06.11.1963
Sameinað þing: 12. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í D-deild Alþingistíðinda. (2722)
57. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Háttvirtu áheyrendur. Ég mun nota þær fáu mínútur, sem ég hef hér til umráða, til þess að ræða einkum frv. um launamál, en vík aðeins áður að öðrum þáttum.
Stefna hæstv. ríkisstj. var í upphafi mörkuð með setningu l. um efnahagsmál, nr. 4 frá 1960, og í aths. og framsöguræðum í sambandi við það. Eins og flestir muna, stóð ekki svo litið til, þegar þessar yfirlýsingar voru gefnar. Öllu átti að breyta, allt átti að laga, ný stefna skyldi upp tekin, sem fær væri um að leiða þjóðina út úr þeim efnahagsógöngum, sem hún væri stödd í. Af öllum þeim fjölmörgu stefnuskráratriðum, sem birt voru, skal ég aðeins minna á örfá.
Ríkisstj. kvaðst ætla að koma atvinnulífi þjóðarinnar á traustan og heilbrigðan grundvöll. Hún kvaðst ætla að stöðva verðbólguna og halda dýrtíðinni í skefjum. Hún sagðist ætla að hafa vextina þannig, að hægt væri að fullnægja eðlilegri eftirspurn eftir lánsfé án strangrar skömmtunar. Hún sagði, að það skyldi vera verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör. Með þessu o.fl. slíku töldu ráðh. sig vera að framkvæma það loforð sitt að stuðla að göngu þjóðarinnar á leiðinni til bættra lífskjara.
Í kosningabaráttunni á s.l. vori gengu frambjóðendur stjórnarflokkanna enn fram til bardaga undir gunnfánanum frá 1960. Þeir lýstu því með hjartnæmum orðum, hve þar væri um samhenta hjörð að ræða. Nú vissi fólk í fyrsta skipti í marga áratugi a.m.k., hvað verið væri að kjósa um, hvað við mundi taka eftir kosningar. Kjósið okkur, sögðu þeir, kjósið áframhaldandi viðreisn. Allt skal verða framvegis eins og verið hefur, ótakmarkað viðskiptafrelsi, hækkandi laun og batnandi lífskjör með frjálsum samningum launþega og atvinnurekenda. Okkar markmið er frelsi, þeirra markmið er ríkisafskipti, eins og það var þá orðað. Þannig voru þessar yfirlýsingar hv. stjórnarliða fyrir 4 árum og líka fyrir 5 mánuðum. Við, sem vorum í framboði fyrir Framsfl. í síðustu kosningum, sögðum frá því , að ástandið Í efnahagsmálum þjóðarinnar væri hvergi nærri eins glæsilegt og stjórnarliðar vildu vera láta, og við færðum fram mörg rök og þung máli okkar til stuðnings. Því var af þeirra hálfu svarað þannig, að málflutningur okkar var kallaður ósannindi, rök okkar falsrök, og út á þetta hélt stjórnin meiri hl. sínum í vor.
Nú er hins vegar komið allt annað hljóð í strokkinn í þeim herbúðum. Ríkisstj. er nú farin að viðurkenna, að ekki er allt sem sýnist í glæsiheimi íslenzkra efnahagsmála. Ráðh. eru jafnvel farnir að tala um mikinn vanda og heita á þegnskap landsmanna til að þola harðleiknar ráðstafanir. Nú eru ekki notuð lýsingarorðin frá 1960 ekki lýsingarorðin frá því í vor, heldur allt önnur. Hæstv. forsrh. og viðskmrh. lýstu ástandinu, eins og það nú er, hér fyrir nokkrum dögum. Það voru sannarlega ófagrar lýsingar og í höfuðatriðum á þessa leið:
Innflutningur okkar hefur vaxið of mikið, greiðslujöfnuður versnandi, bankaútlán of mikil. óheillaþróun í launamálum, neyzla og fjárfesting meiri en framleiðslan, of miklar framkvæmdir, sparifjáraukning minnkandi, lánsfjáreftirspurn vaxandi, horfur á, að gjaldeyrisvarasjóður minnki verulega á árinu. — Svona eru lýsingarnar nú.
