11.12.1963
Sameinað þing: 25. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í D-deild Alþingistíðinda. (2793)
70. mál, ferðir með skriðbíl yfir Skeiðarársand
Flm. (Jónas Pétursson):
Herra forseti. Þáltill. sú, sem ég hef leyft mér hér að flytja ásamt þremur öðrum hv. alþm. um skipulagðar ferðir með skriðbíl yfir Skeiðarársand, er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta á næsta sumri hefja skipulagðar tilraunaferðir með skriðbíl yfir Skeiðarársand milli Lómagnúps og Öræfa.“
Í grg., sem fylgir þessari þáltill., eru rakin öll þau helztu atriði, sem þetta mál varða, en svo sem hv. alþm. marga mun reka minni til, var samþykkt hér við afgreiðslu fjárlaga á siðasta ári heimild til þess að kaupa slíkt tæki, hinn svonefnda skriðbíl, og reyna sem samgöngutæki á Skeiðarársandi. Þessi skriðbíll var svo keyptur samkv. þessari heimild á s.l. vori og reyndur síðari hluta sumars. Það voru nokkrir menn, sem framkvæmdu þá reynsluferð, og m.a. var fulltrúi frá samgmrn. með í þeirri ferð, og hann hefur skilað stuttri skýrslu um þetta ferðalag til samgmrh., og ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér upp fáein atriði, sem þar koma fram:
„Innkaupastofnun ríkisins annaðist kaup á skriðbílnum. Kom hann til landsins 24. maí. Var verð hans samkv. reikningi Innkaupastofnunarinnar að meðtöldum öllum kostnaði um 288 þús. kr. Síðan voru breytingar gerðar á bílnum, sem kostuðu ca. 35 þús. Að loknum nauðsynlegum breytingum var ákveðið að fara reynsluferð á bílnum. Var hann fluttur austur að Skálmarbrú í Álftaveri miðvikudaginn 21. ágúst. Fimmtudaginn 22. ágúst var ekið á skriðbílnum niður í Álftaver yfir Kúðafljót og austur Meðalland yfir Eldvatn og að Skaftárósi. Föstudaginn 23. ágúst var ekið yfir Hvalsíki og Melós á Skaftafellsfjöru að skipbrotsmannaskýli þar á sandinum og gist þar um nóttina. Laugardaginn 24. ágúst var ekið eftir söndunum austur að Skeiðará og gist þar í skipbrotsmannaskýli. Sunnudaginn 25. ágúst var ekið upp með Skeiðará og austur yfir hana á móts við Svínafell að Fagurhólsmýri. Farið var á bíl, jeppa, austur að Jökulsá á Breiðamerkursandi og staðhættir athugaðir þar. Mánudaginn 26. ágúst var farið frá Fagurhólsmýri yfir öll vötnin nokkuð langt fyrir neðan vegartroðning að Núpsstað, þar sem bílinn var skilinn eftir og gengið vandlega frá honum. Í allri þessari ferð reyndist skriðbíllinn ágætlega. Á leiðinni yfir stærstu fljótin austur sandana fór hann nokkrum sinnum á flot og var þá knúður áfram af spöðum, sem eru festir á beltin. Hann fór vel á vatninu og lét sæmilega að stjórn, en ekki reyndist unnt að stjórna honum á floti, nema litill straumur væri. Bíllinn flaut með þeim þunga, sem í honum var, ca. 3—4 tonn, á ca. 11/2 m djúpu vatni. Hann fór auðveldlega yfir öll fljót, þar sem hann tók niðri, og í sandbleytu reyndist hann framar öllum vonum. Hann sökk einu sinni í sandbleytu á sandinum austan við Hvalsíki, en náðist fljótlega upp aftur með því að láta hann vega sig upp á staurum, sem settir voru undir beltin að framan og hann dró inn undir sig og fékk viðspyrnu af. Það, sem aðallega má að skriðbílnum finna, er, að beltin eru of mjó, ca. 35 cm, til að gott megi teljast. Auðvelt er að bæta úr því með því að sjóða 10 cm viðbótarstálplötu hvorum megin á skaflana á beltunum og færa plöturnar á bílnum inn til að fá rúm fyrir beltin að innanverðu.“
Ég sé ekki ástæðu til að lesa meira úr þessari skýrstu. Helztu atriðin koma fram í því, sem ég hef nú lesið, þau sem máli skipta um það, hvernig þetta farartæki hefur reynzt. Það má að vísu segja, að það sé kannske hæpið að draga algilda ályktun af þessu, þar sem aðeins er hér um eina ferð að ræða. En þess má þó jafnframt geta, að það hafa verið farnar margar ferðir áður á svipuðum farartækjum um þessar slóðir, og þess vegna er þessi reynsla í raun og veru betur studd en með þessari einu ferð. En ég vænti þess, að það sé öltum hv. alþm. ljóst, að það væri ákaflega þýðingarmikið mál, ef unnt væri að opna samgönguleiðina umhverfis landið, en aðalþröskuldurinn á þeirri leið er einmitt vötnin á Skeiðarársandi og kannske sandurinn sjálfur.
