18.03.1964
Sameinað þing: 54. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í D-deild Alþingistíðinda. (3112)

145. mál, aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins

Flm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 265 þáltill. um aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðs. Tilt. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að láta athuga möguleika á því, að Íslendingar hagnýti sér aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins (The Council of Europe Resettlement Fund) í þeim tilgangi að stuðla að jafnvægi í byggð landsins.“

Á undanförnum árum hefur verið mikið rætt og talað um jafnvægi í byggð landsins. Þær umræður hafa ekki sízt verið hér á hinu háa Alþ., og þáltill. eða frv. varðandi þetta efni í einu eða öðru formi munu hafa verið lagðar fram á flestum þingum, ef ekki öllum þingum hin síðari ár. Tilgangurinn hefur verið að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Málið hefur verið á dagskrá vegna þeirra fólksflutninga, sem átt hafa sér stað utan af landsbyggðinni til höfuðstaðarins og nágrennis.

Tilflutningar fólks innanlands þurfa ekki að vera óeðlilegir. Breytt tækni og atvinnuhættir geta gert slíkt óhjákvæmilegt. Slíkt hefur þjóðin undirgengizt og verður að vera viðbúin að undirgangast. En slík þróun á ekki og þarf ekki að þýða það, að meginhluti þjóðarinnar setjist að á litlum eða takmörkuðum hluta landsins.

Nú um áratugaskeið hefur þróunin stefnt um of í þessa átt. Þessir fólksflutningar stafa ekki nema að nokkru leyti af breyttri tækni og breyttum atvinnuháttum. Gæði landsins og náttúruauðlindir er að finna víðs vegar um landið og geta verið hagnýttar víðs vegar um landið með þeirri tækni og atvinnuháttum, sem við búum við. Fólksflutningar utan af landsbyggðinni til Reykjavíkur og nágrennis eru því tvímælalaust þjóðhagslega óhagstæðir, ef þeir fara fram úr ákveðnu marki. En hér kemur fleira til en það, sem metið verður beinlínis í tölum og fjárhagsútreikningum. Menning okkar, erfðir og saga eru tengd við Ísland allt. Heilir landshlutar mega ekki leggjast í eyði eða ganga svo saman að fólksfjölda, að áhrifa þeirra gæti lítið eða ekki í þjóðlífinu. Það væri að glata fortíðinni á kostnað framtíðarinnar. Þjóðmenning okkar gefur okkur rétt og mátt til frelsis og sjálfstæðis, og þjóðmenning okkar er bundin við Ísland allt. Sögur herma, að landið hafi verið alnumið á 60 árum. Það er okkar hlutverk nú að halda því öllu í byggð. Þá á ég ekki við, að ekkert bóndabýli megi fara í eyði, og jafnvel ekki, að enginn hreppur megi fara í eyði, heldur hitt, að við höldum byggð uppi, þar sem nútímatækni og atvinnuhættir leyfa. Hér þarf sérstakra aðgerða við. í því skyni hafa margar þál. verið samþ. á Alþ. og löggjöf sett.