Þegar málflutningur flokkanna í vor er skoðaður í ljósi þeirra staðreynda, sem síðar hafa orðið kunnar, verður miklu auðveldara að gera sér grein fyrir því, hver þá hafði rétt fyrir sér, hverra rök það eru, sem reynzt hafa falsrök.
Hvernig hefur svo tekizt að framkvæma einstakar greinar þeirra r stefnuyfirlýsingar, sem ég áðan nefndi? Ekki hefur tekizt að koma atvinnulífi þjóðarinnar á traustan og heilbrigðan grundvöll. Því er ekki einu sinni haldið fram. Þvert á móti er nú gripið til örþrifaráða í þeim tilgangi að halda framleiðslunni gangandi, að því er sagt er. Hvernig hefur tekizt að stöðva verðbólguna og halda dýrtíðinni í skefjum? Þegar hinar gífurlegu álögur voru lagðar á þjóðina 1960, sagði ríkisstj., að hækkun framfærslukostnaðar yrði aðeins 3% Þeirra vegna. Síðan þetta var út gefið, hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað, ekki aðeins um 3%, heldur um 44%. Þannig hafa efndir þessa loforðs orðið þær, að dýrtíðin hefur aukizt stórkostlega og verðbólgan leikur lausum hala. Hvernig hefur tekizt að fullnægja eftirspurn eftir lánsfé án strangrar skömmtunar? Það hefur tekizt þannig, að lánastofnanirnar hafa aldrei verið fjær því en nú að fullnægja eftirspurn þrátt fyrir háu vextina. Og hvernig hefur tekizt að framkvæma loforðið um, að það skyldi vera verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör? Þannig hefur það tekizt, að nú er til afgreiðslu hér á hv. Alþingi stjfrv. um að banna allar kauphækkanir og launabreytingar. Svona hefur þá forusta hæstv. ríkisstj. gefizt á leiðinni til bættra lífskjara.
Með stjórnarfrv. um launamál er áreiðanlega gengið lengra en nokkru sinni fyrr á Íslandi í því að svipta verkalýðsfélögin og launþegasamtökin samningafrelsi sínu. Bannað er að hækka kaup og gera verkföll, frá því að lögin taka gildi og til 31. des. n.k., og ekki einungis þetta, heldur skulu líka allar slíkar aðgerðir ólöglegar, sem gerðar kunna að vera, frá því að frv. var lagt fram. Auk þess er svo ekki annað að sjá en hér eigi að fara inn á alveg nýja braut, því að allar líkur benda til þess, að lausn hæstv. ríkisstj. á efnahagsmálunum sé einmitt sú að halda áfram að hafa kaupið bundið, einnig eftir áramótin.
Hér á dögunum var borin fram fsp. til ríkisstj. um það, hvort hún vildi lýsa því skýrt og afdráttarlaust yfir, að eftir 31. des. 1963 skyldu kaup og kjör ákveðin með frjálsum samningum í samræmi við skýlaus loforð þar um. Þessu svaraði hæstv. forsrh. þannig, að ekkert vit væri í að lýsa þessu yfir, meðan málið er í rannsókn, og taldi óvarlegt að fullyrða nokkuð á þessu stigi. Þetta sýnir, að hæstv. ríkisstj. vill a.m.k. ekki útiloka þann möguleika, að þessum málum verði eftir áramótin ráðið til lykta með lagaboðum til frambúðar.
Að mínum dómi er það mjög varhugavert að byggja framtíðarlausn efnahagsmálanna á því að svipta launþegana samningsrétti sínum og verkfallsrétti. Þau réttindi að hafa sjálf íhlutunarrétt um kaup sitt og kjör eru einhver hin dýrmætustu, sem verkalýðshreyfingin hefur eignazt í allri sinni löngu baráttu, og þau eru ekki aðeins ein hin dýrmætustu, heldur alveg vafalaust einnig ein hin dýrkeyptustu, og er óþarfi að rifja upp þá sögu hér, hún ætti að vera öllum svo kunn. Ég tel því vægast sagt mjög ólíklegt, að verkalýðssamtökin muni baráttulaust láta taka þessi réttindi af sér, og miðað við samtakamátt félaganna, eins og hann er nú, held ég, að það sé afar óráðlegt, svo að ekki sé meira sagt, fyrir hæstv. ríkisstj. að láta sér til hugar koma að reyna slíkt.
