21.12.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (302)
1. mál, fjárlög 1964
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Í dag eru þrír skólar í Reykjavík, sem hafa rétt til að útskrifa stúdenta, hinn almenni menntaskóli, Verzlunarskóli Íslands og kennaraskólinn, og sé ég því ekki, að brýn nauðsyn sé til þess að bæta fjórða stúdentaskólanum við í höfuðstað landsins, sízt af öllu meðan ekki hefur fengizt fram, að menntaskóli væri reistur á Vestfjörðum og Austfjörðum, en í þeim landshlutum eru engir skólar með réttindum til að útskrifa stúdenta, og greiði ég því ekki atkv. með þessari till.