31.01.1964
Sameinað þing: 37. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í D-deild Alþingistíðinda. (2953)
76. mál, lánveitingar til íbúðabygginga
Eggert G. Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að blanda mér í þær umr., sem þegar hafa farið fram um þá þáltill., sem hér liggur fyrir til umr. En þótt ekki væri til annars en til að lýsa þeim vonbrigðum mínum, inn á hvaða brautir umr. þessar hafa snúizt, þá taldi ég mig eiga erindi hingað upp í ræðustólinn.
Sannleikurinn er sá, að þegar á þessi mál hefur verið minnzt hér á undanförnum þingum, þá er eins og menn geti í afar fáum tilfellum haldið sér við raunveruleikann í þeim og skoðað erfiðleikana, sem við er að etja, í ljósi staðreyndanna. Þess í stað er fitjað upp á talnaflækjum. Einn miðar við íbúðir, sem byrjað var á, annar miðar við íbúðir, sem lokið var á árinu o.s.frv., allt eftir því, hvað hentar betur þeirri ríkisstj., sem hann studdi eða vildi styðja á þeim tíma. Sannleikurinn er sá, að hér er einungis fárið með hættulegan blekkingavef fyrir það fólk, sem á um sárt að binda vegna þess, að ekki hefur tekizt, hvorki í tíð núv. ríkisstj. né annarra undanfarinna ríkisstj., að leysa þennan mjög svo viðkvæma vanda, sem hér er við að etja, á þann veg, sem ég hygg þó að flestir vildu gert hafa. Og ég skal sízt af öllu verða til þess að draga neina dul yfir það, að ég er nákvæmlega sömu skoðunar og kom fram í þeim orðum Hannesar Pálssonar, sem hér var vitnað til í ræðu áðan. Hér er um eitt veigamesta hagsmunaatriði almennings og allra launþega
Í landinu að ræða, og fer ég ekki og hef ekki farið dult með þá skoðun mína. En Þegar sú tilvitnun er frá tekin, virðist mér, að ræðan að öðru leyti — ræða hv. 1. flm. þessarar till. — hafi snúizt um þessar gamalkunnu talnaflækjur, sem ekkert erindi eiga inn í umr. um lausn þessa vandamáls, nema síður sé. Ég skal reyna að forðast þessar freistingar og halda mig við till. sjálfa, eins og hún liggur hér fyrir.
Það hefur þegar verið upplýst í þessum umr., að húsnæðismálastjórn vinnur að því að endurskoða eða fara yfir till. þær, sem hinn norski Husbank-stjóri gerði, ásamt því að gera sínar eigin till. til úrbóta. Húsnæðismálastjórn hefur dyggilega að þessu unnið, og það er fáum kunnari sá vandi, sem við er að eiga, heldur en einmitt þeim mönnum, sem þar starfa. Ég fæ því ekki séð, hvaða vanda kosning slíkrar nefndar, sem þáltill. þessi gerir ráð fyrir, ætti út af fyrir sig að leysa, og ég sé ekki, hvaða breytingum hún mundi í sjálfu sér valda öðrum en þeim, sem komu fram við upphaf þessa þings, að fulltrúi Alþb. viki úr slíkri nefnd, en í stað hans kæmu inn tveir framsóknarmenn í endurskoðunarnefndina. Önnur breyting mundi ekki eiga sér stað samkv. þeirri reglu, sem þá gilti um kosningu 5 manna n. hér.
Hvað sjálft innihald till. snertir, verður að segja það um hana eins og flest annað, sem kemur fram á þinginu frá flm, tillögunnar, það eru mjög frómar óskir og eðlilegar, en gætu alveg eins verið í 2—3 orðum, aukið fé til húsbygginga. Vandinn er sá að finna þær tekjulindir, sem þarf til þess að velta auknu fé inn í íbúðalánakerfið. Þeim vanda hefur hver einasta ríkisstj. staðið frammi fyrir, frá því að veðlánakerfið komst á fót. Höfuðvandinn við íbúðalánakerfið í dag, auk fjárhagsvandræðanna, er sá, hvernig af stað var fárið um þessa hluti. Þeir hv. stjórnarsamstöðuflokkar, sem þá skipuðu ríkisstj., sögðu bókstaflega í málgögnum sinum, að með setningu veðlánakerfisins væri búið að leysa þennan vanda um ókominn tíma. Það íbúðabyggingaflóð, sem fór í kjölfar þessara yfirlýsinga þáv. hæstv. ríkisstj., er enn þá sá baggi, sem vart verður undir risið og mestum erfiðleikum veldur. Það er enn þá ljótasti bletturinn í íbúðabyggingamálum okkar hér, hve byggingartíminn er langur, hve mörg ár eða hve langan tíma það tekur að koma íbúðinni í nothæft ástand. Þetta er óvefengjanlega einn dýrasti liðurinn af öllum innlendum og erlendum kostnaði. Við erum þarna með algert heimsmet. Sú staðreynd, að við erum þarna með drápsklyfjar af hálfbyggðum íbúðum, sem engum eru til gagns og ekkert gera annað en éta vexti þess fólks, sem íbúðinni er að koma áfram, á fyrst og fremst rót sína að rekja til þess, hvernig þetta veðlánakerfi fór af stað.