Hæstv. ríkisstj. hefur undanfarna daga fengið vitneskju um þau viðbrögð, sem flutningur frv. hefur vakið. Hvaðanæva berast mótmælin gegn þessari lagasetningu, og það vekur sérstaka athygli, að þau launþegasamtök, sem lúta forustu stjórnarstuðningsmanna, hafa ekkert síður en hin séð sig knúin til að mótmæla þessari árás. Þetta sýnir glöggt og betur en mörg orð frá mér, að verkfallsrétturinn og samningsrétturinn er svo dýrmætur, að jafnvel foringjar þessara félaga treysta sér ekki til að gera það fyrir ríkisstj. sína að láta hann af hendi.
Sjálfsagt er margt, sem þarf að lagfæra í samskiptum verkalýðsfélaga og atvinnurekenda hér á landi, það mundi t.d. auka líkurnar fyrir vinnufriði í landinu til mikilla muna, ef hægt yrði að koma því á, að allir eða sem allra flestir samningar rynnu út á sama tíma. Með heildarsamningum sem allra flestra vinnuhópa væri hægara að fá yfirlit yfir það, hvað sanngjarnt væri, að hver og einn bæri úr býtum hlutfallslega af því , sem til skiptanna er hverju sinni. Slíkir heildarsamningar mundu draga úr launakapphlaupinu og auka líkurnar á friðvænlegra ástandi á vinnumarkaðinum. En ég vil leggja ríka áherzlu á, að þessu marki verður að ná með frjálsum samningum milli þeirra , sem hér eiga mestra hagsmuna að gæta, og á þann hátt, að fullt tillit verði tekið til óska verkafólksins í þessum efnum.
Frv. um launamál er ekki skref í þessa átt, heldur þvert á móti. Sú lögbinding, sem þar er ráðgerð, verður síður en svo til þess að greiða fyrir samkomulagi um kjaramálin, heldur mun hún spilla stórlega fyrir því, að það samkomulag geti náðst, sem hér þarf til að koma. Þannig hefur þetta frumhlaup ríkisstj. Þegar gert ófyrirsjáanlegt ógagn, jafnvel þótt ekkert yrði úr frekari framkvæmdum. Jafnvel þótt frv. verði fellt hér eða dregið til baka, hefur það stórlega spillt fyrir framgangi þeirra r þróunar, sem koma þarf, vegna þess að með flutningi frv. hefur hæstv. ríkisstj. sýnt, hvern hug hún ber til þessara mála, og vakið tortryggni, sem erfitt gæti orðið að eyða.
Sjávaraflí hefur verið meiri hér síðustu árin en nokkru sinni áður. Sala útflutningsafurða gengur mjög greiðlega og verð þeirra fer hækkandi. Í slíku árferði ætti að vera hægt að greiða fólki viðunandi laun. Sé það ekki mögulegt, hljóta menn að álykta, að stjórnin á málefnum þjóðarinnar sé öðruvísi en hún ætti að vera.
Í stað þeirra r lögfestingar á kaupi, sem ríkisstj. stefnir að, ber að fara samningaleiðina. Það er óhjákvæmilegt að bæta kjör verkamanna og annars lálaunafólks, og ráðstafanir þarf að gera til þess, að atvinnufyrirtækin geti borgað hærra kaup. Til þess eru ýmsar leiðir, og Framsfl. hefur bent á nokkrar þeirra . Þá er ákaflega þýðingarmikið að taka vísindi og tækni í þjónustu atvinnuveganna í ríkara mæli en þegar hefur verið gert, til þess að auka hagkvæmnina í atvinnurekstrinum. þannig á að auka þjóðartekjurnar.
