10.04.1964
Sameinað þing: 61. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í D-deild Alþingistíðinda. (2753)

179. mál, utanríkisstefna íslenska lýðveldisins

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Hér á landi hefur á seinustu árum gætt þriggja meginstefna í afstöðu til utanríkismála, þ.e. stefnu Alþb. eða Sósfl., stefnu forráðamanna núv. stjórnarflokka og stefnu framsóknarmanna.

Stefna Alþb. hefur verið hin sama og stefna kommúnistaflokka í öðrum vestrænum löndum. Hún hefur í samræmi við stefnu annarra kommúnistaflokka beinzt að því megintakmarki að fjarlægja Ísland sem mest frá öllu samstarfi við vestrænar þjóðir, en þessa einangrun hefur síðan átt að nota til þess að koma á sem nánustum skiptum við kommúnistalöndin. Þetta hefur ekki verið sagt opinberlega, heldur reynt að breiða yfir þetta skikkju hlutleysisins. Til þess að fela sem dyggilegast nafn og númer hafa ýmsir óflokksbundnir meðreiðarsveinar, eins og Alfreð Gíslason, Gils Guðmundsson og Ragnar Arnalds, verið notaðir til að túlka þessa stefnu, en sjálfir forustumenn kommúnista hafðir í felum, eins og hefur gætt í þessum umr. Þetta eru algeng vinnubrögð kommúnista, þar sem þeim þykir ekki sigurvænlegt að koma hreint til dyra.

Stefna forráðamanna stjórnarflokkanna, Sjálfstfl, og Alþfl., hefur verið alveg gagnstæð. Þeir hafa ekki aðeins talið rétt að hafa sem nánast samstarf við vestrænar þjóðir, heldur að Íslendingum bæri að haga sér eins og þeim væri fyrir lagt af stórveldunum í hinum vestrænu þjóðasamtökum. Innan Atlantshafsbandalagsins hafa þeir fylgt þeirri stefnu, að Íslendingum bæri að gera hvað eina, sem af þeim væri krafizt af herforingjaráði bandalagsins. Annað væri svik við bandalagið, og það væri líka vantrú á styrk íslenzkrar menningar og íslenzku þjóðina, ef landið væri ekki opið útlendum mönnum og útlendum áhrifum hömlulítið eða hömlulaust. Strax og það komst á dagskrá, að Bretland gerðist aðili að Efnahagsbandalagi Evrópu, vildu forráðamenn stjórnarflokkanna ólmir, að Ísland gerðist aðili þess með einhverjum hætti, og voru bersýnilega fúsir til að fórna því í staðinn, að útlendingar öðluðust hér margvísleg réttindi, sem þeir hafa ekki nú. E.t.v. kemur þessi afstaða forráðamanna stjórnarflokkanna þó einna skýrast fram í Hvalfjarðarmálinu nýja, þar sem margt bendir til, að þeir séu ekki ófúsir til að fallast á óskir NATO um bækistöð í Hvalfirði, sem síðar mætti nota fyrir kjarnorkuvopnaflota þess. Af svipuðum ástæðum hafa forustumenn stjórnarflokkanna ekki heldur viljað, að Alþingi lýsti yfir því, að hér yrðu aldrei staðsett kjarnorkuvopn.

Afstaða Framsfl. er mjög frábrugðin afstöðu Alþb. og einnig afstöðu forráðamanna stjórnarflokkanna. Við kommúnista greinir framsóknarmenn m. a, á um þetta: Samvinna við vestrænar þjóðir er nauðsynleg. Íslendingar eiga að gera það, sem eðlilegt verður talið af þeirra hálfu, til þess að hafa hana góða. Þótt Íslendingar kappkosti að sjálfsögðu góða sambúð við allar þjóðir, er legu Íslands, viðskiptum, menningu og stjórnarfarslegum hugsjónum þannig háttað, að Ísland hlýtur að hafa nánust skipti við hinar vestrænu þjóðir, þ.e. þjóðir Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu. Auk þess að flestar þjóðir taka nú þátt í margvíslegum alþjóðasamtökum, taka þær einnig þátt í margháttuðum svæðisbandalögum, er fjalla um ýmis sérmál viðkomandi heimshluta, t.d. varnarmál. Þetta gerir þátttöku Íslands í vestrænni samvinnu eðlilega og jafnvel óhjákvæmilega í mörgum efnum. Þess vegna hafna framsóknarmenn þeirri stefnu kommúnista, að Ísland eigi að einangra sig frá vestrænum þjóðum, en sá er megintilgangur kommúnista, þótt þeir reyni að klæða stefnu sína öðrum búningi. Framsóknarmenn vilja ekki, að Ísland einangrist eins og Kúba.

