30.10.1963
Sameinað þing: 8. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í D-deild Alþingistíðinda. (3269)
27. mál, afurðalán vegna garðávaxta
Eysteinn Jónsson:
Hæstv. ráðh. sneri blaðinu bara svolítið við í hendi sér og sagði núna, að það hefði þurft að skera niður lánin til landbúnaðarins til þess að safna gjaldeyrisvarasjóðnum og í raun og veru hefði Seðlabankinn ekki getað lánað þessi lán á undanförnum áratugum. Seðlabankinn gerði þetta, og það var ekki meira jafnvægísleysi í þjóðarbúskapnum þá en nú hefur verið, síðan þeir fóru að skera þessi lán niður. Þetta eru staðreyndir, sem allir þekkja, svo að eitthvað er bogið við þessar kenningar, sem hæstv. ráðh. heldur fram.
Hann segir, hæstv. ráðh., að það hafi þurft að skera niður landbúnaðarlánin til þess að safna gjaldeyrisvarasjóðnum. Hvaða gjaldeyrisvarar sjóður halda menn, að hefði safnazt, ef það hefði verið búið bara við venjulegt árferði undanfarið, jafnvel þó að þeir hefðu skorið niðar landbúnaðarlánin eins og þeir gerðu eða jafnvel meira eða fært þau ofan í ekki neitt? Hvaða gjaldeyrisvarasjóður ætli hefði myndazt, og hver er svo þessi gjaldeyrisvarasjóður í raun og veru, þegar öllu er á botninn hvolft? Rúmar 1000 millj., segja þeir. En verzlunarskuldir, lausaskuldir við útlönd, hafa á sama tíma hækkað hátt á 6. hundrað millj. og þar að auki tekin fleiri hundruð millj. af föstum lánum. Og landbúnaðarlánunum hefur verið haldið niðri á þessu ári, fyrirframlánunum, alveg eins mikið og í fyrra. Hvað hefur safnazt í gjaldeyrisvarasjóðinn á þessu ári? Ætli það sé ekki alveg óhætt fyrir hæstv. ráðh. að endurskoða yfirleitt allar þessar kenningar og það, sem honum hefur verið sagt um þetta, og láta ekki lengur hafa sig á oddinum til þess að knífa lán við landbúnaðinn í þeirri trú, að hann sé með því að vinna eitthvert þjóðþrifaverk.
Sannleikurinn er sá, að það þarf á því að halda að lána 67% úr seðlabankakerfinu bæði út á landbúnaðarafurðir og sjávarafurðir, eins og samtök þessara aðila hafa margsinnis bent á, og það er síður en svo, að það sé nokkur búhnykkur að draga úr þessu.