13.11.1963
Sameinað þing: 15. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í D-deild Alþingistíðinda. (2841)
38. mál, þjóðhagsáætlun fyrir árin 1964-1968
Flm. (Helgi Bergs):
Herra forseti. Á þskj. 38 hef ég ásamt 7 öðrum þm. Framsfl. flutt þáltill., sem er svo hljóðandi:
„Alþingi ályktar að kjósa hlutfallskosningu i sameinuðu þingi 5 manna nefnd til að semja nýja þjóðhagsáætlun til næstu 5 ára. Áætlunin skal miðuð við örart hagvöxt og meiri framleiðniaukningu í atvinnuvegunum en áætlun sú, sem ríkisstj, lagði fyrir Alþingi í aprílmánuði 1963. Nefndin skal í starfi sínu njóta aðstoðar Efnahagsstofnunarinnar og annarra opinberra aðila eftir þörfum og skal ljúka störfum svo snemma, að hún geti lagt niðurstöður sinar fyrir Alþingi það, sem nú situr.“
Á undanförnum árum hefur það víða verið tekið upp að gera þjóðhagsáætlanir til notkunar við stjórn efnahagsmála. Með þessum áætlunum setja þjóðirnar sér ákveðið mark, sem skuli keppt að á áætlunartímabilinu, og við gerð áætlunarinnar er síðan kannað, hvernig megi beita hinum ýmsu þáttum efnahagslífsins til þess að ná því marki, og stefnan í efnahagsmálum þannig mörkuð. Það markmið, sem þjóðirnar keppa að, er yfirleitt að ná örum hagvexti. Nýlega hefur verið hafin áætlunargerð af þessu tagi í Bretlandi, einmitt með það fyrir augum að reyna að örva vöxt þjóðarframleiðslunnar. Frakkar starfa nú samkv. þjóðhagsáætlun fyrir árin 1962—1965, og markmið hennar er að auka framleiðsluna um 5% á ári. Efnahags- og framfarastofnunin hefur mælt með því við löndin innan sinna vébanda, að þau stefni að hví að auka þjóðarframleiðslu sína um 50% á áratugnum 1960—1970, og Þetta svarar til árlegrar aukningar upp á 4.1%. Þegar þessar tölur eru skoðaðar, verður að hafa í huga, að fólksfjölgunin í þessum löndum er minni en hjá okkur Íslendingum, og til þess að halda til jafns við þær, verðum við því að setja okkur hærra markmið í þessum efnum. Flestar af nágrannaþjóðum okkar hafa líka haft meiri vöxt en þetta á undanförnum árum, eins og fram kemur í grg. með þessari tillögu.
Nú er það nauðsynleg forsenda fyrir því, að hægt sé að gera þjóðhagsáætlanir að gagni, að fyrir hendi séu haldgóðar upplýsingar um þjóðhagsreikningatölur undanfarinna ára og sem nýjastar og beztar upplýsingar um þróun efnahagsmálanna. Síðan fyrir um það bil áratug hefur verið unnið hér á landi gott og þýðingarmikið starf í þessum efnum. Hagfræðingar á vegum Framkvæmdabankans fyrst í stað, en síðan á vegum Efnahagsstofnunarinnar, hafa unnið að gerð þjóðhagsreikninga fyrir árin, sem liðin eru frá stríðslokum. Niðurstöður þeirra eru merkilegar, og þær eru allgóður grundvöllur fyrir áframhaldandi starfi í þessum efnum, þótt þær eigi sjálfsagt enn eftir að batna með aukinni reynslu og með auknu starfi, sem í það er lagt að afla meiri og betri upplýsinga. Hagskýrslugerð hér á landi er sjálfsagt á ýmsan hátt ófullkomnari enn þá en víða í nágrannalöndum okkar, þó að hún hafi víssulega mikið batnað nú á seinustu árum.
