12.02.1964
Sameinað þing: 40. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í D-deild Alþingistíðinda. (3326)
134. mál, sjónvarpsmál
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Það er ánægjulegt, að fram skuli koma áhugi á því á Alþingi að fá upplýsingar um, hvort grundvöllur er til fyrir rekstri íslenzks sjónvarps. Alþingi hefur að vísu sýnt vilja sinn með samþykkt fyrir 2 árum um það, að ágóði af innflutningi sjónvarpstækja skuli renna til þess, að ríkisútvarpið geti undirbúið og rekið íslenzkt sjónvarp. Fyrir þessa samþykkt hefur safnazt nokkurt fé, þótt ekki sé mikið miðað við verkefnið.
Ég er tvímælalaust þeirrar skoðunar, að hægt sé að skapa hér á landi grundvöll undir rekstur á íslenzku sjónvarpi. Ef það er athugað, hvað þjóðin leyfir sér í mörgum atriðum þeirra lífskjara sem nú tíðkast, þá er ekki, jafnvei með þeim kostnaði, sem hér var nefndur, um að ræða svo mikla fjármuni, að þjóðin hafi ekki ráð á þeim. Hins vegar er hér, eins og á fleiri sviðum, um það að ræða að velja og hafna. Þjóðin þarf að gera sér grein fyrir, hvort hún vill hafna sjónvarpi um árabil og nota fjármuni sína til annars eða hvort hún vill byrja strax að byggja upp íslenzkt sjónvarp.
Ég er þeirrar skoðunar, að sjónvarp verði í framtíðinni svo mikilvægur liður í lífi allra þjóða, að ráðlegt sé fyrir okkur að byrja sem fyrst, byrja hóflega og hyrja með því að kynna okkur, hvað þessi nýi miðill er, hvernig við getum beitt honum í okkar þarfir og þjálfað nauðsynlegt starfslið.
Ég hef hugsað mikið um þessi mál, talað og skrifað. Hefur nokkrum sinnum komið fyrir, að menn, sem eru andvígir ríkjandi utanríkisstefnu, hafa gagnrýnt mig fyrir, að ég og ýmsir, sem svipað hugsa í þessum efnum, notuðu Keflavíkursjónvarpið til þess að ýta sjónvarpinu að Íslendingum fyrir tímann. Nú var talað um íslenzkt sjónvarp í ríkisútvarpinu fyrir 25 ára afmæli þess, 1954—1955, og oft siðan, svo að sjónvarp mundi koma, hvað sem varnarliðsjónvarpi líður. En ég skal játa það, að ég hef ekki séð neitt á móti því að nota tilveru Keflavíkursjónvarpsins til að reyna að hraða því, að Íslendingar kæmu sínum eigin sjónvarpsmálum fram.
Nú kemur hins vegar á daginn, að andstæðingar þeirrar utanríkisstefnu, sem hér hefur ríkt og oft hefur verið deilt um, eru byrjaðir að reyna að nota hið ófædda íslenzka sjónvarp sjálfum sér til framdráttar í baráttu gegn utanríkisstefnunni. Áður en byrjað er á íslenzku sjónvarpi, er reynt að gera það að aðalatriði, hvað verður um Keflavíkurstöðina. Ég skal ekki draga úr því, að menn ræði það og hugsi á hverjum tíma, hvað þeim finnst um Keflavíkursjónvarpið. En ég vil aðeins biðja um, að menn ráðist ekki á nýja menningargrein svo snemma eða reyni að hagnýta sér hana á óeðlilegan hátt. Það verður nógur tími til að ræða Keflavíkurmálið fyrir utan íslenzk sjónvarpsmál. Það verður nógur tími til að ræða á öðrum vettvangi um framtíð sjónvarps þar, bæði meðan verið er að undirbúa íslenzkt sjónvarp og eftir að það kemst í gang. Ef menn ætla að ýta Keflavikurmálinu fram fyrir, og jafnvel, eins og stundum liggur við, nota það sem átyllu til að stöðva eðlilega þróun íslenzks sjónvarps, þá vil ég biðja menn að gera íslenzka sjónvarpinu ekki þann óleik. Og ég skil ekki það sjónarmið að vilja heldur hermannasjónvarpið eitt en hafa íslenzkt sjónvarp með því. Það er mér gersamlega óskiljanlegt.
Íslenzka sjónvarpið mun örugglega geta staðið sig í samkeppni við erlent sjónvarp þann tíma, sem dagskráin gæti staðið. Um það er ég sannfærður og hef athugað þessi mál ofan í kjölinn. Íslenzkt sjónvarp mundi í fyrsta lagi þýða mikla styttingu og mikinn frádrátt frá Keflavíkursjónvarpinu og ætti a.m.k. á engan hátt að torvelda baráttu þeirra manna, sem vilja losna við það.
Þessu vildi ég skjóta inn í umræðurnar og biðja menn um að blanda ekki málum svo saman, að það verði til að tefja eðlilega þróun íslenzks sjónvarps, og unna okkur þess, sem í þessu stöndum öðrum fremur, að hafa einhvern hag af Keflavikursjónvarpinu, ef það verður til þess, að við getum á eðlilegan hátt komið upp íslenzku sjónvarpi örlitlu fyrr en eila. Hér er aðeins um að ræða tímamismun, e.t.v. 2–4 ár í mesta lagi, sem Keflavíkursjónvarpið hefur áhrif til þess að flýta íslenzku sjónvarpi, ef það gengur eins og vonir standa nú til.