Við forustumenn stjórnarflokkanna greinir okkur framsóknarmenn á um þetta: Við erum, eins og þeir, fylgjandi vestrænni samvinnu, en teljum hins vegar með öllu rangt að láta henni fylgja það, að erlendir menn geti sagt okkur fyrir verkum og að íslenzk stjórnarvöld fari eftir öllu því, sem lagt er til af herforingjaráði Atlantshafsbandalagsins, Ísland má aldrei kaupa þátttöku í þjóðabandalögum því verði að glata sjálfsákvörðunarréttinum í örlagaríkustu málum landsins. Þátttaka okkar í Atlantshafsbandalaginu sviptir okkur ekki á neinn hátt þessum rétti, því að í sjálfum stofnlögum bandalagsins er tekið skýrt fram, að hvert ríki ráði sjálft því, er það leggur af mörkum. Þessu til enn frekari staðfestingar var það áréttað af Íslands hálfu við inngönguna í bandalagið, að Ísland teldi sig óskuldbundið til að leyfa hér hersetu á friðartímum. Á Íslandi hvíla því ekki neinar kvaðir um að leyfa hér hersetu eða herstöðvar, nema Íslendingar vilji það sjálfir. Þess vegna er það meira en furðulegt, Þegar málgögn stjórnarflokkanna eru að stimpla það svik við bandalagið og fjandskap af Ísland s hálfu, ef Það vill ekki fallast á allar kröfur herforingjaráðs bandalagsins um hersetu eða herstöðvar hér á landi. Á slíka rangtúlkun samnings Atlantshafsbandalagsins munu framsóknarmenn aldrei fallast né afsala sjálfsákvörðunarréttinum á þennan hátt eða annan í hendur erlends valds. í þessum efnum hafa framsóknarmenn líka til fyrirmyndar þær smáþjóðir, sem nú njóta einna mests álits, Norðmenn og Dani, sem hvað eftir annað hafa hafnað óskum frá herforingjaráði Atlantshafsbandalagsins um herstöðvar í löndum þeirra, um lengd herskyldutíma, framlög til hermála o.s.frv. Norðmenn og Danir hafa þannig haldið fast við sjálfsákvörðunarrétt sinn í þessum efnum, eins og framsóknarmenn vilja að Íslendingar geri. Eins eindregið og framsóknarmenn eru mótfallnir því, að Ísland einangri sig frá vestrænum þjóðum, líkt og Kúba, jafneindregið eru þeir mótfallnir því, að Ísland verði leppríki vestrænna stórvelda, líkt og Guatemala og Panama.

Af hálfu andstæðinga okkar framsóknarmanna er því stundum haldið fram, að stefna okkar sé ekki eins glögg og stefna Alþb., sem vill einangra okkur frá vestrænum þjóðum, eða stefna forustumanna stjórnarflokkanna, sem vilja hlíta forsjá vestrænna stórvelda í nær því hvívetna. Framsóknarmenn vilji hér þræða milliveg, sem sé ekki alltaf nægilega ljós.

