26.01.1964
Neðri deild: 46. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (323)

119. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o.fl.

Frsm. meiri hl. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Þær umr., sem hér hafa farið fram, gefa mér ekki tilefni til andsvara að neinu ráði. Ég vildi aðeins benda hér á örfá atriði, sem fram hafa komið og koma fram í brtt. minni hl. og hv. 5. þm. Austf.

Samkv. brtt. minni hl. er gert ráð fyrir að auka útgjöldin samkv. frv. um, að mér telst til, 32 millj. kr. Það er ekki aðeins, að það sé ekki gert ráð fyrir neinum tekjum þar á móti, heldur felur ein brtt. það í sér að fella niður alla tekjuöflun úr frv. Þetta er raunverulega verðbólguleiðin, sem kemur einnig fram í flestum öðrum brtt. minni hl. Hér er ekkert nýtt, sem kemur fram. Þetta er margrætt hér á Alþingi, þessi leið þeirra hv. þm. minni hl. og þeirra stuðningsmanna, þetta er það sama, sem þeir hafa raunverulega flutt nú þing eftir þing með dálítið mismunandi orðalagi og mismunandi tölum. En aðaltill. minni hl. er þó ekki þetta, heldur hitt að skipa nefnd. Það á að skipa 8 manna nefnd, tvo frá hverjum flokki, til þess, eins og segir, að rannsaka efnahagsmál þjóðarinnar. En þetta er ekki heldur nýtt. Þarna er grafin upp gömul till., núna nær 4 ára gömul, sem flutt var á þinginu 1960, eins og lýst er í grg. eða áliti minni hl., þá átti líka að skipa nefnd 8 manna, 2 frá hverjum flokki, til þess að rannsaka efnahagsmál þjóðarinnar. Það er þannig augljóst, að minni hl. og þeir, sem að honum standa, hafa ekkert nýtt til málanna að leggja, og því gefur það ekki tilefni til neinna umr.

Ég vildi aðeins minnast á eitt atriði þó. Það er í sambandi við 5. brtt. á þskj. 211, þar sem er gert ráð fyrir, að við bráðabirgðaákvæði frv. bætist nýr stafl. um fiskiðnskóla eða um skipun 7 manna n. til að gera till. um stofnun og rekstur fiskiðnskóla. Um þetta liggur nú fyrir sameinuðu Alþingi till. til þál. á þskj. 207. Það verður að telja, að það sé eðlilegra, að sú till. fái þinglega meðferð og sé ekki verið að hnýta henni aftan í þetta frv., sem í eðli sínu er óskylt.

Mér kom ekki á óvart það, sem hv. 5. þm. Austf. sagði þegar hann ræddi um mismunandi uppbætur eða styrki. Þetta er einmitt megineinkenni uppbótakerfisins eða styrkjakerfisins, sem hann þekkir sennilega betur en flestir aðrir af reynslu þeirra ára, þegar hann átti sæti í ríkisstj, og fjallaði um þessi mál. Hann sagði eitthvað á þá leið, að það kæmi til mála að mismuna vegna mismunandi verðhækkana afurðanna. Hann vildi ekki neita því, að það væri möguleiki. Það er m.a. þetta atriði, sem kemur fram í þessu frv., það er ekki greitt jafnt til allra, m.a. af því, að aðstaða atvinnugreinanna innan sjávarútvegsins er misjöfn og vegna mismunandi verðhækkana á erlendum markaði, einnig vegna þess, að vinnulaunin eiga mjög mismunandi þátt í framleiðslukostnaði hinna ýmsu greina, en megintilgangur þessa frv. er að bæta upp þá launahækkun, sem varð í des. s.l. Þetta er einmitt, þessi mismunur eða hvað við viljum kalla það, tekið tillit til mismunandi aðstæðna, þetta er raunverulega kjarni uppbótakerfisins. Eins og það var framkvæmt hér á árunum, þá byggðist það á þessu, að reikna út, hvað hver grein þyrfti með tilliti til framleiðslukostnaðar og verðlags á erlendum mörkuðum.

Það kom ekki heldur á óvart, þó að hann væri ekki samþykkur þeirri brtt. meiri hl. n. að hækka fiskverðið um 6%, sem þýðir rúmlega 50 millj. kr. aukin útgjöld, en leggur til, að það verði hækkað um 15%, sem þýðir þá samkv. því um 125 millj. kr. aukin útgjöld. En hann vill ekki, að aflað sé tekna til að mæta þessum útgjöldum, og vill raunar fella niður 5. gr. frv. í þeirri mynd, sem nú er um tekjuöflun, en setja í staðinn ákvæði um vaxtalækkun, sem mundi náttúrlega ekki koma að sama gagni. Þarna er um grundvallarmismun á sjónarmiðum að ræða, svo sem margrætt er hér, bæði í sambandi við þetta mál og þó einkum í sambandi við önnur þó ekki óskyld mál, sem áður hafa verið rædd hér í þinginu.

Út af því, sem hann sagði um vátryggingarkerfi fiskiskipaflotans, þá er það rétt hjá honum, að það standa fyrir breytingar á því nokkrar, en auk þess er rétt að geta þess, að allt þetta kerfi hefur verið og er í endurskoðun með það fyrir augum að koma því á hentugri grundvöll fyrir fiskiskipaflotann. Það hefur verið ljóst, að það væri úrbóta þörf á þessu sviði, og vegna þess var farið út í það að endurskoða þau lög og reglur, sem um þetta gilda, og þær athuganir eru nú í gangi.