13.05.1964
Sameinað þing: 78. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í D-deild Alþingistíðinda. (2648)
188. mál, áfengisvandamálið
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi þakka hv. allshn. fyrir Þær viðtökur, sem þessi till. hefur fengið, en hefði þó ekki staðið upp sérstaklega vegna þess, heldur vegna þeirrar brtt., sem hv. 3. þm. Norðurl. e. hefur hér flutt. Ég get fullkomlega tekið undir öll hans orð um það, að þau samtök, sem hann nefndi, hafa unnið hið merkilegasta starf í þágu bindindismála, og sjálfur ætti ég ekki að hafa á móti því, að samvinna sé við þau höfð, Þar sem ég á sæti m.a. í áfengisvarnaráði og stjórn Landssambandsins gegn áfengisbölinu. En engu að síður mundi ég telja það óæskilegt, að þessi brtt. yrði samþ., og það stafar af því, sem ég veit að allir hv. þm. munu gera sér grein fyrir, að hér er sú sérstæða leið farin um nefndarskipun, að það er ákveðið, að eingöngu alþm. skuli taka sæti í n., og ég gerði grein fyrir því, þegar ég flutti framsögu um málið, að ég teldi æskilegt, að starfshættir þessarar n. yrðu sem allra óbundnastir, og í rauninni tel ég það mjög hæpið og óeðlilegt, að Alþingi fari að segja slíkri n., sem skipuð er eintómum þm., hvernig hún eigi að vinna verk sem þetta. Það er eðlilegt, að það sé mótað, hvaða verk hún á að vinna, en ekki hvaða starfshætti hún hafi. Það geta auðvitað komið til greina ótal aðilar, sem nauðsynlegt er að hafa samráð við. En að binda slíka þm. nefnd á þann veg að fyrirskipa henni beinlínis, að hún skuli hafa samráð við tiltekna aðila, tel ég, að væri ekki til bóta, og þetta er ástæðan til þess, að ekki var í till. sjálfri neitt um það, við hverja þessi n. skyldi tala, við hverja hún skyldi hafa samráð að öðru leyti, og ég hefði talið það langæskilegast, ef hv. fim. brtt. hefði vitjað fallast á að taka hana aftur. Ég veit, að fyrir honum vakir ekki nema gott eitt í þessu máli, en með hliðsjón af þeirri hugsun, sem liggur að baki skipun n., teldi ég, að það væri mjög óheppilegt fyrir n. sjálfa, að hún fengi einhver ákveðin fyrirmæli um það frá þinginu, hvernig hún skyldi haga störfum sínum. Það eru því í fyrsta lagi tilmæli mín til hv. þm., að hann féllist á að taka till, aftur, en að öðrum kosti treysti ég mér ekki fyrir mitt leyti til að mæla með því, að hún sé samþykkt, með allri virðingu fyrir þeim ágætu samtökum, sem þarna erum að ræða.