Svo mjög hefur verið rætt um þetta vandamál hér á hv. Alþ., að ég sé ekki ástæðu til að vera að fjölyrða um það út af fyrir sig. Mín hugsun beinist þó frekar að úrræðum til að leysa vandann. Þannig er til komin þáltill. sú, sem hér liggur fyrir til umræðu. Á vegum Evrópuráðsins er svokallaður viðreisnarsjóður, Resettlement Fund, sem hefur það hlutverk að aðstoða Evrópulönd við lausn vandamála, sem stafa af tilflutningi fólks, þar með talið landflóttamanna. Sjóður þessi var stofnaður 16. apríl 1956 af 8 aðildarríkjum Evrópuráðsins og var Ísland eitt þeirra. en hin ríkin voru Belgía, Frakkland, Vestur-Þýzkaland, Ítalía, Lúxemborg, Grikkland og Tyrkland. Síðar gerðist Kýpur aðili að sjóðnum árið 1962. Þessi sjóður gegnir hlutverki sinu með því að velta lán eða tryggingu fyrir lánum til framkvæmda, sem ætlað er að skapa nýja möguleika til lífsframfæris, þar sem þess gerist þörf vegna tilflutninga fólks. Aðildarríki sjóðsins hafa lagt honum til stofnfé að upphæð 6.7 millj. dollara, þar af er framlag Íslands 10 þús. dollarar. Síðan viðreisnarsjóðurinn tók til starfa árið 1957 til ársloka 1962 hefur hann veitt lán samtals að upphæð 25.4 millj. dollara, og árið 1963 námu lánin 5.5 millj. dollara, eða alls nema nú lánin frá upphafi 30.9 millj. dollara. Lán þessi eru til 15 eða 20 ára með 5—6% ársvöxtum. Lánin skiptast þannig á aðildarríkin, að Ítalía hefur hlotið 12.7 millj. dollara, Vestur-Þýzkaland 11.3 millj., Grikkland 4 millj., Tyrkland 2.4 og Kýpur 1/2 millj. Fyrstu árin var aðalverkefni sjóðsins bundið við flóttamannavandamál Vestur-Þýzkalands. Með því að það vandamál er nú í þessu sambandi að mestu úr sögunni, hefur starfsemi sjóðsins síðustu árin beinzt einkum að Grikklandi, Tyrklandi, Ítalíu og Kýpur. í þessum löndum hafa vandamálin aðallega risið af fólksflutningum innan hvers lands. Aðstoð viðreisnarsjóðsins hefur hér ekki miðað fyrst og fremst að því að skapa fólkinu lífsskilyrði, þar sem það leitar, heldur eigi síður hitt að bæta aðstöðuna í þeim landshlutum, sem fólkið flyzt frá, til þess að stöðva fólksflóttann, þ.e. að viðhalda jafnvægi í byggð landsins. Hér er um að ræða hliðstæð vandamál og þau, sem við höfum við að glíma. Spurning er því, hvort við getum hagnýtt okkur aðstoð viðreisnarsjóðsins með svipuðum hætti og þessar þjóðir hafa gert.

Til þess að skýra þetta nánar þykir mér rétt að gera grein fyrir lánum, sem viðreisnarsjóðurinn hefur veitt í þessu skyni. Eins og ég hef áður sagt, eru lán þau, sem viðreisnarsjóðurinn hefur veitt til Vestur-Þýzkalands, tengd vandamálum landflótta fólks, og hafa þau verið notuð einkum til íbúðarhúsabygginga í Vestur-Þýzkalandi. Til Grikklands hefur viðreisnarsjóðurinn lánað 3.25 millj. dollara til framkvæmda í norðvesturhluta landsins, Epírus. Þessi hluti Grikklands var álitinn eiga við mesta örðugleika að stríða, m.a. vegna erfiðra og ónógra samgangna, vegna of einhæfs atvinnulífs, þ.e. ónógs iðnaðar, og vegna skorts á rafmagni. Gríska stjórnin gerði á sínum tíma 5 ára áætlun um jarðabætur, samgöngubætur, virkjanir, verkfræðslu og íbúða- og hótelbyggingar í þessum landshluta, og gengur lán viðreisnarsjóðsins til framkvæmda í sambandi við þá áætlun. Þá hefur sjóðurinn lánað 500 þús. dollara til stofnunar verkstæðisskóla í Aþenu. Enn fremur hefur verið veitt 200 þús. dollara lán til eflingar tækni og iðnskólum, sem stofnaðir hafa verið af tæknistofnuninni í Aþenu. Til Tyrklands hefur sjóðurinn lánað 1.5 millj. dollara, til tæknistofnunar nálægra Austurlanda, sem hefur aðsetur í Ankara, og var féð einkum notað til kaupa erlendis á tækjum til verkstæðiskennslu, svo og ýmsum öðrum iðnkennslutækjum. Þá hefur sjóðurinn lánað til Tyrklands 870 þús. dollara í öðru skyni, svo sem til stofnunar fyrirmyndarbýla og byggðahverfa í sveitum landsins og til byggingar smáíbúðarhúsa í Ankara. Til Ítalíu hefur viðreisnarsjóðurinn lánað 6 millj. dollara til að setja upp verkstæðisskóla í fimm borgum Ítalíu á vegum uppbyggingarstofnunar iðnaðarins þar í landi. Lánaðar hafa verið 600 þús. dollara til byggingar alþjóðlegs verkstæðisskóla í Salerno. Enn fremur hafa verið lánaðar 360 þús. dollara til byggingarsamvinnufélaga ítalskra verkamanna. Í því skyni að örva félagslega og efnahagslega þróun Sikileyjar hefur sjóðurinn lánað 5 millj. dollara til framkvæmda í borginni Gela í sambandi við nýjan iðnað, sem settur var þar á laggirnar. Lánið fór til byggingar á íbúðum fyrir verkamenn og byggingar félagsheimila, sjúkrahúsa, íþróttamannvirkja og skóla. Þá hefur sjóðurinn lánað 2.1 millj. dollara til húsbygginga fyrir ítalska verkamenn, sem flutzt hafa úr landi. Til Kýpur lánaði viðreisnarsjóðurinn á s.l. ári 1/2 millj. dollara, til vatnsveitna og skólabygginga í sveitum Kýpur. Lánið var veitt með því að talið var, að vatnsskortur stæði í vegi fyrir efnahagslegum og félagslegum framförum. Einnig var talið, að bæta yrði ástand barnafræðslunnar í sveitum, til þess að unglingar gætu síðar verið tækir í verkstæðis- og iðnskóla.