Sá grundvöllur, sem hefur verið lagður á undanförnum árum með gerð þessara þjóðhagsreikninga fyrir liðið árabil, verður að álita, að sé mjög verðmætur. Og það er ástæða til þess að ætla, að sá undirbúningur, sem af hálfu sérfræðinga var lagður að áætlunargerð ríkisstj. frá s.l. ári, hafi verið vel gerður. Til undirbúnings þjóðhagsáætlun sinni leitaði ríkisstj. einnig til Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu um sérfræðilega aðstoð við undirbúning og gerð áætlunarinnar. Það dvöldu hér á landi um nokkurn tíma norskir hagfræðingar, sem unnu að þessum verkefnum. Það voru nokkrir hinna sömu manna, sem áður höfðu unnið að sams konar eða svipaðri áætlunargerð fyrir norsku ríkisstj. En engin skýrsla hefur hér birzt um störf hinna norsku hagfræðinga. Á bls. 13 í þjóðhagsáætlun ríkisstj., eins og hún er gefin út sérprentuð, er sagt frá því, að starf hinna norsku hagfræðinga hafi verið miklum erfiðleikum bundið, og látið liggja að því, að þeim hafi ekki tekizt að ljúka starfi sínu. Ýmsir áhugamenn hérlendis, sem hafa kynnt sér norsku þjóðhagsáætlunina, sem þessir menn unnu einnig að, eru flestir sammála um það, að hún sé mjög vel unnið verk. Þess vegna er mönnum mikil forvitni á því að kynnast störfum hinna norsku hagfræðinga hér á landi, og ég vil nota þetta tækifæri til þess að láta í ljós undrun mína yfir því, að ekki skuli hafa verið birtar frá þeim neinar niðurstöður. Það verður varla talið sanngjarnt gagnvart hinum ágætu útlendu gestum að birta þjóðinni ekki niðurstöður þeirra og láta jafnvel að því liggja, að þeim hafi ekki tekizt að ljúka verkefni sinu.
Það verður varla um það deilt, að miðað við allar aðstæður hafi hinir innlendu og erlendu sérfræðingar lokið ágætu starfi til undirbúnings þeirri þjóðhagsáætlun, sem ríkisstj. birti í vor. En þar með er líka sagt það, sem hægt er að segja jákvætt og gott um þessa áætlun. Þær pólitísku ákvarðanir, sem liggja til grundvallar því markmiði, sem í áætluninni er sett, verður að láta vonbrigði sin í ljós með. Á bls. 20 í þeirri grg., sem fylgir þjóðhagsáætluninni, segir:
„Sá vöxtur þjóðarframleiðslu á mann, sem búast má við að unnt sé að ná á Íslandi, liggur á milli markanna 2% og 4% á mann á ári:
Þegar tekið er tillit til fólksfjölgunarinnar, þýðir þetta, að sá vöxtur þjóðarframleiðslu, sem búast má við að sé hægt að ná hér á landi, liggi á sviðinu frá tæplega 4% og upp í tæplega 6%. Og ég skal ekki að svo stöddu vefengja, að þetta kunni að vera eðlileg niðurstaða. En samkv. þessari niðurstöðu mundi maður ætla, að framsækin ríkisstj. veldi okkur markmið, sem lægi ofarlega á þessu sviði, en ekki neðst á því. En svo fór ekki. — Á bls. 26 í þessari sömu áætlun er kafli, þar sem markmiðin eru skilgreind, og kaflinn hefst raunar á þessum orðum: „Eitt helzta markmið efnahagsmála á næstu árum er að stuðla að örum og traustum vexti þjóðarframleiðslunnar.“ En í lok þess kafla er svo markmiðið í þessu efni skilgreint. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Af þessum sökum hefur í þjóðhagsáætluninni ekki verið gert ráð fyrir, að vöxtur þjóðarframleiðslu á árunum 1963—1966 yrði meiri en á árunum 1955—1960, eða 4% á ári að meðaltali. Þar sem fólksfjölgunin verður sennilega heldur hægari á þessum árum en á árunum 1955—1962, svarar þetta til lítið eitt meiri aukningar þjóðarframleiðslu á hvern íbúa en Þá var, eða 2.2% í stað 2%.“
Hér er sett það mark, sem liggur neðst á því sviði, sem áður var sagt að væri eðlilegt. Það er reynt að punta svolitið upp á þetta lágkúrulega markmið með því að gera ráð fyrir því, að fólksfjölgunin verði minni á næstu árum en hún hefur verið um nokkurt skeið. Samkv. upplýsingum, sem fyrir liggja um væntanlega fólksfjölgun á næstu árum, sem ég hef haft aðgang að, en það er ritgerð eftir Guðjón Hansen tryggingafræðing, sem birtist í 1. hefti Fjármálatíðinda 1961, má gera ráð fyrir Því, að fólksfjölgunin á tímabili áætlunarinnar verði 1.9%, en ekki 1.8%, eins og ríkisstj. gerir ráð fyrir. En það skiptir nú raunar ekki verulegu máll. Hitt er þýðingarmeira, að gera sér grein fyrir, að flestar aðrar þjóðir mæla ekki framleiðsluaukninguna á mann þannig, að þær deili í framleiðsluaukninguna með öllum fólksfjöldanum í landinu, heldur mæla þær aukninguna á hvern starfandi mann. Þegar um er að ræða ráðstöfunarhlið þjóðarframleiðslunnar, er það kannske ekki óeðlilegt að miða við heildarfjölgun þjóðarinnar. En þegar um það er að ræða, hverjir möguleikar séu á því að auka þjóðarframleiðsluna, þá er eðlilegra að miða við starfandi fólk.
