12.02.1964
Sameinað þing: 40. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í D-deild Alþingistíðinda. (3030)
112. mál, atvinnuástand á Norðurlandi vestra
Jón Kjartansson:
Herra forseti. í sambandi við þá þáltill., sem hér er til umr., vil ég leyfa mér að segja nokkur orð. Ég vil þá fyrst vekja athygli á því, að á þskj. 107, 94. mál, er till. til þál., sem 5. þm. Norðurl. v., Björn Pálsson, o.fl. hafa flutt og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela 5 manna nefnd að athuga, hvað hægt sé að gera til að auka iðnað í þeim kauptúnum og kaupstöðum úti á landi, þar sem ónóg er atvinna. Alþingi kýs tvo menn í þessa n., en ríkisstj. skipar 3, og skulu þeir vera sérfróðir í iðnaðarmálum. Störf n. skulu vera: 1) Athugun á því, hvar mest er þörf fyrir aukinn iðnað vegna ónóngrar atvinnu. 2) Athugun á því, hvaða iðngreinar er hagkvæmast að starfrækja á hverjum stað. 3) Að gera till, um, á hvern hátt eigi að útvega fjármagn, svo að hægt sé að starfrækja iðnfyrirtækin. 4) Að gefa upplýsingar um þá faglegu þekkingu, sem nauðsynleg er, til þess að hægt sé að starfrækja þau iðnfyrirtæki, sem n. leggur til, að stofnuð verði.“
Þegar ég heyrði fyrst um þessa till., fagnaði ég framkomu hennar, hún er vissulega orð í tíma töluð, því að eins og segir í grg., hefur þess gætt í ríkum mæli undanfarin ár, að atvinna hefur verið mjög misjöfn hér á landi. Að sjáifsögðu verður þessi till. samþ., eða það er a.m.k. von allra þeirra, sem vel þekkja til úti á landinu, og það er von manna, að störf þessarar n. verði til þess að betrumbæta núverandi atvinnuástand, þar sem það er slæmt.
Till. sú til þál., sem hv. þm. Ragnar Arnalds flytur hér, er einnig hin þarfasta, því að þótt nefnd yrði kosin á hinu háa Alþingi, eins og gert er ráð fyrir í till. til þál. á þskj. 107, tel ég, að það væri einnig hægt að kjósa n. þá, sem hér greinir í þessari þáltill., sökum þess að eins og ræðumaður tók réttilega fram, er atvinnuástandið á stöðum í Norðurlandskjördæmi vestra mjög bágborið, svo að það hefur ekki verið eins slæmt í langan tíma. Það er langt síðan stór hópur manna á Íslandi hefur á skipulagðan hátt þurft að fara frá heimilum sínum, eins og nú á sér stað á Siglufirði, til þess að afla sér lífsviðurværis á öðrum stað. Að vísu var það óhapp, sem því olli, þar sem tunnuverksmiðjubruninn var, en engu að síður er það staðreynd.
Hvað er það þá, sem helzt þyrfti að gera til úrbóta í atvinnumálum nyrðra? Það er eins og kemur fram í grg., ýmislegt, sem hægt er að gera.
Ég vil minnast fyrst á stærsta kaupstaðinn í Norðurlandskjördæmi vestra, sem er Siglufjörður. Þar ríkir nú nálægt því neyðarástand í atvinnumálunum. En úr þessu er hægt að bæta. Síldarverksmiðjur ríkisins eiga þarna eignir upp á hundruð millj. kr. Þær þurfa hagsmuna sinna vegna að tryggja það, að í Siglufirði haldist áframhaldandi byggð, þær þurfa því að tryggja verkafólki þarna varanlega atvinnu. Í því sambandi vil ég fyrst minnast á niðursuðuverksmiðjuna. Samkv. l. frá Alþingi má reka hér í landi niðursuðuverksmiðju ríkisins. Hún var sett á stofn fyrst og fremst til að bæta úr ársbundnu atvinnuleysi á Siglufirði yfir vetrarmánuðina, svo og til þess að gera hráefnið, þ.e. síldina, verðmætari verzlunarvöru en ella. Frá því að niðursuðuverksmiðjan tók til starfa og til þessa hefur rekstur verksmiðjunnar gengið illa, þegar á heildina er litið. Ég vil þó taka það fram, að þegar vara þessarar verksmiðju kom fyrst á markaðinn, líkaði hún prýðilega, og hún er ágæt. En stjórnendur síldarverksmiðja ríkisins, sem einnig stjórna niðursuðuverksmiðju ríkisins, hafa skýrt frá því, að forsendur þess, hve illa hefur gengið, séu, að framleiðslan sé illseljanleg á heimsmarkaðnum. Það verður að segjast eins og er, að það er litt skiljanlegt, að gæðavara eins og norðlenzka síldin sé illseljanleg, þegar vitað er um, að hundruð milljóna manna í heiminum hafa ekki nægilega fæðu og jafnvel sveita heilu