20.12.1963
Sameinað þing: 32. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (296)
1. mál, fjárlög 1964
Jónas Pétursson:
Herra forseti. Ég flutti hér við 2. umr. eina litla till., sem ég gerði þá grein fyrir, en tók aftur við þá atkvgr. til 3. umr. Hef ég nú endurflutt hana. En ég mælti nokkur orð fyrir henni við 2. umr. og lýsti því þá, að aðaltilgangur minn með flutningi hennar væri að reyna að tryggja það, að brúin á Hofsá í Vopnafirði yrði byggð á sumrinu 1964. Hæstv. samgmrh. flutti hér við þessa umr. ræðu og gaf þá yfirlýsingu um það, að hann mundi beita sér fyrir sem samgmrh., að þessi brú, þessi framkvæmd, yrði tekin upp á vegáætlun, sem lögð verður fyrir Alþingi síðar í vetur. Nú er það að vísu þannig, að það hefur orðið breyting á með samþykkt hinna nýju vegalaga. Þessi brú var áður ákvörðuð að verða byggð fyrir fé brúasjóðs, en brúasjóður hefur nú verið afnuminn í þeirri mynd, sem hann var a.m.k., og samgmrh. hefur þess vegna ekki sama vald í þessum efnum, sem hann hafði áður. En ég vil hins vegar ætla, að það verði tekið nokkurt tillit til þess við samningu vegáætlunar nú til að byrja með, hvert hlutverk brúasjóðs hefur verið, og þær framkvæmdir eða brýr, sem búið var að ráðgera að byggja fyrir fé þess sjóðs, verði látnar njóta nokkurrar sérstöðu, þegar næstu áætlanir verða samdar, þannig að varðandi þá kvóta, sem koma til með að verða ætlaðir hverju kjördæmi, verði þessar framkvæmdir, þessar brýr, ekki teknar að öllu leyti a.m.k. með í þá kvóta, sem hverju kjördæmi koma til með að verða ætlaðir í væntanlegri vegáætlun. Ég tel þess vegna, að þessi yfirlýsing hæstv. samgmrh. tryggi svo vel sem nú er unnt þann tilgang minn að reyna að tryggja það, að þessi brú verði byggð á næsta sumri. Ég treysti því, að sá þingmeirihl., sem styður samgmrh., virði þessa yfirlýsingu, og ég dreg það ekki í efa heldur og hef þá í huga m.a. yfirlýsingu hv. 1. þm. Austf. hér við umr. í kvöld, að samþm. mínir úr Austurlandskjördæmi munu veita sitt lið til þess, að þetta megi takast. Ég hef því ákveðið, með tilvísun til yfirlýsingar samgmrh., að draga þessa till, mína til baka.
En mig langar til að víkja aðeins að till., sem allir þm. Austurlands aðrir standa að flutningi á, en það er um að taka lán í vegaframkvæmdir á Austurlandi, allt að 10 millj. kr. Þeir fluttu svipaða till. við fjárlfrv. á síðasta ári, í kosningahríðinni á Austurlandi á s.l. vori bar þessar lántökur til vegamála mjög á góma. Þar var mér mjög legið á hálsi fyrir það, að þegar fyrirhugaðar væru lántökur samkv. framkvæmdaáætlun ríkisstj. um allt að 80 millj. kr. til vegamála, kæmi ekki ein króna, eins og það var orðað, til Austurlands. Ég benti þá á það, að þessar lántökur til vegamála væru ætlaðar til varanlegra framkvæmda í samgöngumálum, fyrst og fremst til Reykjanesbrautar, sem væri steypt, enn fremur til Strákavegar ytri, sem væru jarðgöng að mestu leyti, sem einnig er varanlegt mannvirki. Enn fremur má segja það sama um Ennisveg á Snæfellsnesi, sem þarna var um að ræða. Þó að það sé ekki steyptur vegur, þá er hann sprengdur inn í berg að mestu leyti. Og síðan hefur bætzt við Múlavegur, en það er einnig svipað um hann að segja og Ennisveg, að hann eða sá kafli hans, sem þarna er um að ræða að vinna fyrir lánsfé, er sprengdur inn í berg. Það er þess vegna augljóst mál, að lántökur til almennra vegaframkvæmda eru yfirleitt ekki framkvæmanlegur hlutur, enda liggur það í augum uppi, að það hefði fyrir löngu verið horfið að því ráði í samgöngumálum hér á landi, ef það hefði yfirleitt verið talið fært að byggja venjulega malarvegi fyrir lánsfé. En ég benti á það, að yfirleitt væri ekki um slíkar framkvæmdir að ræða á Austurlandi, fyrr en kæmi að því að grafa jarðgöng gegnum Oddsskarð. Það er framkvæmd, sem fyrr en síðar kemur að að verði að koma í framkvæmd, og það er framkvæmd, sem mundi kosta sennilega um 10–15 millj. a.m.k. Það er framkvæmd, sem verður varanleg, og því kemur það mjög til mála að taka lán til slíkrar framkvæmdar. Það er hins vegar fjarri því, að sá undirbúningur hafi nú verið unninn, sem þarf til þess, að þetta verk geti komizt á framkvæmdaáætlun í bráð, og þess vegna tel ég, að það séu engin rök fyrir till. minna samþm. hvað þessa framkvæmd snertir.
