22.01.1964
Sameinað þing: 35. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í D-deild Alþingistíðinda. (2899)
47. mál, afurða- og rekstrarlán landbúnaðarins
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Vegna þess að ég er þessum málum dálítið kunnugur, langar mig til að leggja orð í belg. Ég skal ekki fara svo mjög út í að metast um þessi efni, en meira reyna að vekja athygli á því, hvað hér er um mikið vandamál að ræða, sem þarf að reyna að leysa, þar sem þessi rekstrarlánamál landbúnaðarins eru.
Hæstv. ráðh. benti á það alveg réttilega, að það er engin nýlunda, að samtök bændanna óski eftir því, að meira sé lánað út á landbúnaðarafurðir. Það hefur sjálfsagt verið gert lengi, eins og hann réttilega tók fram. Og það er líka sjálfsagt alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að það hefur aldrei tekizt að lána eins mikið út á afurðirnar og þurft hefði að gera. En það er ástæða til að benda á það í þessu sambandi, að því miður hefur verið stigið spor aftur á bak í þessu núna síðustu árin, sem hefur orðið ákaflega erfitt og þungbært, og það er þetta, að endurkaup Seðlabankans á afurðavíxlum vegna landbúnaðarafurða hafa verið minnkuð mjög mikið.
Ég ætla að benda á, hvernig breytingin hefur orðið. Það var búið smátt og smátt að byggja þetta upp þannig, að Seðlabankinn endurkeypti sem svaraði 67% af heildsöluverði landbúnaðarafurðanna. En þetta hefur verið fært niður i 55%, og nokkuð hefur verið breytt grundvellinum líka, þannig að lækkunin hefði orðið meiri. En við skulum ekki fara út í það til þess að gera málið ekki flókið, heldur bara segja, að endurkaupin hafi verið lækkuð úr 67% niður i 55%. Þetta hefur orðið ákaflega tilfinnanlegt fyrir bændurna og þær stofnanir, sem fara með þeirra málefni, kaupa fyrir þá rekstrarvörur og taka vörur þeirra til sölumeðferðar.
Þá er önnur breyting á afurðalánum en Þessi beina lækkun á prósentutölunni, og það er, að það var búið að byggja upp bað kerfi þannig, að byrjað var að lána úr Seðlabankanum út á sauðfjárafurðir í marzmánuði nokkra fjárhæð, sem var miðuð við ákveðna hundraðstölu, og síðan var bætt við mánaðarlega, unz komið var upp í þessi 67%. Og þetta var hugsað þannig, að það væri óhugsandi fyrir þær stofnanir, sem annast kaupin á rekstrarvörunum, að borga rekstrarvörurnar eða komast yfir þær vegna bændanna nema með því, að þannig ættu sér stað fyrirframlán. En nú hefur nokkur ár sá háttur verið á hafður, að þessum fvrirframlánum hefur verið haldið í heild óbreyttum að krónutölu, þannig að það hefur orðið þess vegna mjög verulegur niðurskurður á fyrirframlánum til viðbótar þeim niðurskurði, sem orðið hefur á endanlegum afurðalánum. Þetta munar geysistórum fjárhæðum, þegar það er tekið í heild, kannske tímabil úr árinu eitthvað milli 100 og 200 millj. í rekstrarfé fyrir bændurna og þær stofnanir, sem annast þeirra mál.
Svo hefur verið reynt, þrátt fyrir þetta, að halda þessu gangandi, en sýnilegt er, að það hefur verið þeim stofnunum, sem hafa reynt það algerlega um megn og þær stofnanir hafa komizt í hin mestu rekstrarfjárvandræði, eins og gefur að skilja, út af þessu, því að alltaf eykst það, sem þarf að kaupa að vorinu til og framan af árinu vegna bændanna, en afurðalánin hafa verið látin standa í stað i Seðlabankanum í krónutölu. Og eins, þegar kemur að því að borga út að haustinu, þá er verið að reyna að halda því, sem var, eins og hæstv. ráðh. sagði hér áðan, það er reynt að lækka það ekki, en það gengur út yfir þessar stofnanir, þannig að þær lenda í gífurlegum rekstrarfjárvandræðum og erfiðleikum með sinn rekstur og viðskipti á allan hátt.
Þetta mál er nú komið svo gersamlega í hnút, eins og ég veit, að hæstv. ráðh. er mjög vel ljóst, að það er ómögulegt að sjá, hvernig hægt verður að leysa þessi mál í vor, nema þessu verði breytt, og veit ég, að hæstv. ráðh. hefur opin augun fyrir því. Og þá er það t, d., að það væri mjög þýðingarmikið skref, ef hægt væri að breyta þessu í það horf, sem það var áður.