Það er ákaflega æskilegt og sjálfsagt engum ljósara en okkur, sem í þessum vanda störfum og eigum að miðla því litla fé, sem til umráða er hverju sinni, að það er nauðsynlegt að geta lánað mönnum til endurbygginga á eldra húsnæði. Það er hlutur, sem ég hygg að hafi verið öllum mönnum ljós frá upphafi, þó að hins vegar hafi á því strandað, að nægjanlegt fé til þeirra, sem eru með nýbyggingar innan ramma lánareglnanna, hefur ekki verið fyrir hendi og af þeim ástæðum ekki heldur verið mögulegt að gera verksvið lánakerfisins víðara. Það má í mörgum tilfellum koma í veg fyrir það, að fárið sé af stað með nýbyggingu íbúða, ef hægt væri að greiða fyrir nauðsynlegum endurbótum á eldra húsnæði. Höfuðkosturinn við það að lána til slikra endurbóta er, að það má gera margar af hinum eldri íbúðum sem nýjar væru með mun minni kostnaði en nýbygging óhjákvæmilega hlýtur að krefjast.
Þetta eru allt saman hlutir, sem eru öllum ljósir, og ég hygg, þó að ný nefnd yrði sett í þessa hluti nú, að hún breytti ekki þeim staðreyndum, sem eiga að koma fram í sjálfri þáltill. Vandinn hefur sem sagt verið sá og er enn í dag sá hinn sami: fjárskorturinn, hverjar eru þær æðar, sem geta veitt meira fé til lánveitinga á vegum kerfisins. Það er öllum ljóst, að sú biðröð, sem nú bíður eftir afgreiðslu hjá húsnæðismálastofnun ríkisins, er allt of löng, og margir hverjir hafa beðið þar allt of lengi. Það er einnig ljóst, að það er nauðsynlegt að hækka lánin á hverja íbúð, hækka hin lögbundnu hámarkslán, og væri að stangast á við staðreyndir, ef því væri í móti mælt. Vandinn í báðum tilfeilunum er því sá hinn sami: Hvar er meira fé og hvaðan á að taka það tilíbúðabygginga? Það er erfitt að sannfæra þá löngu biðröð, sem hjá húsnæðismálastjórn bíður í dag úrlausnar á sínum vanda, um nauðsyn þess að hækka lánin úr 150 t.d. í 200 þús. eða 250 þús., á meðan menn bíða, svo að hundruðum og þúsundum skiptir, án þess að fá einn einasta grænan eyri. Og ég tel, að till., sem uppi hafa verið í þessum efnum hér á undanförnum þingum, séu bein blekking. Meðan ekki er hægt að sinna því lága hámarki, sem í lögum er í dag, betur en gert hefur verið, er það blekking við það fólk, sem bíður, að hækka hámarkslán. Það er líka blekking að halda því fram, án þess að til komi auknar tekjur, að hægt sé að víkka og auka starfssvið húsnæðismálastofnunarinnar með lánum í aðra hluti en gert er í dag, ef ekki eru settar jafnframt till. fram á móti um aukið fé til hlutanna. Það er enginn vandi að leggja fram frómar óskir eins og þær, sem í þessari þáltill. felast, og ég hygg, að flestir gætu verið þeim efnislega sammála. í kjölfar aukins fjármagns til þessara hluta væri hægt án nokkurra lagabreytinga að auka starfssvið stofnunarinnar á þann hátt, sem þáltill. þessi gerir ráð fyrir, svo rúm eru ákvæði t.d. II. kafla l. um stofnunina og á hann var hér reyndar litillega minnzt áðan.
Ég minnist þess úr fyrri ræðu hv. 1. flm. till., að hann viðurkenndi þá staðreynd, sem mér fannst mjög sanngjarnt af hans hendi, að meðan ekki er aukið fé til ráðstöfunar á vegum húsnæðismálastofnunarinnar, þá er þess ekki að vænta, að þær rúmu heimildir, sem eru í 2. gr. l., séu ræktar á þann hátt; sem æskilegt væri. Engum er þetta ljósara en okkur, sem eigum að vinna samkv. þessum lögum. Allir óskuðu, að betur mætti til takast. Við erum sem sagt í dag með nákvæmlega þann sama vanda, sem var fyrir hendi, þegar l. um veðlánakerfið voru sett. Það er aukið fjármagn, sem á stendur, og allir vafningar og talnaflækjur þess utan leysa ekki vanda þess fólks, sem hér biður úrlausnar sinna mála. Og tilkoma nýrrar nefndar til að finna aukið fé til þessara hluta get ég ekki séð að leysi vandann og verð að álykta sem svo, að hér sé því miður enn ein till. á ferðinni, þar sem ekki sé skorið að rótum meinsins. Ef hér kæmu fram beinar og ákveðnar till. um leiðir til þess að afla fjár — fjáröflunarleiðir, þá skyldi ekki á mér standa um að viðurkenna þær og þær yrðu áreiðanlega með þökkum þegnar af þeim, sem eiga að leysa þennan mikla vanda. Sú skylda hlýtur að hvíla á okkur öllum, hvort sem við teljum okkur tilheyra stjórnarliði eða stjórnarandstöðu. Ef ég léti undan þeim freistingum, gæti ég eytt hér löngum tíma enn þá í að lesa tölur um húsbyggingarvísitölu og lánsfjárupphæðir undanfarinna ára. Þær breyta hins vegar engan veginn þeim staðreyndum, að hér er stór vandi óleystur, sem okkur ber skylda til að glíma við, en eyða minni tíma í það að blekkja þá, sem úrlausnar bíða, með frómum óskum um meira fé, a.m.k. meðan við getum ekki bent á eina einustu fjáröflunarleið.