12.02.1964
Sameinað þing: 40. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í D-deild Alþingistíðinda. (3323)

134. mál, sjónvarpsmál

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að beina til hæstv. menntmrh. nokkrum spurningum, sem varða sjónvarpsmál. Þessi mál eru eðlilega mikið rædd hér á landi um þessar mundir, og ber þar einkum tvennt til. Fyrst það, að hér er þegar komið sjónvarp, — sjónvarp, sem erlendur aðili á og rekur, en nær þó nú þegar til býsna margra Íslendinga, og það er ljóst, að sjónvarpsnotendum fjölgar hér svo að segja með hverjum mánuði sem liður. Hitt tilefnið til umr. um þessi mál er það, að hæstv. menntmrh. fól fyrir nokkru útvarpsráði að gera áætlanir og athuganir um íslenzkt sjónvarp, stofnun þess og rekstur. Var og vitað, að ríkisútvarpið hafði áður haft slíkar athuganir með höndum, án þess þó, að ég hygg, að skýrt hafi verið opinberlega frá niðurstöðum þeirra hinna fyrri athugana.

Nú mun það að vísu vera svo, að þessi mál, möguleikar á íslenzku sjónvarpi, eru enn á athugana- og rannsóknastigi og því e.t.v. ekki hægt að búast við ýtarlegri grg. um öll atriði þeirra á þessu stigi málsins. En allt um það tel ég ekki óeðlilegt, að Alþingi og þjóðin í heild fái að vita, á hvaða stigi þessi mál eru nú og hvaða ráðagerðir eru uppi að þeirri athugun lokinni, sem útvarpsráð hefur nú með höndum.

Ég ætla ekki á þeim skamma tíma, sem mér er ætlaður í þessum spurningatíma, að gera neina tilraun til þess að hefja hér umr. um sjónvarp almennt, kosti þess og galla. Ýmsir hafa sjálfsagt þegar fastmótaðar skoðanir um það, hvort hér skuli komið upp íslenzku sjónvarpi sem fyrst eða ekki. Margir bíða þess hins vegar, að sem gleggstar upplýsingar liggi fyrir um sem allra flestar hliðar málsins, og taka fyrst afstöðu, þegar þær upplýsingar liggja fyrir, og í sambandi við slíka skoðanamyndun verða vafalaust þung á metunum þau þrjú atriði sem ég spyr hér sérstaklega um, þótt fleiri komi að sjálfsögðu til greina.

Hið fyrsta, sem ég spyr um, er kostnaðarhlið málsins, stofnkostnaður og rekstrarkostnaður íslenzks sjónvarps. í því sambandi skiptir og miklu máli atriði, sem ég hef ekki spurt um, enda sennilega erfitt að svara með neinni nákvæmni á því stigi, sem málið er nú, en það eru tekjumöguleikar íslenzks sjónvarps. Hitt hygg ég, að þegar hafi verið kannað nokkuð, hvað stofn- og rekstrarkostnaður sjónvarpskerfis af tiltekinni stærð miðað við ákveðinn útsendingartíma muni verða mikill.

Önnur spurning mín er sú, hvort talið sé tæknilega mögulegt og fjárhagslega kleift að láta íslenzkt sjónvarp ná fljótlega til flestallra eða allra landsmanna. Þetta skiptir áreiðanlega mjög verulegu máli varðandi afstöðu margra til sjónvarpsmálsins.

Loks fjallar þriðja og siðasta spurning mín um það, hvort ríkisstj. líti þannig á, að rétt sé eða eðlilegt að leyfa áframhaldandi rekstur sjónvarps á Keflavíkurflugvelli, eftir að íslenzkt sjónvarp væri tekið til starfa. Í sambandi við þær athuganir, sem fram hafa farið varðandi íslenzkt sjónvarp, mun að vísu ráð fyrir því gert, að hér yrði notað Evrópusjónvarpskerfið svonefnda, sem er allmjög frábrugðið hinu ameríska kerfi. En mér er tjáð, að ekki þurfi að gera nema mjög lítils háttar breytingar á sjónvarpsviðtækjum, til þess að þau geti notað bæði kerfin jöfnum höndum. Þá mundi að Keflavíkursjónvarpinu og starfsemi þess óbreyttri skapast sú aðstaða, að helmingur þjóðarinnar eða þar um bil veldi á milli íslenzks sjónvarps, sem fyrstu árin sjónvarpaði sennilega skamman tíma, e.t.v. ekki nema 2 klst. á dag eða svo, og hermannasjónvarpsins, sem mér er tjáð að sjónvarpi miklu lengri dagskrá.

Ég vænti þess, að hæstv. menntmrh. sjái sér fært að gera hér nokkra grein fyrir því, hve langt er komið athugunum um íslenzkt sjónvarp, hvernig það mál horfir við nú í dag.