18.03.1964
Sameinað þing: 54. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í D-deild Alþingistíðinda. (3386)

187. mál, lóðamál sjómannaskólans

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Við sjómannaskólann starfar húsbygginganefnd og hefur gert frá upphafi byggingarframkvæmda þar, og er formaður hennar nú Jónas Sigurðsson, skólastjóri stýrimannaskólans. Þar sem allar byggingarframkvæmdir og framkvæmdir varðandi bygginguna, þar á meðal lóðaframkvæmdir, eru í höndum þessarar húsbygginganefndar, beindi ég þessum fsp. til hennar og óskaði eftir því, að nefndin léti rn. í té skoðun sína eða svör við þessum spurningum hv. fyrirspyrjanda. Og n. hefur í bréfi til rn. látið í té þetta svar, sem ég skal leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta. Varðandi fyrri spurninguna segir húsbygginganefnd:

„Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af hálfu n., frá því að sjómannaskólinn tók til starfa, hafa lóðarmörk byggingarinnar ekki fengizt ákveðin enn sem komið er. Hins vegar leyfir n. sér að vona eftir síðustu viðræður, sem skólastjórar stýrimannaskólans og vélskólans hafa átt við borgarverkfræðing um þetta mál, að það muni verða leyst, áður en langt um líður.“

Um aðra spurninguna segir húsbygginganefndin:

„Nefndin telur ekki koma til greina að skipuleggja lóð sjómannaskólans, fyrr en endanlegur úrskurður er fenginn um lóðatakmörk byggingarinnar. Strax að honum fengnum hefur hún hugsað sér að gera ráðstafanir til, að lóðin verði skipulögð, og láta hefja vinnu við að ganga frá henni, eftir því sem fjárveiting leyfir, en til þessa hefur fjárveiting til frekari framkvæmda ekki verið fyrir hendi.“

Með þessu leyfi ég mér að vona, að fsp. sé fullsvarað.