Ég vil svara þessu hiklaust þannig, að stefna Framsfl. sé hin eina, sem er raunhæf, ef þjóðin vill halda sjálfstæði sínu og virðingu. Í hinum nýja heimi, þar sem fjarlægðirnar eru að þurrkast út, er það vonlaust að ætla að einangra sig frá nágrannaþjóðum sínum án þess að hljóta af því margvíslegt tjón. En á sama hátt er það líka hættulegt fyrir smáþjóð að ganga fram með stærilæti og segja, að menning hennar sé svo sterk, að hún þoli að opna land sitt fyrir hvers konar erlendum áhrifum, menningarlegum sem fjárhagslegum, og alveg sé óhætt að fela erlendum aðilum sjálfsákvörðunarvald í málum hennar. Í þessum efnum gildir það framar en flestum öðrum, að hér verður að sigla milli skers og báru, leitast við að einangrast ekki, en verja þó menningu sína og sérstöðu gegn of mikilli ágengni. Framtíð Íslendinga sem sjálfstæðrar þjóðar veltur á því, hvort okkur tekst að þræða þennan vandfarna meðalveg.

Af hálfu forustumanna stjórnarflokkanna er því mjög haldið fram, að vestrænar þjóðir séu vinaþjóðir okkar. Á þennan hátt er reynt að gefa til kynna, að okkur sé áhættulaust að fela stofnunum þeirra, eins og herforingjaráði NATO, sjálfsákvörðunarvald í málum okkar. Ég skal á engan hátt gera lítið úr velvild þeirra þjóða né annarra í garð Íslendinga. En þeirri staðreynd má hins vegar ekki gleyma, að það eru fyrst og fremst hagsmunir þjóðanna, sem móta afstöðu þeirra til annarra, en ekki umhyggja fyrir öðrum. Í hvert sinn, sem hagsmunir okkar og annarra vestrænna þjóða rekast á, hugsa þær vissulega meira um sinn hag en okkar. Þetta sýndi bezt framkoma Breta í landhelgisdeilunni. Þess vegna er það hættulegt að treysta svo á góðvild annarra, að dýrustu réttindi séu af hendi látin. Íslendingar verða ekki lengi sjálfstæðir, ef þeir treysta meir á aðra en sjálfa sig.

Ég tel rétt að víkja nokkrum orðum alveg sérstaklega að Hvalfjarðarmálinu. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að það hefur lengi verið ósk Bandaríkjanna að fá varanlega herstöð í Hvalfirði. Fljótlega eftir síðari heimsstyrjöldina fóru Bandaríkin þess á leit að fá hér herstöðvar næstu 99 árin. Alveg sérstaklega óskuðu þau þó eftir því að fá áð halda herstöðinni í Hvalfirði. Allir flokkar voru þá sammála um að hafna beiðni þeirra um herstöð í Hvalfirði, því að ljóst var, að ef þeir dveldust þar áfram, mundi stefna að varanlegri hersetu á Íslandi. Með þessu voru þeir þó ekki af baki dottnir, því að bráðlega eftir að varnarsamningurinn var gerður 1951, fóru að koma fram nýjar óskir um herstöð í Hvalfirði. Slíkum óskum var hafnað, þegar dr. Kristinn Guðmundsson var ráðh. á árunum 1954—1956 og aftur í tíð vinstri stjórnarinnar á árunum 1956—1958. Í þessi skipti var það herforingjaráð Atlantshafsbandalagsins, sem stóð að óskum um herstöð í Hvalfirði. Þessar neitanir virðast hafa orðið þess valdandi, að mál þetta hefur legið í salti hjá Atlantshafsbandataginu þangað til á s.l. ári. Það virðist þá hafa verið vakið til lífs að nýju í sambandi við áætlunina um hinn sameiginlega kjarnorkuvopnaftota Atlantshafsbandalagsins, sem á að byggjast á olíuknúnum ofansjávarskipum. Bandaríkin hafa aldrei viljað veita hinum NATO-ríkjunum aðild að kjarnorkukafbátaflota sínum, en hins vegar talið rétt að ganga til móts við óskir þeirra um nokkur umráð yfir kjarnorkuvonnum, einkum vegna óska Vestur-Þjóðverja. Þess vegna gerði Norstad, yfirhershöfðingi NATO, þá till., að NATO-löndin kæmu sér upp sameiginlegum kjarnorkuvopnaflota, sem í væru 24 olíuknúin ofansjávarskip, hvert um 10 þús. smál. að stærð og hvert búið 8 langdrægum kjarnorkueldflaugum. Á þessum skipum eiga að vera blandaðar áhafnir frá þeim ríkjum, sem vilja gerast aðilar að þessum flota, og verður byrjað að þjálfa fyrstu áhöfnina í næsta mánuði. Aðeins 7 ríki innan Atlantshafsbandalagsins hafa óskað eftir aðild að þessum flota. Meðal þeirra, sem hafa lýst yfir því, að þau vilji enga aðild eiga að þessum flota, eru Noregur og Danmörk. Bretland hefur enn ekki tekið endanlega ákvörðun um aðild, og má telja víst, að ekki verði neitt úr henni, ef Verkamannaflokkurinn vinnur þingkosningarnar á þessu ári. Ef Bretland verður ekki aðili og hvorkí Noregur né Danmörk, mun þennan flota skorta bækistöð á Norður-Atlantshafinu, og þarf því ekki að undra, þótt rennt sé vonaraugum til Hvalfjarðar í sambandi við þennan ráðgerða kjarnorkuvopnaflota. Beiðni sú, sem nú er borin fram Í sambandi við bækistöð í Hvalfirði, lítur stórum meinleysíslegar út en fyrri beiðnir um sama efni. Nú er aðeins beðið um aukningu á olíugeymum og legufærum. Öllu meira þarf ekki heldur til þess, að hægt sé að breyta Hvalfirði í bækistöð fyrir olíuknúin ofansjávarskip búin kjarnorkuvopnum. Það er líka eins víst og tveir og tveir eru fjórir, að þegar einu sinni er búið að fallast á aukinn útbúnað fyrir flotastöð í Hvalfirði, verður örðugra að hafna næstu beiðni um aukna aðstöðu þar. Hér er farin sú klóklega leið að ná fótfestu í áföngum.

