16.12.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (261)

1. mál, fjárlög 1964

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér nokkrar till. á þskj. 148, einkum við 14. og 17. gr., sem ég vil leyfa mér að gera grein fyrir.

Það er í fyrsta lagi í sambandi við 14. gr., til styrktar íslenzkum námsmönnum, að það sé hækkað ofur lítið, úr 9.6 millj. upp í 11 millj., og er það þó það minnsta, sem hugsanlegt er. Ég býst nú kannske við, að hv. fjvn. taki þetta til betri athugunar undir 3. umr., og mundi þá reiðubúinn að taka núna till. til baka, ef það ætti að vera nokkur möguleiki á því að fá þarna verulega hækkun.

Þá legg ég til, að á 14. gr. sé bætt inn nýjum lið, það er til Íslendings, sem taki að sér samkv. samningi við menntmrn. að læra tungu Grænlendinga. Það mun vera svo, að mér er a.m.k. ekki kunnugt um neinn Íslending, sem kann tungu okkar næstu nágrannaþjóðar til fullnustu. Ég býst við, að það séu nokkrir menn, sem kunna ofur lítið í henni, sumir fá orð, sumir nokkuð af því að hafa verið þar í leiðangrum, en það er enginn maður, sem mér er kunnugt um, sem hefur lagt stund á hana. Og það er ekki vansalaust fyrir okkur, vegna þess að þessi þjóð hefur að geyma enn þá ákaflega mikið af sögusögnum. Þótt nokkuð hafi verið að þeim unnið, bæði af dönskum og þýzkum fræðimönnum o. fl., þá er það samt svo, að við Íslendingar ættum þarna að hafa betri aðstöðu en nokkrir aðrir til þess að skilja og til þess að meta, hvað kunni að verða dýrmætt af þeim þjóðsögum og öðru, sem þessi þjóð geymir. Og við skulum aðgæta það, að það er hver síðastur að fara að gera eitthvað í þessum málum. Við vitum, að með þeirri stjórn, sem er hjá Dönum í Grænlandi, er smátt og smátt verið að eyða þessari þjóð og verið að uppræta svo og svo mikið af hennar þjóðháttum og að hennar tunga er líka í hættu. Og ef okkur hefur fundizt það gott, þegar okkar tunga var í hættu og þeir útlendingar, sem mest hjálpuðu okkur þá til þess að reyna að varðveita okkar tungu, t.d. eins og Rasmus Kristján Rask, og óttuðust sjálfir um, að það mundi ekki líða — langur tími samt, áður en íslenzk tunga dæi út, — ef okkur þótti það einhvers virði, að útlendingar þá sýndu okkur áhuga fyrir íslenzku máli, þá ættum við að muna eftir því, þegar smærri þjóð en við og hjálparlausari og frumstæðari er í næsta nágrenni við okkur, að sýna einhvern áhuga fyrir því að vilja læra hennar tungu og vilja síðan kynna sér hennar þjóðsögur og það, sem lifir á vörum þjóðarinnar enn þá. Ég veit, að við hefðum ágæta menn til slíks, einmitt meðal þeirra ungu manna, sem eru að læra tungumál. Við eigum á meðal þeirra fleiri en einn, sem eru afburðasnillingar í tungumálum. Við eigum stúdenta, sem kunna flestöll tungumál Evrópu, bæði forn og ný, og jafnvel tungumál ýmissa Asíuþjóða líka, allt til japönsku. En ég veit ekki af neinum, sem hafi fengizt enn sem komið er til að leggja stund á tungu Grænlendinga, sem eru næstu nágrannar við okkur. Og ég held, að það væri rétt, að við fælum það menntmrn. Það er áreiðanlega varla ársverk fyrir ungan, duglegan mann, sem er vel hæfur til tungumálanáms, að læra þeirra mál, þótt það sé afskaplega fjarskylt okkar tungu. En við vitum, að það er nokkurn veginn sama mál, sem talað er af Eskimóum í Grænlandi, eins og talað er af vissum Eskimóakynþáttum í Norður-Kanada og í Norður-Síbiríu. Og það er rétt af okkur, m.a. til þess að geta haft einhverja verulega hugmynd um okkar eigin sögu, sögu þess íslenzka kynstofns, og hluti af honum hefur byggt þessi lönd, þá er það rétt af okkur og nauðsynlegt, að einhverjir af okkar fræðimönnum kunni þessa tungu. Ég býst ekki við, að menn þori að hugsa það hátt í dag að fara að setja hér upp t.d. lektor eða eitthvað slíkt við háskólann í þeim málum, við ættum þá a. m. k. að hugsa um Færeyingana fyrst, en það er allt í lagi að sjá til þess, að menn, sem eiga svona auðvelt með að læra mál, kynni sér tungu Grænlendinga, þannig að þeir læri hana alveg til fullnustu. Og ég býst við, að menntmrn. mundi þá nota tækifærið um leið, þegar þeir færu hvort sem er þangað, — þótt að nokkru leyti sé hægt að læra hana í Danmörku, við háskólann þar, þá býst ég við, að fyrst og fremst vildu menn læra hana af því að vera með þessum mönnum, — þá býst ég við, að menntmrn. mundi nota tækifærið um leið til þess að biðja þá um að safna þar þjóðsögum og öðru slíku. Og mætti þetta verða til þess, að seinna meir yrði farið að iðka þessi menningarviðskipti meira. Og ég vil alveg sérstaklega undirstrika það, að við megum ekki mikinn tíma missa í þessum efnum. Grænlenzka þjóðin er að breytast með hverju árinu sem líður.

