26.02.1964
Sameinað þing: 46. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í D-deild Alþingistíðinda. (3352)
805. mál, alþýðuskólar
Fyrirspyrjandi (Daníel Ágústínusson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir svör hans við fsp. þeirri, sem hér liggur fyrir til umræðu. Hins vegar verð ég að segja það, að ég hef orðið fyrir nokkrum vonbrigðum yfir því, að hann virðist algerlega hafa gefið málið frá sér. Þegar þessi fsp. var á dagskrá 1960, gaf hann yfirlýsingu um, að ráðuneytið mundi þá innan skamms tíma beita sér fyrir löggjöf í framhaldi af tillögum skólamálanefndarinnar, sem hér hefur verið lýst að framan, og ég er þeirrar skoðunar, að enda þótt ýmis félagasamtök eigi að standa að þeim skóla, sem hér um ræðir, þá verði forustan í þessum efnum að koma frá ríkisvaldinu. Stuðningur ríkisvaldsins við þetta mái hlýtur að verða mjög veigamikill, og þess vegna var gert ráð fyrir því upphaflega, þegar þessi þáltill. var samþ. hér 1955, að ríkisstj. léti gera löggjöf um óháðan alþýðuskóla á Íslandi, og þá var einmitt tekið fram, að slíkur alþýðuskóli ætti að vera í samvinnu við ýmis félagssamtök í landinu, eins og ráðh, las upp og ræddi nánar um. Ég held þess vegna, að ráðh. megi ekki láta hendur fallast í þessu máli, enda þótt félagssamtökin hafi ekki komið fram með tillögu um ákveðna löggjöf í því, heldur sé æskilegt og nauðsynlegt, svo að málið komist á rekspöl, að hæstv. menntmrh. láti undirbúa löggjöf að slíkum skólum í samvinnu við þau félagssamtök, sem hér hefur verið minnzt á að framan. Ég verð þess vegna að harma, að það hefur ekkert verið gert í þessu máli undanfarin 4 ár, þrátt fyrir þá von og þau fyrirheit, sem svar hæstv. ráðh. 1960 gaf í sambandi við undirbúning þessa merka og nauðsynlega máls, sem ég er alveg sannfærður um að á mikinn hljómgrunn meðal þjóðarinnar, ef forusta væri tekin upp fyrir því.