Staðreynd er, að jökullinn eyðist nú mjög fljótt, og það er að verða þarna mjög mikil breyting á, sérstaklega hvað snertir jökulhlaupin, sem áður voru svo mikil, að það var gersamlega útilokað, að nokkur mannvirki gætu staðizt á söndunum, og þýddi þess vegna ekki að láta sér til hugar koma brúargerðir yfir þessi vatnsföll, svo sem annars staðar er yfirleitt gert. En breyting er orðin svo mikil á þessu nú, að jafnvel er að verða í sumra huga, að það verði mögulegt innan tíðar að brúa þessi vötn. En ég geri þó ráð fyrir, að það taki enn allmörg ár, áður en menn telja það nægilega reynt og nægilega öruggt að leggja í slíkan kostnað. Þess vegna væri það ákaflega mikilsvert, ef á þennan hátt eða svipaðan væri hægt að leysa þetta brúarspursmál, og eins og ég hef lýst og lesið upp úr þessari stuttu skýrslu, er reynslan af þessum skriðbíl frá síðasta sumri svo góð. að það virðist vera fullkomin ástæða til þess að gefa henni gaum og halda henni áfram. Má raunar segja, að það sé sérstaklega annar þáttur þessara tilrauna, sem er eftir, en það er að fá úr því skorið, hvort það er yfirleitt hagrænn grundvöllur fyrir að nota þennan skriðbíl barna til samgöngubóta. Og ég held að það eigi þess vegna nú á næsta sumri að ráðast í fullkomnari tilraunir með þetta tæki. Það mun vera nauðsynlegt að kaupa a.m.k. einn annan slíkan vatnadreka. Það er bæði af öryggisástæðum og einnig vegna þess, að kaupverð þeirra er tiltölulega mjög lágt, en á hinn bóginn eru þeir mjög hæggengir, en þarna er um allmikla vegalengd að ræða eftir tiltölulega greiðfærum söndum milli Núpsvatna og vatnanna, sem næst þeim eru, annars vegar og Skeiðarár hins vegar, og mundi því vera hagkvæmast í framkvæmd að hafa tvo slíka dreka, annan staðsettan við Skeiðará, en hinn við vestari vötnin. Og að lítt athuguðu máli virðist manni a.m.k., að það hljóti að verða hagkvæmari lausn. Annars er það vitanlega ekki á valdi þessarar þál. að ákveða beint um framkvæmd, heldur ákveða aðeins, að þessi tilraun skuli gerð.
Ég vænti, að hv. alþm. sé nokkuð tjóst, hvað hér er um að ræða, og ég sé þess vegna ekki ástæðu til að hafa langa framsögu, en ég vil aðeins benda á það, að svo mikilsvert sem þetta er fyrir næstu byggðirnar austan Skeiðarársands og raunar fyrir allt sunnanvert Austurland, ef mögulegt er að opna þessa leið, þá verður það einnig mikilvægt atriði fyrir landsmenn alla, því að nú eru sumarferðalögin orðin að segja má fastur þáttur í lifi fjölda þess fólks, sem í þéttbýlinu býr, og það liggur í augum uppi, hversu menn teldu það miklu hagkvæmara, ef hægt væri að aka hringveginn um landið, en ekki t.d., ef menn fara til Hornafjarðar, að verða þá að aka norður um og síðan sömu leið til baka. Þess vegna vildi ég vænta þess, að þessi till. fengi greiðan gang gegnum þingið og hún verði hér samþykkt siðar, og þá vildi ég vænta þess, að það yrði séð fyrir því, að þessi tilraun verði gerð á komandi sumri.
Ég vil þá að lokum leyfa mér að leggja til, að till. sé vísað til hv. fjvn.