22.04.1964
Sameinað þing: 68. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í D-deild Alþingistíðinda. (2619)
184. mál, sjómannatryggingar
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Með till. þessari er lagt til að skora á ríkisstj. að skipa 3 manna nefnd til þess að láta fara fram athugun á allmiklum breytingum á þeim tryggingum, sem nú eru í gildi fyrir sjómenn. í till. er lagt til, að þessi nefnd skuli skipuð þannig, að í henni skuli verða tveir tryggingafræðingar og einn aðili tilnefndur af Landssambandi ísl. útvegsmanna. Það hlýtur strax að vekja athygli, að annar meginaðilinn, sem á hlut að máli í sambandi við þessar tryggingar, sjómenn og samtök þeirra, það er ekki ætlazt til þess, að þeir hafi neinn sérstakan fulltrúa við þessa endurskoðun. Þetta tel ég í mesta máta óeðlilegt, eigi að taka þessi mál til þeirrar endurskoðunar, sem lagt er til með þessari till. Það er út af fyrir sig ekkert við það að athuga, að það sé látin fara fram athugun á því, hvort unnt sé að koma þessari tryggingastarfsemi fyrir á hagkvæmari og betri hátt en nú á sér stað, en þá virðist líka alveg sjáifsagt að gefa jöfnum höndum fulltrúum atvinnurekenda og sjómanna rétt á því að vera við þá endurskoðun. Að ganga fram hjá öðrum aðilanum í þessum efnum nær vitanlega engri átt og enn þá síður þegar þess er gætt, að allmikið af þeim verkefnum, sem þarna erum rætt, er komið inn í sambandi við beina kjarasamninga á milli samtaka sjómanna og útgerðarmanna.
Að öðru leyti vil ég svo segja það, að ég held, að það muni verða mjög erfitt að ætla sér að sameina í eina tryggingu, eins og ráðgert er í þessari till., allar þær tegundir af tryggingum, sem hér eru taldar upp. Hér erum það að ræða, að sjómenn eru auðvitað eins og aðrir einstaklingar í landinu, þeir tilheyra hinu almenna tryggingakerfi, þeir eru aðilar að sjúkrasamlögum eins og aðrir, og það þarf að annast sérstakar ábyrgðartryggingar vegna starfa þeirra eins og fyrir aðra starfsmenn í landinu. Það er ekkert sérstakt um sjómenn að segja, en það er býsna erfitt að hugsa sér að slíta tryggingar sjómanna t.d. út úr hinni almennu sjúkratryggingu í landinu og fara að bjóða út til allt annarra aðila sjúkratryggingu þeirra. Það held ég, að muni reynast heldur erfitt í framkvæmd og mjög hæpið. Auk þess er þarna ýmsu, í rauninni alveg óskyldu, blandað saman. eins og t.d. samningsákvæðum um það, að útgerðarmann hafa tekið á sig þá skyldu að greiða tiltekið gjald miðað við kaup sjómanna í hina sérstöku sjúkrasjóði stéttarfélaga þeirra. Þetta er nákvæmlega hliðstætt því, sem á sér stað um sjúkrasjóði verkamanna, iðnaðarmanna og margra annarra. Þessir sjúkrasjóðir starfa yfirleitt þannig, að þeir veita hjálp í sjúkdómstilfellum umfram það, sem hin almenna sjúkratrygging almannatrygginganna veitir. Hér eru því ekki nein sérákvæði varðandi sjómenn fram yfir það, sem er varðandi margar aðrar starfsstéttir í landinu. Hér er sem sagt um að ræða ákveðna greiðslu í sérstaka sjóði þessara stéttarfélaga, sem starfa eftir þar til settum reglum, og það er afar hæpið að ætla að blanda því saman við aðrar starfsmannatryggingar, eins og t.d. aðra almenna ábyrgðartryggingu vegna áhættu, sem fylgir hinum ýmsu störfum. Sumar af þessum tryggingum eru nú algerlega frjálsar, og útgerðarmenn hafa fullt frelsi til þess að leita tilboða í slíkar tryggingar. Þannig er t.d. háttað um ábyrgðartryggingar og fatatryggingar í sambandi við sjóslys, en ákvæði um það eru búin að vera í lögum um nokkra tugi ári. Þessar tryggingar eru algerlega frjálsar, enda er þeim dreift nú mjög á milli hinna einstöku tryggingafélaga. Tiltölulega nýtilkomnar tryggingar sjómanna, eins og hækkunin á hinni almennu slysatryggingu, þar sem samið hefur verið um, að útgerðarmenn í ýmsum tilfellum skyldu kaupa af sjómönnum 200 þús. kr. viðbótartryggingu við hina almennu slysatryggingu samkv. almannatryggingalögunum, — slík ákvæði hafa auðvitað komið inn í samninga vegna þess, að hið almenna tryggingakerfi nær allt of skammt. eins og viðurkennt er. En það er auðvitað opið fyrir útgerðarmenn að semja í þessum tilfellum jöfnum höndum við hið almenna tryggingakerfi að taka að sér þessa viðbótartryggingu eða þá að leita til annarra tryggingastofnana með þessa tryggingu.
Ég vil því segja það aðallega í sambandi við þessa till., að ég tel ekkert við það að athuga, að látin sé fram fara sú athugun, sem óskað er eftir með þessari till., að því leyti til, sem þetta er framkvæmanlegt mál, að það er hægt að taka vissar greinar þessara tryggingu, sameina þær og skapa möguleika til þess jafnvel að bjóða þær út eða ná betri tryggingakjörum kannske en nú á sér stað. En þeim verður ekki blandað saman við ýmsar aðrar tryggingareglur, sem þarna eru taldar upp og eru allt annars eðlis og er í rauninni ómögulegt að blanda saman við hinar almennu tryggingar. En verði þessi endurskoðun látin fara fram og farið fram á, að ríkisstj. skipi nefnd í þessu skyni, tel ég algert lágmark, að fulltrúar frá samtökum sjómanna verði einnig í endurskoðunarnefndinni, svo að sjónarmið þeirra fái að koma fram, ef á að taka upp nýtt kerfi í þessum efnum. Það sýnist mér vera alveg sjálfsagt, og ég vil beina því til þeirrar nefndar, sem fær þetta mát til athugunar, að þessari till. verði a.m.k. breytt í þá átt.