18.12.1963
Sameinað þing: 30. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í D-deild Alþingistíðinda. (2934)
65. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Davíð Ólafsson:
Herra forseti, Ég vildi enn ítreka það, sem ég sagði fyrr í ræðu minni, að við endurskoðun l. um hlutatryggingasjóð og við samningu frv. um aflatryggingasjóð sjávarútvegsins voru teknar upp allar þær till., sem komið höfðu fram við endurskoðunarathugun þá, sem fram fór á vegum fiskiþings fram til ársins 1960, þó að þess sé ekki sérstaklega getið í grg. fyrir frv. Ef maður ber saman þær till., sem þá voru samþykktar og voru árangurinn af þessu langa athugunarstarfi fjölmargra aðila, kemur í ljós, að öll meginatriði í þeim till. voru einmitt tekin upp í frv., að mestu leyti óbreytt, a.m.k. efnislega óbreytt.
Þetta vildi ég ekki að væri misskilið. Ég hélt, að það kæmi skýrt fram hér, að þetta var gert á sínum tíma .