18.12.1963
Sameinað þing: 30. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í D-deild Alþingistíðinda. (2861)
44. mál, héraðsskólar o.fl.
Flm. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Á þskj. 45 flytjum við nokkrir þm. úr Framsfl. till. til þál. um nýja héraðsskóla o. fl. Ég vil leyfa mér að lesa tillgr., en hún hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að kjósa 5 manna mþn., er kanni aðstæður unglinga í sveitum og þorpum til gagnfræða- og miðskólanáms og einkum, hver þörf einstakra sýslna eða landshluta er fyrir nýja eða stærri héraðsskóla eða aðra gagnfræðaskóla. Jafnframt skal n. athuga þörf dreifbýlisins fyrir heimavistarbarnaskóla eða heimangönguskóla eftir staðháttum og einnig með hverju móti megi tryggja á viðunandi hátt, að börn og unglingar í dreifbýli fái stundað skólanám til 15 ára aldurs.“
Hlutverk umræddrar mþn, yrði samkv. þessu í aðalatriðum: í fyrsta lagi að kanna þörfina fyrir nýja héraðsskóla eða aðra gagnfræðaskóla í sveitum og þorpum. Í öðru lagi að athuga þörf dreifbýlisins fyrir nýja barnaskóla. Og í þriðja lagi að athuga, hvernig hægt sé að tryggja, að börn í dreifbýlinu fái stundað skólanám til 15 ára aldurs.
Á síðasta þingi flutti ég þáltill. um stofnun héraðsskóla í Eyjafjarðarsýslu vegna mjög brýnna þarfa Eyfirðinga á slíkum skóla, en í ljós kom, sem raunar gat ekki dulizt, að vöntun héraðsskóla var ekki bundin við Eyjafjörð einan, heldur áttu margar sýslur við sömu erfiðleika að etja í sambandi við almenna framhaldsmenntun unglinga. Það varð því að ráði, að við tillögumenn sameinuðumst um flutning þessarar till., sem ætlað er allvíðtækt svið, að því er varðar skólamál dreifbýlisins.
Svo sem kunnugt er, starfa alls 8 svonefndir héraðsskólar í landinu. Upphaflega voru héraðsskólarnir sveitagagnfræðaskólar með sérstöku sniði og eiga flestir rætur að rekja til lýðskólanna eða alþýðuskólanna, sem stofnaðir voru um og eftir aldamótin og oft að forgöngu einstakra manna. Hugmyndin um alþýðuskóla í sveit er orðin gömul, og má telja, að meðal þess fyrsta, sem fram kemur í þeim efnum, séu nokkur frv., sem flutt voru á Alþingi 1887, þó að þau leiddu þá ekki til lagasetningar. Elzti skóli, sem mér er kunnugt um að hafi starfað sem eins konar héraðsskóli og þá fyrirrennari annarra alþýðuskóla, er Heydalsskólinn í Strandasýslu, sem stofnaður var 1897 og starfaði nokkur ár. Hjarðarholtsskóli séra Ólafs Ólafssonar var stofnaður upp úr aldamótum og starfaði lengi, meðan séra Ólafs naut við. Hvítárbakkaskóli var stofnaður 1905 og Núpsskóli í Dýrafirði 1905. Tveir þessir síðasttöldu skólar nutu forustu ágætra skólamanna, Sigurðar Þórólfssonar og séra Sigtryggs Guðlaugssonar. Alþýðuskólinn á Eiðum hóf starf sem slíkur árið 1918, eftir að búnaðarskólinn var lagður niður, og síðar verða til Laugaskóli í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1924, en undanfari hans var alþýðuskóli Arnórs Sigurjónssonar, og Laugarvatnsskólinn árið 1928.
Árið 1929 voru sett lög um héraðsskóla, og komu undir þau lög allir þeir skólar, sem þá voru starfandi í sveitunum, og þeir, sem síðan urðu til. Héraðsskólalögunum var nokkuð breytt 1940, án þess þó að grundvelli Þeirra og markmiði væri haggað. Samkv. l. um héraðsskóla voru skólarnir sjálfseignarstofnanir, en ákveðið, hver hluttaka ríkissjóðs og sýslnanna skyldi vera. í eldri héraðsskólalögunum var um helmingaskipti að ræða milli ríkis og sýslna um eign og rekstur skólanna, en 1940 var hlutföllunum breytt þannig, að ríkið lagði fram 1/4, en sýslur 3/4, enda kom í ljós, að sýslurnar áttu í vaxandi erfiðleikum með að rísa undir stærri hlut, og siðan hefur sótt æ frekar í það horf að gera skólana að algerum ríkisskólum, hvað stofnun og rekstur snertir, og má telja þá þróun eðlilega, eftir að héraðsskólalögin voru í rauninni afnumin með l. um gagnfræðanám frá 1946. En samkv. þeim eru héraðsskólarnir felldir inn í almenna skólakerfið sem hverjir aðrir gagnfræðaskólar eða miðskólar, og má segja, að munur á námsskrá héraðsskóla og annarra gagnfræðaskóla sé nú horfinn og samheitið héraðsskóli hefur því ekki alveg sama gildi og áður var.
