13.11.1963
Sameinað þing: 15. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í D-deild Alþingistíðinda. (2834)
35. mál, Vesturlandsvegur
Flm. (Jón Skaftason):
Herra forseti. Á þskj. nr. 35 hef ég leyft mér að flytja svofellda till. til þál.:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta nú þegar ákveða vegarstæði Vesturlandsvegar frá Elliðaám og inn fyrir Kollafjörð og vinna þau undirbúningsstörf önnur, sem nauðsynleg eru, til þess að endurbygging vegarins geti hafizt á næsta sumri:
Till. þessa flutti ég á síðasta þingi, en hún náði þá ekki fram að ganga, og hef ég því leyft mér að endurflytja hana hér aftur í upphafi þessa þings í þeirri von, að hún kunni nú að ná samþykki.
Eins og hv. alþm. er eflaust öllum kunnugt, hefur byggð farið mjög vaxandi á siðari árum í Mosfellssveit. Þar munu nú vera búandi um 800 manns, og er ekkert lát á flutningum fólks inn í hreppinn, sem er að ýmsu leyti mjög vel í sveit settur. Með vaxandi íbúafjölda i hreppsfélaginu hefur það gerzt, að atvinnuhættir hafa breytzt að verulegu leyti frá því, sem áður var. Áður var það þannig, að þar höfðu flestir lífsframfæri sitt af landbúnaði, en nú er svo komið, að í Mosfellssveit hafa risið á síðari árum nokkur iðnaðarfyrirtæki, og vitað er, að ýmis iðnaðarfyrirtæki vildu gjarnan geta flutt starfsemi sina upp i Mosfellssveitina, ef aðstæður leyfðu.
Eitt af því, sem mjög hefur háð vexti þessa sveitarfélags, er það, að skipulag fyrir hreppsfélagið hefur vantað. Ein af aðalástæðum þess, að ekki hefur verið unnt að ráðast í að gera þetta skipulag, er sú, að enginn veit nú, eftir því sem ég hef getað aflað mér beztra upplýsinga um, hvernig Vesturlandsvegur, sem nú liggur í gegnum hreppsfélagið, á að liggja. Till. mín gerir ráð fyrir því, að ákvörðun um sjálft vegarstæðið verði ekki slegið lengur á frest og það ekki látið dragast að ákveða sjálft vegarstæðið, svo að hægt sé að fara að vinna að skipulagsmálefnum fyrir hreppinn.
Síðari hluti till. gengur svo út á það, að endurbygging vegarins, Vesturlandsvegar, frá Elliðaám og inn fyrir Kollafjörð, verði hafin strax næsta sumar. Eins og hv. alþm. vita, mun öll umferð hér frá höfuðborginni og þéttbýlissvæðinu við sunnanverðan Faxaflóa til a.m.k. þriggja landsfjórðunga liggja um þennan veg. Ástand vegarins er því oft þannig, ekki sízt þegar vætuveður eru mikil, að illmögulegt er að komast eftir honum í bifreiðum og illmögulegt fyrir gangandi fólk að komast eftir honum, auk þess sem mjög skortir á, að vegurinn sé nægilega vel upplýstur, þannig að þarna er veruleg slysahætta, og því miður hafa komið fyrir á seinni árum dauðaslys á þessum vegarkafla. Enn fremur, eins og ég tek fram í grg., er mikill hluti eða sennilega mestur hluti þess byggingarefnis, sem notað er hér í höfuðborginni, möl og sandur, og einnig í kaupstöðunum í nágrenni Reykjavíkur, Kópavogi, Hafnarfirði og víðar, flutt eftir þessum vegarkafla til þessara kaupstaða, þannig að ekki þarf um það að deila, að þörfin fyrir góðan veg á þessum stað er mjög brýn.
Ég sé ekki ástæðu til að fara út í frekari útskýringar með þessari þáltill. Efni hennar er mjög skýrt. En ég vil að endingu láta í ljós þá von, að till. þessi nái nú í þetta skipti fram að ganga og verði samþykkt í hv. sameinuðu þingi.
Ég legg svo til, herra forseti, að umr. um málið verði nú frestað og því vísað til hv. fjvn.