Ég mun fúslega athuga þá leið, þegar það liggur fyrir, að hægt er að vinna að framkvæmd jarðganga á Oddsskarði, ef það mætti verða til að flýta því verki að styðja þá lántöku, en á þessu stigi mundi það ekki verða til framdráttar samgöngumálum, þó að slíkt lán yrði tekið. Með samþykkt hinna nýju vegalaga er um það mikla aukningu að ræða á fé í framkvæmdir, að ég hygg, að ef það fé er notað, muni ekki til að byrja með vélakostur eða önnur aðstaða gera fært eða mögulegt að nota öllu meira fé en inn kemur samkv. þessum nýju vegalögum. Það tekur nokkur ár að undirbúa, t.d. hvað brúargerðir snertir, þá þurfa að vera til vinnuflokkar og brúarsmiðir, ef það á að verða um verulega aukningu að ræða í brúargerðum. Það þarf að hafa fyrirhyggju um þetta. Ég held, að nú síðustu árin hafi framkvæmdir í brúargerðum verið nokkurn veginn það miklar eins og möguleiki var á að framkvæma af þessum sökum. Og enn fremur er það víst, og ég þori a.m.k. að segja það hvað Austurland snertir, að það hefur ekki til þessa verið vélakostur eða aðstaða til þess að vinna fyrir stórum meira fé en unnið hefur verið. Þess vegna þarf, um leið og fé er aukið, að gera ráðstafanir til þess að gera framkvæmdirnar mögulegar frá þessu sjónarmiði.
Áður en ég lýk máli mínu, langar mig aðeins til þess að víkja hér að niðurgreiðslum, sem allmikið hefur borið á góma við þessa umr. Ég skal reyna að stytta mál mitt, því að það er farið að líða nokkuð á nótt, en ég get ekki látið hjá líða að segja nokkur orð um þær í stuttu máli verð ég að segja það, að þær hafa ætíð verið mér hið mesta eitur í beinum, og ef ég ætti að segja í stuttu máli, hvernig þær koma mér fyrir sjónir, finnst mér þær vera eins og líkamslýti á þjóðfélaginu frá því á stríðsárunum. Ég skal að vísu játa, eins og kom fram í ræðu hæstv. fjmrh., að hvað snertir niðurgreiðslur á nýmjólk gegnir nokkuð öðru máli. Þarna er um sérstaka fæðutegund að ræða, sem allir neyta og sérstaklega börn, og þess vegna kemur það barnafjölskyldum mjög að liði, ef niðurgreiðslur eru nokkrar á nýmjólk. En ég tel, að nýmjólkin hafi um þetta algera sérstöðu. En það er annað líka, sem ég hef oft hugsað um í sambandi við niðurgreiðslurnar og ekki hefur verið dregið fram, þegar um þær hefur verið rætt, og það er, að hinar strjálbýlli sveitabyggðir, strjálbýlar sveitabyggðir og byggðir, sem eiga langt til verzlunarstaða, a.m.k. frá því að veruleg viðskipti fóru að hefjast hér á landi, allt fram til þess að niðurgreiðslurnar komust á, þá nutu sveitabýlin þess að geta aflað sér ódýrari matvöru en þeir, sem ekki framleiddu handa sér sjálfir. Þetta var mikilvægur kostur fyrir sveitabyggðirnar, og ég er ekki í neinum vafa um það, að með þessu hefur verið kippt burt mikilvægri stoð, sem stóð undir hinni strjálu byggð, stóð undir því, að það var nokkurs virði að vera bóndi og framleiða fyrir sjálfan sig, og í þessu fólst, að það var hægt mjög að mæta t.d. óhagstæðum viðskiptakjörum með því að auka þá neyzlu þessarar eigin framleiðslu. Við það, að þessar vörur voru greiddar það mikið niður, að þær urðu ekkert ódýrari, jafnvel dýrari, að neyta fyrir þá, sem framleiddu, þá var kippt í burtu þessari mikilvægu stoð. Það geta verið misjafnar skoðanir á því, hvað þungt þessi ástæða vegur, en ég er nú þannig gerður, að mér finnst þetta vera talsverð rök í þessu máli. Ég tel, að það sé því betur komið, því fyrr sem við stöndum að því að afmá þessi líkamslýti, sem mér finnst niðurgreiðslurnar vera á þjóðfélaginu, allar aðrar eða flestar aðrar en þá niðurgreiðslur á nýmjólk.