Að vísu eru héraðsskólarnir staðsettir í sveitum og jafnframt heimavistarskólar, svo sem verið hefur frá fyrstu tíð, og það markar skólunum nokkra sérstöðu enn í dag. Og venja er enn að nefna skólana héraðsskóla og engin ástæða til þess að amast við því, þó að rétt sé að gera sér grein fyrir þeim breytingum, sem orðið hafa á grundvelli þeirra og starfsemi. Við flm. göngum út frá því, að stöðu héraðsskólanna í skólakerfinu verði ekki breytt frá því, sem nú gildir. Ekkert slíkt felst a.m.k. í þessari till. Höfuðatriði till., að því er héraðsskólana varðar, er það, að kannað verði, hver þörf sé fyrir nýja héraðsskóla í landinu, og þá jafnframt, hvort ekki sé þörf á að stækka þá skóla, sem fyrir eru, því að e.t.v. felst einnig í því nokkur úrbót á þeim vanda, sem við er að stríða. Nú um nokkurra ára skeið hefur ástandið verið þannig, að héraðsskólarnir átta hafa verið fullsetnir og að auki orðið að vísa frá nemendum svo að hundruðum skiptir. Ekki liggur fyrir ákveðin tala um það, hversu mörgum hefur verið vísað frá skólunum sakir þrengsla, en samkv. viðtölum, sem við flm. höfum átt við skólastjórana, er það sammæli þeirra, að ófullnægðar umsóknir skipti hundruðum, eins og við höfum leyft okkur að halda fram i grg. Annars tel ég, að það yrði hlutverk og eitt af verkefnum mþn. að kanna þessar tölur.
Um þörf einstakra héraða fyrir héraðsskóla verður ekki efazt. Ég gat m.a. um þörfina í Eyjafjarðarsýslu og gerði nákvæma grein fyrir henni í fyrra í framsöguræðu fyrir tilt. minni um héraðsskóla þar, og skal ég ekki orðlengja það frekar, en vil þó vísa til þess, sem ég þá sagði, og einnig þess, að sterk og mjög ákveðin hreyfing er nú vakin í Eyjafirði fyrir því að koma upp héraðsskóla í sýslunni. Sömu sögu er að segja í Skagafirði. Þar er tilfinnanlegur skortur á héraðsskóla og áhugi mikill heima fyrir um að hrinda skólamálinu í framkvæmd. Í NorðurÞingeyjarsýslu hafa framhaldsskólamálin verið til umr. nú sérstaklega í haust, og að því er ég hef frétt, eru uppi till. í málinu, sem telja má að leysi vanda Norður-Þingeyinga, a.m.k. í bili. Hygg ég að þannig megi fara um landið þvert og endilangt og finna alls staðar brýna þörf fyrir nýja skóla gagnfræðastigsins. Fjölgun héraðsskólanna er því tvímælalaust bráðaðkallandi, fyrst og fremst vegna sveitanna, en einnig vegna þorpanna, sem næst liggja, því að þar eru aðstæður til almennrar framhaldsmenntunar víða mjög ófullnægjandi og óviðunandi í sumum tilfellum. Þarf ekki síður að hyggja að þörfum þeirra en annarra hluta sýslnanna, enda hefur sú venja skapazt, að unglingar úr sjávarplássum hafa sótt nám í héraðsskólum, eftir því sem aðstæður hafa leyft. En í sambandi við þetta mál ber þó að hafa í huga, að sums staðar kann að vera ástæða til að efna til sérstakra gagnfræða- eða miðskóla í þorpunum, og þarf það einnig sinnar athugunar við, og vil ég taka það fram, að það vakir einmitt fyrir okkur flm. þessarar till., að það mál verði athugað jafnframt.
