24.01.1964
Neðri deild: 44. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (314)
119. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o.fl.
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. vék hér nokkuð að því, sem hér hefur verið sagt um fjárhagsafkomu ríkissjóðs og þá möguleika, sem hann hefur á því að standa undir þeim fjárhagsskuldbindingum, sem hann hefur hingað til átt að standa undir. Ég hafði haldið því hér fram í þessum umr. áður, að a.m.k. greiðslur, sem nema 82 millj. kr., af þeim, sem nú er gert ráð fyrir að leggja á nýjan skatt fyrir, hafi hingað til raunverulega tilheyrt ríkissjóði, þ.e.a.s. 55 millj. kr. til niðurgreiðslu á vöruverði innanlands og 27 millj. kr., sem eru aukagreiðslur vegna almannatrygginganna. Slíkar greiðslur sem þessar, greiðslur vegna almannatrygginga og greiðslur til lækkunar á vöruverði, hafa hingað til tilheyrt ríkissjóði og ríkissjóður hefur haft tekjustofna til þess að standa undir greiðslum sem þessum. Það er auðvitað enginn vafi á því, að afkoma ríkissjóðs hefur verið með þeim hætti að undanförnu, að allt bendir til þess, að ríkissjóður geti mjög vel staðið undir þessum greiðslum og þótt þær væru hærri en þarna er um rætt, eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja um afkomu ríkissjóðs.
Hæstv. fjmrh. treysti sér ekki til þess að neita því, að hagur ríkissjóðs hefði verið góður á árinu 1962 og 1963, enda hygg ég, að hann eigi eftir við annað tækifæri að gera ekki svo lítið úr því, hvað afkoman hafi orðið góð. En hann vildi hins vegar draga það mjög í efa, að réttar væru tilgátur manna hér um það, að búast mætti við allverulegum tekjuafgangi hjá ríkissjóði einnig á yfirstandandi ári, og hann benti þar á sínu máli til stuðnings, að tolltekjur ríkissjóðs væru við það miðaðar í fjárlagafrv., að þá yrði um að ræða innflutning, sem væri um 6% meiri en hann varð á árinu 1963. En með þessu sagði hæstv. fjmrh. ekki nema hálfa sögu, held ég, því að sú breyting var gerð á, þegar verið var að áætla væntanlegar tolltekjur ríkissjóðs og litið var á innflutningsmagnið, þá var gerð stórkostleg breyting á því, hvernig ráðgerður var innflutningurinn, þ.e.a.s. gert var ráð fyrir því, að á árinu 1964 yrði samsetning innflutningsins með allt öðrum hætti, miklu meira yrði flutt inn af vörum, sem liggja í lágum tollflokki. Engar sérstakar ástæður liggja í rauninni til að gera þessa tilfærslu, en þetta var gert vitanlega til þess að áætla tolltekjurnar lægri en allar líkur benda til að verði. Auk þess er það svo, að það er auðvitað mjög ósennilegt, að innflutningsmagnið vaxi ekki um meira en 6%, þegar það er haft í huga, að nú hafa orðið mjög verulegar launahækkanir hjá flestum starfshópum í landinu, en vitanlega leiðir af auknu kaupi óskir um meiri innflutning til landsins og vörusalan hlýtur að aukast. Það er rétt, að það dró nokkuð úr innflutningi á vörum til landsins síðustu 3 mánuðina, en hæstv. fjmrh. minntist ekki á það, að til þess lágu líka alveg ærnar ástæður. Meginhlutann af þessu tímabili vofðu yfir verkföll í landinu eða stóðu yfir, fjölmennari og almennari verkföll en hér hafa áður átt sér stað. Þetta ástand vitanlega dró nokkuð úr eyðslu eða kaupum í landinu. Þetta hafði sín áhrif. En síðan hefur nú verið samið um kauphækkanir til viðbótar við þær, sem áður höfðu orðið, og þær eiga vitanlega allar eftir að segja til sín í kaupmætti á næsta ári. Nei, ég held, að það sé rétt, sem hér hefur verið sagt, að það bendir allt til þess, að tekjuafgangur verði allríflegur hjá ríkissjóði, einnig á yfirstandandi ári, eins og hann var bæði á árunum 1962 og 1963.
