13.05.1964
Sameinað þing: 78. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í D-deild Alþingistíðinda. (2682)
208. mál, tunnuverksmiðja á Skagaströnd
Fram. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Till. þessi, sem hér er til umr., er á þá leið, að Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um, að stofnuð verði og starfrækt tunnuverksmiðja á Skagaströnd, svo fljótt sem við verður komið.
Þessari till. var vísað til allshn. Er n. tók till. til meðferðar, komu fram þau sjónarmið innan n., að menn ættu erfitt með að taka afstöðu til þess, hvort þeir vildu styðja að Því, að tunnuverksmiðja yrði reist á Skagaströnd, án þess að áður færu fram undirbúningsathuganir á því máli. Þess vegna náðist innan n. samkomulag um að breyta till., eins og fram kemur í nál. og brtt. á þskj. 650. En þessar brtt. eru í aðalatriðum í því fólgnar, að í stað þess að hlutast til um, að stofnuð verði og starfrækt tunnuverksmiðja á Skagaströnd, svo fljótt sem við verður komið, þá verði látin fara fram athugun á því, hvort heppilegt sé að reisa tunnuverksmiðju á Skagaströnd til að bæta úr hinu ótrygga atvinnuástandi, sem þar hefur ríkt. En jafnframt er í þessari brtt. undirstrikað, að með fyrirætlunum um tunnuverksmiðju á Skagaströnd er vitaskuld að því miðað að auka tunnusmiðina innanlands, en það er ekki hugsað á þeim grundvelli, að tunnusmiði á Skagaströnd drægi úr innlendri tunnusmíði annars staðar.
Nm. voru, eins og ég hef áður sagt frá, sammála um að mæla með till. með þessum breytingum, sem koma fram á Þskj. 650, en einn nm., hv. 3. þm. Norðurl. e., áskildi sér þó rétt til að flytja frekari brtt. eða fylgja öðrum slíkum till., er fram kynnu að koma.