09.05.1964
Sameinað þing: 75. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í D-deild Alþingistíðinda. (3124)
145. mál, aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins
Forsetl (BF):
Eins og hv. 4. þm. Vestf. gat um, hafa verið teknar á dagskrá þessa fundar, að ég hygg, svo að segja eingöngu till., sem nefndir hafa afgreitt ágreiningslaust. Varðandi þá till., sem hann ræddi sérstaklega, hygg ég, að standi þannig á, að að vísu hafi ekki verið verulegur ágreiningur um hana í n., en fram mun vera komin brtt., og þetta mál var ekki tekið á dagskrá af því, að reiknað var með, að það mundi valda talsverðum umr., en fundartími á þessum fundi er mjög naumur, eins og ég velt að hv. þm. gera sér ljóst.