29.10.1963
Efri deild: 7. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (29)
21. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er gamall kunningi þeirra, sem átt hafa sæti á hv. Alþ. að undanförnu. En eins og fram kemur í grg. fyrir frv. svo og í framsöguræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr. málsins, þá hefur þetta frv. minnkað allverulega frá því, sem það hefur verið síðustu árin, og liggur minnkunin í því, að söluskatturinn á innfluttum vörum er nú ekki lengur í þessu frv. Þau ákvæði hafa verið beint eða óbeint tekin inn í tollskrána, sem samþykkt var hér á Alþingi á s.l. vori. Og frv. hefur minnkað svo mikið, að sá ágreiningur, sem um þetta mál hefur verið undanfarin ár, nær nú a. m. k. ekki til okkar, sem sæti eigum í fjhn., því að eins og nál. á þskj. 44 ber með sér, þá leggjum við allir til, að þetta frv. verði samþykkt óbreytt.