Nú liggja að vísu ekki fyrir góðar skýrslur um tölu starfandi manna á Íslandi, en það er samt ástæða til að vekja athygli á því, að nú á næstu árum verður fjölgun þess fólks, sem er í þeim aldursflokkum, sem gera má ráð fyrir að séu starfandi á næstu árum, meiri en áður hefur verið. Þetta er vitað með töluvert miklu meira öryggi heldur en það, hver fólksfjölgunin i heild verður, því að viðkoman er sjálfsagt alltaf eitthvað óvíss stærð. En þessi staðreynd skapar að öðru jöfnu aukna möguleika á mikilli framleiðsluaukningu, og ef litið er á fólksfjöldaskýrslurnar, þá hniga þær þess vegna frekar að því, að okkur beri að stefna hátt í þessu efni, heldur en við megum láta undan síga.
Í þjóðhagsáætlun sinni gerir ríkisstj. ráð fyrir, að þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur muni aukast jafnt, þ.e.a.s. um 4% á ári hvort tveggja á áætlunartímabilinu. Samkvæmt þeim þjóðhagsreikningum, sem fyrir liggja, hafa Þjóðartekjurnar á undanförnu árabili, frá 1955 til 1962, aukizt um 4.6% og þjóðarframleiðslan um 4.1%. Það er að vísu ekki fyrir tilverknað okkar sjálfra, heldur fyrir hagstæða verðþróun út á við, sem tekjurnar aukast svo miklu meira en framleiðslan, en eigi að síður er það tekjuaukningin, sem þjóðin finnur á sjálfri sér og hún tekur þar af leiðandi eftir.
Með þessum hætti er að dómi okkar fim, gert ráð fyrir afturför, sem íslenzka þjóðin hefur ekki efni á að leyfa sér. Þó að hinar iðnþróuðu þjóðir, sem með okkur eru í Efnahags- og framfarastofnuninni, telji sig hafa ráð á því að stefna ekki að meiri framleiðsluaukningu en sem svarar 4.1% á ári, þá er það skoðun okkar, að við getum ekki fylgt þeim í því. Bæði er, eins og áður var sagt, fólksfjölgunin meiri hjá okkur en þeim, og auk þess eigum við miklu meira ógert, því þó að tekjur okkar af atvinnuvegum okkar hafi verið allgóðar um sinn, þá eru þær á víssan hátt ótryggar og við þurfum að endurbæta þá og byggja upp nýja. Auk þess er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að framleiðsluaukning seinustu þriggja til fjögurra ára byggist ekki að öllu leyti á því, að þjóðin hafi aukið framleiðni sína eða tækni sína eða bætt vinnubrögð sin, heldur byggist þessi vöxtur að nokkru leyti á auknu vinnuáiagi, lengri vinnutíma, mikilli eftirvinnu og næturvinnu. Slík þróun er að sjálfsögðu ekki til frambúðar, úr henni verður þvert á móti að draga, í staðinn verður að auka framleiðni atvinnuveganna og þjóðarframleiðsluna. Af þessum sökum teljum við flm., að Það sé þjóðinni beinlínis hættulegt, að starfað sé eftir áætlun, sem setur svo lágt mark sem sú áætlun, sem ég hef hér gert að umræðuefni, enda verður að gera ráð fyrir því, að mönnum sé alvara með þjóðhagsáætluninni að vinna að því, að framþróunin verði i samræmi við hana og áætlunin komi til með að standa heima. En það stekkur enginn lengra en hann hugsar, og því verður að setja markið í þessum efnum hátt, þó að það verði að sjálfsögðu að vera raunhæft. Þess vegna höfum við flutt þessa till, um, að ný þjóðhagsáætlun verði samin, sem setji okkur hærra mark að keppa að og kanni, hvernig hinum ýmsu þáttum efnahagslífsins verði beitt til þess að ná því marki.
