04.12.1963
Sameinað þing: 24. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í D-deild Alþingistíðinda. (3299)

802. mál, hafnargerð við Dyrhólaey

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þessi fyrirspurn á þskj. 94 hefur verið send vitamálastjóra til umsagnar, og ég tel, að henni sé bezt svarað með því að lesa upp hans svar, en það er svo, með leyfi hæstv. forseta, hann segir:

„Spurt er, hvaða niðurstöður liggja fyrir varðandi Þær rannsóknir, sem gerðar voru s.l. sumar á hafnargerð í Dyrhólaey. Og í öðru lagi: Hvað líður rannsóknum á tilflutningi jarðefna annars staðar við suðurströnd Íslands, t.d. í Þykkvabæ.

Svo sem áður er fram komið á Alþ., þá hafa á undanförnum árum verið gerðar athuganir á mögulegum hafnarstæðum við suðurströnd Íslands, og hefur þá fyrst og fremst verið litið til Dyrhólaeyjar í því sambandi. Hafa verið gerðar þar nokkrar mælingar og athuganir, er orðið gætu grundvöllur frekari og ýtarlegri rannsókna og jafnframt sá grundvöllur, er hægt væri að nota til samanburðar síðar, ef ástæða væri talin til að gera fullnaðaráætlanir um hafnargerð á þessu svæði.

Þegar það var ákveðið á s.l. vori, að hingað til lands kæmi á vegum háskólans og Fullbrightstofnunarinnar í Bandaríkjunum prófessor Per Bruun frá Flórída til fyrirlestrahalds við háskólann og til að vera til aðstoðar ísl. stofnunum, þá taldi ég mjög mikilsvert að fá prófessorinn til að gera yfirlit yfir athugun á hafnarstæðum og sandflutningi á suðurströndinni. Prófessor Bruun tók mjög vel í þá málaleitun, og var síðan undirbúningur hafinn og nokkrar athuganir gerðar. Haft var samráð við prófessor Trausta Einarsson, er áður hafði gert allmiklar athuganir á sandflutningi með suðurströndinni. Þá voru og gerðar dýptarmælingar að nýju á svæðinu út af Dyrhólaey og þar tekin sýnishorn af botnefnum. Þá var og safnað öllum tiltækum gögnum varðandi málið og nýjar loftmyndir teknar af allri suðurströndinni. Undirbúningur var og hafinn að bylgjuathugun og straumaathugun á Dyrhólaeyjarsvæðinu. Hafði próf. Bruun lagt á ráðin um, hvað gera skyldi, og var ákveðið að fara að hans tillögum í þeim efnum. Starf próf. Bruuns endaði með því, að hann í ágústmánuði gerði stutta bráðabirgðaskýrslu um athuganir og Það, hvað gera skyldi. An þess að um nokkra endanlega niðurstöðu sé að ræða, þá má segja, að í höfuðdráttum séu niðurstöður próf. Bruuns þær, að sandflutningur með suðurströndinni geri hafnarframkvæmd mjög erfiða á öllu svæðinu frá Þjórsá austur í Hornafjörð. Þá er og bylgjuhreyfing og sjávargangur það mikill á þessu svæði og það langt út á það dýpi, er telja verður að hafnarmynni verði að vera staðsett á, svo að skip geti sæmilega örugglega tekið hafnirnar, að mannvirki, hvar sem er á svæðinu, yrðu mjög dýr. Á svæðinu út af Þykkvabæ telur próf. um 1600—1800 m frá ströndinni út á 16 m dýpi, sem telja má hæfilegt dýpi fyrir hafnarmynni á þessum stað. Við Dyrhólaey er um það bil helmingi skemmra út á 16 m dýptarlínu og tilsvarandi ódýrara að byggja höfn þar. Fleira virðist þó benda til þess, að hafnargerð í Dyrhólaey sé framkvæmanlegri en annars staðar á ströndinni, svo sem lega dýptarlína og straumur, er ætti að hindra, að sandur bærist í hafnarmynnið.

Niðurstöður af frumathugun prófessors Bruuns eru því í stuttu máli þær, að sé hugsað til hafnargerðar á suðurströndinni, verði að gera ráð fyrir mjög dýru mannvirki og að álitlegasti staðurinn sé við Dyrhólaey og sé því rétt að leggja megináherzlu á rannsóknir á því svæði. Mjög margt er órannsakað enn þá og þarf að vinna að frekari rannsóknum á margan hátt. Fyrst og fremst þarf að gera straum- og bylgjumælingar við Dyrhólaey. Þá þarf að rannsaka möguleika á efnistöku í nágrenni eyjarinnar og gera verkfræðilegar athuganir á gerð hafnargarða og hafnarsvæðis, áður en hægt er að slá neinu föstu um væntanlegan byggingarkostnað við höfn í Dyrhólaey. Jafnframt þessum athugunum þá mundi ég telja rétt, að gerðar væru rannsóknir á hafnarþörf svæðis þess, er Dyrhólaeyjarhöfn mundi þjóna, og þá um leið, hversu stóra og hvers konar höfn þar væri eðlilegt að byggja með tilliti til væntanlegrar notkunar.“

Þetta eru orð vitamálastjóra, sem hefur fylgzt með og unnið að þeirri rannsókn, sem gerð hefur verið í sumar, og hefur gert sér grein fyrir áframhaldandi rannsókn á svæðinu.

Til viðbótar þessu vil ég aðeins segja það, að það er engin tala nefnd um hugsanlegan kostnað við hafnargerð á þessum stað, sem eðlilegt er, vegna þess að rannsóknirnar eru ekki það fullkomnar, að hægt sé að fara nákvæmlega út í kostnaðaráætlun að svo stöddu. En vitamálastjóri hefur leyft mér að hafa það eftir sér, að það sé sameiginlegt álit sitt og prófessor Bruuns, að sá kostnaður. sem hér sé um að ræða, verði ekki reiknaður í millj., heldur í hundruðum millj. kr., og þess vegna ekki óeðlilegt, að ýtarlegar rannsóknir þurfi að fara fram, áður en ákvörðun er tekin.