06.02.1964
Sameinað þing: 39. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í D-deild Alþingistíðinda. (2997)

89. mál, endurskoðun raforkulaga

Flm. (Björn Jónason):

Herra forseti. Ég flyt hér ásamt hv. 5. þm. Austf. till. til þál. um endurskoðun raforkulaga. í till. er lagt til, að Alþingi kjósi 7 manna nefnd til að endurskoða þessi lög og þá alveg sérstaklega með tilliti til þess, að stefnt verði með nýrri löggjöf í fyrsta lagi að því, að verð á raforku til sams konar nota verði hið sama eða sem jafnast um land allt. í öðru lagi, að athugað verði gaumgæfilega, hvort hagur atvinnurekstrar og almennings verði ekki bezt tryggður með því, að ríkið eigi og reki ölt orkuver og orkuveltur í landinu. í þriðja lagi, að dregið verði úr misræmi milli verðlags annars vegar á raforku til heimilisnota og hins vegar á raforku til iðnaðar og annarra nota. í fjórða lagi, að stefnt verði að því í sambandi við vatnsaflsvirkjanir næstu áratugi, að upphitun húsa fari í vaxandi mæli fram með raforku. Og loks í fimmta lagi, að rafvæðingu allra byggða landsins verði lokið á sem skemmstum tíma og tryggð sem fullkomnust nýting orkuveranna, m.a. með því, að samtengingu þeirra verði hraðað.

Við þm. Alþb. höfum á undanförnum þingum flutt till, í raforkumálum, sem mjög hafa hnigið í sömu átt og sú, sem er hér flutt. Er af þeim ástæðum síður ástæða til að fjölyrða um efnisatriði till., og vil ég þó fara um þau örfáum orðum.

Það er þá fyrst verðjöfnunin. Það er skoðun okkar flm., að raforkan sé við nútímaaðstæður slíkt frumskilyrði fyrir atvinnulíf landsmanna og raunar fyrir lífvænlega búsetu, að bæði sé eðlilegt og nauðsynlegt, að þjóðfélagið sjái fyrir því, að þessu frumskilyrði sé fullnægt og þá á þann hátt, að öllum landsmönnum sé gert sem jafnast, að verða má, undir höfði. En á það skortir enn þá verulega, m.a. að því er verðlag á raforku snertir, þó að jöfnun hafi fyrir löngu hlotið viðurkenningu hvað áhrærir annan aðalorkugjafann, sem notaður er í landinu, þ.e.a.s. olíuna. Ef við athugum notendagjaldskrár í árslok 1962, sjáum við, að þær eru mjög misjafnar hjá hinum ýmsu rafveltum. Þannig er t.d. almennur lýsingartaxti lægstur 250 aurar á kwst., en hæstur 440 aurar, þ.e.a.s. 76% hærri en hinn lægsti. Almenn heimilisnotkun er þá lægst 55 aurar kwst., en hæst 110 aurar, þ.e.a.s. 100% hærri. Næturhitun er lægst 9 aurar á kwst., en hæst 20 aurar, eða 122% hærri en lægsti taxtinn. Daghitun hreyfist til dæmis frá 40 aurum upp í 80 aura, eða hæsti taxtinn er m.ö.o. 100% hærri en sá lægsti. Svipað verður uppi á teningnum að því er snertir rafmagnsverð til atvinnulífsins. Verð á rafmagni til stórra véla er t.d. frá 42 aurum kwst. og upp í 100 aura, miðað við rof nokkra stund á degi. Og verðmismunurinn á rafmagni til véla almennt er jafnvel enn þá meiri. Í reynd þýðir þetta t.d., að munurinn á rafmagnskostnaði tveggja síldarverksmiðja, sem vinna jafnmikið magn síldar, getur numið hundruðum þús. kr. á einu sumri. Hjá hraðfrystihúsunum var rafmagnsverð 1962 frá 39 aurar kwst. og allt upp í 97 aura kwst.