En þá er hlaupið til þess að koma jafnvel með hagfræðilegar kenningar og slá því föstu, að allir menn yfirleitt í vestrænum löndum séu nú sammála um það, að þegar viss skilyrði séu fyrir hendi, eigi ríkissjóður fremur að safna í sjóði. Um þetta séu menn ásáttir. Mér datt í hug í þessu sambandi að minnast á það, að ég hafði alveg nýlega lesið mjög merkilega bók eftir einn af þekktustu hagfræðingum á Norðurlöndum, sænska hagfræðinginn Gunnar Myrdal, þar sem hann einmitt var að taka þetta atriði og fletta því í sundur og hæðast að þessu og benda á það, að fullyrðingar ýmissa hagfræðinga um þetta efni hefðu verið stórlega misnotaðar. Hann benti á það, að vitanlega væri ekki hægt að slá neinu föstu um það, að greiðsluhalli hjá ríkissjóði eða greiðsluafgangur réði úrslitunum um rekstur efnahagslífsins í viðkomandi landi. Reynslan hefði þegar sýnt, að hitt skipti miklu meira máli upp á heildarafkomu í efnahagskerfinu, hvernig tekizt hefði í viðkomandi landi að stjórna til þess að fullnýta alla framleiðslumöguleika í landinu og til þess að fullnýta allt vinnuafl, sem fyrir er í landinu.
Þensluástand getur vitanlega skapazt undir misjöfnum kringumstæðum. Sannleikur málsins er sá, t.d. hér hjá okkur, að það gæti verið ríkjandi þensluástand hér vegna mikilla framkvæmda, t.d. byggingarframkvæmda og annars þess háttar, þó að allverulegur hluti af okkar fiskiskipastól lægi ónotaður. Slíkt vitanlega mundi ekki leiða til farsælla lykta í okkar efnahagslífi. Og þó að á þeim tíma, sem þannig væri á málum haldið, væri hægt að sýna, að ríkissjóður hefði komið þannig út, að safnað hefði verið í sjóði hjá ríkinu, þá hefði það vitanlega ekki sýnt góða stjórn á efnahagsmálum þjóðarinnar, síður en svo. Það, sem skiptir ábyggilega langsamlega mestu máli um stjórn efnahagsmálanna, er að halda þannig á málunum, að framleiðslutæki þjóðarinnar séu fullnýtt og allt það vinnuafl sé nýtt á hinn hagkvæmasta hátt, sem þjóðin ræður yfir.
Hjá okkur hagar þannig til, að við þurfum sérstaklega að gæta að því, að framleiðslutæki okkar séu notuð. Það hefur mjög borið á því á vissum tímum, að þannig hefur tekizt til, að vinnuaflið hefur sogazt frá framleiðslustörfunum og of mikið til vissra fjárfestingarstarfa annarra, þannig að efnahagskerfinu hefur verið búin nokkur hætta af þessu. Og ég held, að þau vandamál, sem hér hafa verið rædd nú í kvöld í sambandi við vandamál sjávarútvegsins, séu einmitt þess eðlis, að það beri að athuga þau út frá þessu sjónarmiði. Núna háttar einmitt þannig til, að það er verið að gera ráð fyrir því, að það eigi að búa þannig að sumum greinum okkar sjávarútvegs, að það er mjög vafasamt um, að t.d. fiskibátafloti landsmanna verði notaður, og það er mjög vafasamt um, að við fáum sjómenn til að stunda þar sín störf með þeim kjörum, sem þeim er þar boðið upp á. Hins vegar er allt, sem bendir til þess, að þó að sjómennirnir hlypu af bátunum, útgerðarmennirnir gæfust upp við að reka bátana við óbreytt fiskverð, þá gætu sjómennirnir flestir hverjir fengið talsvert mikið af vinnu við ýmis önnur störf í landinu, þar sem kauphækkun hefur átt sér stað og þar sem betur er borgað. Það er einmitt þetta hættumál, sem nú vofir yfir og þarf að gæta að, og því er í rauninni alveg tilgangslaust að ætla, eins og ég hef bent hér á, að samþykkja þetta frv., sem hér liggur fyrir, í þeim búningi, sem það nú er. Hér er aðeins gert ráð fyrir því að veita fiskkaupendum í landinu nokkra fyrirgreiðslu og togaraeigendum, en það er hlaupið fram hjá hinu vandamálinu, sem snýr að rekstri bátaflotans í landinu og þorskveiðunum, sem snýr að því að tryggja það, að sjómenn fáist til starfa bæði á togurum og bátum. Fram hjá þeim vanda er hlaupið.