Strax og þær fréttir bárust á s.l. sumri, að Atlantshafsbandalagið hefði farið fram á bækistöð í Hvalfirði, lýsti Framsfl. sig því andvígan, að það yrði leyft. Það er í samræmi við þá stefnu, sem fylgt hefur verið síðan í lok heimsstyrjaldarinnar, að leyfa ekki herstöð í Hvalfirði, því að ef erlendur aðili fengi að búa um sig þar, mundi reynast stórum örðugra að koma honum í burtu, þegar friðarhorfur bötnuðu, en frá flugvellinum í Keflavík. Það er í samræmi við þá. stefnu, að íslendingar hafi ekki her né herstöðvar í landi sínu stundu lengur en ýtrasta þörf krefur að dómi þeirra sjálfra, og því verði sá herbúnaður, sem hafður er í landinu á hættutímum, eins lítill og auðið er. Það er í samræmi við þá stefnu, að þegar friðarhorfur batna í heiminum, eiga Íslendingar heldur að hjálpa til að draga úr viðbúnaði en að auka hann. Æðstu menn vesturveldanna, eins og forseti Bandaríkjanna og forsrh. Bretlands, segja nú hiklaust, að friðarhorfur fari batnandi og vonir um samkomulag séu nú betri en um langt skeið. Það væri hörmulegt öfugstreymi, ef hin friðsama íslenzka þjóð leyfði auknar herstöðvar í landi sínu undir slíkum kringumstæðum.