Þá er ég í þriðja lagi á þessu þskj. með till. um að bæta nokkuð aðstöðu landsbókasafnsins og þjóðminjasafnsins. Það er í fyrsta lagi nr. 3, till. um landsbókasafn, í staðinn fyrir 600 þús. til bókakaupa, tímaritakaupa, bókbands og slíks komi 1 millj., og er það þó í minnsta lagi. Sannleikurinn er, að það hefur farið svo í öllum þeim miklu breytingum, sem orðið hafa á okkar fjármálum, að þessi menningaratriði hjá okkur hafa yfirleitt orðið útundan. Við erum enn þá kallaðir af gamalli hefð t.d. bókaþjóð og jafnvel söguþjóð, og erum þó svo að segja hættir að skrifa nokkuð, sem gæti heitið sögur, lengur. Það eru aðrar þjóðir, sem taka að sér að skrifa sögur Íslendinga núna, en ekki Íslendingar sögur annarra þjóða. Við gerum okkur þetta ekki ljóst, hvað við erum þarna afskaplega mikið að dragast aftur úr. Ég var að gamni mínu að glugga í fjárlög frá 1936 áðan, sjá, hvernig ýmsir slíkir hlutir hefðu verið þá. Það var á krepputímum, eins og menn vita. Og bókakaupin til landsbókasafnsins, sem núna eru 500 þús., voru þá 13 þús. kr. Síðan 1936 hafa fjárlögin 175-faldazt. Þau voru eitthvað 16 millj. 1936, þau eru núna, ef ég veit rétt, í kringum 2600 millj., 2500–2600 millj. Þjóðartekjurnar voru 1934, þegar tölur eru til yfir þær, 97 millj. eða í kringum 106 millj. Ég þori ekki að segja fyrir víst, hvað þær eru reiknaðar núna, en þær eru ekki reiknaðar undir 10 þús. millj. Þjóðartekjurnar hafa í peningum séð, ég tek það greinilega fram, peningarnir hafa hins vegar verið falsaðir mjög ríflega á þessum tíma, í peningum hafa þær hundraðfaldazt. Ef bókakaupin í landsbókasafninu væru hundraðföld, mundi það vera 1 millj. 300 þús., sem til þeirra væri varið og veitti sannarlega ekki af. Ég hef nú ekki farið svo hátt, ég hef farið í 1 millj. þarna.