Það er enginn vafi á því, að það, sem hefur á undanförnum árum í okkar efnahagsmálum verið erfiðast viðureignar og hættulegast, er vöxtur dýrtíðarinnar. Það er hin sífellda verðlagshækkun innanlands, sem hefur óneitanlega og skiljanlega kallað á kauphækkanir. Vitanlega ber enginn maður á móti því, að þegar síðan kemur til kauphækkunar á eftir mikilli verðlagshækkun, leiðir einnig af þeirri kauphækkun nýja hækkun í ýmsum greinum í efnahagslífinu. Við vitum, að hækkað kaup verkamanna leiðir til þess, að afurðaverð landbúnaðarins hlýtur að hækka, um leið og laun bænda hækka til samræmis við hækkað kaup, og þannig er vitanlega ástatt í ýmsum fleiri greinum, hvergi hægt að komast hjá því. Um leið og kaup t.d. járniðnaðarmanna eða trésmiða hækkar vegna áður hækkandi verðlags, gefur það auga leið, að þá hækkar vitanlega viðgerðarkostnaður t.d. á bátum og vélum. Það er ekki hægt að komast hjá því. En vandinn hefur legið í því, að sú stefna hefur verið ríkjandi hjá okkur, sem hefur talið það næsta eðlilegt, að fram gengju ýmsar verðhækkanir í landinu, en jafnframt hefur verið reynt að sporna gegn því, að kaupið hækkaði á eftir, að afleiðingin af verðhækkunum næði síðan fram að ganga. En það hefur vitanlega ekki tekizt, kauphækkanirnar hafa komið á eftir.
Hæstv. forsrh. vildi taka þessi orð mín svo, að þau væru í rauninni viðurkenning á því, að auðvitað væri það rétt, sem þeir væru að halda fram, að vegna kauphækkana kæmu síðan verðhækkanirnar. Hæstv, forsrh. getur vitanlega ekki neitað því, að ríkisstj. hefur á undanförnum árum verið að gera ýmsar þær ráðstafanir, sem hafa leitt til hækkandi verðlags í landinu, en ekki hafa átt neitt skylt við hækkandi kaupgjald. Ég nefni t.d. hækkun á vöxtum. Var það hækkað kaupgjald í landinu, sem rak ríkisstj. til að hækka alla vexti? Nei, en vaxtahækkunin vitanlega leiddi til þess, að allir kaupsýslumenn hækkuðu sinn varning vegna aukins vaxtakostnaðar. Vaxtakostnaðurinn við að hafa hækkandi vexti leiddi líka til þess, að útgjöld t.d. atvinnufyrirtækja eða útgerðarinnar í landinu hækkuðu vegna hækkandi vaxta, og það vitanlega olli þessari atvinnugrein erfiðleikum. Það var ekki heldur vegna hækkaðs kaupgjalds, að ríkisstj. brá við og samþykkti að afnema verðlagsákvæði á verðlagningu á ýmiss konar varningi og ýmiss konar þjónustu í landinu. Ríkisstj. samþykkti verðhækkanir án þess að til grundvallar lægju nokkrar sérstakar kauphækkanir. Ríkisstj. hefur einnig staðið fyrir því að auka álögur í mjög stórum stíl á landsmenn, sem hafa vitanlega leitt til hækkandi verðlags. Söluskattarnir, sem ríkisstj. hefur verið að leggja á, hafa vitanlega leitt til hækkandi verðlags, og það hefur ekki verið hægt að tengja þessa söluskatta sérstaklega við kaupgjaldsbreytingar. Þannig er hægt að nefna mörg önnur dæmi.
