19.02.1964
Sameinað þing: 43. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í D-deild Alþingistíðinda. (3335)

804. mál, niðursuðuverksmiðja ríkisins á Siglufirði

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Í þessum umr. hefur komið fram, að ríkisstj. hefur ekki viljað fallast á að heimila sölu á framleiðslu þessarar niðurlagningarverksmiðju til AusturÞýzkalands vegna þess, að hún hefur ekki getað fallizt á það, að með þessari framleiðslu, sem hér um ræðir, verði seld 600—700 tonn af fiskimjöli til Austur-Þýzkalands. Það er sem sagt upplýst í þessum umr., að hér hefur verið efnt til mikillar og merkilegrar starfsemi, sem átti að hafa allmikla þýðingu í sambandi við framleiðslumál landsins, og. þessi tilraunastarfsemi hefur gengið fremur illa, eftir því sem upplýst er af hæstv. ráðh., en þannig er fyrirgreiðslan sýnilega af hálfu ríkisstj. Í sambandi við annan aðalþátt málsins, sem er salan á erlendum vettvangi, að þegar um það er að ræða að komast inn á nýjan markað og það þarf að heimila að selja til viðskiptaþjóða okkar fiskimjöl upp á 3—31/2 millj. kr., þá má ekki veita slíkt leyfi. Og svo er látið í það skína, að þessi neitun sé vegna mjög merkilegrar „prinsip“-afstöðu. Auðvitað snýr þetta alveg öfugt við. Við eigum alveg hliðstæð viðskipti við ýmsar aðrar þjóðir og þau, sem við eigum við Austur-Þýzkaland. Við seljum okkar afurðir alveg á hliðstæðan hátt bæði til Tékkóslóvakíu og eins til Póllands. Báðar þessar þjóðir fá svo að þúsundum tonna skiptir af fiskimjöli og hafa fengið í nokkur ár, og er þó ekki hægt að segja á neinn hátt, að viðskiptin við þær séu neitt betri okkur, nema síður sé, Því að markaður sá, sem við höfum haft í Austur-Þýzkalandi, bæði fyrir frosna síld, fyrir frosin fiskflök og fyrir saltsíld, hefur hiklaust verið langbezti markaðurinn, sem Íslendingar hafa haft. Útflytjendur eru a.m.k. ekki í neinum vafa um það, þó að hæstv. ríkisstj. hafi kannske ekki áttað sig á því.

Auðvitað er ég ekki í neinum vafa um, að Austur-Þjóðverjar munu fara fram á það mjög stíft nú, ekki aðeins í sambandi við kaupin á þessum litla slatta frá niðurlagningarverksmiðjunni á Siglufirði, að þeir fái að kaupa nokkuð af fiskimjöli eða síldarmjöli eins og aðrar okkar viðskiptaþjóðir. Þeir munu gera þetta, þeir hafa sett fram þessa ósk, og þeir vilja fá þetta og fá það alveg hiklaust. Við höfum engin efni á því, nema þá að hér sé rekin bein skemmdarstarfsemi í sambandi við okkar viðskipti við aðrar þjóðir, að ætla að neita þeim um nokkurn hluta af jafnmikilli framleiðslu og við eigum af síldarmjöli, til þess að geta tryggt okkur slíkan markað eins og við höfum átt í því landi fyrir t.d. saltsíld af þeirri gerð, sem við höfum ekki getað selt annars staðar. En ég álít, að þetta atriði sýni mjög ljóslega, að skilningur ríkisstj. og vilji hennar til að láta þessa tilraun, sem þarna átti að framkvæma á Siglufirði, heppnast hefur enginn verið. Viljinn hefur enginn verið. Það er eins og hér hefur réttilega verið bent á, að þessi tilraun, sem þarna átti að fara fram, var auðvitað tvíþætt, annars vegar var vinnslan sjálf á Siglufirði, hvort okkur tækist með eðlilegum hætti að framleiða þá vöru, sem markaðirnir vildu eða teldu góða, og hins vegar vitanlega að brjótast í gegn á mörkuðunum og finna okkur fasta kaupendur. Ég held, að það sé ekki nokkur minnsti vafi á því, að það hefur lítið sem ekkert verið gert í því að útvega markaði fyrir þessar vörur.

Við höfðum fyrir nokkrum árum gert tilraunir með að semja við Sovétríkin um sölu á niðursoðnum fiskafurðum og niðurlögðum, og við gerðum samning við Sovétríkin upp á 20 millj. kr. á einu ári, gátum ekki afhent upp í þetta nema lítinn hluta, og næst þegar samningur var gerður, komu kröfur frá okkur um að minnka þetta magn, af því að við gætum ekki afhent það. Það er alveg rétt, að kaupendur frá Sovétríkjunum munu hafa svarað því til, þegar þeim var boðið upp á lítinn slatta í sambandi við framleiðsluna frá Siglufirði, að þetta væri framleiðsla af þeirri gerð, sem þau óskuðu ekki fyrst og fremst eftir. Hér var um mjög dýrar umbúðir að ræða, yfirleitt mun dýrari en tíðkast utan um niðursoðnar eða niðurlagðar vörur, og framleiðslan var tiltölulega dýr. En það var vitanlega hægt að taka upp framleiðslu fyrir þennan markað á þeim grundvelli, sem hann yndi betur við, og þannig þurfti auðvitað að halda tilrauninni áfram. Ég verð að segja það líka, að það er vitanlega algerlega röng mynd, sem hér kom fram hjá hæstv. ráðh. í sambandi við viðskipti okkar við Austur-Þýzkaland. Þó að svo hafi til tekizt vegna mikillar tregðu í viðskiptastefnunni hér heima, að viðskiptin hafi þar minnkað á tímabili, þá er það ekki að kenna fyrst og fremst afgreiðslu á vörum frá hálfu Austur-Þýzkalands. Það er rétt, við höfum ekki fengið á tímabili allar þær vörur, sem við vildum sérstaklega velja þar úr. En á því hefur nú orðið breyting, þannig að allar þær vörur, sem íslenzkir aðilar lögðu kapp á á s.l. ári að fá frá Austur-Þýzkalandi, hafa þeir fengið nú og í ríkari mæli en Íslendingarnir gátu tekið við þeim, eftir að þeir höfðu þó sett fram kröfu um þær. Enda hefur nú færzt nýr fjörkippur í verzlunina við Austur-Þýzkaland, eins og sagt hefur verið frá í stjórnarblöðunum síðustu daga, og ég efast ekkert um, að það er lítill vandi að láta enn meiri og stærri fjörkipp koma í þau viðskipti og skapa okkur þar möguleika til þess að selja alla þá framleiðslu, sem þessi litla verksmiðja á Siglufirði getur framleitt, ef bara væri staðið að því á réttan hátt.