Sama máli gegnir um þorrann af öllum þessum hlutum, sem við erum að tala um. Okkur hrakar þannig. Allt, sem var til skammar áður, verður til heiðurs þeim, sem síðan hafa verið rægðir í 50 ár fyrir að hafa verið smásálir. Mér datt það í hug, þegar hv. 10. landsk. var að tala hér áðan einmitt um skáldin og listamennina og leggja til að auka nokkuð til þeirra, og ég vil taka mjög undir það. En taki maður bara heiðurslaunin, sem við köllum, sem þá voru, og heiðurslaunin, sem nú eru. Þegar Þorsteinn Erlingsson fékk sínar alræmdu 600 kr., sem er búið að vera að skamma Alþingi fyrir í kveðskap síðan og reisa því svo að segja níðstöng, þá voru 600 kr. tímakaup verkamanns í 2400 klst., sem sé með 8 tíma vinnu árstekjur, það var 25 aura kaup þá, þannig að þótt þetta væri lítið og smánarlegt, þá var það þó árskaup verkamanns með 25 aura tímakaupi. 1936 voru á fjárl., 18. gr., 3 menn, sem fengu sérstök heiðurslaun, 5000 kr. hver, það voru Indriði Einarsson, Einar H. Kvaran og Halldór Laxness. Þeir fengu sínar 5 þús. kr. hver, og 5 þús. kr. voru 1936 með því Dagsbrúnarkaupi, sem þá var, 1.45 kr., ef ég man rétt, þá samsvaraði það árskaupi verkamanns plús 50%. Núna eru heiðurslaunin 33 þús. kr., þ.e. helmingurinn af samsvarandi árskaupi verkamanns, sem mundi vera 67 þús. kr., ættu eftir sama hlutfalli frá 1936 að vera 100 þús. Svona hefur þessu hrakað hjá okkur. Samanborið við það fátæka Ísland, það Ísland kreppuástandsins 1936 eða það fátæka Ísland 1906 og þar í kring, þá gerum við skammarlega á öllum þessum sviðum í því ríka Íslandi dagsins í dag.

Þá hef ég enn fremur lagt til í sambandi við 14. gr., um þjóðminjasafnið, að þar sé aukið nokkuð það, sem er nr. 2. til aðstoðar, tímavinnu, til þess að útvega gripi, til áhalda og aðgerða safngripa, bóka og ritfanga, það nemur 300 þús. kr., en sé aukið í 600 þús. Það er vitanlegt, að með hverju árinu sem líður núna eru í sambandi við byltinguna í landbúnaðinum að týnast verkfæri, sem hafa verið notuð í þúsund ár á Íslandi, þannig að það hefur ekki verið hægt að fá nein gömul verkfæri og það hefur orðið að smíða þessi verkfæri eftir fyrirsögnum manna, sem enn þá þekktu þessi verkfæri, svo að það væri eitthvað til, sem líktist því, sem menn hefðu notað. Svona er hröð þróunin og breytingin í þessu öllu saman núna, að við gerum okkur það ekki ljóst, að þegar kynslóð gömlu mannanna fer núna smátt og smátt að deyja út, deyr út þekking á hlutum, sem menn hafa notað í þúsund ár á Íslandi og menn vita ekki lengur, hvernig voru, og þeir eiga kannske bágt með að búa til. Við höfum stundum minnzt á það áður í sambandi við þessa hluti, að við þyrftum að reyna að láta hlaða og láta einhverja menn kunna að hlaða bæina okkar, þannig að týndist ekki alveg niður, hvernig þetta var gert. Og ég held, að það væri nauðsynlegt fyrir okkur, að það væri aukið, sem lagt væri fram í þessum efnum.

Þá legg ég þarna enn fremur til, að hljómplötusafn þjóðminjasafnsins sé aukið úr 5 þús. kr. upp í 25 þús. Ég veit, að það er önnur grein á fjárl., ekki beint undir þjóðminjasafninu, þar sem nokkuð hefur verið tekið tillit til þessa, en ég er samt hræddur um, að það líði svo ár eftir ár, að það glatist hjá okkur meira eða minna af því, sem við gjarnan hefðum viljað varðveita. Ég hef rætt hérna áður um það í sambandi við t.d. raddir okkar skálda, ekki sízt skálda eins og Davíðs Stefánssonar, sem hefur og sérstaklega hafði ljómandi rödd til upplestrar. Ég hef áður lagt það til hérna, það var fellt. Framtakssamur, áhugasamur kaupsýslumaður hefur gert þetta nú, of seint. Það er ekki sama röddin og Davíð hafði, sem nú er til á hljómplötu. Og svona er það að fara með hvert af öðru, það sem er að glatast hjá okkur af slíku og aldrei verður aftur tekið og okkar afkomendur munu tvímælalaust álasa okkur fyrir og hafa meiri ástæðu til að álasa okkur fyrir heldur en við okkar forfeður, þegar þeir voru að nota handrit í skóbætur, því að við höfum alla möguleika og nógan auð og allt saman til þess að gera þetta, en við erum svo sinnulausir, að við látum þetta glatast.