Sannleikurinn er sá, að stefna ríkisstj. hefur verið sú að leyfa verðlagshækkanir og standa beinlínis fyrir verðlagshækkunum, og það eru þær, sem hafa leitt til kauphækkananna. Fram hjá þessu er ekki hægt að komast. Og það frv., sem hér liggur fyrir nú, ég veit það, að það verður túlkað þannig í Morgunblaðinu, eins og hæstv. forsrh. hefur í rauninni túlkað það hér í þessum umr., að það verður sagt: Hér er um 210 millj. kr. nýjar álögur að ræða. Þessar nýju álögur og þessar nýju verðhækkanir, sem af þeim leiðir, þetta er allt saman kauphækkuninni frá því í des. að kenna. En hér er verið að afla tekna m.a. til að greiða togaraútgerðinni í landinu 55 millj. kr. Ætla einhverjir að halda því fram, að það þurfi að greiða togaraútgerðinni í landinu 55 millj. kr. vegna kauphækkananna, sem urðu í desembermánuði? Auðvitað er það hrein fjarstæða að halda því fram. Í þessu frv. er einnig gert ráð fyrir því, að af þessum 210 millj. kr. verði varið 55 millj. kr. til að halda áfram niðurgreiðslum á vörum innanlands, sem ríkissjóður hefur greitt niður hingað til og hefur haft tekjustofn til að halda niðri. En nú á sem sagt að leggja á nýjan skatt, og síðan á að hamra á því í Morgunblaðinu og í ræðum ráðh., að þessi nýi skattur sé allur afleiðing af kaupgjaldshækkununum, sem samþykktar voru í desembermánuði. Hér er vitanlega verið að segja ranglega frá hlutunum. Það, sem hér er í gangi, er þessi gamla stefna ríkisstj., að hún er létt á sér, þegar um það er að ræða að leggja á nýjar álögur, hækka verðlagið í landinu, þá er hún létt á sér, þá er hún fljót til. En svo þegar hækkandi verðlagi verður aftur svarað af launþegum í landinu með því að fara fram á hækkað kaup, ætlar allt um koll að keyra. En það þýðir ekkert fyrir ríkisstj. að neita þessari staðreynd lengur. Afleiðingarnar af hækkandi verðlagi verða hækkað kaupgjald, og sá vandi leggst síðan fyrr en varir til útflutningsframleiðslunnar í landinu.
Svo er í þessum efnum sífellt verið að klifa á því, að það eigi ekki að fara fram svona launahækkanir, eins og t.d. hafa átt sér stað núna í desembermánuði s.l., heldur eigi að reyna að koma fram raunhæfum kauphækkunum. Hvað eru raunhæfar kauphækkanir? Það, sem ríkisstj. bauð snemma í þessu verkfalli í desembermánuði, þegar talað var um að hækka kaupið frá 4–8%, það voru raunhæfar kauphækkanir. En gerði ekki ríkisstj. sér grein fyrir því, um leið og hún lagði þessa till. fram, að það þyrfti að afla nýrra tekna upp á yfir 200 millj. kr. vegna tekjuþarfa ríkissjóðs og til þess að styrkja útflutninginn, alveg eins og nú er lagt til, þó að þá væri talað um miklu minni kauphækkun? Ætli hefði þá staðið á því að fara sömu leiðina, þó að það væri verið að tala um raunhæfar kauphækkanir? Nei, það, sem skiptir vitanlega máli í þessum efnum, er, að þegar samið hefur verið um kauphækkun sem beina afleiðingu af þeirri verðlagsþróun, sem orðið hafði, það er það, að á eftir sé reynt af ríkisvaldsins hálfu að haga ráðstöfunum á þá lund, að reynt verði allt, sem mögulegt er, til að koma í veg fyrir áframhaldandi verðlagshækkanir. Og það hefði verið auðvelt verk, eins og ég hef bent á áður í þessum umr., að veita útflutningsatvinnuvegunum þann stuðning, sem nú er gert ráð fyrir að þurfi að veita þeim, án þess að hefði þurft að koma til nýrrar skattaálagningar. Það hefði verið hægt eftir öðrum leiðum, sem ég hef bent hér áður á í þessum umr. En ríkisstj. hefur ekki viljað fara þær leiðir, hún hefur frekar kosið gömlu verðhækkunarleiðina, sem vitanlega leiðir af sér nýjar kaupkröfur síðar.
