26.02.1964
Sameinað þing: 46. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í D-deild Alþingistíðinda. (3354)

805. mál, alþýðuskólar

Gunnar Gíslason:

Herra forseti. Á síðasta Alþ. voru samþ. lög um afhendingu Skálholts til þjóðkirkju Íslands. Það hefur að sjálfsögðu verið mikið rætt um það, hver skuli vera framtíð Skálholtsstaðar, hvað þar skuli vera og hvað þar skuli gera. Eitt af því, sem hefur verið nefnt í því sambandi, er kristilegur lýðskóli eða lýðháskóli. Mér er kunnugt um það, að prestastéttin styður þá hugmynd, og ég veit ekki betur en að því sé unnið, að sú hugmynd komist í framkvæmd. Ég vil aðeins minna á þetta í sambandi við þá fyrirspurn, sem hér er fram borin, um leið og ég fagna þeim orðum hæstv. menntmrh., að hann heitir öllum stuðningi sínum við hugmyndina um slíkan skóla, ef einhver samtök í landinu — kirkjan eða önnur — beita sér fyrir því og hafa áhuga á því, að slíkur skóli rísi í landinu.