Þá legg ég enn fremur til í sambandi við þjóðminjasafnið nýjan lið, nr. 12. til kvikmyndagerðar, dokumentmynda og mynda af sögulegum minjum. Það er að vísu komið fræðslukvikmyndasafn ríkisins, en ég vil engan veginn treysta á, að það safn vinni að þessum hlutum. Við þurfum á slíkri kvikmyndagerð að halda, og við eigum ekki að treysta á það, að einstakir áhugasamir menn, sem hafa meiri áhuga á menningu Íslendinga heldur en Alþingi Íslendinga hefur, bjargi þessum hlutum. Við skulum segja, þegar við sjáum myndir eins og Ósvaldur Knudsen hefur gert, bæði t.d. af Halldóri Kiljan og af Þórbergi Þórðarsyni og af slóðum Fjalla-Eyvindar og slíku, þá sjáum við ósköp vel, hve mikið hefði verið hægt að gera af þessum hlutum, ef eitthvað dálítið hefði verið um þetta hugsað. Það er að fara úr byggð hver kotbærinn á fætur öðrum eða rifinn niður. Ég var einu sinni að leggja hér til, ég hef ekki reynt það aftur, af því að það virtist svo vonlaust, að við reyndum að láta taka mynd af lífi á íslenskum kotbæ. Líklega er nú svo komið, að það yrði næstum því að leika það. Kannske væri þá hægt að finna enn þá fólk, sem byggi í slíkum kotum, að það mundi gefa þessu rétta mynd. Við höldum við nokkrum af okkar gömlu höfðingjabæjum, fallegum bæjum, en við höldum engu við af kotbæjum. Og sveitabændurnir eru sjálfir oft fljótastir til þess að rífa kotin, eins og eðlilegt er, sumir kannske skammast sín fyrir þau, við aðra eru tengdar endurminningar um fátækt og hvers konar neyð og basl og lítið við þau að gera. En fyrir þjóðinni er það að glatast aðstæðurnar, sem yfirgnæfandi þorri þjóðarinnar bjó við í þúsund ár. Það var gert hér á Reykjavíkursýningunni góðu heilli að búa til smáeldhús, og ég sá ósköp vel, hve börnin í Reykjavík voru áhugasöm að sjá, hvernig hlóðaeldhúsin gömlu voru. Og það er engum efa bundið, að það mundi gera miklu, miklu auðveldara fyrir okkur að vinna það verkefni, sem er einna erfiðast andlega hjá þessari kynslóð, það er að viðhalda samhenginu í okkar þjóðmenningu, ef við gætum látið okkar ungu kynslóð kynnast ofur lítið þessu. En ef ekki er nú hægt að komast svo langt að varðveita eitthvað af þessum gömlu kotum, þá ætti þó a.m.k. að vera hægt að láta gera þannig kvikmyndir af þeim og lífinu, eins og það hefur verið þar, að það væri hægt að geyma þær og sýna þær seinna, svo að maður gæti fengið nokkra hugmynd um, hvernig menn lifðu hér.

Sama gildir um mennina, sem enn þá lifa. Við vitum allir, hvað við mundum gefa fyrir það, ef við ættum kvikmynd — og voru þá möguleikar til að taka slíkar kvikmyndir t.d. af mönnum eins og Stephani G. Stephanssyni eða slíkum. En við eigum það ekki. Og það eru óðum að hverfa nú menn frá öllum mögulegum sviðum í okkar þjóðmenningu, sem við gjarnan hefðum viljað eiga slíkar myndir af, og við eigum að gera ráðstafanir til þess, að slíkt sé gert. Það er oft eins og það sé slíkt feimnismál, að það er ekki lagt út í það, fyrr en menn allt í einu átta sig á því, að þessir menn eru dánir og það hefði nú verið gaman að því að eiga myndir af þeim.

Skyldi vera til kvikmynd af nokkrum af aðalprófessorum, sem hafa verið við Háskóla Íslands og helzt hafa gert garðinn frægan þar, mönnum eins og Ólafi Lárussyni, Sigurði Nordal eða öðrum slíkum, meðan þeir eru enn þá í kennslustólnum þar? Úr sögu háskólans, t.d. á 100 ára afmæli hans, yrði skemmtilegt að eiga eitthvað slíkt. Það yrði vafalaust þá farið að taka mikið af myndum. En ég er hræddur um, að við séum svo sparsamir með alla þessa hluti, að af hálfu þess opinbera sé varla um þetta hugsað.