Það, sem ég hef nú greint frá lánveltingum viðreisnarsjóðsins, sýnir, að hann hefur látið til sín taka margháttuð verkefni. Margt af því sem þar er um að ræða, er alls óskylt okkar vandamálum. Hins vegar eru aðrar framkvæmdir, sem sjóðurinn hefur lánað til, svipaðs eðlis eða jafnvel hliðstæðar þeim, sem til greina gætu komið hér á landi til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Tökum t.d. Vestfirði. Samkv. skýrslum um mannfjölda á Vestfjörðum hefur íbúum þar fækkað um 19.7% á hálfri öld eða á tímabilinu frá 1912—1962. Hér er um nokkra sérstöðu að ræða, því að þetta er eina kjördæmið í landinu, þar sem um beina fólksfækkun hefur verið að ræða. Að nokkru leyti hefur þetta verið óhjákvæmileg afleiðing af þróuninni í tækni- og atvinnuháttum landsmanna, og að því leyti er ekkert um að sakast. En þó að þróunin hafi verið óhagstæð þessum landshluta síðustu hálfa öld, er ekki þar með sagt, að svo þurfi að vera framvegis í næstu framtíð. Þvert á móti erum við þar nú á vegi staddir í tæknilegu og atvinnulegu tilliti, að við höfum ekki einungis möguleika til að stöðva Þennan fólksflótta frá Vestfjörðum, heldur og snúa þróuninni við. En það eigum við að gera, vegna þess að það er þjóðhagslega hagkvæmara að öðru jöfnu að búa fólkinu lífsskilyrði, þar sem það er, heldur en þar sem það leitar.

En hverjar eru þær orsakir fólksflóttans frá Vestfjörðum, sem við ættum að hafa tök á að ráða við? Ástæðurnar eru aðallega tvenns konar: annars vegar einhæfur atvinnurekstur. hins vegar ófullnægjandi aðstæður til félagslegra og menningarlegra iðkana á nútímaháttum og venjum. Einn höfuðvandinn er einangrun og samgönguleysi hinna einstöku og afmörkuðu byggðarlaga meiri hluta ársins. Skipuleggja þarf byggðina, svo að hér verði ráðin bót á í samræmi við nútíma þarfir og lífnaðarhætti. Stefna þarf að því að koma upp sem öflugustum byggðasvæðum, sem myndi eina heild atvinnulega, menningarlega og félagslega. Slík þróunarsvæði á að mynda um höfuðstaðinn Ísafjörð og nágrenni, og á ég þá ekki aðeins við Bolungarvík, Hnífsdal og Súðavík, heldur einnig Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. En eitt þýðingarmesta skilyrði til þess, að svo geti orðið, eru öruggar samgöngur milli þessara staða jafnt að vetri sem að sumri. Til þess að svo megi verða, þarf að gera jarðgöng gegnum Breiðadalsheiði. Hliðstæð þróunarsvæði eða kjarna byggðarinnar á Vestfjörðum þarf að mynda um Patreksfjörð, Bíldudal og Tálknafjörð. Og þriðja aðalbyggðarsvæðið ætti að vera við Hólmavík og Drangsnes. Með því að leggja áherzlu á myndun slíkra þróunarsvæða fengist sá grundvöllur, sem þéttbýlið skapar fyrir nútíma atvinnuháttum og menningar- og félagslífi. Byggðahverfi þarf svo að efla á nokkrum stöðum í sveitum Vestfjarða, menningarlegar miðstöðvar, félagslegar miðstöðvar og þjónustumiðstöðvar í þágu landbúnaðarins. Slík byggðahverfi þarf að efla á Reykhólum og t.d. á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp.