Ég hygg, að þessi dæmi nægi, þó að af fleira sé að taka, til þess að sýna, hversu landsmenn búa við mjög mishátt rafmagnsverð, og yfirleitt er það svo, að það er dreifbýlið með litlum undantekningum, sem býr við óhagstæðasta verðið, en lægra verðið er frekar gildandi á svæðum stærri virkjananna í þéttbýlinu. Mismunurinn á rafmagnsverðinu á sér í raun og veru orsakir í sjálfum raforkulögunum, þeim sem nú gilda, m.a. að því leyti, að lögin opna möguleika fyrir eignarhaldi óskyldra aðila bæði á virkjunum og veltum og hver aðili um sig verðleggur sína rafmagnsframleiðslu eftir mismunandi stofnkostnaði. í sambandi við það viðfangsefni, sem hér ræðir um, hlýtur mjög að vakna og mjög að koma til álita alger þjóðnýting á allri raforkuframleiðslu og dreifingu, og má benda á það, að inn á þá braut hafa fleiri og fleiri ríki fárið á síðari árum, m.a. Vestur-Evrópuþjóðir eins og Frakkar og Ítalir. Um leið og verð til sams konar nota yrði jafnað, kæmi einnig mjög til álita að draga allverulega úr þeim mismun, sem nú er annars vegar á rafmagni til heimilisnota og hins vegar til iðnaðar, og gæti slík breyting orðið til þess, að ekki þyrfti að koma jöfnunarinnar vegna til neinna verðhækkana á rafmagni til heimilisnota, þ.e.a.s. hjá þeim, sem njóta beztu kjara, eða a.m.k. mjög lítilla. Stærri notendur ættu að geta borið byrðarnar af verðjöfnun að verulegu leyti. Þetta skýrist m.a. af þeim staðreyndum, að t.d. árið 1962 nam almenn heimilisnotkun 21.4% af heildarsölu rafmagns, en fyrir þessi 21.4% af notkuninni var greitt 40.3% af heildarsöluverðinu eða þar var um nær tvöfalt meðalverð að ræða. Lýsing var það ár 4.3% af heildarnotkuninni, en gjaldið fyrir hana nam 14.7% af heildarsöluverðinu, þ.e.a.s. þar var um þrefalt meðalverð að ræða. En á sama tíma notuðu þrír aðilar, áburðarverksmiðjan, sementsverksmiðjan og Keflavíkurflugvöllur, 37.6% af heildarnotkuninni, en greiddu fyrir þá notkun aðeins 8.4% af heildarsöluverðinu. Hefur því hjá þessum svokölluðu stórnotendum verið um að ræða 1/4 af meðalverði eða tæplega það. Þegar svo þess er gætt, að ekki þyrfti nema um 20 millj. kr. til þess að jafna raforkuverð til heimilisnota við lægsta gjald, virðist vel frambærilegt að jafna verulegum hluta þeirrar upphæðar á þá notendur, sem nú gjalda óeðlilega lágt gjald fyrir sína orku, þannig að jöfnunin þyrfti ekki nauðsynlega að valda neinni verulegri hækkun á heimilisnotkun, en hins vegar mjög víða talsverðri lækkun.

Annað meginatriðið, sem stefnt er að með þáltill., er það, að stefnt verði að þeirri breytingu á stefnunni í raforkumálum þjóðarinnar, að upphitun híbýla fari í vaxandi mæli fram með raforku og fullt tillit verði tekið til þeirrar stefnu við vatnsaflsvirkjun í næstu framtíð. Sú staðreynd liggur fyrir, að við Íslendingar þörfnumst stærri hluta heildarorkunotkunarinnar til þess að hita híbýli okkar en flestar aðrar þjóðir. Þannig er talið, að í Evrópu almennt fari um 28% notorku til húsahitunar, en á Íslandi fara nú um 53% notorkunnar til húsahitunar og heimilisnotkunar og til hitunarinnar einnar fara rösklega 48% af allri notorkunni, þ.e.a.s. sem næst helmingur af allri orkuþörf þjóðarinnar. Það gefur því auga leið, að miklu skiptir bæði fyrir þjóðarheildina og einstaklingana, hversu mikilli hagsýni er beitt til öflunar þessarar orku, svo gífurlegar fjárhæðir sem hér er um að ræða. Ég hef því miður ekki hér tiltækar tölur um árlegan kostnað um fullnægingu orkubarfarinnar, en lausleg ágizkun mín er sú, að sá kostnaður nálgist nú milljarðinn á ári með miklum hraða, og eins og ég áður sagði, fer allt að helmingur þessa kostnaðar til að hita híbýli okkar.

