13.11.1963
Sameinað þing: 15. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í D-deild Alþingistíðinda. (2924)

60. mál, samgöngubætur á Fjallabaksleið

Flm. (Ragnar Jónason):

Herra forseti. Till. til þál. um athuganir á framkvæmdum til samgöngubóta á Fjallabaksleið hinni nyrðri á þskj. 63 hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta.

„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að láta á næsta ári undirbúa og hefja framkvæmdir til vegabóta og brúargerða á Fjallabaksleið hinni nyrðri.“

Hinar svokölluðu Fjallabaksleiðir eru tvær, hin nyrðri og hin syðri, og liggja milli Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Þegar farið er að austan um Fjallabaksleið hina syðri, er komið niður á Rangárvelli, en þegar nyrðri leiðin er farin, er komið niður i Landsveit. Syðri leiðin er allmiklu skemmri en hin, en miklu erfiðari yfirferðar og leiðari á alian hátt. Af þeim sökum hefur lítið verið gert til þess að lagfæra hana, enda telja kunnugir menn, að það mundi kosta mikið að gera hana sæmilega færa bifreiðum. Fjallabaksleiðin nyrðri er aftur á móti mjög greiðfær á löngum köflum frá náttúrunnar hendi, auk þess sem hún er ein fegursta öræfaleið landsins og farin ár hvert af miklum og vaxandi fjölda ferðafólks, bæði innlends og erlends. Á Fjallabaksleið hinni nyrðri eru fá vatnsföll og engin stór, aðeins tvær ár, sem nokkuð verulega kveður að, Jökulkvísl, sem kemur úr Torfajökli og fellur norður í Tungnaá, og Ófæra á Skaftártunguafrétti, sem er ein af þverám Skaftár. Brúarstæði munu vera heppileg á báðum þessum ám, og þyrftu brýr á þær ekki að vera dýrar. Það eru allmörg ár síðan þessi forna þjóðleið var rudd og opnuð fyrir bifreiðar. Veginum hefur verið gert nokkuð til góða árlega og hefur farið smábatnandi, og er nú svo komið, að hann mundi fær flestum léttari bílum yfir sumartímann, ef ekki væru þessar áðurnefndu ár til trafala. En þær eru næstum alltaf ófærar vegna sandbleytu öðrum bílum en þeim, sem hafa drif á öllum hjólum. Leiðin er því ónothæf fyrir alla þungaflutninga, eins og sakir standa.

Tilgangur okkar flm. þessarar till. er sá að fá nauðsynlegum umbótum á Fjallabaksleiðinni hraðað meira en gert hefur verið til þessa með það fyrir augum að gera hana færa fyrir þung flutningatæki. Öllum, sem til þekkja, er ljóst, að lokist fyrir samgöngur um Mýrdalssand vegna náttúruhamfara, eru miklir möguleikar til þess, að bjargast megi við Fjallabaksleiðina sem samgöngu- og flutningaleið um takmarkaðan tíma. En því aðeins má þetta verða, að áðurnefndar ár verði brúaðar og nokkurt fé fáist einnig til þess að bera ofan í veginn á stöku stað. Það er óþarft að lýsa því fyrir hv. alþm., hvers virði það er fólkinu i dreifbýlinu, að samgöngur geti farið fram með eðlilegum hætti. Ef verulegar truflanir verða þar á, getur það valdið lítt bætanlegu tjóni, ekki sízt ef það skeði um mesta flutningatímann að vorinu, eða að haustinu meðan á sláturtíð stendur. Íbúum Vestur-Skaftafellssýslu, þeim sem fyrir austan Mýrdalssand búa, er ljóst, að öryggi þeirra hvað samgöngur snertir yrði stórum bætt með því að gera þær umbætur á Fjallabaksleið hinni nyrðri, sem við flm. leggjum til.

Herra forseti. Ég vil leggja til, að umr. verði frestað um till. og henni vísað til hv. fjvn.