Af hálfu ýmissa talsmanna stjórnarflokkanna er beitt hinum furðulegustu blekkingum í sambandi við þetta mál. Annað veifið er það stimplað sem svik við NATO og lýðræðið í heiminum, ef þetta leyfi yrði ekki veitt, og með því gefið til kynna, að hér sé um mjög örlagaríkt stórmál að ræða. Hitt veifið er reynt að gera sem minnst úr málinu og það talið sambærilegt að veita NATO leyfi til að byggja olíugeyma í Hvalfirði og að leyfa Olíufélaginu að hafa olíugeyma í Hafnarfirði eða Skeljungi í Skerjafirði. Hvort tveggja er þetta jafnrangt. Það er engin brigð við NATO, þó að Ísland fallist ekki á herstöð, sem að dómi þess sjálfs er óþörf og ótímabær, heldur hafa Íslendingar til þess fullan rétt samkv. sáttmála NATO og fyrri yfirlýsingu sinni. Það er svo vissulega alveg ósambærilegt að veita erlendu hernaðarbandalagi rétt til að byggja olíugeyma og legufæri á hernaðarlega mikilvægasta stað landsins og að leyfa íslenzku olíufélagi að reisa olíugeyma vegna augljósra þarfa landsmanna. Þetta mál er sannarlega alvarlegra en svo, að rétt sé að skopast að því á þennan hátt. Sams konar útúrsnúningur er líka það að ætla að bera saman annars vegar lóranstöðina á Snæfellsnesi og radarstöðvarnar á Langanesi og í Hornafirði og hins vegar auknar olíustöðvar og legufæri í Hvalfirði. Lóranstöðvar eða radarstöðvar geta aldrei orðið bækistöðvar fyrir kjarnorkuvopnaflota eins og hin umbeðnu mannvirki í Hvalfirði.

Vegna ræðu hv. þm. Davíðs Ólafssonar kemst ég ekki hjá að minnast hér að lokum þess samnings, sem er verstur allra samninga, sem Íslendingar hafa gert, síðan þeir urðu frjáls þjóð, og reynzt getur íslenzkum sjávarútvegi hinn versti fjötur, ef ekki tekst að fá hann felldan úr gildi sem fyrst. Hér á ég að sjálfsögðu við landhelgissamninginn frá 1961. Haustíð 1960 var svo komið, enda játaði núv. forsrh. það þá í umr. í Ed., að Íslendingar voru búnir að vinna fullan sigur í 12 mílna deilunni við Breta þrátt fyrir andstöðu Sjálfstæðisfl. gegn útfærslunni vorið og sumarið 1958 og þrátt fyrir tilraunir Breta til að hindra hana með ofbeldi um skeið, Íslendingar þurftu því enga samninga að gera við Breta um þetta mál. Málið var fullkomlega unnið. Þrátt fyrir það settust núv. stjórnarherrar að samningaborði með brezkum ráðh. og féllust á, að Íslendingar mættu ekki færa fiskveiðilandhelgi sína frekar út nema annaðhvort með samþykki Breta sjálfra eða alþjóðadómstólsins í Haag. Fyrir smáþjóð eins og Íslendinga er það vissulega sjálfsagt að leggja mál sitt undir úrskurð alþjóðadóms, þegar fyrir hendi eru ákveðin lög eða samningar til að dæma eftir. Deilumál, þar sem ekki eru lög eða samningar fyrir hendi, heyra hins vegar undir aðrar stofnanir Sameinuðu Þjóðanna. Slíkum deilumálum visa smáþjóðir undantekningarlaust ekki til alþjóðadómstólsins, heldur til öryggisráðs eða allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Nú er þannig háttað, að ekki eru til nein alþjóðleg lög eða alþjóðlegir samningar um víðáttu fiskveiðilandhelginnar, og því veit enginn, hvað alþjóðadómstóllinn kann að úrskurða í þeim efnum. Meðan svo háttar, að ekki eru til nein lög eða samningar um víðáttu fiskveiðilandhelginnar, telur hver þjóð sig hafa einhliða rétt til útfærslu á henni innan þeirra marka, sem hún álítur sér nauðsynlegt og framkvæmanlegt. Samkvæmt þessum einhliða rétti færðu Íslendingar út fiskveiðilandhelgina 1952 og 1958. Bretar lögðu til strax haustíð 1958 að vísa útfærslunni á fiskveiðilandhelgi Íslands til alþjóðadómstólsins, en enginn íslenzkur stjórnmálaflokkur vildi þá fallast á það. Í stað þess lagði Sjálfstfl. til, að málinu yrði vísað til Atlantshafsbandalagsins. En Guðmundur I. Guðmundsson lagði til, að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fjallaði um málið, eins og líka var rétt málsmeðferð. Astæðan fyrir því, að íslendingar vildu þá ekki vísa málinu til alþjóðadómstólsins, var sú, að engin alþjóðleg lög voru til um víðáttu fiskveiðilandhelginnar, og meðan svo væri, vildu þeir ekki skerða hinn einhliða útfærslurétt sinn. Með hinum furðulega landhelgissamningi 1961 létu Íslendingar hinn einhliða útfærslurétt sinn af hendi og féllust á málsskot til alþjóðadómstólsins, ef Bretar vildu ekki samþykkja útfærsluna. Brezkir ráðh. hafa lýst þeirri trú sinni, að þetta tryggi það, að Íslendingar geti ekki fært út fiskveiðilandhelgi sína næstu 25 árin. Hvílíkum rétti Íslendingar hafa hér afsalað sér, sést bezt á því, að nýlega var sagt frá því í fréttum, að stjórn Argentínu væri að undirbúa útfærslu á fiskveiðilandhelginni langt úr fyrir 12 mílur. Þetta byggir stjórn Argentínu á því, að hún hafi einhliða útfærslurétt og sé ekki skuldbundin til að leggja útfærsluna undir úrskurð alþjóðadómstólsins, sem enginn veit, hvernig mundi falla, þar sem rétturinn hefur engin lög til að dæma eftir og kann því að byggja á meira og minna úreltri hefð. Ef Íslendingar hefðu ekki bundið sig með samningnum 1961, hefðu þeir nú óbundnar hendur líkt og Argentína og gætu látið fiskveiðilandhelgina ná til alls landgrunnsins, þegar þeim þætti tími til kominn. Sést bezt á þessu, hvílíkt réttindaafsal er fólgið í samningnum frá 1961 og hvílíkur fjötur hann getur orðið sjávarútveginum, ef ekki tekst að fá hann afnuminn.

