22.04.1964
Sameinað þing: 68. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í D-deild Alþingistíðinda. (3150)
166. mál, bankaútibú á Sauðárkróki
Flm. (Ragna,r Arnalds):
Herra forseti. í tilefni af þessari aths. þykir mér rétt að minna á, að oftlega koma fram till. í þinginu um ýmis mál, þess efnis, að ríkisstj. beiti sér fyrir einu og öðru, en það kann einnig að vera, að ríkisstj. geti gert það og geri það, jafnvel þótt engin till. komi fram um það.
Það er sem sagt rétt, að oft eru stofnuð útibú, án þess að Alþingi fjalli um það sérstaklega. Hins vegar munu tvívegis hafa verið bornar fram slíkar till. hér í þinginu, og er þetta því ekki í fyrsta sinn, sem það er gert. Og þessi till. er í eðli sinu nákvæmlega eins og margar aðrar till. Reynt er að fara þennan veginn til að koma málinu fram, enda þótt vel sé hugsanlegt að koma málinu fram með öðrum hætti.
Ég vil svara fyrirspurn hv. þm. á þann veg, að við flm. þessarar till. höfum ekki rætt málið sérstaklega við viðkomandi banka, og að öðru leyti hef ég ekki neitt við þetta að bæta.