Og svo er eitt, sem við skulum athuga í sambandi við þetta. Bókstaflega jörðin sjálf, landið eins og það er, við skulum segja, enn sem komið er hefur kannske landið, þar sem t.d. Örlygsstaðabardagi hefur verið háður eða ýmsir slíkir atburðir gerzt hér og hvar á landinu, — enn sem komið er er sums staðar landið eins og það var, alveg eins og það var í þúsund ár, sömu þúfurnar, sömu sandarnir. En við skulum gera okkur ljóst, að sú bylting, sem við stöndum frammi fyrir, gerbyltir öllu þessu landi. Við leyfum okkur máske slíkan lúxus eins og að keyra niður klausturrústirnar á Reynistað eða annað slíkt, og förum vafalaust víðar að jafna ýmsum slíkum gömlum hlutum við jörðu, en við ættum að geta á ýmsum sögustöðum tekið nokkrar myndir til þess að varðveita það. Við vitum, að eitt af því, sem okkur þykir að mörgu leyti vænst um núna, eru myndirnar, sem útlendingar hafa gert af Íslandi, t.d. teikningar, sem þeir gerðu af Íslandi, þegar þeir komu hingað. Og þessi kynslóð hefur samt enn þá möguleika til þess að kvikmynda ýmislegt af landinu, áður en verður búið að þaulrækta það allt saman. Það er ekki nema nokkurra áratuga spursmál. Þó að við séum að kvarta, að bæir séu að fara í eyði núna, þá vitum við ósköp vel, að með þeirri þörf, sem er í veröldinni, þá er ekki langt að bíða þess, að allt þetta land verði þaulræktað milli fjalls og fjöru. Og sjálft landið, sjálf jörðin verður allt, allt öðruvísi en hún hefur verið í þúsund ár. Og við eigum að láta búa til dokumentmyndir af þessu. Smám saman eru dokumentmyndir að verða alveg sérstök listgrein í kvikmyndaiðnaðinum og að mörgu leyti ein merkilegasta kvikmyndagreinin.

Ég vil enn fremur segja það, þegar við erum að tala um kvikmyndagerð og tala um þjóðminjasafnið, að við eigum ekki að takmarka þetta við Ísland. Við eigum að taka slíkar dokumentmyndir líka t.d. í Grænlandi og líka af byggðum Íslendinga vestan hafs. Ég býst við, að það standi enn þá þau hús, sem Stephan G. Stephansson byggði og bjó í. Við eigum að taka myndir af þessu. Því miður var ekki hugsað um það, þótt á það væri bent, að reyna að varðveita t.d. hornið hans og fá það hingað, eiga það í þjóðminjasafninu. En nokkrir Vestur-Íslendingar hafa þó tekið sig saman um að bjarga nokkru af þeim munum og munu hafa það í Winnipeg. Og fleira er það úr sögu Íslendinga í Vesturheimi, sem við hefðum möguleika á enn þá að búa til slíkar dokumentmyndir af. Ég held þess vegna, að 200 þús. kr. væri ekki stórt til þess að veita þjóðminjasafninu til slíkrar kvikmyndagerðar, og við eigum, Íslendingar, sjálfir orðið menn, sem eru lærðir í þessum hlutum. Ég veit af mönnum, sem eru útlærðir frá einhverjum beztu kvikmyndaskólum veraldarinnar, kvikmyndaháskólum, sem þykja einhverjir þeir beztu í veröldinni, og þessir menn eru sendir af hálfu þeirrar þjóðar, sem þeir hafa lært hjá, suður til Egyptalands núna til þess að taka myndir og Grikklands. En á Íslandi, ég gæti bezt trúað, að við látum þessa menn bara vera erlendis, þessa Íslendinga ganga í þjónustu annarra, en hagnýtum ekki þeirra þekkingu að neinu leyti sjálfir. Svona er sinnuleysið.

