15.04.1964
Sameinað þing: 63. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í D-deild Alþingistíðinda. (2759)

179. mál, utanríkisstefna íslenska lýðveldisins

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Hér var farið fram á það, að hver einstakur liður yrði borinn upp sérstaklega. Ég held, að eðli málsins samkv. geti það ekki verið eðlilegur málsgangur, að fyrst sé borin upp ein setning, sem alls ekki getur staðið sjálfstætt, hún síðan felld og þar með ályktað, að allir liðirnir séu fallnir þar með. Sem sagt, forseti framkvæmir nákvæmlega það, sem hann var ekki beðinn um að gera. Ég held, að það liggi í augum uppi, að það sé ekki hægt að greiða atkv. eftir óskum okkar nema á einn veg, þ.e.a.s. bera upp hvern lið fyrir sig ásamt þessum tiltekna formála, þ.e.a.s. fyrst sé t.d. borið upp: „Alþingi ályktar að lýsa yfir því , að þessi eru grundvallaratriði íslenzkrar utanríkisstefnu: 1. Að íslenzka þjóðin haldi fullu sjálfstæði sínu, stjórnarfarslegu sem efnahagslegu," og síðan sé greitt atkv. um þetta og síðan hinn næsta lið ásamt með formálanum. Vil ég því óska eftir því, að forseti verði við tilmælum okkar um það að endurtaka atkvgr.