31.01.1964
Sameinað þing: 37. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í D-deild Alþingistíðinda. (2951)
76. mál, lánveitingar til íbúðabygginga
Þorvaldur G. Kristjánsson:
Herra forseti. Ég hygg, að það orki ekki tvímælis, hve húsnæðismálin eru þýðingarmikil, og ég hlýt að sjálfsögðu að taka undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði um það efni. Það er mikil þörf á endurbótum í þessum málum. Það er þörf á að auka útlán til íbúðabygginga og aukinni viðleitni til þess að lækka byggingarkostnaðinn. Nú er gert ráð fyrir því að kjósa sérstaka nefnd af hálfu Alþingis til þess að taka þessi mál til athugunar og gera till. til úrbóta samkv. þeirri till. til þál., sem hér liggur fyrir.
Ég hygg, að þegar rætt er um þessi mál, verði nokkuð að hafa í huga, hver þróunin hefur verið í þeim á undanförnum árum, og það varði miklu að gera sér sem gleggsta grein fyrir því. Við þurfum að hafa staðreyndir vel í huga til þess að sjá betur, af hverju við getum lært og hvaða stefnu við eigum að hafa í málunum. Hv. síðasti ræðumaður sagði, að ástandið í þessum efnum, ástandið í húsnæðismátunum, hefði versnað með hverju ári, sem líður, eins og hann orðaði það. Þegar ég heyrði hann segja þetta, varð það til þess, að ég það um orðið, því að mér finnst þessi fullyrðing, sem er algerlega órökstudd af hans hálfu, þess eðlis, að þess sé ekki að vænta, að við tökum rétta stefnu í þeim málum, sem gera þarf, ef við byggjum á slíkum hugmyndum og teljum, að staðreyndirnar séu slíkar. Þetta kemur mér að vísu ekki á óvart, vegna þess að eitt af því, sem stjórnarandstaðan á síðasta kjörtímabili hefur lagt megináherzlu á í hinum pólitíska áróðri sínum, er það, að ríkisstj. hafi mistekizt sérstaklega í þessum málum. Hv. 11. þm. Reykv. lagði að vísu ekki áherzlu á þetta sjónarmið, en ég hygg, að sú staðhæfing, sem hann lét sér um munn fara, byggist á þessari skoðun. Þess vegna þykir mér rétt að athuga málið nokkru nánar.
Ég skal ekki fara ýtarlega út í þessi mál. En það er rétt, að fjárfesting í íbúðarhúsnæði hefur verið minni í tíð núv. ríkisstj. en hún var í tíð vinstri stjórnarinnar á árunum 1957 og 1958. Þetta svarar til 15% minni fjárfestingar. Og á þessu byggja svo stjórnarandstæðingar allar sínar fullyrðingar um það, að núv. ríkisstj. hafi mistekizt í þessum efnum og ástandið í þessum málum hafi þess vegna versnað frá Því, sem áður var.
Hv. síðasti ræðumaður sagði, að íbúðabyggingar hefðu minnkað, ekki vegna þess, að þörfin væri ekki fyrir hendi eins og áður, heldur af öðrum ástæðum. En athugum þetta nánar. Við skulum athuga nánar um þörfina.
Á árunum frá 1952—1953 reis mikil byggingaralda í landinu. Á áratugnum 1953—1962 voru fullgerðar um 13000 íbúðir. Ef við miðum við meðalfjölda fólks á hverja íbúð, svarar þetta til þess, að byggt hafi verið yfir um 58 þús. manns, en á sama tíma nam fólksfjölgun þjóðarinnar um 34500 manns. Var því byggt umfram fólksfjölgun fyrir sem svaraði 23-24 þús. manns, og það leiddi að sjálfsögðu til stórfelldra bóta á húsnæðisástandinu. Nú kemur mér ekki til hugar að halda fram, að það hafi verið byggt umfram þarfir, sem þessu nemur. Auðvitað var það ekki. Það, sem hér hefur skeð, var það, að húsnæðisástand þjóðarinnar í heild hefur batnað mikið frá því, sem áður var. Fólk býr rýmra en áður, og auk þess hafa gamlar og lélegar íbúðir verið lagðar niður. En hvað sem því líður, verður því ekki á móti mælt, að þessi geysilega fjárfesting í íbúðarhúsabyggingum á þessu tímabili hlýtur að hafa nokkur áhrif og hlýtur að hafa áhrif í sambandi við þörf nýrra bygginga. Það verður ekki heldur sagt, að íslenzka þjóðin hafi ekki sinnt þessum málum á þessu tímabili, því að um 40% af heildarfjárfestingu þjóðarinnar hefur verið í byggingu íbúðarhúsnæðis og um 10% af þjóðarframleiðslunni allri hefur fárið til íbúðabygginga, þegar mest var á þessu tímabili. Ég hygg, að það sé ekki óeðlilegt, að eftir slíka þróun, sem ég hér hef lýst, hafi nokkuð dregið úr íbúðarhúsabyggingum. Ég hygg, að það sé ekki óeðlilegt, að þetta hafi þau áhrif, að þjóðin hafi viljað snúa sér meir að öðrum verkefnum, sem jafnvel voru brýnni, þegar hér var komið sögu. Þetta kom þegar fram á fyrsta valdaári vinstri stjórnarinnar, því að þá lækkaði fjárfesting í íbúðarhúsum árið 1957 um 7% frá því árið 1956 og lækkaði enn um rúm 13% árið 1958. Og þetta var á valdaárum vinstri stjórnarinnar. íbúðabyggingar hækkuðu hinsvegar aftur nokkuð 1959, en hafa síðan verið nokkru minni.
