13.05.1964
Sameinað þing: 78. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í D-deild Alþingistíðinda. (2659)
199. mál, Björnssteinn á Rifi
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Á þskj. 418 er till. til þál. um að varðveita Björnsstein á Rifi. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta varðveita svonefndan Björnsstein á Rifi á Snæfellsnesi og búa um hann eftir fyrirmælum þjóðminjavarðar. Skal kostnaður teljast með stofnkostnaði landshafnar á Rifi.“
Umræddur steinn á sína sögu, sem lifað hefur með þjóðinni nú um nærri 5 alda skeið. Sagan segir, að Björn ríki Þorleifsson hafi árið 1467 komið út á Snæfellsnes og hafi þá slegið í bardaga milli hans og enskra kaupmanna, sem þar ráku þá óleyfilega verzlun. Viðureign þessi var hörð, og er sagt, að Björn hirðstjóri og menn hans hafi barizt vasklega, en hafi að lokum hörfað undan fyrir ofurefli liðs, en bardaganum lauk á umræddum steini og þar á Björn að hafa verið hálshöggvinn. Síðan hefur bjarg þetta eða steinn verið nefndur eftir Birni og kallaður Björnssteinn. Það er annað, sem tengt er atburði þessum og einnig hefur geymzt með þjóðinni um fimm aldir, en þar á ég við viðbrögð og svör húsfreyju Björns ríka, Ólafar Loftsdóttur. En hún á að hafa sagt, þegar hún frétti fall bónda síns: „Eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði og hefna.“
Eins og segir í grg. fyrir till., er steinn þessi á umráðasvæði landshafnarinnar á Rifi. Hann er nú að miklu leyti grafinn í sandinn, en þar sem búast má við miklu jarðraski samfara hafnarbyggingunni, þarf að hafa með því vakandi auga, að þessar fornu minjar liði ekki undir lok og að búið verði um steininn eftir fyrirmælum þjóðminjavarðar, eins og tillgr. kveður á um. Og það er ekki óeðlilegt, eins og á stendur, að kostnaðurinn við þær aðgerðir, sem hér er þörf á, verði greiddur og talinn með í stofnkostnaði landshafnarinnar. Fyrir því leyfir fjvn. sér að mæla með samþykkt þessarar till.