Það var 3. júlí s.1., sem hlutlaus dómstóll, kjaradómur, kvað upp úrskurð um það, hver skyldu vera laun opinberra starfsmanna. Til hliðsjónar í því starfi hafa dómendur án efa haft m.a. það, hvert var gildi krónunnar til að kaupa lífsnauðsynjar um þær mundir, sem þeir voru að vinna verk sitt. En hvað skeður svo, þegar búið er að ákveða með þessum hætti laun skrifstofufólks hjá ríkisstofnunum og verzlunarfólks hjá ríkisverzlunum? Skyldi maður ekki halda, að eðlilegt væri, að annað skrifstofu- og verzlunarfólk fengi sömu launakjör? Ekki finnst hæstv. ríkisstj. það. Hún flytur um það frv. á Alþingi að banna fyrirtækjum að greiða sínu verzlunar- og skrifstofufólki sömu laun og ríkisstarfsmennirnir hafa fyrir sömu vinnu. Þær ráðstafanir, sem þetta frv. boðar, lýsa afskaplegu skilningsleysi á vandamátum þeirra , sem lægri hafa launin. Á þessu ári hafa þeir, sem betur eru settir, fengið mjög riflegar launahækkanir. Upplýst er og játað, að þeir lægra launuðu séu þannig settir, að sérstakar ráðstafanir þurfi að gera til að tryggja hag þeirra . Úrræði ríkisstj. er að banna með lögum, að nokkuð sé hægt að gera til næstu áramóta a.m.k. til þess að lagfæra þeirra kjör. Eftir að frv. er orðið að lögum, er óleyfilegt að láta verkafólkið njóta þess, þótt vel gangi í atvinnurekstrinum. Sá vinnuveitandi, sem gerði sig sekan um slíkan glæp, yrði látinn sæta refsingu. Lögfesta skal það ástand, að fyrir 8 stunda vinnudag fái verkamaður 67 þús. kr. árslaun, enda þótt upplýst sé, að hann þarf 95 þús. kr. sem lágmark til að lifa af. Þetta á að lögfesta á sama tíma og laun ýmissa annarra stétta eru ákveðin margfalt hærri. Þetta er vont réttlæti.
Þessar ráðstafanir eru enn fremur sérstaklega harðleiknar gagnvart verzlunar- og skrifstofufólki. Það hefur í marga mánuði búizt við því svo að segja á hverjum degi, að nýir samningar um laun þess sæju dagsins ljós. Forustumenn þeirra samtaka hafa ekki dregið úr því, að leiðréttingar mundu fást, öðru nær. Þeir hafa keppzt við að fullyrða, að ekki kæmi annað til greina en að verzlunar- og skrifstofufólk fengi góða leiðréttingu sinna mála, og talað um háar prósentur í því sambandi. Þetta lét líka þeim mun betur í eyrum, þar sem talið var, að þarna færu menn, sem sökum tengsla sinna við hæstv. ríkisstj. vissu, hvað þeir mættu sín, og þeir mundu því ekki lofa öðru en því, sem þeir væru færir um að standa við. Hvernig hefur þetta svo orðið í reynd? Þannig, að sá tími, sem verzlunarfólkið hefur verið dregið á úrlausn sinna mála, hefur verið notaður til þess að undirbúa lagasetningu í þá átt að banna vinnuveitendum þess að veita því nokkra launabót, hverju nafni sem nefnist. Verzlunar- og skrifstofufólk hjá ríkisstofnunum og bæjarstofnunum hefur fengið réttmæta kjarabót, hliðstætt starfsfólk hjá öðrum skal ekkert fá. Þetta er ekki heldur gott réttlæti.
Þannig er sýnt, að mikill fjöldi manna er rangindum beittur með ákvæðum frv. um launamál, og sú aðferð, sem þar er viðhöfð, torveldar og tefur fyrir sanngjarnri lausn í kaupgjaldsmálum. Frv. hindrar lagfæringar á kaupi hjá mörgu láglaunafólki, sem hefur brýna þörf fyrir kjarabætur vegna mikillar og sívaxandi dýrtíðar. Ranglætíð, sem hér er framið, verður enn ljósara, þegar litið er til þess, að margir tekjuháir menn hafa nýverið fengið verulegar launahækkanir. Þegar þetta er haft í huga, sem ég hef hér drepið á, verður ekki hjá því komizt að álykta, að sú ríkisstj., sem þannig hefur framkvæmt loforð sín, sé búin að glata trausti þjóðarinnar. — Góða nótt.