Eins og sakir standa, er orkunnar til húsahitunar aftað þannig, að aðeins 6% eru fengin með rafmagni, 9% með kotum, 30% með jarðhita og 55% með olíu. Þannig er aðeins liðlega þriðjungurinn fenginn frá innlendum orkugjöfum, en sem næst 2/3 orkunnar eru keyptir erlendis frá, fluttir yfir heimshöfin með ærnum kostnaði og dreift um landið eftir þreföldu dreifingarkerfi. Sú spurning hlýtur því að verða áleitin, hvort ekki megi leysa hinn erlenda orkugjafa af hólmi með raforku, a.m.k. þar sem jarðhiti verður ekki nýttur, og vitanlega er tæknilega séð ekkert því til fyrirstöðu. Spurningin varðar eingöngu fjárhagslegu hliðina, þ.e.a.s. getur raforka orðið álíka samkeppnishæf við aðkeypta orkugjafa og allir eru t.d. sammála um að jarðhitinn sé, þar sem hann er? Og það verður að segjast, að allt bendir til þess, að svo sé. Gunnar Böðvarsson verkfræðingur, einn allra færasti sérfræðingur okkar í orkuvísindum, hefur komizt að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum, að greiða mætti þá 35—40 aura fyrir kwst. af raforku til hitunar miðað við kostnaðarverð þeirra hitunaraðferða, sem nú tíðkast aðallega, þ. á m. hitunar með jarðvarma. Allir útreikningar, sem gerðir hafa verið um stórvirkjanir, virðast benda til þess, að þær geti gefið fulla möguleika á sölu raforku til híbýlahitunar á jafnvel verulega lægra verði og geti því reynzt hagkvæmastar allra úrlausna varðandi bann mikilvæga þátt orkuöflunar, sem hér um ræðir. Það bendir flest til þess, að sá markaður fyrir raforku, sem breytt stefna varðandi hitun híbýla með rafmagni mundi skapa, ásamt annarri sívaxandi raforkuþörf okkar geti skapað grundvöll fyrir stórvirkjun og síðar stórvirkjanir til innlendra þarfa og þurfi því ekki að koma til stóriðju á vegum útlendinga til þess að leysa vanda okkar eigin orkumála. Því fyrr sem hugað er með framtíðar- og frambúðarlausn þeirra mála fyrir augum að þeim málum, því betra, því að ella kann svo að fara, að við verðum óhæfilega háðir kaupum á erlendum orkugjöfum, sem fara þverrandi og verða því að öllum líkindum því dýrari sem tímar líða. Þannig er því spáð af mikilsvirtum sérfræðingum, að jafnvel á allra næstu árum muni framleiðsla olíu verða langt aftur úr eftirspurninni. Það er því harla líklegt, að okkur reynist sífellt óhagstæðara að snúa okkur ekki að því að búa að okkar eigin orku til sem allra flestra nota.

Till. sú, sem hér liggur fyrir, stefnir að því, að raforkulögin, sem að sjálfsögðu eru undirstaðan að stefnu okkar í orkumálum, verði nú tekin til gagngerðrar endurskoðunar miðað við nýjar þarfir og stórbreytt viðhorf að ýmsu leyti, frá því að þau voru sett fyrir 18 árum. Ýmis atriði koma þar til greina fleiri en ég hér hef tæpt á og fjölyrði ég ekki um þau að sinni, enda ætla ég, að ljóst megi vera, hver nauðsyn er orðin á mótun ákveðinnar og að ýmsu leyti nýrrar stefnu í orkumálum þjóðarinnar.

Ég legg svo til, herra forseti, að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. allshn.