Þá talaði hæstv. forsrh. nokkuð um það, að ríkisstj. hefði alltaf haft mikinn vilja til þess, að laun þeirra lægst launuðu í hópi verkamanna yrðu nokkuð hækkuð, en þar hefði hreinlega staðið á verkalýðssamtökunum sjálfum. Þetta er, eins og hann veit mætavel, algerlega rangt. Það stendur t.d. ekkert á því, að hann megi færa nú í dag ef hann vill beita sér fyrir því innan ríkisstj., þeim lægst launuðu nokkra viðbótarhækkun — það mótmælir því enginn — til þess að rétta nokkuð hag þeirra. Hitt er sannleikur málsins, að þeir lægst launuðu í landinu hafa jafnan neitað því að setja sig og sín samtök gegn því, að ýmsir aðrir starfshópar í landinu fengju líka leiðréttingu sinna mála. Það er allt annað mál. Það er vitanlega óeðlilegt að fara fram á það við samtök hinna almennu verkamanna eða. heildarsamtökin í landinu, Alþýðusamband Íslands, að þau eigi að standa gegn því, að t.d. vissar starfsgreinar iðnaðarins fái einhverjar launabætur líka. Enda er það margföld reynsla, þegar samið hefur verið sérstaklega um kaup hinna óbreyttu verkamanna og samningarnir hafa ekki á neinn hátt verið tengdir samningum t.d. við iðnaðarmenn, þá hefur síður en svo staðið á því hjá vinnuveitendum iðnaðarmanna að semja um tilsvarandi eða jafnvel enn þá meiri hækkun iðnaðarmönnum til handa. Og það vita allir, að yfirborganir á umsömdum kauptöxtum eru enn þá meiri til iðnaðarmanna í landinu heldur en til óbreyttra verkamanna, svo að atvinnurekendurnir hafa í þessum efnum séð um þetta sjálfir.
Ég skal svo ekki ræða öllu meira um þetta mál. Þó vildi ég aðeins segja það hér að lokum, sem ég reyndi að leggja aðaláherzlu á hér í minni fyrri ræðu, að ég tel, að það sé ekki hægt að ljúka afgreiðslu þessa máls í þeim búningi, sem það er nú. Það er óhjákvæmilegt, um leið og reynt er að leysa hér að nokkru vandamál fiskkaupenda og togaraeigenda, að þá sé um leið snúizt við þeim vandamálum, sem steðja að bátaútvegsmönnum í landinu og bátasjómönnum í landinu og togarasjómönnum. Það verður að leysa vandamál þessara aðila útgerðarinnar um leið og hinna. Og mér fannst þeir hæstv. ráðh., sem hér komu nú aftur í ræðustól og ræddu aftur um þessi mál, vikju sér alveg ótrúlega mikið undan þessu vandamáli. Þeir vildu halda hér uppi umræðum um ýmislegt annað, sem hér hefur borið á góma í þessum umr., en vildu hafa sem fæst orð um þetta atriði málsins, en þetta tel ég höfuðatriðið. Það er engin leið að skilja þannig við þetta mál, að ekki sé fundin lausn á vandamálum þessara aðila, því að vitanlega kemur ekki til mála að skilja þannig við málið að bjóða bátasjómönnum upp á það, að þeir skuli starfa enn miðað við óbreytt kaupgjald eða sama fiskverð og gilti á s.l. ári, til þess yrði hlutur þeirra þá allt of lélegur borið saman við hlut annarra starfsstétta í landinu, og það er ómögulegt annað en af þessu leiddi, að sjómönnum fækkaði við þorskveiðarnar og þorskveiðarnar mundu dragast saman. Ég hugsa, að þetta kæmi ekki aðeins þannig út, að þjóðarheildin tapaði miklu á slíku, heldur mundu einnig fiskkaupendur í landinu finna sárt til þess, því að það skipti fiskkaupendur í landinu, frystihúseigendur, ekki minna máli að fá mikið hráefni til vinnslu heldur en það, þótt þeir fái slíkan styrk, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. Á það ber því að leggja áherzlu við afgreiðslu þessa máls hér í þinginu, að þessi hluti vandamálsins verði ekki síður leystur en hinn.