Þá er ég með tillögur í sambandi við styrki til bókaútgáfu, styrkir til Fornleifafélagsins, Fornritaútgáfunnar og Vísindafélagsins séu hækkaðir ofur lítið. Sannleikurinn er, að það er eins og allir þessir styrkir hafi frosið fastir. Styrkir til Fornritaútgáfunnar 1936 voru 4 þús. kr. og eru núna 75 þús., og þetta gengur ósköp seint hjá okkur með fornritaútgáfuna. Við erum að heimta handritin, sýnum samt ekki neitt svipaðan áhuga á að verja fé einu sinni til þess að sjá um handritin og koma þeim fyrir. Ég held, að það séu 2 millj., — er það ekki eitthvað slíkt? — sem ætlað er til þess á fjárl., en 4 millj. erum við með bara til almannavarna. Og við höfum verið smásálarlegir fram úr hófi í sambandi við byggingarhugmyndir um þetta. Vonandi fylgjast ekki Danir vel með því, sem við gerum í þessu, en ef þeir gerðu það, þá væru það óþægilega skemmtileg rök fyrir þá menn, sem eru enn þá á móti afhendingu handritanna í Danmörk. Hvað Fornleifafélagið snertir, lagði ég til, að það yrði hækkað úr 25 upp í 60 þús. Það er viðkunnanlegra að reyna þó að styðja einhverja í þessu efni, á meðan við ekki einu sinni vinnum svo að segja neitt sjálfir að því að grafa hér fornleifarnar. Landið er að heita má órannsakað enn þá í þessum efnum, enda er svo lítið, sem veitt er til þess, að það er eins gott að láta þá geyma það og láta vera óhreyft til seinni tíma, ef við ekki bara í millibilinu tökum upp á því að fara að byggja gífurleg stórhýsi á þeim stöðum, þar sem fornminjarnar kunna að vera undir. Það er dálítið slæmt, ef okkar afkomendur þyrftu endilega að fara að rifa margra hæða hús til þess að finna hitt og þetta, sem þeir hefðu áhuga á frá fornum tímum. En ég býst ekki við, að þeir mundu horfa í það, ef í það fer. M.ö.o.: það gengur svo grátlega seint með allar þessar rannsóknir, allar þessar útgáfur hjá okkur, að mér fannst nauðsynlegt að reyna ofur lítið að ýta á þetta.

Svo er ég hér með tvær till. í sambandi við 17. gr. Annað er að auka dálítið styrkinn til rekstrar dagheimilis Styrktarfélags vangefinna. Það er nú svo, að við eigum smátt og smátt að fara að stefna að því, að við sjáum sjálfir, þ.e. ríkið sjálft, um þessi svokölluðu félagslegu útgjöld, að við látum það ekki fyrst og fremst vera undir áhugafélagsskap borgaranna komið, hvernig þetta gengur. Og ég held það sé rétt, að við reynum að sýna þarna ofur lítinn lit á því. Það er fjárhæð, sem vissulega munar ekki miklu, heldur aðeins til þess að sýna eitthvað dálítið.

Svo legg ég til í sambandi við 17. gr., að það sé bætt nýjum lið við, svo hljóðandi: „Til þess að kosta mann samkv. vali félmrn. til þess að ferðast um byggðir Grænlendinga, kynna sér lífskjör þeirra og rita bók um þau og félagslegan aðbúnað þjóðarinnar, og sé bókin síðan gefin út, 250 þús. kr.“ Það hefur hjá öllum Norðurlandaþjóðum verið talað mjög mikið um það á undanförnum árum og hjá ýmsum þeirra sýnd allmikil ræktarsemi í því sambandi, að þær ættu að gera nokkuð fyrir þær þjóðir, sem kallaðar hafa verið byggja þróunarlöndin, eða fyrir þær þjóðir, sem hafa verið að losa sig úr nýlendufjötrum, eru á ýmsan hátt mjög frumstæðar, ekki sízt í félagslegum efnum, og þarfnast á ýmsan hátt aðstoðar og vilja gjarnan taka við slíkri aðstoð, einmitt sérstaklega frá þjóðum eins og t.d. Norðurlandaþjóðunum, sem þær gruna ekki um græsku í slíku sambandi. Nú er það svo, að næsti nágranni okkar er frumstæð þjóð, sem hefur verið frumstæð fram á okkar daga og er að byrja að breytast, en lifir enn þá við eins frumstæð kjör, partur af henni. Þarf ekki annað en tala við t.d. flugmennina eða þá, sem heimsækja byggðir, sem Grænlendingar búa í, til þess að sjá, hve frumstæð kjör það eru, sem þessi þjóð lifir við.