Um þetta hygg ég, að sé enginn ágreiningur. En í þessu sambandi skulum við athuga það, að ríkisstj. verður fremur dæmd af fyrirgreiðslu sinni við íbúðabyggingar heldur en af tölu fullgerðra íbúða eða fjárfestingunni í heild. Sjálfar íbúðabyggingarnar eru ekki á vegum ríkisins. Hins vegar markar ríkisstj. stefnuna í peningamálunum og gerir ráðstafanir í lánamálum húsbygginga. Og til þess að frammistaða núv. ríkisstj. í húsnæðismálunum verði rétt metin, er þýðingarmikið að gera samanburð á útlánum almenna veðlánakerfisins, sem lánin að mestu leyti heyra undir, hlutfallinu milli útlána miðað við íbúðabyggingar og notagildi íbúðalána miðað við byggingarkostnað. Ég skal ekki fara mjög langt út í þetta. Ég get þó ekki látið hjá líða að nefna nokkrar tölur. 1957 nam fjárfesting íbúðabygginga 565 millj. Útlán almenna veðlánakerfisins voru 45.7 millj. og útlán almenna veðlánakerfisins í hlutfalli við íbúðabyggingar var 8.1. Samsvarandi tala 1958 var 9.4, 1959 5.5, 1960 9.0, 1961 15.5 og 1962 14.0. Af þessu sjáum við nokkuð, hver þróunin hefur verið á þessum árum, sem ég hér hef tiltekið. Ég hef ekki samsvarandi tölur fyrir árið 1963. Ég hef hér tölur um það, hver útlán almenna veðlánakerfisins hafa verið á þessum árum. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara með þær. Þær gefa ekki heldur nægilega glöggan samanburð, vegna þess að byggingarkostnaðurinn hefur aukizt mikið á þessum árum. En ef við tökum tillit til þess, hvað byggingarkostnaðurinn hefur aukizt, og umreiknum útlán almenna veðlánakerfisins miðað við það, þá fáum við eftirfarandi tölur: 1957 69.5 millj. kr. útlán, 1958 70.1, 1959 45.6, 1960 65.1, 1961 85.5 og 1962 86.6. Þessar tölur sýna líka það, að útlán almenna veðlánakerfísins, sem mestu máli skiptir í þessu sambandi, hafa ekki einungis aukizt tölulega, þau hafa aukizt verulega að notagildi, þegar þau eru umreiknuð og miðað við hækkandi byggingarkostnað.
Ég hygg, að þegar það liggur fyrir, að byggingarframkvæmdir hafa verið svo miklar á undanförnum áratug eins og ég hef gert grein fyrir, og þegar það liggur fyrir, að núv. ríkisstj. hefur gengið miklu lengra í allri fyrirgreiðslu við húsbyggjendur en áður var, þá sé það ljóst, að húsbyggingar hafa ekki minnkað vegna aðgerða ríkisstj., heldur verði fremur að tengja það þeim miklu framkvæmdum og miklu fjárfestingu í íbúðarhúsabyggingum, sem voru á síðasta áratug.
Nú kemur mér ekki til hugar að neita því, að byggingarkostnaður hefur hækkað verulega. Byggingarkostnaður hefur hækkað frá 1958 um 47%, og það er náttúrlega mjög mikil hækkun og það er alvarlegt út af fyrir sig, og það tek ég mjög undir með hv. síðasta ræðumanni. En þetta er hins vegar ekki nein sönnun fyrir því, áð það hafi af hálfu stjórnarvaldanna verið verr haldið á húsnæðismálunum í heild en var áður, því að á þeim stutta tíma, sem vinstri stjórnin var við völd, hækkaði byggingarkostnaður um 34%.
Ég sagði, að ég hefði staðið upp vegna þess, að ég heyrði síðasta hv. ræðumann segja, að ástandið í húsnæðismálunum hefði versnað með hverju ári, sem liðið hefði. Ég sagði, að ég hefði staðið upp, þegar ég heyrði þetta, því að mér hefði fundizt þetta bera vott um það, að hv. ræðumaður gerði sér ekki fullkomlega grein fyrir því, hver þróunin hefði verið í þessum málum á undanförnum árum. Og ég held, að ef á að taka húsnæðismálin til athugunar og ef á að endurbæta margt, sem þar fer aflaga og vissulega þarf að bæta, þá þurfum við umfram allt að gera okkur sem gleggsta grein fyrir ástandi málanna, fyrir Þróun málanna og fyrir staðreyndunum, eins og Þær hafa verið.
Mér finnst ástæða til að geta Þess hér, að nú um þessar mundir fer fram athugun á þeim málum, sem Þessi Þáltill. gerir ráð fyrir. Félmrh. hefur fárið Þess á leit við húsnæðismálastjórn að taka Þessi mál til athugunar og gera till. til breytinga og úrbóta. Hv. síðasti ræðumaður nefndi hér skýrslu Johans Hoffmanns, bankastjóra Husbankans norska, og nefndi nokkur atriði úr Þeirri skýrslu. En það vill svo til, að félmrh. hefur beinlínis falið húsnæðismálastjórn að taka þessa skýrslu til sérstakrar athugunar og skila áliti um skýrsluna. Ég skal því ekki segja, hversu mikla hagnýta þýðingu þessi till. hefur, en hún hefur a. m. k, ekki hagnýta þýðingu, ef á að vinna samkv. henni í þeirri villu, sem mér virtist fram koma hjá síðasta ræðumanni, Þegar hann ræddi um húsnæðismálin almennt.