22.04.1964
Sameinað þing: 68. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í D-deild Alþingistíðinda. (3163)

167. mál, tæknistofnun sjávarútvegsins

Flm. (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af því, sem hv. 6. landsk. þm. sagði hér í sínum orðum áðan. Hann lét í ljós þá skoðun, að hann væri mér algerlega sammála um nauðsyn þeirra rannsókna, sem till. mín gengur út á að hér verði farið að framkvæma af fastri, nýrri stofnun. Hins vegar vísar hann til þess frv., þess mikla lagabálks um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, sem nú alveg tiltölulega nýlega var lagður fyrir þetta þing, og telur, að sú skipan, sem þar er fyrirhuguð á þessum málum, ætti að geta orðið fullnægjandi og að ýmsu leyti heppilegri en að um sérstaka stofnun væri að ræða. Það kann að vera, að það megi færa fyrir því einhver rök og það alimikil, að slíkar rannsóknir á vegum hafrannsóknastofnunar væru til verulegra bóta frá því, sem nú er. Hins vegar er ég eftir sem áður sannfærður um það, að framtíðarlausn þessara mála verður sú, að það rís hér upp sérstök stofnun, að sjálfsögðu í meiri og minni tengslum við aðrar þær stofnanir, sem fyrir sjávarútveginn vinna, — sérstök stofnun, sem tekur þessi mál fyrst og fremst sem sitt starf, en það verði ekki heppilegt til lengdar, að þetta mikilvæga og margþætta verkefni verði falið einhverri undirdeild hafrannsóknanna.

Svo vil ég jafnframt vekja athygli á því, að mér sýnist vera heldur hægur gangur á þessu stóra frv., sem samið var, að ég held, fyrir einum 4-5 árum, lagt var fyrir Alþingi í hittiðfyrra og hlaut þá ekki afgreiðslu, hefur verið sýnt núna undir þinglok og að því er mér sýnist engir tilburðir til þess að fá þennan stóra lagabálk samþykktan eða fá hann tekinn til raunverulegrar meðferðar hér á þessu þingi, þannig að mér sýnist, að enn geti verið einhver vafaatriði í sambandi við það mál, sem geri það að verkum, að því verði enn slegið á frest svo og svo lengi. En ég vil leggja á það sérstaka áherzlu, að mér finnst engin skynsemi mæla með því að bíða með það að koma á tæknistofnun eða þeirri starfsemi, sem slík stofnun þarf að vinna fyrir sjávarútveginn, því að þar er um að ræða verkefni, sem gætu tvímælalaust ýmist sparað okkur tugi milljóna árlega eða aukið verðmæti framleiðslunnar um tugi milljóna.