Við ættum að fara að skipta okkur meira af, hvernig Grænlendingum líður. Það er gott, að við Íslendingar höfum getað lagt til menn til þess að kenna t.d. frumstæðum þjóðum í Indlandi og víðar. Það er líka kannske heppilegt, að við sendum trúboða suður til Afríku og menn kynni sér, hvernig þjóðirnar lifa þar. En ég held þó, að við ættum fyrst af öllu að senda menn til Grænlands að kynna sér, hvernig sú þjóð lifir, og sá maður, sem ég hef í hyggju að félmrn. sendi þangað, það væri maður, sem ætti að kynna sér lífskjör þjóðarinnar, eins og þau eru í dag, og lýsa þeim og draga ekkert undan, hvorki gott né illt. Það er ekkert spursmál um, að Danir hafa gert ýmislegt gott í Grænlandi, en það er líka óskaplega mikið vangert þar, og það þarf að draga hvort tveggja fram í dagsins ljós. Danir hafa sjálfir, ýmsir danskir menn, verið mjög hiklausir í þessum efnum, og ég álít, að okkur Íslendingum beri alveg sérstök skylda til þess að kynna okkur, hvernig Grænlendingar lifa, og lýsa því, fyrst og fremst fyrir okkur sjálfum. E.t.v. yrði slík bók líka þýdd á aðrar tungur. En ég held, að við ættum að skoða sem skyldu að fara slíka för. Það fór Íslendingur slíka för og skrifaði um hana fyrir tæpum 70 árum. Helgi Péturss ferðaðist þarna um 1897 í dönskum leiðangri, skrifaði um sína Grænlandsför mjög merkilega bók, sem fljótt var gefin út þá á íslenzku, og ég álít, að það væri með þeirri aðstöðu, sem menn hafa nú til þess að gera slíka ferð alveg ljóslifandi fyrir aðra, þá væri það mjög gott að fá mann, sem væri mjög hæfur til slíks, til þess að ferðast þarna og skrifa um það. Auðvitað mundi sá maður hafa bæði myndavél og kvikmyndavél með og geta sýnt myndir af því, hvernig fólkið lifir þarna.

Danir hafa lýst því yfir, að Grænland væri hluti af Danmörku. Vér Íslendingar höfum aldrei fallizt á þá yfirlýsingu og aldrei samþykkt hana. Það var fallið frá því að samþykkja hana hér á Alþingi, þegar mælzt var til þess, að af hálfu Alþingis yrði lögð blessun yfir það, að Danir hættu að gefa skýrslur um Grænland sem nýlendu til Sameinuðu þjóðanna, og Danir tóku upp sama hátt og Portúgalar og aðrir hafa haft að innlima það, sem áður var talið vera nýlenda, í landið sjálft og telja Grænland nú fylki úr Danmörku. Hins vegar er það vitanlegt, að um Grænland gilda allt önnur lög og allt aðrar reglur af Dana hálfu heldur en um eitt amt í Danmörku og enn þá þarf að sækja um ýmis leyfi og annað slíkt til þess að fara til Grænlands, sem er í raun og veru alveg óþolandi að haldið skuli uppi, á sama tíma sem menn lýsa því yfir, að þetta sé einn hluti af Danmörk. Og það er engum efa bundið, að það er reynt að dylja ýmislegt af því, sem þarna gerist, og það er nauðsynlegt, að það komi fram, hvernig þessi þjóð lifir, og okkur Íslendingum ber framar öllum öðrum, bæði vegna fornra, sögulegra tengsla og vegna þess að þetta eru okkar næstu nágrannar, skylda til þess að rannsaka það og sjá, hvernig þessi þjóð lifir, ferðast um allar hennar byggðir, ræða við menn þar, taka myndir af því og lýsa því, sem þarna er. Ég er ekki að meina að draga neitt undan, hvorki af því góða, sem Danir hafa gert þar, né af því slæma, sem þeir láta þar enn viðgangast.

