10.04.1964
Sameinað þing: 61. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í D-deild Alþingistíðinda. (2752)

179. mál, utanríkisstefna íslenska lýðveldisins

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Fyrir tæplega 50 árum var austurrískur erkihertogi myrtur í borginni Sarajevo suður á Balkanskaga. Þetta morð reyndist vera neisti, sem kveikti í púðurtunnu. Á skömmum tíma gerðust þau ótíðindi, að stórveldi álfunnar voru komin í stríð.

Þegar fregnir af þessum atburðum bárust hingað til Íslands, sló óhug á kynslóð aldamótanna, sem var bjartsýn og trúði á frið, frelsi og framfarir. Íslendingar óttuðust, að Danmörk kynni að dragast inn í ófriðinn, að erfitt yrði um aðdrætti og loks að peningaseðlar yrðu verðlausir. Haldnir voru kvöldfundir á Alþingi, skipuð sérstök nefnd og rætt um að kaupa gull í staðinn fyrir seðlana.

Þá gerðist það einn ágústdag 1914, að Guðmundur Björnsson landlæknir kvaddi sér hljóðs í þessum þingsal og spurði ráðh. landsins, hvað gert hefði verið til að tryggja öryggi þjóðarinnar, því að ekki nægði að ná sér í matinn og telja skildinga. Og landlæknir spurði: Hvaðan kemur mönnum sú vissa, að Ísland sé óhult í þessum mikla ófriði? Hverju sætir það, að þessi óvissa er orðin að fastri vissu? Trúa menn því, að varnarleysið sé öruggasta vörnin? Lúxemborg hafði varnarleysið að hlífiskildi. Þjóðverjar og önnur stórveldi hétu því órjúfandi griðum, fullu hlutleysi. En nú segja fréttirnar, að Þjóðverjar hafi tekið Lúxemborg og innlimað það fullvalda ríki. Hver herþjóðin, sem vill og til nær, getur tekið Ísland herskildi.

Hálf öld er liðin síðan þetta gerðist, og mikið vatn hefur runnið til sjávar. Íslenzka þjóðin er reynslu ríkari eftir tvær heimsstyrjaldir, en samt eru enn til menn á Alþ., sem flytja till. um hlutleysi og varnarleysi. Þeir verða enn að svara spurningum Guðmundar landlæknis frá 1914: Hvaðan kemur þeim sú vissa, að Ísland mundi óhult í nýjum ófriði? Hverju sætir það, að sú óvissa er orðin að fastri vissu? Hafa þeir Gils og Einar ekki séð, hversu haldlaust hlutleysi hefur reynzt flestum þjóðum Evrópu síðustu 50 ár?

Við lýstum að vísu yfir hlutleysi í sambandslögunum 1918. Þó voru leiðtogum þjóðarinnar fyllilega ljósir annmarkar þeirrar yfirlýsingar, og þeir treystu fjarlægðinni betur en hlutleysisyfirlýsingunni til að vernda þjóðina. Einar Arnórsson sagði, að enginn gæti gert við því, þótt hlutleysið væri brotíð í ófriði, engin skrifleg skjöl gætu fyrirbyggt það. Magnús Torfason sagði, að yfirlýsingin væri engin vörn. Ef ófriðarþjóðir vildu slægjast til Íslands, mundi ekkert pappírsblað hindra það. Og í Reykjavík var gefið út blað, sem hét Einar Þveræingur. Þar stóð m. a.: „Hlutleysisgrýlan er hégómi, sem verið er að veifa framan í þjóðina.“ Eins og allir vita, hefur á þessum ófriðartímum hlutleysi og hlutleysisyfirlýsing ekkert haft að segja. Ófriðarþjóðir spyrja ekkert um hlutleysi. Og blaðið Njörður á Ísafirði sagði, að stórveldi gætu stungið okkur í vestisvasa sinn með sambandslögunum og öllu saman, ef þeim sýndist svo.

Þessar tilvitnanir sýna og sanna, að Íslendingum var vel ljóst 1918, hve lítil stoð mundi í hlutleysisyfirlýsingunni á ófriðartímum. Þess vegna er ekki rétt, heldur nálgast það sögufölsun að telja þessa yfirlýsingu hyrningarstein íslenzkrar sjálfstæðisbaráttu, eins og ýmsir hafa reynt að gera. Hlutleysið hélzt í 22 ár, eða þar til næsti ófriður brauzt út. Það veitti Íslendingum enga vernd. Þegar fjarlægðin til annarra landa styttist vegna flugvéla og nýrra kafbáta, varð hlutleysið þýðingarlaust.

