forseti. Eins og ég gat um í upphafi máls míns, eru fjárlög nú afgreidd við þær sérstæðu aðstæður, að afleiðingarnar af verðbólgustefnu ríkisstj., skattpíningu hennar og kjaraskerðingu allri hafa náð því hámarki, að verkalýðsstéttin í landinu hefur orðið að hefja víðtækustu verkföll, sem orðið hafa á Íslandi, til þess að freista þess að fá bætta að einhverju leyti a.m.k. þá kjararýrnun, sem þessi stefna ríkisstj. hefur valdið. Þessar afleiðingar blasa við í ljósi þeirrar staðreyndar, að viðreisnarstefnan hefur á tímum uppgripaafla og eindæma góðæra ekki megnað að viðhalda þeim kaupmætti tímakaups verkafólks, sem það bjó við eftir 15 síldarleysissumur, áður en viðreisnarstefnan var tekin upp. Sú stefna hefur ekki aðeins haldið fyrir verkafólki þeim hlut, sem það með réttu á af aukinni framleiðslu, heldur hefur þar á ofan rifið af þeim hlut, sem verkafólk áður hafði. Það er ekki til neins að ætla að kenna kauphækkunum verkafólks um ófarir viðreisnarstefnunnar, sem nú er að komast í þrot. Verkafólk býr nú við 20% lægri kaupmátt tímakaups en þegar viðreisnarstjórnin tók við völdum. Verkafólk hefur ekki aukið sinn hlut, heldur hið gagnstæða. Viðreisnarstefnan hefur, eins og Alþb., sagði fyrir í upphafi, valdið meiri verðbólgu og dýrtíð en landsmenn hafa nokkru sinni áður búið við. Það stríðir því gegn hagsmunum meginþorra þjóðarinnar, að haldið sé áfram á sömu braut. Það eru ekki aðrir en verðbólgubraskararnir og stuðningsmenn þeirra, sem geta óskað eftir sömu stefnu.

Þau fjárlög, sem hér er verið að afgreiða, 1100 millj. kr. hærri en árið 1961, bera í sér verðbólgusýklana og sýna, að ríkisstj. ætlar að halda áfram sömu óheillastefnunni, hvað sem afleiðingunum líður. Það hefur sannazt, að það var full ástæða til að vara við því í upphafi, að haldið yrði út á þessa braut, þegar lögin um efnahagsmál, viðreisnina, voru samþykkt árið 1960. Það er enn meiri ástæða til að vara við áframhaldi þeirrar stefnu. Hæstv. ríkisstj. ætti að vera það raunsæ að sjá af því öngþveiti, sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar, hvert sem litið er, að hún hefur stefnt í ófæru. Út í hve mikið öngþveiti telur hæstv. ríkisstj. sig þurfa að komast, til þess að hún sjái sig knúna til að taka tillit til afleiðinga stefnu sinnar? Hún ætti ekki að velja þann kostinn að gera ástandið enn verra, til þess að verða þá óhjákvæmilega knúin af sínum eigin verkum til að hætta þessari fráleitu efnahagsstefnu. Áframhaldandi viðreisn gerir slæmt ástand hálfu verra. Þess vegna er meir en kominn tími til að snúa við.

Þessi markvissa stefna hæstv. ríkisstj. inn í ófæruna minnir mig á skipstjóra á mótorbát, sem ég, var á um alllangt skeið. Hann var mjög veðurglöggur. En ég minnist þess, að honum brást bogalistin og lagði í róður í góðri trú á veðrið. En ekki höfðum við lengi siglt, þegar byrjaði að bræla og versnaði, er á leið.

En alltaf var áfram haldið á miðin. Þar kom, að sýnilegt var, að hann var að ganga í foráttuveður, og enn var þrákelknin nóg til að stefnunni var haldið á haf út. Að lokum hraut einum hásetanum af munni: „Að þú skulir vera að strekkja þetta.“ Þá sagði formaðurinn með venjulegri hægð: „Ja, þú segir alveg satt, það væri ekki nema fyrir olíufélögin að halda áfram.“ Og vegna þess að hann hafði enga ástæðu til að láta sér annt um olíufélögin, beið hann ekki boðanna, en sneri við til sama lands og var nú reynslunni ríkari um það, að jafnvel glöggskyggnustu mönnum getur brugðizt spádómsgáfan.

Það er ekki alveg ósvipað um siglingu hæstv. ríkisstj. á þjóðarskútunni á þeirri úfnu leið dýrtíðarinnar, sem hún hefur valið. Hún stefnir þjóðarfleyinu inn í sífellt stærri dýrtíðarholskeflur. En hún fæst ekki til að snúa við. Hún vill sigla áfram lengra á ólgusjó dýrtíðarinnar, þótt engin von sé um hlut úr róðrinum og sífellt verði útlitið verra. Þau græða nefnilega á þessu, olíufélögin, þeir græða á því verðbólgubraskararnir, þess vegna er siglingunni haldið áfram. Þar skilur með hæstv. ríkisstj. og formanninum mínum, hann vildi ekki sigla lengur, þegar honum var ljóst, að það gátu ekki aðrir en olíufélögin grætt á áframhaldandi siglingu. Ríkisstj. gerir sér líka ljóst, hverjir það eru, sem græða á hennar siglingu á þjóðarskútunni. Þess vegna heldur hún áfram siglingunni.