hungri. Höfuðrökin fyrir því, að síldin selst illa, eru sögð vera þau, að framleiðslan sé of dýr og að varan sé svo viðkvæm í meðförum, að hún skemmist á þeirri löngu leið, sem er á milli framleiðslustaðar og hins endanlega kaupanda. Það má vel vera, að þetta sé rétt. En það er ekki þar með sagt, að þetta eigi að vera svona og þurfi að vera svona. Úr þessu þarf að bæta. Kostnaðarverð framleiðsluvöru þessarar, sem ég hef hér gert að umtalsefni, er of hátt. Og það er hægt að mínum dómi að lækka það. Síldarverksmiðjur ríkisins eiga ekki að reikna sér fyrst um sinn neina þóknun fyrir bókhald og fyrir yfirstjórn og jafnvel ekki fyrir húsakost, þar sem telja verður, að aukin vetraratvinna í Siglufirði sé ekki síður hagur síldarverksmiðja ríkisins en þeirra, sem vinnunnar verða aðnjótandi. Með því að tryggja góða verkamenn allt árið á þessum stað eru verksmiðjurnar að tryggja sér góða starfsmenn, þegar mest á riður, þegar síldin berst að landi.
Fyrst ég hef minnzt sérstaklega á niðursuðuverksmiðjuna, vil ég segja það, að ég held, að það þýddi ekki stórumbætur fyrir niðursuðuverksmiðjuna, þó að sérstök stjórn yrði sett yfir verksmiðjuna, sem siðar setti á stofn sérstakar skrifstofur og annað þess háttar, sem fylgja mundi í kjölfarið. Það, sem fyrst og fremst þarf að gera, er skipulögð markaðsleit, ekki einvörðungu í Englandi og Þýzkalandi, heldur miklu víðar. Hér er ekki einvörðungu um að ræða mál, sem snertir eitt byggðarlag, heldur landið allt. Það, hvort unnt er að gera norðlenzku síldina að verðmætari útflutningsvöru eða ekki, tel ég vera dagsins brennandi mál, og við þeirri spurningu verður að fá svar. Því skyldum við Íslendingar ekki geta fullunnið þessa vöru fyrir erlendan markað, eins og Svíar gera og Danir og Norðmenn? Það hefur ekki verið sársaukalaust að horfa upp á Það, þegar sænskir síldarkaupmenn hafa verið að senda til Íslands svona að gamni sínu 3—4 dósir af Norðurlandssíld með þeim ummælum, að þetta sé síldin, sem var við Siglufjarðarbryggjurnar í fyrra.
Þegar stjórn síldarverksmiðja ríkisins fékk heimild og fyrirmæli um að hefja rekstur niðursuðuverksmiðjunnar í Siglufirði, fylgdu þeim fyrirmælum engir fjármunir, engin fjárupphæð, en eðlilegt hefði verið, að eitthvert stofnfjárframlag hefði fylgt. Stjórn síldarverksmiðja ríkisins hefur skorið við nögl sér fjárveitingar til þessa fyrirtækis, vegna þess að stjórn verksmiðjanna lítur svo á, að niðursuðuverksmiðja ríkisins og síldarverksmiðjur ríkisins séu ekki sama fyrirtækið, sem það ekki heldur er, og stjórnin hefur látið þá skoðun í ljós, að hún hefði jafnvel ekki heimild til að láta þá fjármuni í niðursuðuverksmiðjuna, sem hún hefur þegar látið. Sökum þessa sjónarmiðs hefur niðursuðuverksmiðjan í Siglufirði orðið eins konar olnbogabarn, eins konar hálfsystkini síldarverksmiðja ríkisins, og hún hefur orðið að gjalda þessarar aðstöðu.
Ég vil gjarnan, að það komi fram undir þessum umr., þegar rædd er þessi þáltill. og atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, að það, sem mér virðist þurfa að gera í þessu máli, er, að ákveðið verði annaðhvort — og það þarf náttúrlega enga nefnd til þess — að sameina niðursuðuverksmiðju ríkisins síldarverksmiðjum ríkisins í eitt fyrirtæki undir eina stjórn og síldarverksmiðjur ríkisins láti helja alvarlega athugun á sölu Siglósíldarinnar á erlendum markaði og lækki hráefnisverðið að nokkru til að koma því frekar í fyrstu á erlenda markaði, eða að niðursuðuverksmiðja ríkisins verði gerð að sérstöku fyrirtæki með sérstakan framkvæmdastjóra og sérstaka stjórn og skrifstofu og fái fé til umráða, því að það þýðir náttúrlega ekkert að hafa þetta sem eitthvert pappírsgagn. Það er engum til góðs að hafa yfirráð 200 fermetra í lélegu húsnæði norður í landi, sem á að heita niðursuðuverksmiðja ríkisins, ef það eru ekki til neinir peningar til að senda dugandi menn um mörg lönd til að koma framleiðslunni inn á markaðina, eins og þarf að gera.