Ein orsök vandamálanna á Vestfjörðum er fábreytni atvinnulífsins, eins og ég áður sagði. Höfuðverkefnið er að bæta úr þessu með því að efla þar iðnað. Margs konar smáiðnaður getur þar verið rekinn með jafngóðum árangri og annars staðar á landinu. Auk þess hafa Vestfirðir skilyrði á ýmsum sviðum til jafns við aðra landshluta til þess að vera hlutgengur aðili á öld þeirrar stóriðju, sem vonandi er nú að renni upp hér á landi. Ég nefni nú aðeins eitt í því sambandi. Þegar ákveðin var staðsetning sementsverksmiðjunnar, þótti ýmsum eins koma til greina að staðsetja hana á Patreksfirði eða í Önundarfirði, og sumir kunnáttumenn töldu, að þar væru aðstæður hér á landi heppilegastar til framleiðslunnar. M.a. með tilliti til innanlandsmarkaðarins var ekki horfið að því ráði að reisa sementsverksmiðjuna á Vestfjörðum. En ef við förum að framleiða sement fyrir erlendan markað, sem við reyndar höfum lítillega gert nú þegar og virðast geta orðið möguleikar á, þá á vissulega að taka til athugunar, að framleiðsluafköst verði aukin með nýrri sementsverksmiðju í Önundarfirði eða á Patreksfirði.

Ég ætla mér ekki þá dul að fara að telja hér upp allt það, sem hugsanlega kæmi til greina til eflingar byggðinni á Vestfjörðum, enda þykir sumum kannske nóg komið. Mín skoðun er sú, að allt það. sem ég hér hef nefnt, séu verkefni. sem vel geti komið til álita að Viðreisnarsjóður Evrópuráðsins fáist til þess að ljá lið. Ég hef hér talað um Vestfirði. Það er annars vegar vegna þess að Vestfirðir hafa nokkra sérstöðu við alla aðra landshluta, eins og ég hef áður greint, og það er hins vegar vegna þess, að þar er ég staðháttum kunnugastur. En þetta þýðir alls ekki, að aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins geti ekki komið til greina við úrlausn verkefna annars staðar á landinu. Mér virðist, að slíkt geti líka komið til greina við úrlausn svipaðra verkefna í einstökum kauptúnum, kaupstöðum og sveitum norðanlands og austan.