Ég efast ekki um, að ef maður yrði sendur til Grænlands í slíkan leiðangur og ferðaðist, og ég efast ekki um, að félmrn. mundi velja til þess hentugan mann, þá mundi það verða mjög merkileg bók, sem sá maður skrifaði. Ég efast ekki um, að það mundu mörg bókaútgáfufyrirtæki hér á Íslandi vera reiðubúin til þess að gefa slíka bók út. Það þyrfti ekki endilega að vera á ríkisins vegum, þótt að því sé kannske óbeint látið liggja þarna. Ég býst líka við, að menningarsjóður hefði áhuga á slíku. En ég held, að það sé rétt af okkur að setja okkur í spor þeirra manna, sem þarna byggja. Við fengum heimsókn í sumar af ýmsum þessum mönnum, og ég held, að öllum þeim, sem hafa kynnzt þeim að einhverju leyti, hafi þótt vænt um þá heimsókn, og ég efast ekki um, að Grænlendingum hafi sérstaklega þótt vænt um það að heimsækja okkur hérna. Það er engum efa bundið, að þorranum af Grænlendingum finnst vænt um að geta komizt í meira samband við Ísland en þeir hafa verið í. Og með tilliti til þess, hvað okkur þótti vænt um, að útlendir menn ynnu fyrir Ísland og kynntu Ísland erlendis, þegar við stóðum í okkar sjálfstæðisbaráttu, ættum við að geta skilið hug og þrár Grænlendinga í því sambandi. Við vitum enn þá, hvernig þeir menn, sem unnu þannig fyrir Ísland, til þess að kynna það og þess sjálfstæðiskröfur, menn eins og Konrad Maurer eða William Morris eða aðrir slíkir, svo að ég ekki tali um ýmsa Skandinava, — við vitum, hve okkur þykir enn þá vænt um, hvað þessir menn unnu fyrir okkur. Og þá eigum við líka að hugsa til þess, hvort Grænlendingum muni ekki seinna meir þykja vænt um það, ef Íslendingar gera eitthvað til þess beint eða óbeint að vekja athygli á þeirra aðstöðu allri. Ég verð að segja það, eins margt og er til fyrirmyndar í félagslegri löggjöf Dana fyrir Dani sjálfa, þá vantar ákaflega mikið á, að það sé framkvæmt fyrir þá menn, sem í Grænlandi búa. Og það þarf að koma fram í dagsins ljós, launakjörin, sem menn búa þar við, kofarnir, sem menn búa þar í, aðstæðurnar, sem fólkið lifir við, draga þetta allt saman fram í dagsins ljós og líka um leið stóra og góða hluti, sem hafa verið gerðir þarna. Og annað býst ég við, að hver sá maður, sem heimsækti þessa þjóð, mundi taka með, ef hann væri að lýsa henni, og það er hennar listfengi, ekki bara í hennar búningum, sem eru sem stendur ein fallegasta tízkufyrirmyndin, sem til er í Evrópu, setur mark sitt á meginið á öllum þeim peysum, sem unga fólkið á okkar tímum nú klæðist í, heldur líka þau listaverk, sem þeir skera úr ýmsum beinategundum, þannig að líka það, sem þessi þjóð geymir af slíkri listfengi, mundi vafalaust koma fram í slíkri bók. Og við vitum, hver hætta er alltaf á, að þegar vélamenningin heldur sína innreið í slík lönd, þá hverfi þessir gripir. Ég man alltaf eftir kvikmynd, sem ég sá einu sinni, þegar dönsku konungshjónin heimsóttu Grænland, þegar konungurinn var að gefa börnunum bíla, eins og venjulegar véla- og blikksamsetningar úr verksmiðjunum, og þegar var svo verið að gefa konungshjónunum þessa dásamlega fögru hluti, sem Grænlendingarnir hafa skorið út úr beinum. Þá sá maður bezt, hve óskaplega mikið þessar þjóðir, sem kunna sitt handverk, eru í listrænum smekk hafnar upp yfir okkar vélaöld. Og hættan er alltaf, að svo og svo mikið af þessu týnist og er að glatast hjá þorranum af öllum af þessum þjóðum, sem nú lifa í heiminum. Við vitum, að alls staðar í veröldinni er fullt af þessum frumstæðu þjóðum með dásamlega og furðulega list í þessum efnum sem er að glatast hjá okkar kynslóð: Og við eigum að gera ráðstafanir til þess að okkar leyti að hjálpa til að varðveita, hjálpa til að vekja eftirtekt á þessu, alveg sérstaklega til að kynna okkar eigin þjóð, hvað þarna er að gerast. Og það kann líka ýmislegt að lifa þarna, þó að við höfum ekki hugmynd um það núna, því að við þekkjum þessa nágranna okkar svo lítið, af því, sem einu sinni lifði hjá okkur og kann að vera dautt hjá okkur eða lifði þá kannske hjá okkar forfeðrum á þeim stöðum, þar sem þeir þá bjuggu, en nú er týnt og við erum jafnvel algerlega búnir að gleyma sjálfir.

Þetta allt, sem ég hef lagt þarna til, eru ekki háar upphæðir. Það þarf oft og tíðum ekki mikið til þess að vinna eitthvað í menningarmálum. En það þarf hugsun og ræktarsemi til þess. Og ég fer fram á, að hv. Alþingi sýni það, og þess vegna hef ég flutt þessar fáu till., sem að undantekinni þeirri fyrstu eru til samans einu sinni varla upp á eina millj. af þeim 2500 millj., sem þessi fjárlög hljóða upp á. Ég vona þess vegna, að þessar litlu till. megi finna náð fyrir augum meiri hl. í hv. Alþingi.