Nú er það að sjálfsögðu ljóst, að eftir því sem þjóðin leggur meira kapp á að auka afköstin, þá verður hún að sjálfsögðu að fórna einhverju öðru í staðinn. Þetta verður að vega og meta hvað á móti öðru, eftir því sem áætlunargerðin vinnst, og þess vegna höfum við flm. ekki talið eðlilegt að setja ákveðið tölulegt mark í þessa till. Það er hins vegar rétt að minna aftur á það, að í þjóðhagsáætluninni, sem setur okkur þetta markmið, 4%, er einmitt frá því greint, að eðlilegt mark mundi liggja á bilinu frá tæplega 4 til tæplega 6%, eins og ég gat um áðan, og það virðist þess vegna ekki vera nein goðgá, þó að við settum okkur það mark að ná 6% aukningu þjóðarframleiðslunnar á næstu árum. Ég geri það þó ekki að neinu aðalatriði i þessu máli, hversu hátt menn vilja setja Þetta mark, heldur að það verði hækkað allverulega frá því, sem það er í núverandi áætlun, innan þess ramma þó, sem raunsær verður talinn.
Þegar hæstv. forsrh. lagði áætlun ríkisstjórnarinnar fyrir Alþ. 16. apríl s.1., sagði hann m.a.: „Í henni eru engar gyllingar um framtíðina eða tylliboð. Þvert á móti felur hún i sér raunhæft mat, ég mundi jafnvel vilja segja varlegt mat á því, hver framleiðslugeta íslenzku þjóðarinnar verði á komandi árum.“
Þetta voru dálítið einkennilegar setningar. Ég veit ekki, hvort hæstv. forsrh. hefur með þessu viljað gefa það í skyn, að ef áætlunin setti okkur hærra mark en þetta, þá væri um gyllingar um framtíðina að ræða eða tylliboð. Annars staðar í áætluninni segir, að framleiðsluvöxtur á mann, sem nemi 2–4%, sé raunhæfur. Við höfum í rauninni ekki neitt að gera við varlegt mat í þessum efnum, heldur markvissa stefnu að raunhæfu, en dálitið háu markmiði. Auðvitað verður framleiðslugeta þjóðarinnar á næstu árum ekki nema að nokkru leyti ákveðin af forsjóninni, heldur verður hún ráðin af þeirri efnahagsstefnu, sem við sjálfir ákveðum og vinnum eftir.
Af þessum ástæðum vil ég láta í ljós þá von. að hv. þm. geti fallizt á till. okkar um Það, að Alþ. kjósi sérstaka nefnd til þess að semja nýja áætlun og leggja hana fyrir petta þing, áður en því lýkur. Eins og ég sagði áðan, þá hefur verið unnið svo gott undirbúningsstarf undir þessa áætlunargerð, að það sæmir ekki annað en að byggja á því undirbúningsstarfi myndarlega og bjartsýna, en þó raunhæfa áætlun. Og vegna þessa undirbúningsstarfs er ástæða til þess að ætla, að óhætt sé að gera ráð fyrir, að hin nýja áætlun yrði samin á tiltölulega skömmum tíma. Þegar sú nefnd, sem kosin yrði, ef till. þessi yrði samþykkt, hefði lagt niðurstöður sínar fyrir Alþ., er svo eðlilegt, að Alþ. taki um það ákvörðun, hvað gera skuli í framhaldi þeirrar áætlunargerðar, hvernig marka skuli efnahagsstefnuna i samræmi við hana, og einnig lætur þá Alþ. væntanlega gera framkvæmdaáætlun, sem sé í samræmi við hina nýju þjóðhagsáætlun, sem þá væntanlega ætti að ná til sama tímabils og þjóðhagsáætlunin, en ekki til miklu skemmra tímabils.
Ég vil svo, herra forseti, leggja til. að þessari till. verði að lokinni þessari umr. vísað til síðari umr. og hv. allshn.