Ég sagði áðan, að jafnvægi í byggð landsins hefði oft verið á dagskrá hins háa Alþingis, og ég hygg, að Alþingi hafi að jafnaði tekið með skilningi á þessum málum. Það hefur ekki skort á það, að samþykktar hafi verið margar þáltill. varðandi þetta mál. Þannig samþykkti Alþingi árið 1963 t.d. till. til þál, frá þeim alþm. Gísla Jónssyni og Kjartani J. Jóhannssyni um 5 ára framkvæmdaáætlun til stöðvunar fólksflótta úr Vestfjarðakjördæmi. Skyldi ríkisstj. fela Framkvæmdabanka Íslands að semja 5 ára framkvæmdaáætlun í samráði við stjórn atvinnubótasjóðs til stöðvunar fólksflóttanum úr Vestfjarðakjördæmi. Á vegum Framkvæmdabanka Íslands og Efnahagsstofnunarinnar er nú þegar hafinn undirbúningur að verki þessu, eins og fram hefur komið hér á hv. Alþingi fyrir nokkrum dögum eða viku, og að því verki starfar nú Valdimar Kristinsson viðskiptafræðingur, en hann hefur sett fram merkar hugmyndir um þróunarsvæði á Íslandi og hvernig þau gætu haft áhrif á dreifingu byggðarinnar. Ekki efast ég um, að núv. ríkisstj. láti ljúka þeim athugunum og áætlunum, sem nú er verið að vinna að viðvíkjandi Vestfjörðum. En þá eru eftir framkvæmdirnar sjálfar, og þær eru að sjálfsögðu mest um verðar. Þetta segi ég, því að svo mjög sem þessi mál hafa verið á dagskrá hin siðari ár, verður ekki annað sagt en nokkuð hafi skort á raunhæfar aðgerðir til úrbóta. Mér virðist, að þetta sé vegna þess, að menn horfast ekki nægilega beint í augu við þá staðreynd, að til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins þurfa þeir landshlutar, sem höllustum fæti standa, ekki einungis að njóta þeirra framfara og framkvæmda, sem stuðlað er að um allt land með venjulegum hætti, heldur þurfa þeir sérstakra aðgerða við, sem sérstakt fjármagn þarf til. Þessa hefur ekki alltaf verið nægilega gætt í framkvæmd. Hér hefur reynzt við ramman reip að draga. Ég held, að það sé ekki vegna skilningsleysis né vegna fjandskapar við hugmyndir um jafnvægi í byggð landsins, heldur vegna vissrar áráttu og viðhorfs, sem tröllríður þjóðfélagi okkar í dag. Þetta viðhorf tekur ekki tillit til sérstakra þarfa né breyttra aðstæðna. Við höfum nóg dæmi af að taka. Þetta viðhorf veldur því t. d., að vegafé landsins hefur verið skipt milli landshluta eftir úthlutunarformúlu, sem fundin var upp fyrir um það bil tveimur áratugum, eftir því sem fróðustu menn telja. Þetta viðhorf tekur ekki í mál, að bætt séu kjör hinna lægst launuðu í þjóðfélaginu, nema allir fái samsvarandi launabætur. Þetta viðhorf veldur því, að fjárframlög, sem ætluð eru til sérstakra þarfa, eru sett í almennar þarfir, sbr. bótastyrki atvinnubótasjóðs. Þetta viðhorf fordæmir, þegar einstakir útgjaldaliðir ríkissjóðs breytast í hlutfalli við aðra vegna breyttra aðstæðna og breyttra þarfa. Þannig mætti lengi halda áfram. En það er þetta viðhorf, sem er erfiður þröskuldur allra raunhæfra aðgerða til aukins jafnvægis í byggð landsins. Menn vilja gjarnan gera það, sem gera þarf, en þegar fárið er að tala um að leggja fram flármunina, í því skyni, þá getur það líka kannske verið í lagi, en það verður oft og tíðum að gera sams konar hluti eða samsvarandi hluti um allt land. Af þessu leiðir oft, að annaðhvort verður lítið sem ekkert aðhafzt eða möguleikinn til aðgerða felst í því að heimfæra sérstakar þarfir eins byggðarlags eða landshluta til landsins í heild. En aðgerðir á slíkum grundvelli kosta slíkt fjármagn, að þær eru oft til þess eins fallnar að umturna efnahagskerfi þjóðarinnar. Eftir slíkar aðgerðir er enginn betur settur en áður og sízt þeir, sem verst voru settir áður.

Til þess að vinna raunhæft að jafnvægi í byggð landsins þurfum við að vera lausir við þau misskildu hræðslugæði, að öllum verði í leiðinni að gera eitthvað gott. Við verðum að horfast í augu við hinn raunverulega vanda, sem ekki verður ráðið við nema með sérstöku átaki og sérstökum fjárframlögum, því að vandinn er sérstæður. Meðan við gerum þetta ekki, skortir á raunhæfar aðgerðir til úrbóta. Ég viðurkenni, að hér koma að nokkru leyti til þær skýringar, að fjármagn hefur skort, verkefnt hafa kallað að, hvar sem er á landinu. Framfarir hafa og vissulega orðið um allt land. En á sama tíma hefur ekki dregið úr fólksflótta frá sumum landshlutum. Við stöndum því enn andspænis þessu vandamáli, og við getum ekki skotið okkur undan því að horfast í augu við það, ef við á annað borð meinum eitthvað með öllu talinu um jafnvægi í byggð landsins.

Til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins þurfum við fyrst og fremst fjármagn. Möguleiki getur verið á því, að Viðreisnarsjóður Evrópuráðsins sjái sér fært að bæta hér úr. En lántaka úr viðreisnarsjóðnum mundi ekki einungis velta fjármagn, heldur og fjármagn, sem einungis verður notað í þeim tilgangi að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Það yrði ekki hægt að taka til annarra þarfa, hversu mikil freisting sem til þess kynni að vera. Ég segi, að möguleiki eigi að vera á því, að viðreisnarsjóðurinn velti okkur aðstoð. Það fer þó eftir því, hvert mat sjóðsstjórnin leggur á fyrirhugaðar aðgerðir. Málið þarf því athugunar við. Þessi till., sem hér liggur fyrir, er flutt í þeim tilgangi, að sú athugun fari fram. Ég vænti þess, að hv. alþm. séu mér sammála um réttmæti þess, og þar sem ákveðin hefur verið ein umr. um mál þetta, legg ég til, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. fjvn.