11.03.1964
Sameinað þing: 52. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í D-deild Alþingistíðinda. (3376)

183. mál, stöðvun á fólksflótta úr Vestfjarðakjördæmi

Einar Olgeirason:

Herra forseti. Ég vildi aðeins segja það í sambandi við þær umr., sem hér hafa orðið um þetta mál, að þarna verða menn að gera sér ljóst, að það er um miklu djúpstæðari orsakir að ræða en þær, sem verða læknaðar með aðgerðum einhverra nefnda, eins og þeirrar, sem sett var með þeirri tili., sem þessi fsp. byggist á. Það, sem er að verki í eyðingu þessara byggða og í fólksflóttanum, er sjálft lögmál peningavaldsins, sem hefur þann eiginleika, að það dregur atvinnuna þangað, sem hún er fyrir, og hrannar saman á einn eða fáa staði, þar sem fjármagnið er fyrir, því fjármagni, sem er að skapast. Og lækningin við þessu er einvörðungu sú, að þjóðfélagið sjálft taki að sér vísvitandi stjórnina á þessu fjármagni, að þjóðfélagið sjálft ráði því, hvert þetta fjármagn fer, út frá því, sem þjóðhagslega er praktískt á hverjum tíma.

Það var gerð nokkur tilraun um þetta í tíð nýsköpunarstjórnarinnar með áætlunargerð þá og settir niður þá allmargir togarar á Vestfjörðum m.a., og það var gerð tilraun til þess aftur, þegar vinstri stjórnin var mynduð, að fá alveg skipulagt samstarf um það að skapa áætlunarráð, sem um leið væri bankaráð Seðlabankans, áætlunarráð ríkisstj., sem réði þar með yfir fjármagnsflutningunum í landinu. Alþfl. og Alþb. höfðu samstarf um að vilja gera þetta, en Framsfl. þverneitaði þá að fallast á það. Þetta er hins vegar eina ráðið, að mennirnir, að þjóðfélagið sjálft stjórni þróun fjármagnsins, staðsetningu atvinnutækjanna og miði þar við almennan þjóðarhag, en ekki við það, sem einstökum atvinnurekendum kann að finnast gróðavænlegt á hverju augnabliki. Ég held, að menn verði að hafa þetta í huga, þegar menn eru að ræða þessi miklu vandamál. Þetta er heildarþjóðfélagsvandamál, sem verður ekki stjórnað nema af þjóðfélaginu sjálfu og með aðgerðum svo að segja frá miðstöð þess. Það þarf, eins og hv. síðasti ræðumaður minntist á, ekki bara stjórn atvinnubótasjóðs, hann kom réttilega inn á, að hann gæti lítið. Það er stjórnin sjálf á allri fjárfestingunni í landinu, sem spurningin stendur þarna um. Það er heildarstjórnin á sjálfum þjóðarbúskapnum og fyrst og fremst fjárfestingunni í landinu, það er það, sem ræður fólksstraumnum, og það skulum við gera okkur ljóst. Meðan við þorum ekki að kryfja þetta til mergjar á þennan hátt og finna ráðið við þessu, eru sérstakar nefndir, jafnvel þótt við fáum sérfræðinga frá París, og slíkar aðgerðir þar eins og að kasta snjóboltum í helvíti.