Stjórnarflokkarnir bera það stundum fram til réttiætingar samningnum frá 1961, að á alþjóðlegu landhelgisráðstefnunni 1958 hafi Íslendingar verið reiðubúnir til þess að fallast á 12 mílna fiskveiðilandhelgi. Þetta er algerlega rangt. Íslendingar beittu sér þá fyrir því, að strandríki, sem væri mjög háð fiskveiðum, hefði frekari útfærslurétt, ef fiskstofninn væri í hættu, og um það skyldi gerðardómur fjalla, ef þess væri krafizt. Það var vissulega allt annað að fallast á gerðardóm, sem átti að dæma eftir ákveðnum reglum, er auðsjáanlega voru hagstæðar Íslandi, en fallast á úrskurð alþjóðadómstólsins, sem hefur engar ákveðnar reglur til að fara eftir, og hending ein getur Því ráðið, hvernig úrskurður hans verður.

Landhelgissamningurinn frá 1961 er hörmulegt dæmi þess, hvernig smáþjóð á ekki að halda á málum sínum. Hér, eins og á mörgum öðrum sviðum, hefur ráðið sú skoðun forráðamanna stjórnarflokkanna, að Íslendingum sé óhætt að gefa útlendingum sjálfdæmi í íslenzkum málum. Það séu alltaf góð ráð, sem valdamenn vestrænu stórveldanna hvísla í eyru íslenzkra valdamanna í morgunverðarboðum og hádegisverðarboðum, alveg eins og kommúnistar telja það hina einu réttu línu, sem rússneskir ráðamenn hvísla í eyru þeirra. Því skal ekki á móti mælt, að erlendir valdamenn geta verið okkur vinveittir, en það er enginn óhróður, þótt því sé jafnframt haldið fram um þá, að þeir séu meiri vinir þjóðar sinnar en Íslendinga. Það er þetta, sem öllum íslenzkum stjórnmálamönnum þarf að lærast, að varðandi rétt og hagsmuni Íslands er engum að treysta nema Íslendingum sjálfum. Ef Íslendingar bregðast sjálfir á þeim verði, mun íslenzkri sögu ljúka á þann veg, er enginn okkar mun þó raunverulega óska eftir. — Góða nótt.