15.04.1964
Sameinað þing: 64. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í D-deild Alþingistíðinda. (3195)
173. mál, efling byggðar í Selvogi
Flm. (Helgi Bergs):
Herra forseti. Það er nú orðið æði áliðið kvölds og raunar fárið að fækka hv. þm. á fundi. Eigi að síður er ég þakklátur hæstv. forseta að hafa enn framlengt fundinn, svo að ég fái tækifæri til þess að mæla fyrir þessari till., enda er orðið alllangt síðan hún var flutt. Ég skal á hinn bóginn reyna að endurgjalda þolinmæði hæstv. forseta með því að vera stuttorður um þetta mál og get raunar að verulegu leyti vísað til grg., sem till. fylgir.
Eins og fram hefur komið í umr. hér fyrr í kvöld, er byggðaþróunin hér á Íslandi allískyggileg á seinni áratugum. Það er alveg ljóst, að þau mál verður að taka nýjum og fastari tökum en gert hefur verið. En meðan leitað er hæfilegra fangbragða, er nauðsynlegt að andæfa þar, sem hætturnar steðja að.
Eitt af þeim byggðarlögum, sem nú eiga mjög í vök að verjast, er Selvogshreppur í Arnessýslu. Ég hef því á þskj. 320 ásamt hv. 2. þm. Sunnl. (AÞ) og hv. 4. þm. Sunnl. (ÓskJ) flutt þáltill., sem felur í sér, að fram sé látin fara á vegum landnámsstjóra í samvinnu við Búnaðarsamband Suðurlands athugun á því, á hvern hátt megi bezt koma í veg fyrir eyðingu byggðar í Selvogshreppi og efla byggð þar að nýju. Athugunin beinist að því m.a. , hvort ekki sé hagkvæmt að koma þar upp byggðahverfi skv. l. nr. 75 frá 27. apríl 1962, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, þar sem gert yrði ráð fyrir ræktun jarðávaxta í samvinnu- eða félagsrekstri. Leiði slík athugun til jákvæðrar niðurstöðu að dómi landnámsstjóra og nýbýlastjórnar, skal þegar hefja undirbúning undir landnám skv. IV. kafla nefndra laga.
Í Selvogi hefur verið byggð frá fyrstu tíð og lengst af blómleg byggð fram á þessa öld. Ekki sízt síðan útvegur færðist í vöxt, hafa stórbýli og höfuðból verið í Selvogi. Raunar er kirkjustaðurinn í Selvogi, Strönd, helgur staður í hugum flestra Íslendinga. Eins og menn vita, er Strandarkirkja talin öðrum kirkjum betri til áheita, og henni hafa safnazt alldigrir sjóðir, og má vel vera, að kirkjuyfirvöldin telji eðlilegt að stuðla að því, að byggð haldist í Selvogi, því að ef byggðin eyðist, þá má gera ráð fyrir, að vegur þess staðar minnki. Þetta nefni ég þó aðeins í leiðinni án þess að telja það neitt aðalatriði í þessu máli.
En eftir að Íslendingar tóku upp betri og stærri skip, hefur útgerð í Selvogi lagzt af, sökum þess að þar eru ekki hafnarskilyrði fyrir slík skip, sem Íslendingar nota nú. Það hefði því verið eðlilegt, að þar yrði leitazt við að efla landbúnað og búskap, þegar útgerð hrakaði þar, og slík viðleitni hefur raunar verið sýnd, en hún hefur ekki náð þeim árangri, sem menn hafa gert sér vonir um.
Fyrir nokkrum árum fóru bændur í Selvogi fram á það við Mjólkurbú Flóamanna, að það sækti til þeirra mjólk, og við athugun á því máli kom í ljós, að til þess að Mjólkurbúið sæi sér fært að gera þetta, hefðu bændur þurft að fjölga kúm sínum, til þess að um meira mjólkurmagn væri að ræða, en þá voru þeir ekki orðnir fleiri en það eftir í Selvoginum, að þetta reyndist ekki kleift.
Í Selvogi hefur lengst af verið mikil sauðfjárrækt, en einnig hún á við erfiðleika að etja af ýmsum ástæðum og þá m.a. af því, að sauðfjáreigendur úr haglausum sveitum hér vestan heiða reka sauðfé sitt á fjall og verður það oft æði nærgöngult við haglendi þeirra Selvogsmanna.
Við flm. höfum leyft okkur í þessari till. að benda á jarðávaxtarækt sem hugsanlega leið til eflingar byggðarinnar í Selvogi. Veðrátta er þar mild eins og viðast við ströndina og minni hætta á næturfrostum og jarðvegur er talinn þar hentugur, bæði á ströndinni sjálfri, í söndunum þar, og eins ofar í byggðinni, vestan í Selvogsheiðinni.
Við flm. bendum einnig á það, að þarna kynni að vera hentugt að reyna nýjar leiðir í búskaparháttum að því leyti, að tekinn yrði upp félagsbúskapur í einhverri hentugri mynd. Það hefur oft verið til umr. nauðsyn þess, að slíkt yrði reynt, en sjaldan verið gerðar til þess alvarlegar tilraunir við hentug skilyrði. En við það vinnst það m.a., að bændur eru ekki eins bundnir búum sínum og ella, og Selvogurinn er nálægt — raunar má segja, að Selvogurinn sé með vissum hætti uppland Þorlákshafnar, vaxandi bæjar, þar sem tekjur af launavinnu á vertíðum freista, og með þessum hætti mætti kannske á vissan hátt skapa þarna hentug skilyrði fyrir fjölbreyttari tekjumöguleika.
Ég skal ekki lengja mál mitt, en óska eftir því, að hæstv. forseti fresti umr. og till. verði vísað til allshn.
Þar sem þessi till. hefur nú legið alllengi fyrir án þess að komast til meðferðar, þá vildi ég beina þeim tilmælum til hv. allshn., að hún gæfi till. skjóta meðferð, einnig með tilliti til þess, að nú er orðið æði áliðið þingtímans.