Í sambandi við önnur atvinnufyrirtæki á Norðurlandi vestra, sem mætti koma upp og eiga að koma upp, vil ég minnast á tunnuverksmiðjuna. Hún er, eins og kunnugt er, nýbrunnin í Siglufirði, og var það mikið tjón. Nú stendur til að auka hana, og að sjálfsögðu ætti, eins og bæjarstjórn Siglufjarðar hefur farið fram á, að auka hana að afköstum um helming. Það er í raun og veru ekkert vit að vera að byggja fjölmargar tunnuverksmiðjur um allt land, á sama tíma sem slíkar verksmiðjur hafa staðið og standa auðar og vélakostur Þeirra er ekki fullnýttur. Norðmönnum dettur ekki í hug að byggja verksmiðju eins og tunnuverksmiðju og láta vinna í henni 8 stundir á dag. Það eru til verksmiðjur í Noregi, ámóta tunnuverksmiðjur, sem ég hef skoðað, og það er varla vinnuhlé á aðfangadagskvöld. Þar er unnið m.a. öll jólin, og Norðmenn segja, að með því að láta þessar verksmiðjur aldrei stanza og láta hjólin alltaf snúast, er hægt að lækka framleiðslukostnaðinn. Þess í stað er bara unnið í verksmiðju eins og tunnuverksmiðju ríkisins á Siglufirði 8 tíma og látið þar við sitja. Við vitum, að það hlýtur að vera einhver tími, sem gengur í það, að menn eru að koma og fara, setja vélar í gang og annað hess háttar. Það, sem á að gera í sambandi við tunnuverksmiðju ríkisins í Siglufirði, er, að það á að byggja hana stærri en hún var, að sjálfsögðu með nýtízkuvélum, og það á að láta hana ganga allan sólarhringinn. Maður fær það alltaf framan í sig, þegar maður talar um tunnuverksmiðjuna og framleiðslu hennar, að erlendu tunnurnar séu ódýrari en þær íslenzku. En það er aldrei talað um það, að þær íslenzku eru betri en þær erlendu, sem fluttar hafa verið inn, og síldarsaltandinn hefur þurft að kosta mun minna til viðhalds þeirra tunna, sem smíðaðar hafa verið á Íslandi, heldur en þeirra erlendu, sem fluttar hafa verið inn, og það eru líka fjármunir.
Í sambandi við lýsisherzluverksmiðju vil ég segja þetta: Lög voru og eru fyrir hendi um að byggja lýsisherzluverksmiðju í landinu, og það var fyrir alllöngu hafinn undirbúningur að byggingu slíkrar verksmiðju. Það voru komnar nokkrar vélar í þá verksmiðju til Siglufjarðar, en þær voru seldar. Forsendan fyrir því, að það var gert, var sú, að síldin brást 1944, og það hefur ekki verið fitjað upp á því að byggja lýsisherzluverksmiðju síðan, enda þótt lög um síldarlýsisherzlu séu fyrir hendi og síldaraflinn hafi aukizt. Er vissulega tímabært orðið að taka þetta mál alvarlega til athugunar á ný.
Það er ekki nokkur vafi á því, að það eru miklir möguleikar til að byggja upp atvinnu í Norðurlandskjördæmi vestra, eins og annars staðar á landinu, þar sem atvinna er lítil, og það verður ekki gert nema með aðstoð ríkisvaldsins, það er vitað mál. Ríkisvaldið, Alþingi, verður að gera það upp við sig, hvort það vili hafa atvinnulífið í sæmilegu lagi á þessum stöðum, eða hvort það vill, að það dragist saman og fólkið flýi þessa staði, þar sem minnst er atvinnan.
Ég vil að lokum benda á það, að þetta mál þarf að taka til alvarlegrar athugunar hér á háttvirtu Alþingi.
Hér kom fram á þinginu till. til þál. um atvinnuástandið úti á landi, sem hv. þm. Björn Pálsson o.fl. fluttu, en ég sé enga ástæðu til þess, að það sé ekki hægt að samþykkja einnig till, þá til þál., sem flutt er af Ragnari Arnalds, og mun því styðja báðar þessar till., ef ég á sæti á Alþingi, þegar atkvgr. fer fram.