11.03.1964
Sameinað þing: 52. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í D-deild Alþingistíðinda. (3379)

183. mál, stöðvun á fólksflótta úr Vestfjarðakjördæmi

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Út af ummælum, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. (MJ) lét falla hér áðan, vil ég láta það í ljós sem mína skoðun, svo að ekki orki tvímælis, að ég tel, að vinna beri gegn því og reyna að koma í veg fyrir það, eftir því sem unnt er, að lífvænleg byggðarlög fari í eyði, hvar sem er á landinu, það eigi að koma í veg fyrir það, ef unnt er. Hitt er svo annað mál, þó að ekki verði við því spornað, að einstök býli, sem eru illa sett að því er samgöngur varðar og að öðru leyti, fari í eyði, en þarna verður að gera mun á byggðarlögum og einstökum býlum. Lífvænleg byggðarlög eiga ekki að fara í eyði á þessu landi, ef unnt er að koma í veg fyrir það.

Ég skal nú ekki ræða mikið um þá till., sem er tilefni fsp. hér í dag, en ég get tekið undir það, sem hér kom fram áðan í umr., að út af fyrir sig er framkvæmd þessarar till. og áætlun, sem gerð er á nokkrum mánuðum, engin fullnaðarlausn í máli eins og þessu, en hún er bráðabirgðaaðgerð í málinu, sem Alþ. ætlaðist til í fyrra að framkvæmt yrði tafarlaust á skömmum tíma. Hitt er svo annað mál, að hér er um miklu stærra viðfangsefni að ræða, viðfangsefni á landsvísu, viðfangsefni á miklu breiðara grundvelli, því að þótt fólksfækkunin sé aðallega á Vestfjörðum, er hún miklu víðar. Við framsóknarmenn höfum flutt á þessu þingi í hv. Nd. frv. um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Þar er gert ráð fyrir því, að tilgangur l. sé að stuðla að jafnvægi í byggð landsins með rannsóknarstörfum, áætlanagerð og fjárhagslegum stuðningi til framkvæmda og eflingar atvinnulífi í þeim landshlutum, þar sem bein eða hlutfallsleg fólksfækkun hefur átt sér stað undanfarið eða er talin yfirvofandi. Ég hef hér yfir orðalag 1. gr. frv., með leyfi hæstv. forseta.

Það er gert ráð fyrir því að koma upp í þessu skyni fastri stofnun og að sú stofnun fái fastan tekjustofn, sem er tiltekinn í frv., tiltekinn hluti af ríkistekjunum. Og ég lít svo á og við aðrir, sem að þessu frv. stöndum, að í þessu máli gagni ekki annað en það sé sett upp föst stofnun og stöðug starfsemi á þessu sviði, stofnun, sem fylgist með þróuninni og geri þær till. og þær ráðstafanir, sem þróunin bendir til að þurfi að gera. Hitt er svo annað mál, að ég endurtek það, sem ég sagði áðan, að það er ekki nema gott um það að segja, að haft sé samráð við Norðmenn um slíka hluti, því að þeir hafa hafið myndarlegt framtak í sínum jafnvægismálum þegar fyrir áratug. En ég álít ekki, að við eigum að gera það á þann hátt að bíða í 1—2 ár eftir því, að þeir geti sent mann hingað, heldur eigum við að fara til þeirra og kynna okkur staðhættina hjá þeim og hvernig þeir hafa leyst sín mál. Þetta eru líka miklu betri vinnubrögð en að útlendingur sé fenginn til að koma hingað ókunnugur í þetta land til að gera till. hér. En það er vissulega ástæða til þess að kynna sér það, sem Norðmenn hafa gert í þessum málum. En þetta frv., sem við framsóknarmenn fluttum í hv. Nd. í byrjun þessa þings og var vísað til n. í októbermánuði, hefur enn ekki verið afgr. úr nefnd. Það er kannske sama værðin, sem því veldur, eins og sú værð, sem virðist hafa sýnt sig í framkvæmd þál., sem hér hefur verið vikið að.