Jón Sigurðsson hugsaði og skrifaði um viðhorf Íslendinga til annarra Þjóða. Hann sagði í Nýjum félagsritum einhverju sinni: „Það er að vísu enginn kostur á mannkyninu, að hver þjóð skuli verða að vera viðbúin til varnar á móti annarri eins og á móti villidýrum og að því leyti betur sem menn eru slægari en dýrin. En svo verður að búa sem á bæ er títt.“

Íslendingar hafa endurreist lýðveldi á örlagatímum. Þjóðin hefur metíð ástand heimsmála og markað þá stefnu, sem hún hefur talið vænlegasta til að tryggja frelsi sitt, öryggi og afkomu. Margar ákvarðanir hafa verið þungar í skauti og umdeildar, en það hefur verið gæfa okkar, að yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar, jafnan 80—85% kjósenda, hefur stutt þá stefnu, sem fylgt hefur verið. Hlutleysinu var varpað fyrir borð þegar árið 1940, og það hefur aldrei verið stefna þjóðarinnar síðan. Hernámi Breta í upphafi ófriðarins var að vísu mótmælt formlega, en þjóðin breytti ekki eftir þeim mótmælum, heldur tók upp virka samvinnu við bandamenn. Þessi afstaða var formlega staðfest 1941, þegar gert var samkomulag við Bandaríkin um varnir landsins, og heyrðist hlutleysi varla nefnt út styrjaldarárin.

Stærsta skref Íslendinga í utanríkismálum var þátttaka í Atlantshafsbandalaginu fyrir 15 árum. Þessi samtök eru hernaðarlegt varnarbandalag, sem hefur náð þeim tilgangi að stöðva framsókn kommúnista í Evrópu og tryggja frið á því svæði. Við Íslendingar tökum engan þátt í hinni hernaðarlegu hlið bandalagsins, nema hvað við gerum land okkar að hlekk í varnarkeðju með því að tryggja varnir þess. Þar með aukum við öryggi sjálfra okkar og nágranna okkar. Er rétt að gleyma ekki afstöðu og öryggi annarra þjóða eins og Norðmanna í nágrenni okkar í þessu sambandi. Ef Ísland segði sig skyndilega úr Atlantshafsbandalaginu. mundi sú ákvörðun t.d. koma eins og hnefahögg í andlit norsku þjóðarinnar og gerbreyta öryggi hennar og þeirri stefnu, sem hún hefur valið sér. Í þessum efnum stendur engin þjóð ein.

Þegar starf Atlantshafsbandalagsins er íhugað í heild, er rétt að líta á Evrópu alla og athuga það valdajafnvægi, sem þar er. Þetta jafnvægi var ekki til 1948—1949. enda sóttu austanmenn þá stöðugt á í Tékkóslóvakíu. Grikklandi og Þýzkalandi. Með stofnun Atlantshafsbandalagsins komst á það jafnvægi, að hvorugur getur lengur sótt á land hins. Er þetta undirstaða friðar í álfunni. og það sem meira er: jafnvægið milli Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins er sá hornsteinn, sem vonin um afvopnun hvílir á. Án þessa jafnvægis hefði aldrei verið samið um bann við tilraunum með kjarnorkusprengingar. Og á þessu jafnvægi byggjast tilraunir til frekari afvopnunar, sem við eigum öll að tengja miklar vonir við.

Nú bið ég menn að íhuga þetta atriði: Er það ekki í fyllsta samræmi við friðaróskir Íslendinga, að þjóðin taki á þennan hátt þátt í því samstarfi, sem hefur skapað jafnvægi, frið og byrjun á afvopnun Í Evrópu? Hvað getum við betur gert í utanríkismálum?

Till. kommúnista um að losa Ísland úr Atlantshafsbandalaginu er tilraun til að spilla þessu jafnvægi, kljúfa bandalagið og veikja málstað lýðræðisþjóðanna. Af því mundi leiða nýja óvissu á siglinga- og flugleiðum yfir Atlantshafið, en sú óvissa mundi draga úr vonum um frið og afvopnun í næstu framtíð. Þetta skilur íslenzka þjóðin. Hún hefur hafnað hinum óraunhæfu hugmyndum um hlutleysi og verið mest á móti þeim, þegar hættuástand hefur ríkt og raunveruleg staða Íslendinga hefur verið skýrust. Á ófriðarárunum var ekki minnzt á hlutleysi Íslands. Þjóðin sá, að það var óraunhæf fjarstæða. Þegar Kóreustríðið brauzt út, blöstu sömu staðreyndir við. Allir þm. lýðræðisflokkanna samþykktu komu varnarliðsins, þ. á m. menn eins og Hannibal Valdimarsson og Hermann Jónasson. Kommúnistar héldu ekki einu sinni uppi málþófi hér á Alþ., og Þeim kom ekki til hugar að flytja till. um hlutleysi. Þeir vissu hug íslenzku þjóðarinnar. Og enn má nefna ungversku byltinguna og Súezmálið, þegar heimsfriðurinn hékk á bláþræði. Það haust talaði enginn um hlutleysi á Íslandi, og meira að segja kommúnistar lögðu niður rófuna. Þannig hefur þjóðin skilið aðstöðu sína bezt, þegar uggvænlegast hefur verið í heimsmálum, og einmitt þá hafnað hlutleysi sem óraunhæfri stefnu.