Á það er bent í grg., að mjög algengt sé, að unglingar úr kaupstöðum, þ. á m. í Reykjavík, óski eftir inngöngu í héraðsskólana, en eins og aðstæður nú eru í skólunum, verður að sjálfsögðu að vísa slíkum umsækjendum frá í mjög stórum mæli. Þessi mikla aðsókn kaupstaðarunglinga að héraðsskólunum bendir ótvírætt til þess, að kaupstaðarfólk hafi trú á þeim sem góðum mennta- og uppeldisstofnunum, og því finnst okkur flm., að þetta bendi enn frekar til nauðsynjar fleiri héraðsskóla, og raunar fult ástæða til þess að halda því fram, að fjölgun héraðsskóla mætti sitja í fyrirrúmi í sambandi við gagnfræðaskólabyggingar á næstu árum. Má á það benda, að ekki hefur verið reistur nýr héraðsskóli síðan 1949, er Skógaskóli tók til starfa, en að sjálfsögðu hefur þá verið unnið að endurbótum og breytingum á eldri héraðsskólum á þessu tímabili, og hefði þó þurft að gera meira.
Ég skal láta staðar numið um þennan þátt till., sem má telja höfuðatriði hennar, þótt önnur atriði séu ekki síður mikilvæg og þá einkum það, sem lýtur að því að kanna þörf dreifbýlisins fyrir nýja barnaskóla. Eins og rakið er í grg. og raunar er öllum hv. þm. kunnugt, er verulegur munur á framkvæmd skólagöngu sveitabarna og barna í kaupstöðum. í kaupstöðum eru undantekningarlaust starfandi fastir barnaskólar með fjölmennu starfsliði og víða allfullkominni starfaskiptingu milli kennara. Kaupstaðabörn sækja barnaskóla sinn frá 7 ára aldri og skólagöngu lýkur með barnaprófi, þegar barníð er 13 ára, og síðan er þeim skylt að vera tvo vetur í neðstu bekkjum gagnfræðastigsins og enda þau þá skyldunám sitt með svonefndu unglingaprófi 15 ára gömul.
Í dreifbýlinu er skólaganga barnanna ekki með þessum hætti að öllum jafnaði. Þar hefja börn víða ekki skólanám fyrr en þau eru orðin 10 ára, en foreldrum þeirra er þá skylt að annast fræðslu þeirra heima frá 7 ára aldri undir eftirliti kennara skólahverfisins. Skólagöngu sveitabarna lýkur að jafnaði, þegar Þau eru 14 ára. Af þessu sést, að skólaskyldan er misjafnlega löng eftir því, hvort um er að ræða sveitir eða kaupstaði. Hún er frá 7—15 ára í kaupstöðum, en víða í sveitum frá 10—14 ára. Þá er þess að gæta, að í mörgum sveitum eru engin föst skólahús, heldur búið við farkennslu og oft í ófullkomnum húsakynnum. Ég skal láta það ógert að gagnrýna þetta fyrirkomulag sterkum orðum, en að mínum dómi getur það tæplega talizt til fyrirmyndar, því að frumstætt má það teljast.
Nú finna menn það æ betur, að hér er úrbóta þörf, og það er tvímælalaust mikil nauðsyn að fjölga barnaskólum í dreifbýlinu. Víða verður vegna staðhátta að efna til heimavistarbarnaskóla, en vissulega er ekki síður æskilegt að koma upp heimangönguskólum, þar sem staðhættir leyfa, því að heimavistarskólar handa börnum eru ekki annmarkalausir, að því er ýmsir telja, og ekki ástæða til að hafa þá fleiri en nauðsyn krefur. Mitt álit er það, að barnafræðsla í sveitum komist ekki í gott horf, fyrr en skólabyggingarmálin hafa verið endurskoðuð og fleiri skólar reistir.
Eins og ég gat um áðan, eru kaupstaðabörn skólaskyld til 15 ára aldurs, en sveitabörn og börn í fjöldamörgum þorpum ljúka skólaskyldu 14 ára. Ég er sannfærður um það persónulega, að dómur framtíðarinnar verður sá, að þessum mun á skólaskyldu verði að eyða. Stefnan hlýtur óhjákvæmilega að verða sú, að sama skólaskylda gildi jafnt í bæjum og sveitum. Ég held líka, að tími sé kominn til þess að gera athugun á því, hvernig því verði við komið, að þessi munur á skólaskyldu verði jafnaður, þannig að börn í dreifbýlinu geti stundað skólanám til 15 ára aldurs. Með tilliti til þess er það ákvæði í tillgr., sem síðast getur í 2. mgr.
Ég hef þá gert grein fyrir efni og tilgangi þessarar till. til þál, og vænti þess eindregið, að hún fát hér í þinginu Þá fyrirgreiðslu, sem mikilvægi málsins krefst. Ég hygg, að það hafi verið ákveðnar tvær umr. um till. og ég vil því leyfa mér að leggja til, herra forseti, að till. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.