Hæstv. ráðh. fannst ekki mikið til um frammistöðu framsóknarmanna í þessu, eins og hún hefði verið. En það væri þó stórt skref til bóta frá því, sem núna er, ef hæstv. ráðh. hefði treyst sér til þess að beita sér fyrir því, að hámarkið væri tekið af fyrirframlánunum, afurðalánunum, til að reyna að leysa þessi vandamál framan af árinu, að Seðlabankinn færi í að endurkaupa jafnmikið og hann gerði áður. Seðlabankinn er alveg tvímælalaust jafnvel fær um að gera það og áður, og þó betur fær um það en áður vegna þess, sem dregið hefur verið inn í bankann af sparifjármagni úr bankakerfinu. Það ættu að vera meiri möguleikar en áður til þess að koma afurðalánunum aftur i það horf, sem þau voru.
Hæstv. ráðh. viðurkenndi, að það hefðu verið minnkuð endurkaupin á afurðavíxlunum út á landbúnaðinn. Hann viðurkenndi það, enda er það staðreynd. En hann sagði, að það mundi hafa komið í staðinn, að viðskiptabankar hefðu lánað meira en áður, þannig að mér skildist hæstv. ráðh. draga í efa, að stofnanir þær, sem annast málefni bændanna, eða bændurnir sjálfir hefðu fengið í heild nokkru minni lán en áður var. En því miður er þetta misskilningur, því að þessu er þannig varið, að það er ekkert nándar nærri því, að ýmsar af veigamestu stofnunum bændanna, sem eiga að annast þessi mál fyrir þeirra hönd, hafi getað fengið í viðskiptabönkunum brúað það bil, sem varð við niðurskurðinn á afurðalánunum. Því fer því miður alls fjarri, og þess vegna eru þessi mál komin í mjög alvarlegan hnút, sem ég endurtek, að ég veit, að hæstv. ráðh. er mjög vel kunnugt um. því að einmitt þetta, að þessar stofnanir hafa verið að reyna að klifa þrítugan hamarinn til þess að láta ekki lækka afurðagreiðslurnar til bændanna og verið er að reyna að kaupa nauðsynlegar rekstrarvörur vegna bændanna þrátt fyrir niðurskorin afurðalán, hefur nú sorfið þannig rekstrarfjárlega að þessum stofnunum, að þarna er orðinn hnútur, sem verður að leysa.
Ég vildi leggja þessi fáu orð í belg til að bæta nokkru við það, sem kom fram hjá hv. flm.. sumpart af því tilefni, sem hæstv ráðh. gaf, ef það mætti gera þá mynd skýrari, sem þarf að vera sem ljósust fyrir öllum hv. þm. og þeim, sem hér þurfa að eiga hlut að málum.
En mér sýnist, að það verði að reyna að sameinast um að leysa þessi mál, stíga eitthvert skref áfram, þótt ekki verði hægt að komast alla leið, eins og hér er ráðgert í þessari þáltill. Það verði reynt að klífa þrítugan hamarinn til að stíga eitthvert skref áfram í þessum efnum, annaðhvort að auka afurðalánin úr Seðlabankanum eða þá að tryggja það beinlínis, að þær stofnanir, sem annast þessi mál fyrir bændurna, geti fengið viðaukalán út á afurðirnar. En það eina, sem gefur örugga lausn, væri að hækka endurkaupin og þá t.d. að slá frá þessa slá, sem sett hefur verið fyrir, eða afnema þetta hámark, sem sett hefur verið á fyrirframlánin, sem er eitt atriði, en þó aðeins eitt atriði.
Ég skal ekkert fara að reyna að bera hér saman sjávarútveg og landbúnað í þessu tilliti, og ég geri ráð fyrir því að Seðlabankinn reyni að hafa þar sömu reglu um lán út á fyrirliggjandi afurðir. En það, sem kemur þar einnig til athugunar, er nú það, að ég býst við því, þótt ég viti það ekki fyrir víst, að þeim fyrirtækjum, sem annast meðferð sjávarafurða, muni yfirleitt hafa gengið betur að fá viðaukalán úr viðskiptabönkunum en hinum, sem hafa landbúnaðarafurðirnar. A.m.k. veit ég, að það er þannig um fyrirtæki, sem ég þekki til, að það hefur gengið betur hjá þeim fyrirtækjum, sem fara með sjávarafurðir, að fá slík viðbótarlán en þeim, sem fara með landbúnaðarafurðir.
Hæstv. ráðh. hefur stundum sagt það hér, að hann mundi vilja eiga hlut að því, að viðskiptabankarnir bættu við slíkum lánum, og ég vil ekki draga í efa, að hann hafi ýtt í þá átt. En árangur hefur ekki orðið af því, þannig að stofnanir, sem annast bændalánin, hafi getað gengið að neinum slíkum viðbótarlánum, og þess vegna eru málin orðin svona örðug viðfangs.