Við deilum um öryggi þjóðarinnar. Kommúnistar segja, að varnarliðið mundi, ef til ófriðar kæmi, kalla yfir þjóðina árás. En lýðræðisflokkarnir halda fram, að varnarlaust land mundi strax verða hernumið og um það barizt.

Varnir íslands eru taldar nægilegar til þess, að ekki verði gerð á það árás, þótt til ófriðar drægi. Landið er hluti af varnarkerfi og hingað mundi berast mikill liðsstyrkur flugleiðis á fáum klukkustundum, ef hans væri þörf. Við höfum valið þann kost að neita öllum kjarnorkuvopnum í landi okkar, og þar af leiðandi er ekki rökrétt ástæða til að ætla, að hér sé nokkurt skotmark fyrir kjarnorkusprengjur í byrjun nýs ófriðar. Hins vegar væri hægt að taka landið, ef það væri varnarlaust, og mundi þá mótaðilinn örugglega gera gagnárás. Er mikil fjarstæða að halda, að kjarnorkustyrjöld mundi þýða, að mannkynið eyddist allt eða lamaðist. Það er nokkurn veginn víst, að þótt það tæki nokkur ár, þá yrði annaðhvort stórveldið að hernema land hins til að vinna styrjöldina. Þess vegna búa stórveldin öll, bæði í austri og vestri, sig undir hernað á gamla mátann engu síður en hina nýju kjarnorkustyrjöld, og þess vegna verðum við að hugsa um okkar land, okkar öryggi og okkar frið á þeim vettvangi líka. Ef til vill getur Ragnar Arnalds útskýrt, hvers vegna svo að segja allar þjóðir heims verja stórkostlegum fjármunum til að halda uppi landvörnum án kjarnorkuvopna, ef þær eru eins tilgangslausar og hann telur.

Sænski landvarnaráðh., Sven Andersson, sagði fyrir nokkrum árum um hlutleysi Svía: „Það hefur verið veigamikið skilyrði fyrir þessari stefnu, að Svíþjóð hefur, haldið uppi eigin varnarstyrk, nægilega öflugum til þess, að land okkar hefur ekki orðið hernaðarlegt tómrúm.“

Andersson taldi, að varnarleysi mundi gera Svíþjóð að hernaðarlegu tómrúmi og hernaðarlegt tómrúm mundi gera hlutleysið þýðingarlaust og gagnslaust. Sem dæmi um land, þar sem einmitt þetta hefur nýlega komið fyrir, má nefna Laos. Það land var með samningum gert hlutlaust fyrir nokkrum árum og varð þá að slíku tómrúmi. En þá streymdu strax inn í landið herir frá bæði austri og vestri, og þar hefur verið vígvöllur stöðugt síðan. Það er athyglisvert, að kommúnistar skuli sérstaklega tala um hlutleysi í Suðaustur-Asíu, þar sem við sjáum fyrir okkur, hvernig kommúnisminn étur hlutlausu ríkin upp. Sá er vafalaust þeirra tilgangur, hérna megin á hnettinum alveg eins og þar.

Stundum hefur verið haldið fram, að við Íslendingar ættum að semja við Bandaríkin og Sovétríkin um hlutleysi og varnarleysi landsins. Ef slíkir samningar um friðlýsingu Íslands væru gerðir, mundi verða litið á þá sem samkomulag milli Ameríkumanna og Rússa um Ísland, en á því andartaki, er ófriður brytist út á milli þessara þjóða, væri samkomulagið af sjálfu sér ógilt og úr sögunni. Slík friðlýsing mundi því óhjákvæmilega bregðast á þeirri stundu, er hún ætti að vernda Íslendinga. Einnig þetta, eins og annað hjá hlutleysissinnum. er óraunhæf hugmynd.

Lengi var hægt að bera virðingu fyrir þjóðvarnarmönnum, af því að skoðanir þeirra spruttu af einlægri, íslenzkri þjóðerniskennd, þótt þær væru hvorki skynsamlegar né raunhæfar. En síðan Þjóðvfl. var seldur kommúnistum fyrir eitt þingsæti, er þetta breytt, því að um kommúnista er allt öðru máli að gegna.

Hlutleysi er í sjálfu sér algerlega andstætt kommúnismanum. Hann er þróttmikil byltingarstefna, sem hefur alla tíð talið það heigulshátt að vera hlutlaus í átökum um örtög mannkynsins. Kommúnistar báru litla virðingu fyrir hlutleysi Eystrasaltsríkjanna. Þau höfðu þessa stefnu, sem nú er kölluð ,.ný utanríkisstefna fyrir Ísland“. — og hver urðu örlög þeirra ? Kommúnistar tala ekki um að gera Norður-Víetnam hlutlaust, en þeir vilja stöðugt gera Suður-Víetnam hlutlaust. Hvaða munur er á þessum ríkjum? Jú, þeir hafa þegar náð Norður-Víetnam, svo að það er tilgangslaust í þeirra augum að tala um hlutleysi þess. Kommúnistar tóku ungverska forsrh. Nagy af lífi fyrir að vilja gera Ungverjaland hlutlaust. Þannig mætti lengt telja rök fyrir því, að í raun og veru telja kommúnistar hlutleysi ríkja aðeins biðsal, áður en þau eru dregin inn í heim kommúnismans. Þessa staðreynd skulum við Íslendingar gera okkur ljósa. Vegna hennar getum við ekki tekið hlutleysisstefnu kommúnista alvarlega. Þeir eru fyrst og fremst að hugsa um, hvernig þeir geti gert Ísland að kommúnistísku alþýðulýðveldi, og þeim virðist hlutleysi vera ærið gott skref í þá átt. En hvað er Gils að gera í þeirra félagsskap?

Till. sú, sem hér er til umr., kveður á um gerbreytingu þeirrar utanríkisstefnu, sem íslenska lýðveldið hefur fylgt frá stofnun 1944. Við skulum gera okkur grein fyrir, hver þessi stefna er.

Utanríkisstefna Íslendinga er í fyrsta lagi þátttaka í bandalagi Sameinuðu þjóðanna og einlægur stuðningur við hugsjón bandalagsins um frið og öryggi allra landa á grundvelli frelsis og réttar. Utanríkisstefna Íslendinga er í öðru lagi samstarf við grannþjóðir okkar í Atlantshafsbandalaginu til að skapa valdajafnvægi í okkar hluta heims og þar með grundvöll fyrir frið og afvopnun. Utanríkisstefna Íslendinga er í þriðja lagi samstarf við hinar norrænu þjóðirnar. Þar fáum við holl ráð og stuðning í ólgusjó heimsmála og nokkurt mótvægi gegn áhrifum stórveldanna. Utanríkisstefna Íslendinga er í fjórða lagi að dreifa viðskiptum til að tryggja örugga markaði. Þess vegna höldum við miklum austurviðskiptum við hlið verzlunar við Vesturlönd. Utanríkisstefna Íslendinga er í fimmta lagi að styðja nýfrjálsar þjóðir í lífsbaráttu þeirra. Við höfum á alþjóðavettvangi, hvað sem Ragnar Arnalds segir, greitt atkv. með Kýpur gegn Bretum, með Alsír gegn Frökkum og á fjöldamörgum öðrum stöðum fylgt þeirri sömu stefnu. Við þurfum að vísu að gera betur, við þurfum að veita fátækum þjóðum beinan fjárhagsstuðning til þess að gera fulla skyldu okkar við þær. Utanríkisstefna Íslendinga er í sjötta og síðasta lagi að standa á rétti okkar í öllum málum, t.d. landhelgismálinu, hverjir sem á móti tefla. Þetta höfum við gert með þeim árangri, að Íslendingar eru nú þekktir víða um lönd að því að vera sjálfstæðastir allra sjálfstæðra þjóða.

Þetta hefur verið og er stefna okkar, sem kommúnistar vilja breyta. Þetta er raunhæf stefna, byggð á því, sem Jón Sigurðsson benti á, að við verðum að búa eins og á bæ er títt. Annar merkur Íslendingur, Hermann Jónasson, sagði 1941: „Það erum ekki við, sem höfum breytzt, heldur veröldin kringum okkur, og við verðum að haga okkur samkvæmt því .“

Þess vegna hefur íslenzka þjóðin hafnað hlutleysi og gerir enn. Það samrýmist ekki landfræðilegri stöðu okkar eða aðstæðum á Þeim hluta hnattarins, þar sem forsjónin hefur sett okkur niður. Það getur dugað í Ceylon eða Sviss, en hér og nú dugir það ekki.

Undanfarin 20 ár, síðan lýðveldið var stofnað, hefur þjóðin haft alíslenzka utanríkisstefnu, sem hefur mótazt af frelsi Íslands, öryggi og velmegun. Við skulum styrkja þá stefnu í framtíðinni. Með því vinnum við Íslandi bezt. — Góða nótt.